grafarvogsbladid 11.tbl 2006

30
Grafarvogsblaðið Grafarvogsblaðið Dreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi 11. tbl. 17. árg. 2006 - nóvember Komdu beint til okkar! - og við tjónaskoðum í hvelli þér að kostnaðarlausu Bílastjarnan ehf. · Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686 ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005 ÍSLENSKA AUGLÝSINGASTOFAN/SIA.IS LBI 27159 01/2005 Eitt númer 410 4000 Við erum alltaf í leiðinni Landsbankinn leggur áherslu á faglega fjármálaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga í Grafarvogi. Við tökum vel á móti þér í útibúum okkar að Fjallkonuvegi 1 og Höfðabakka 9. Landsbankinn Banki allra landsmanna 410 4000 landsbanki.is Nemendur í Engjaskóla fögnuðu sigri á Grafarvogsleikunum sem er nýlega lokið. Sjá nánar í miðopnu Jólagjöf veiðimannsins Allar nánari upplýsingar á Krafla.is og í síma 698-2844 Gjöfin fyrir veiðimenn sem eiga allt Glæsileg viðarbox úr léttum mangóviði Gröfum nafn veiðimannsins á boxið Laxa- og silungaflugur- Fimm útgáfur Flugur í sérflokki - íslensk hönnun Vantar þig heimasíðu? Samkvæmt Hagstofu Íslands leita 86% Íslendinga sér upplýsinga um vöru og þjónustu á internetinu Engjaskóli sigraði

Upload: skrautas-ehf

Post on 24-Mar-2016

302 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

TRANSCRIPT

Page 1: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

GrafarvogsblaðiðGrafarvogsblaðiðDreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi11. tbl. 17. árg. 2006 - nóvember

Komdu beint til okkar!- og við tjónaskoðum í hvelli þér

að kostnaðarlausu

Bílastjarnan ehf. · Bæjarflöt 10 · 112 Reykjavík · Sími 567 8686

Bilastjarnan_02_001.ai 18.11.2004 15:18:40

ÍSL

ENSK

A AU

GLÝ

SIN

GAS

TOFA

N/S

IA.I

S L

BI 2

7159

01/

2005

ÍSL

ENSK

A AU

GLÝ

SIN

GAS

TOFA

N/S

IA.I

S L

BI 2

7159

01/

2005

Eitt númer

410 4000

Við erum alltaf í leiðinniLandsbankinn leggur áherslu á faglega fjármálaþjónustufyrir fyrirtæki og einstaklinga í Grafarvogi.

Við tökum vel á móti þér í útibúum okkar að Fjallkonuvegi 1 og Höfðabakka 9.

LandsbankinnBanki allra landsmanna

410 4000 landsbanki.is

Nemendur í Engjaskóla fögnuðu sigri á Grafarvogsleikunum sem er nýlega lokið. Sjá nánar í miðopnu

Jólagjöf veiðimannsins

Allar nánari upplýsingar á Krafla.is og í síma 698-2844

Gjöfin fyrir veiðimenn sem eiga alltGlæsileg viðarbox úr léttum mangóviðiGröfum nafn veiðimannsins á boxiðLaxa- og silungaflugur- Fimm útgáfurFlugur í sérflokki - íslensk hönnun

Vantar þigheimasíðu?Samkvæmt Hagstofu Íslands leita86% Íslendinga sér upplýsinga um

vöru og þjónustu á internetinu

Engjaskóli sigraði

Page 2: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Fréttir GV2

GrafarvogsblaðiðGrafarvogsblaðiðÚtgefandi: Skrautás ehf. Netfang: [email protected]óri og ábm.: Stefán Kristjánsson.Netfang Grafarvogsblaðsins: [email protected]órn og auglýsingar: Bíldshöfða 14 - Sími 587-9500 / 698-2844.Útlit og hönnun: Skrautás ehf.Auglýsingar: Sólveig Jóna Ögmundsdóttir, Stefán Kristjánsson.Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins.Ljósmyndari: Pjetur Sigurðsson.Dreifing: Íslandspóstur.Grafarvogsblaðinu er dreift ókeypis í öll hús og fyrirtæki í Grafarvogi.Einnig í Bryggjuhverfi og öll fyrirtæki í póstnúmeri 110.

