muffins uppskriftir
DESCRIPTION
Tilvalið fyrir Clatronic Muffinsjárnið MM3336 eða hefðbundna ofna/eldavélarTRANSCRIPT
Muffins
1 bolli: 200‐250 ml 1 bolli smjörlíki: 225 gr
Gulrótaköku Muffins
Hráefni:
− 2 bollar hveiti − 2 bollar sykur
− 3 bollar gulrætur (rifnar niður) − 1 tsk lyftiduft − 1 tsk matarsódi − 1 tsk kanill
− 1 bolli jurtaolía − 4 stór Egg
Aðferð:
Hitið ofninn í 175°C og raðið formum á plötu Blandið saman þurrefnunum í skál
Hrærið við lítin hraða og bætir olíu og egg varleg saman við (hrærið svo við mikin hraða í 2‐3 mín)
Setjið deigið í formin (1/2‐2/3) Bakað í 20‐25 mín (styttri tími ef form eru lítil)
Eru tilbúin þegar tannstöngull sem stungin er í köku kemur hreinn upp.
Kælið niður og skreytið að vild, td. Með heimtilbúnu ostakremi eða BettyCrocker Frosting
OSTAKREM: 250 gr rjómaostur og 300 gr flórsykur (og smá sítrónusafa) hrært saman.
Vanillu Muffins
Hráefni: (12 kökur)
− 113 gr smjörlíki (við herbergishita) − 130 gr sykur − 3 stór egg
− 1 tsk vanilludropar − Börkur af 1 sítrónu (má sleppa)
− 195 gr hveiti − 1 ½ tsk lyftiduft
− ¼ tsk salt − 60 ml mjólk
Aðferð:
Hitið ofninn í 175°C og raðið formum á plötu Blandið saman smjörlíki og sykri þangað til það er létt og
samflétt Bætið við eggjunum, eitt í einu
Vaniludropar og sítrónuberki bætt við Þurrefnið helt saman við á meðan deig er hrært saman
Setjið deigið í formin (1/2‐2/3) Bakað í 18‐20 mín (styttri tími ef form eru lítil) eða þangað
til kökur eru orðnar gullinbrúnar Góðar hreinar eða með smjörkremi
Súkkulaði Muffins
Hráefni: (16 kökur)
− 50 gr kakóduft (Dutch prosessing) − 240 ml soðið vatn − 175 gr hveiti − 2 tsk lyftiduft − ½ tsk salt
− 113 gr smjörlíki (við herbergishita) − 200 gr sykur − 2 stór egg
− 2 tsk vanilludropar
Hitið ofnin í 180‐190°C, raðið upp 16 muffinsformum. Hrærið saman í lítilli skál sjóðandi heitu vatni og kakóduftinu. Látið kólna niður í herbergishitastig.
Blandið saman í annari skál hveiti, lyftiduft og salt. Blandið saman í hrærivélaskál smjörlíki og sykur þangað til það er orðið létt og dúnkennt. Bætið við eggjunum, eitt í
einu. Síðan er vanilludropum bætt við. Þurrefnunum bætt saman við og eingöngu hrært saman smá áður en kakó‐vatnið er bætt við og þá er deig hrært
saman þangað til það er samflétt. Setti í formin (2/3) og bakað í 16‐20 mín. Látið kólna
áður en krem er sett á
Bláberja Muffins
Hráefni: (12 kökur)
− 2 bollar bláber − 2 egg
− 2 bollar hveiti − 1 bolli sykur − ½ bolli mjólk
− ½ bolli smjörlíki (ca. 110‐115gr) − 1 tsk lyftiduft
− 1 tsk vanilludropar − ½ tk salt
Hitið ofnin í 175‐180°C
Hrærið saman smjörlíki, eggi, salti og sykri Blandið saman hveiti og lyftidufti og því svo saman við
eggjablönduna + mjólkin Bætið við vanilludropunum. Og í lokinn bætið bláberjanum
saman við með skeið eða sleikju. Bakið í ca 25 mín (Fer eftir stærð)
Jarðaberja Muffins
Hráefni: (7‐8 kökur)
− ¼ bolli matarolía − ½ bolli mjólk
− 1 egg − ½ tsk salt
− 2 tsk lyftiduft − ½ bolli sykur − 1 ¾ bolli hveiti
− 1 bolli jarðarber (skorin í bita)
Hitið ofnin í 190°C Hrærið saman olíu, mjólk og egg léttilega
Blandið saman hveiti, salt, lyftidufti og sykri. Bætið við jarðaberjunum og blandið þeim vel saman við
hveitiblönduna. Bætið vökvanum saman við og blandið vel saman
Sett í muffinsform ½‐ ¾ Bakið í 25 mín eða þangað til að múffan er gullinbrún og að
prjónn sem stunginn er í múffuna kemur hreinn út.
Epla Muffins
− 2 bollar hveiti − 1 tsk lyftiduft − ½ matarsódi − ½ tsk salt
− ½ bolli smjörlíki (ca.115gr) − 1 bolli sykur
− 2 egg − 1 ¼ stk vanilludropar
− 1 ½ tsk epli skorin í litla bita − 1/3 púðursykur − 1 tsk hveiti − 1/8 tsk kanill − 1 tsk smjörlíki
Hitið ofnin í 190°C
Blandið saman i skál, hveti, lyftidufti, matarsóda og salti Hrærið vel saman smjörlíki, sykri og eggjum. Bætið svo
vanillu út í, og eplunum Blandið þurrefnum saman við varlega.
Setið blönduna í Muffinsformin.... Blandið saman púðursykri, hveiti og kanil. Klípið svo
smjörlíkið ofan i og blandið saman. Sett ofan á Muffinsblönduna, i formin
Bakað í 20 mín í forhituðum ofni eða þangað til að prjón sem stungin er í köku kemur hreinn út.