Samgöngur og aldraðirEkkert útlit er fyrir að framkvæmdir við Sundabraut geti haf-

ist í nánustu framtíð. Alla vega ekki næstu tvö ef ekki þrjú árin.Nú berast þær fréttir að svokölluð jarðgangaleið eigi mjög vax-andi fylgi að fagna. Stendur nú yfir úttekt á þeirri framkvæmden sem kunnugt er fór hún ekki í umhverfismat á sínum tíma.

Nánast er hægt að fullyrða að hugmyndin um jarðgöngin ámestu fylgi að fagna meðal Grafarvogsbúa enda myndi sú leiðhafa minnst áhrif á umhverfið. En viðurkennt er að jarðgöngineru dýrust ef mið er tekið af öðrum leiðum sem verið hafa í um-ræðunni. Varla er það forsvaranlegt að horfa um of í kostnaðinnþegar jafn viðamikil framkvæmd er í húfi og lagning Sunda-brautar. Skiptir því í raun litlu máli hvort framkvæmdin kostarþúsund milljónunum meira eða minna. Stjórnmálamenn hafalýst því yfir að ákvörðun um legu Sundabrautar verði tekin í ná-grenni við næstu áramót. Bíða margir spenntir eftir niðurstöð-unni.

Ef mið er tekið af frægum Héðinsfjarðargöngum þar sem 8þúsund milljónum var nánast hent út um gluggann getur endan-legur kostnaður við Sundabraut varla skipt höfuðmáli. Þjóðfélagsem hefur efni á því að henda frá sér 8 milljörðum er rík þjóð ogfær í flestan sjó. Og til að færa nú enn ein rökin fyrir vitleysunnií Héðinsfirði má minna á að nú hefur einkafyrirtæki boðist tilað tvöflda stórhættulegan Suðurlandsveg fyrir sömu upphæð oghent var nyrðra. Ákvörðunin um framkvæmdir við Héðinsfjarð-argöng er einhver mestu pólitísku mistök sem framin hafa ver-ið hér á landi árum saman ef ekki áratugum og eru víti til aðvarast fyrir stjórnmálamenn í framtíðinni.

Í fréttum nýverið kom fram að enn í dag mega 400 eldri borg-arar búa við þær nöturlegu aðstæður að deila heimili sínu meðókunnugu fólki. Nú er ekki lengur talað um að aldrað fólk megisætta sig við að búa á tvíbýli eða þríbýli heldur fjórbýli eða jafn-vel fimmbýli. Hvernig getur þetta gerst? Hér eru brotin mann-réttindi á eldri borgurum út og suður og lítið um þetta fjallað ífjölmiðlum miðað við alvarleika málsins. Hvað segir yngra fólk-ið eða fólk á miðjum aldri um þessa stöðu? Finnst fólki á fimm-tugs- eða sextugsaldri það freistandi tilhugsun að þurfa eftirnokkur ár að flytja inn í lítið herbergi og hitta þar fyrir 2-4manneskjur sem það hefur aldrei áður séð á lífsleiðinni?

Auðvitað svara allir þessari spurningu neitandi. Nú hefurverið ákveðið að ráðast í byggingu 200 þjónustuíbúða fyrir aldr-aða í Reykjavík, helming þeirra í Spönginni hér í Grafarvogi.Þetta er góðra gjalda vert en annar hvergi nærri þeirri eftir-spurn sem fyrir er, kannski helming hennar. Stjórnmál snúastum forgangsröðun verkefna. Þetta neyðarástand í málefnumaldraðra sýnir að stjórnmálamenn hafa steinsofið á verðinummörg undanfarin ár. Það er löngu tímabært að aldrað fólk á Ís-landi búi við óskert mannréttindi. Og komið sé fram við þettafólk, bæði hvað húsnæði og laun varðar, eins og um manneskjursé að ræða en ekki eitthvað allt annað.

Stefán Kristjánsson

,,Það er búið að vera mjög mikiðað gera undanfarna daga en þó eigamargir eftir að skipta yfir á vetrar-dekkin. Það er um að gera fyrir fólkað drífa sig í þessu enda veturinngenginn í garð,’’ sagði ÞoirsteinnLárusson, eigandi Hjólbarðaverk-stæðis Grafarvogs, í samtali viðGrafarvogsblaðið.

Þann 1. nóvember var leyfilegt að

setja nagladekkin undir en enginákveðin dagsetning er í gildi varð-andi aðrar útgáfur vetrardekkja.

Vetur konungur er svo sannarlegagenginn í garð og því ekki eftir neinuað bíða fyrir bifreiðaeigendur að látaÞorstein og félaga smella vetrar-dekkjunum undir. Um að gera aðdrífa sig og forðast öngþveiti erfyrsti snjórinn fellur.

,,Grafarvogsbúar vita greinilegavel af okkur því það hefur veriðmeira og meira að gera með hverjuárinu sem líður. Við reynum að veitasnögga þjónustu og svo erum viðundir meðalverði samkvæmt nýrriverðkönnun hjá hjólbarðaverkstæð-um,’’ sagði Þorsteinn ennfremur.

Hjólbarðaverkstæði Grafarvogs ertil húsa að Gylfaflöt 3.

Sl. þriðjudag festi borgarstjórinn íReykjavík, Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-son, upp götuskilti nágrannavörsluvið Dverghamra í Grafarvogi.

Þetta er fyrsta gatan sem verður

merkt með þessum hætti.Skiltið verður tákn um virka ná-

grannavörslu þar sem íbúar takahöndum saman og verða ,,augu ogeyru’’ götunnar.

Sett voru upp skilti við innkeyrsluí götuna og við göngustíg sjávarmeg-in.

Þorsteinn Lárusson, eigandi Hjólbarðaverkstæðis Grafarvogs við Gylfaflöt, annar frá hægri, ásamt starfs-mönnum sínum hafa haft í nógu að snúast undanfarna daga. Enn eiga margir eftir að skipta yfir á vetrar-dekkin og um að gera að drífa sig í því. GV-mynd SK

[email protected]

Borgarstjóri í Dverghömrum

Tími vetrardekkjanna runninn upp

Vilhjálmur borgarstjóri kemur skiltinu fyrir við Dverghamra.

Page 3: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006
Page 4: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Við byrjum á einni sem er mjögeinföld og hentar vel þegar enginntími er til að elda. Þetta er bragð-mikill kjúklingaréttur

Snöggur1 heill kjúklingur. Skorin niðurMega að sjálfsögðu vera kjúkl-ingabringur (best) eða ef á aðkaupa inn hagkvæmt, leggir ogvængir.½ dós Sharewoods Bengal spicedmango shutney (fæst í Hagkaup-um/Nóatúni). Ekkert annaðmango kemur til greina. Búin aðprófa.3-4 dl. matreiðslurjómi.Kjúklingakrydd.Ostur að vild. Afgangar úr ísskáp.(Má sleppa).

Kjúklingur er settur í eldfastmót og kryddaður með kjúklinga-kryddi. Hitaður í 200 gráðum í ca.20 mínútur. Þarf að setja smá olíuí botn, en einnig má setja Egilsappelsín eða appelsínusafa 1 dl eftil er. Eftir þennan tíma, er mest af

vökva úr móti hellt úr (kjúklinga-fita) og rjóma, blönduðum meðspiced chutney, hellt yfir. Osti loksstráð yfir og aftur sett í ofn í 10mínútur.

Með þessu má hafa hrísgrjón,ofnbakað kryddað brauð og salatað eigin vali. Salat má t.d. kaupatilbúið í pakkningu og bæta síðanvið að eigin smekk, feta, papriku,

hnetum o.s.frv.

Eftirrétturinn er eitthvað semvið suðum saman til að koma orkuofan í dóttur okkar á þeim tímasem okkur fannst hún ekki borðaneitt. Við settum saman það semvið töldum að hún myndi borða ogútkoman sló í gegn hjá henni. Húnklárar þetta auðveldlega ein.

Æði heimasætunnarHveiti, smjör og sykur í pæ (böku)botn.3-4 epli.1 dl. sykur.2-3 dl. vökvi. Nota t.d. kók, appel-sín eða appelsínusafa.2 dl. rúsínur.2 msk. kanill.15 makkarónukökkur.150 gr. dökkt súkkulaði.

Pæbotn er mótaður í eldfast mótog hitaður í 15 - 20 mínútur við 180gráður. Epli er skorið í litla bita ogsett í pott með vökva og látið sjóðaí lokuðum potti við vægan hita í 20

mínútur. Rúsínum, sykri og kanilbætt út í og hrært í. Þegar bakaner tilbúin er sett ofan á hana muld-ar makkarónukökur og súkkul-aði. Síðan er innihald pottsinshellt yfir bökuna og sett í ofninn í10 mínútur í viðbót. Með þessu ernáttúrulega borinn fram ís ogrjómi.

Verði ykkur að góðu.