Kókosmjöl Muffins
Hráefni:
− 80 gr smjörlíki, brætt − 2/3 bolli sykur
− 2 tsk vanilludropar − 1 egg
− ½ tsk salt − 2/3 bolli kókosmjöl
− 1 bolli hveiti − 1 tsk lyftiduft − 2/3 bolli mjólk
Hitið ofnin í 180°C Blandið saman smjörlíkinu, sykri og vanilludropum
Egg, kókosmjöl, hveiti og mjólk blandað vel saman við Set í muffinsform
Bakað í 10‐12 mín eða þangað til að þær eru bakaðar í gegn. Leyfið þeim að vera í formunum í 1 mín áður en
teknar af til kælingar á rimlagrind.
Kókosmjöl toppur
1 bolli kókosmjöl / 2 bolli flórsykur / 1 tsk smjörlíki, mjúkt / Bleikur matarlitur
Blandið öllu saman (nema litnum) í skál.
Bætið við ¼ bolla heitu vatni þangað til kremið er létt og þétt. Bandið matarltnum við. Sett á kökurnar og látið þorna.
Red Velvet Muffins
Tilvalið fyrir jólin eða valentínusardag vegna litarins Hráefni:
− 2 bolli hveiti m/1 tsk lyftiduti − 2 tsk kakó
− ¼ tsk matarsódi − ¾ bolli mjólk m/1 tsk white vinegar (buttermilk)
− 2 tsk rauður matarlitur − 120 gr smjörlíki, við herbergishita
− 1 bolli + 1 tsk sykur − 2 stór egg, við herbergishita
− ½ tsk vanilla
Hitið ofnin í 160‐170°C Hafið muffinsform tilbúin
Blandið saman hveiti, kakói, matarsóda og salti Blandið saman smjörlíki, sykri og vanillu í hrærivél,
þangað til að er létt og samflétt Bætið eggjum við, einu í einu –hrærið í 1 mín á milli
eggja. Mælið mjólkina og bætið við matarlitnum
Blandið saman þurrefnum við vökvana Setið í formin og bakið í um 12 mín.
Betty Crocker Cream cheese frosting hentar vel á þessa gerð muffins.
Súkkulaði Muffins m/Hvítu súkkulaði bitum
− 1 bolli hveiti − ½ bolli sykur − ¼ bolli kakó
− 1 ½ tsk lyftiduft − ½ tsk kanill − 1 stórt egg
− 1/3 bolli matarolía − 10 tsk mjólk (Nýmjólk) − 1 ¼ stk vanilludropar
− ½ bolli hvítt súkkulaði (skorið í litla bita)
Hitið ofnin í 190‐200°C Setjum í stóra skál; hveiti, sykur, kakó, lyftiduft og kanil Í litla skál eru eggið sett og hrært í því með gaffli, bætum svo mjólkinni, olíunni og vanilludropnum. Hrært vel saman Blöndunni bætt við þurrefnin. Blandað saman td. Með sleikju
Bætið við súkkulaðibitunum. Sett í form ca.2/3 af forminu og bakað í 15 mín.
Þegar múffurnar eru ný komnar úr ofninum er gott að setja þunna bita af hvítu súkkulaði á og látið bráðna, hægt að
dreifa betur á með gaffli eða tannstöngli.
Krem og skraut
Súkkulaði Muffins ‐ Kremið
Hráefni:
− 120 gr súkkulaði, spænir eða aðrir litlir bitar
− 150 gr smjörlíki (við herbergishita)
− 160 gr flórsykur (sigtað) − 1 ½ tsk vanilludropar
Aðferð:
Súkkulaði brætt í vatnsbaði. Tekið af hitanum þegar allt súkkulaðið hefur bráðnað og látið kólna
aðeins. Smjörlíkið hrært í hrærivél (eða með handþeytara)
þangað til létt og kremkennt (ca. 1 mín) Bættu við sykrinum og hrærið saman í 2 mín
Vanilludropunum bætt við og svo súkkulaðinu bætt við á meðan krem er hrært við lítin hraða
Hraði svo aukin í medium‐high og hrært saman þangað til að krem er orðið einlitt og létt (2‐3
mínútur)
Smjörkrem (td á vanillu muffins)
Hráefni: (ath stór uppskrift)
− 400 gr flórsykur (sigtaður) − 175 gr smjörlíki (við herbergishita)
− 1 eggjarauða − 1 tsk vanilludropar
− 2 tsk mjólk − Matarlitur eftir smekk
Aðferð:
Hrærið smjörið í hrærivél (eða með handþeytara) þangað til það sé orðið létt
Bætið við vanilludropum Blandið sykrinum smá saman saman við, hrært á meðan
Eggjarauðinni bætt saman við og hrært með miklum hraða þangað til kremið er orðið létt og dúnkennt. (3‐4 mín)
Bæta má við mjólk eða sykri eftir þörfum (of þykkt eða of þunnt) Matarlitur blanaður við
# Skreyta með kökuskrauti, lakkrískurli, marsipan fígúrum eða kókos.
Skreytingarkrem – fyrir skrautgerð e. Royal Icing
− Eggjahvítur (2 stór egg)
− 2 tsk ferskur sítrónusafi (eða vanilludropar) − 3 bollar flórsykur − Matarlitur eftir list
Blandið saman eggjahvítunum og sítrónusafanum með
handþeytara eða í hrærivél Setið svo flórsykurinn út í og hrærið á meðan við lágan
hraða, þangað til að blandan er létt og samfétt Nota þarf blönduna strax þar sem þetta skreytingarkrem
harnar fljótt.
Clatronic Muffinsjárn (MM3336)
Fæst í Elko
www.elko.is