Matgoggurinn GV4

Kristín og Árninæstu matgoggar

Hólmfríður Haraldsdóttir og Helgi Lárusson, Veghúsum 17, skora áKristínu E. Björnsdóttur og Árna Guðbrandsson, Reykjafold 28, að komameð uppskriftir í næsta blað. Við birtum frá þeim girnilegar uppskriftir

í næsta Grafarvogsblaði sem kemur út 7. desember.

Kjúklingurog æði heima-

sætunnar- að hætti Hrafnhildar og Helga

Hólmfríður Haraldsdóttir og Helgi Lárusson ásamt dætrum sínum. GV-mynd PS

Debetkort með kreditheimild– vaxtalaus og án nokkurs kostnaðar!

DMK Debetkortið* er einstakt í sinni röð þar sem það hefur tvöfalda eiginleika – bæði debet og kredit! DMK Debetkortið fæst án árgjalds og er með 200 fríum færslum.

DMK Kreditheimildin* er nýjung hér á landi og er bæði vaxtalaus og án nokkurs kostnaðar. Það er góð tilfinning að eiga fyrir því sem maður ætlar að kaupa en stundum geta komið upp þær aðstæður að þörf er á að brúa bilið tímabundið. Þá kemur sér vel að eiga DMK Debetkort með kreditheimild!

Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron.is

Sæktu um DMK á spron.is

Aðrir þættir DMK þjónustunnar eru:

• DMK Yfirdráttarheimild• DMK Tiltektarlán• DMK Léttlán• DMK 90% íbúðalán• DMK Ráðgjöf• DMK Reglulegur sparnaður• DMK Tilboð

Fram til áramóta fá nýir viðskiptavinir í DMK gjafabréf fyrir tvo í Borgarleikhúsinu.

ARG

US

/ 06

-055

2

* skv. útlánareglum SPRON

Ljósmyndasýningin ,,Yfir höfuð’’ í Ársafni

Ljósmyndastofan Ásmynd hefur verið starfrækt í 3 ár í Árbænum aðHraunbæ 119, um þessar mundir. Af því tilefni verður opnuð ljósmyndasýn-ing í andyrri Ársafns, í Ásnum Hraunbæ, föstudaginn 10. nóvember næst-komandi. Heiti sýningarinnar er ,,Yfir höfuð’’. Allar myndirnar eru eftir Ás-dísi Jónsdóttir ljósmyndara og eru prentaðar á striga. Sýningin verður opiná sama tíma og bókasafnið.

Page 5: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

SPÖNGINNI S: 587 0740 - MJÓDDINNI S: 557 1291 - GLÆSIBÆ S: 553 7060 - BORGARNESI S: 437 1240

Þar sem þú kaupir skóna þína!

w w w. x e n a . i s

Gæða heilsuskór

Þú nærð lengra í CAMELVandaðir herra- og dömuskór í miklu úrvali

Gæða barnaskór Gæða heilsuskór

eru fáanlegir ínokkrum stærðum

yfir kálfa

Page 6: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Fréttir frá Miðgarði:

Stuðningsþjónusta

Hera Hallbera Björnsdóttir,frístundaráðgjafi

Miðgarði, þjónustumiðstöðGrafarvogs og Kjalarnesshera.hallbera.bjornsdott-

[email protected]

Ertu að leita að spenn-andi starfi?

Vilt þú vinna meðfólki?

Miðgarður, þjónustu-miðstöð Grafarvogs ogKjalarness, er að leita aðfólki til starfa sem hefuráhuga á að vinna með

fólki jafnt börnum semfullorðnum.

Starfið felst meðal ann-ars í því að rjúfa félags-lega einangrun og styðjaog hvetja til sjálfshjálparsvo sem með því að takaþátt í tómstundastarfi ogfélagslífi.

Vinnutími er sveigjan-legur og er frá 10-30 tímará mánuði.

Ef þú hefur áhuga eðavilt fá nánari upplýsing-ar vinsamlegast hafðusamband við KristínuSæmundsdóttur eða Ingi-björgu Sæmundsdóttur í

Miðgarði í síma 411 1400.Einnig má senda fyrir-spurnir í netföngin:

[email protected]

[email protected]

Grafarvogsdagurinn, hverfishá-tíð Grafarvogsbúa, var haldinn meðglæsibrag í níunda skipti laugar-daginn 9. september sl. Að venjukom mikill fjöldi fólks að undirbún-ingi hátíðarhaldanna og dagskráin,sem fram fór í Borgarholtsskóla,var mjög fjölbreytt þar sem allirgátu fundið eitthvað við sitt hæfi oger það mál manna að aldrei hafiþátttaka í hátíðarhöldunum veriðjafn mikil.

Grafarvogsdagurinn hefur fyrirlöngu fest sig í sessi sem lang-stærsta og umfangsmesta hverfis-hátíðin í Reykjavk og er reyndarfyrirmynd þeirra flestra. Upphaflegmarkmið dagsins voru að bætasamtakamátt íbúa hverfisins aukþess að skapa hverfisbúum, ungumsem öldnum, tækifæri til að sýna,skemmta eða taka þátt í stórummenningarviðburði og eru þau enní fullu gildi.

Að skipuleggja menningarhátíðlíkt og Grafarvogsdaginn krefstmikillar vinnu og ekki mögulegtnema margir leggi hönd á plóg. Áundanförnum árum hefur þeimfjölgað sem taka þátt í undirbún-ingi Grafarvogsdagsins þannig aðábyrgðin dreifist nú á fleiri hendur.Fjöldi stofnana og félaga koma aðundirbúningnum ár hvert með mis-mikilli aðkomu, s.s. Miðgarður,Gufunesbær, Borgarholtsskóli,

ungmennafélagið Fjölnir, grunn- ogleikskólarnir í hverfinu, Grafar-vogskirkja, skautafélagið Björninn,íbúasamtökin, skátafélagið Hamarog Íþróttamiðstöðin við Dalhús svoeinhverjir sé nefndir. Þá hafa fyrir-tæki í hverfinu og næsta nágrennilagt deginum lið með ýmiskonarframlögum í gegnum tíðina.

Grafarvogsbúar, til hamingjumeð vel heppnaðan Grafarvogsdagárið 2006.

FramtíðarskólinnUppeldis- og þjálfunarnám-skeið fyrir foreldra og börnÍ hraða og fjölbreytni nú-

tímans þurfa foreldrar sífelltað takast á við nýjungar íuppeldi barna sinna oghjálpa þeim að takast á viðlífið og tilveruna á farsælanhátt.

Börn eru stundum órólegog spennt, stundum líðurþeim illa, eru kvíðin, feimin,reið eða jafnvel döpur. Þettaeru allt hugsanir og tilfinn-ingar sem börn þurfa aðlæra að skilja og læra aðtakast á við. Og eins og íöðru er betra að takast á viðvandann á meðan hann ersmár heldur en þegar hanner orðinn mikill og byggjaþannig upp fyrir framtíðina.

Framtíðarskólinn býðurupp á úrræði fyrir foreldraog börn til að takast á viðdaglegt líf á árangursríkanhátt. Foreldrar og börn eigaað hafa aukið val um fræðsluog úrræði. Hér koma dæmium námskeið sem verða íboði í vetur.

Námskeið fyrir foreldra:Uppeldi sem virkar -

Færni til framtíðar. Fyrirforeldra yngri barna.

SOS námskeið. Uppeldis-námskeið fyrir foreldragrunnskólabarna.

PMT Foreldrafærni (Par-ent Management Training).Fyrir foreldra barna semsýna erfiða hegðun.

Námskeið fyrir börn ogunglinga:

LÆRT Á LÍFIÐ -þjálfunar-námskeið í ART (AggressionReplacement Training).Áhersluatriði: reiðistjórn-un, félagsfærni og siðferðis-leg rökhugsun.

REIÐISTJÓRNUN; Aðþekkja, viðurkenna og skiljatilfinningar sínar.

ÉG ÞORI, GET OGVIL........; Sjálfsstyrkingar-námskeið fyrir stelpur í 9. og10. bekk.

Framtíðarskólinn er sjálf-stæð deild í Miðgarði, þjón-ustumiðstöð Grafarvogs ogKjalarness, sem heldur utanum fræðslumál fyrir for-eldra, börn og starfsmennstofnana. Umsjónarmaðurskólans er Helgi Viborg,deildarstjóri í Miðgarði.

Framtíðarskólinn mungefa út bækling með dagskráhvers starfsárs en þar verðaupplýsingar um námskeiðog aðra starfsemi sem verð-ur í boði. Starfsemi Framtíð-arskólans verður auglýst íblöðum í Grafarvogsblaðinuog á heimasíðu skólans.

Upplýsingar eru veittar ísíma 411 1400 og [email protected]

Vel heppnaður Grafarvogsdagur

Grafarvogsdagurinn fór vel fram í alla staði. GV-mynd PS

Útivistarreglurbarna og unglinga

Útivistartími barna og ungmenna breyttist 1. september síðastliðinn en þá tók vetr-artíminn við og sá tími sem börn mega vera úti á kvöldin styttist. Frá 1. september til1. maí mega börn 12 ára og yngri vera úti til kl. 20 og 13-16 ára mega vera úti til kl. 22.Utan þessa tíma verða börn að vera í fylgd með fullorðnum. Þó má bregða út af þess-um reglum þegar 13-16 ára eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta-, eða æsku-lýðssamkomu.

Undanfarin ár hefur viðhorf til útivistarreglna breyst mikið enda hafa fleiri áttaðsig á mikilvægi þeirra fyrir heilsu og vellíðan barna og ungmenna. Börn og ungling-ar sem eru úti frameftir kvöldi eru líklegri til að fara fyrr að fikta við tóbak, áfengi eðaönnur vímuefni auk þess sem þau eru líklegri til að verða fyrir slysum ef þau eruþreytt og illa sofin.

Útivistarreglurnar eru landslög, foreldrar geta ekki leyft börnum að vera lengur útien lögin ákveða. Þeir geta hinsvegar sett sínar eigin reglur innan ramma útivistar-reglanna, kjósi þeir það.

FramtíðarskólinnNámskeið 2006-07

- Uppeldi sem virkar- færni tilframtíðar Foreldrarnám-skeið vegna 2-6 ára barna. 4x2 tím-ar

- SOS foreldranámskeið Foreldrarnámskeið vegna 3-12

ára barna. 6 x 2,5 tímar.- LÆRT Á LÍFIÐ (aggression

replacement training) þjálfunar-námskeið félagsfærni, reið-istjórnun og siðferðislegri rök-hugsun fyrir börn. 10 x 2 tímar.

- Reiðistjórnun fyrir 8-10, 11-13og 14-15 ára börn. 6 x 1 tími.

- Ég þori, get og vil... Sjálfstyrk-ingarnámskeið fyrir stelpur í 9-10.bekk. 6 x 2 tímar.

Einnig fyrirlestrar, kynningarog stuðningshópar.

Upplýsingar eru í síma 411 1400og [email protected]

Umsóknir berist til: Framtíðar-skólinn, MIÐGARÐI, LANG-ARIMA 21, eða [email protected]

Miðgarður, þjónustumiðstöðGrafarvogs og Kjalarness óskar eft-ir að ráða starfsfólk til að sinnaHeimaþjónustu.

Helstu verkefni:- Almenn þrif og félagslegur

stuðningur.- Menntunar og hæfniskröfur:

- Félagsliðamenntun æskileg ogreynsla af heimaþjónustu.

Ökuréttindi kostur.Sveiganleiki og færni í sam-

skiptum.Frumkvæði og skipulagshæfi-

leikar.Vinnutími er frá kl. 08:00 - 17:00

virka daga.Nánari upplýsingar veitir Anna

Lilja Sigurðardóttir, sími: 411-1400,netfang: [email protected]

Launakjör eru samkvæmt kjara-samningi Reykjavíkurborgar ogEflingar.

Heimaþjónusta - ÞjónustumiðstöðGrafarvogs og Kjalarness

Page 7: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006
Page 8: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006
Page 9: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Jafnréttisráð hefur ákveðið aðveita SPRON, fyrst allra fjármálafyr-irtækja, viðurkenningu ráðsins árið2006.

Meginástæða þeirrar ákvörðunarer að hjá SPRON er lögð sérstökáhersla á skýra jafnlaunasstefnu ogafstaða starfsmanna til stöðu jafn-réttis í fyrirtækinu er könnuð ár-lega.

SPRON er fjármálastofnun á göml-um merg, öflugt fyrirtæki sem sýnirgott fordæmi í jafnréttismálum. Alltfrá árinu 1997 hefur verið unnið eftirvirkri jafnréttisáætlun en sérstökjafnréttisnefnd hefur það verkefni aðfylgja henni eftir til hlítar. HjáSPRON eru 40 stjórnendur og þar af21 kona. Frá árinu 2004 hefur konumfjölgað í efstu stjórnendastöðum

SPRON. Formaður stjórnar SPRONer Hildur Petersen og hefur veriðþað frá árinu 2004.

Þá er sérstaklega til þess að takaað jafnlaunastefna er virk innan fyr-irtækisins. Það inniber að árlega erulaun karla og kvenna hjá fyrirtæk-inu skoðuð sérstaklega í þeim til-gangi að gæta jafnréttis og koma íveg fyrir að mismunun eigi sér stað.Formaður starfsmannafélagsSPRON hefur einnig heimild til að fáupplýsingar um launakjör starfs-manna í þeim tilgangi að gæta jafn-réttis í launamálum kynjanna.

Á hverju ári er framkvæmdvinnustaðagreining til að kanna hugstarfsmanna til ýmissa þátta í starfs-umhverfi SPRON. Þá er m.a. spurtum viðhorf til jafnréttismála hjá

SPRON og hvort starfsmenn hafiorðið fyrir kynferðislegu áreiti eðaeinelti á vinnustað. Auk vitneskjuum viðhorf starfsmanna hvetur

vinnustaðagreining til umræðu ogvekur athygli á viðbragðsáætlunSPRON í þessum efnum.

Jafnréttisráð telur að með þessum

starfsháttum sýni SPRON gott starfá sviði jafnréttismála og vill með við-urkenningunni hvetja önnur fyrir-tæki til líkrar starfsemi.

Fréttir GV10

SPRON færJafnréttisviður-kenningu 2006

Grænfáninn dreginn að húni við Foldaskóla að viðstöddu fjölmenni. GV-mynd PS

Arnbjörg Gylfadóttir, þjónustustjóri SPRON, með verðlaunin. GV-mynd PS

Foldaskólaafhentur

GrænfáninnÞriðjudaginn 14. nóvember sl. fékk Foldaskóli í Grafarvogi Grænfánann

sem er alþjóðleg viðurkenning og staðfesting á virku umhverfisstarfi.Foldaskóli fékk Grænfánann afhentan til næstu tveggja ára.

Skólar á grænni grein - Grænfáninn er alþjóðlegt verkefni til að aukaumhverfismennt og styrkja umhverfisstefnu í skólum. Þeir skólar sem viljakomast á græna grein í umhverfismálum leitast við að stíga skrefin sjö.Þegar því marki er náð fá skólarnir leyfi til að flagga Grænfánanum næstutvö ár en sú viðurkenning fæst endurnýjuð ef skólarnir halda áfram góðustarfi. Grænfáninn er umhverfismerki sem nýtur virðingar víða í Evrópusem tákn um árangursríka fræðslu og umhverfisstefnu í skólum. Skrefinsjö eru ákveðin verkefni sem efla vitund nemenda, kennara og annarrastarfsmanna skólans um umhverfismál. Verkefnin eru bæði til kennslu íbekk og til að bæta daglegan rekstur skóla. Þau auka þekkingu nemenda ogskólafólks og styrkja grunn að því að tekin sé ábyrg afstaða og innleiddarraunhæfar aðgerðir í umhverfismálum skóla. Jafnframt sýnir reynslan íEvrópu að skólar sem taka þátt í verkefninu geta sparað talsvert í rekstri.

Markmið verkefnisins er að:• Bæta umhverfi skólans, minnka úrgang og notkun á vatni og orku.• Efla samfélagskennd innan skólans.• Auka umhverfisvitund með menntun og verkefnum innan kennslustofu

og utan.• Styrkja lýðræðisleg vinnubrögð við stjórnun skólans þegar teknar eru

ákvarðanir sem varða nemendur.• Veita nemendum menntun og færni til að takast á við umhverfismál.• Efla alþjóðlega samkennd og tungumálakunnáttu.• Tengja skólann við samfélag sitt, fyrirtæki og almenning.Skólastjóri Foldaskóla er Kristinn Breiðfjörð Guðmundsson og aðstoðar-

skólastjóri er Kolbrún Ingólfsdóttir.

Page 10: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

... Í SPARNAÐI– til að mæta óvæntum fjárútlátum, t.d. ef bíllinn bilar eða húsnæðið þarfnast viðgerðar. Og já, líka ef börnin þurfa tannréttingar.

VARASPARNAÐUR

– til að safna fyrir öllu því sem hugurinn girnist, t.d. húsgögnum, heimilistækjum og utanlandsferðum. Eða bara fyrir því sem þú vilt!

NEYSLUSPARNAÐUR

– til að byggja upp fjárhagslega velgengni í framtíðinni, t.d. kaupa betra húsnæði eða sumarhús, fara í heimsreisu eða eiga fyrir menntun barnanna.

LANGTÍMASPARNAÐUR

Ný aðferð til að ná betri árangri í sparnaði.Farðu í næsta útibú Glitnis eða á www.glitnir.is og kláraðu málið!

Þrískiptur sparnaður Glitnis

FJÁRHAGSLEG VELGENGNI ÞÍN ER OKKAR VERKEFNI

Page 11: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Fréttir GV12

Nemendur í 10. bekk bökuðu og seldu gestum vöfflur.

Hamraskóli 15 áraVið héldum upp á daginn þann 1.

nóvember. Nemendur, foreldrar/for-ráðamenn og starfsmenn fóru ískrúðgöngu um hverfið. Eftir skrúð-gönguna var stutt athöfn utanhússþar sem aðstoðarskólastjóri fluttiávarp, fulltrúar foreldrafélagsins af-hentu góðar gjafir og nýtt merkiHamraskóla var kynnt. Merkiðhannaði Loftur Leifsson. Það voruþær Soffía Guðnadóttir og ÞóreyGylfadóttir sem starfað hafa lengstallra í Hamraskóla sem drógu fána

með nýju merki skólans að húni, enforeldrafélag Hamraskóla gaf skól-anum fánann í tilefni dagsins. Að at-höfn utanhúss lokinni tók við óform-leg dagskrá innandyra. Nemendaráðseldi vöfflur og kaffi. Nemendur oggestir gátu tekið þátt í ýmsum leikj-um innanhúss, eins og singstar,pókó, twister og/eða spilað á spil eðaí bingó. Nemendum var boðið í pizz-uveislu í hádeginu.

Fjöldi gesta kom í heimsókn ogvar mikið um að vera þar til nemend-

ur fóru heim. Við viljum gjarnanþakka þeim fjölmörgu sem heim-sóttu okkur á afmælinu. Að okkarmati tókst afmælishátíðin í alla staðivel, nemendur, starfsmenn og gestirskemmtu sér hið besta.

Hörður Hinriksson hafði veg ogvanda af undirbúningi og skipulagn-ingu afmælishátíðarinnar.

Á heimasíðunni okkar,www.hamraskoli.is er sérstakur af-mælisvefur þar sem hægt er aðskoða myndir frá deginum.

Krakkarnir tóku þátt í Sing Star ásamt gestum.

Krakkar í 10. bekk buðu nemendum í yngri bekkjunum upp á andlits-málningu. Á myndinni eru Ásta og Kristín Helga í 10. bekk.

Tvær góðar vinkonur, Lára Margrét og Sólrún, í 8. bekk.

Oddný og Guðbjörg í 8. bekk stjórnuðu bingói fyrir gesti.

Spennan í hámarki í bingóinu.

Árni og Guðni í 10. bekk létu sig ekki vanta í afmælið. Yngri krakkarnir kunnu vel að meta Sing Star.

Snókerinn er alltaf vinsæll hjá strákunum.

Page 12: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006
Page 13: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Fréttir GV14

Leikskólakrakkar sem litu við í Höfðabakkaútibúi Landsbankans fylgdust áhugasöm með.

Viðskiptavinir fengu sér kaffisopa og fylgdust vel með enda ekki á hverjum degi sem boðið er upp á leiksýn-ingu í bankaútibúi.

Gestum og gangandi boðið upp á leiksýningu í tilefni 120 ára afmæli Landsbanka Íslands:

Þann 1. júlí síðastliðinn voru 120ár liðin frá því Landsbankinn hófstarfsemi, en þá opnaði bankinnfyrstu afgreiðslu sína í Bakara-brekkunni sem eftir það var nefndBankastræti.

Vegleg afmælishátíð var haldin afþessu tilefni um land allt og í Reykja-vík fór hátiðin fram í miðborginni aðviðstöddum miklum fjölda fólks ogmyndaðist þjóðhátíðarstemming ásvæðinu.

Stjórn Landsbankans tók þáákvörðun að halda upp á þessi tíma-mót með veglegum hætti og eiga há-

tíðarhöldin að standa yfir í eitt áreða til 1. júlí á næsta ári.með marg-víslegum hætti.

Eitt af þeim fjölmörgu atriðumsem boðið hefur verið upp á er Far-andleikhús Landsbankans sem sýnirverkið ,,Brot úr sögu banka’’ og erleikdagskrá í léttum dúr þar semrakin er saga Landsbankans frá ár-inu 1886 til dagsins í dag. Leikhópur-inn hefur að undanförnu ferðast ámilli útibúa bankans hringinn íkringum landið.

Verkið var sýnt í Höfðabakkaúti-búi á dögunum að viðstöddum fjölda

áhorfenda. Sýningunni var frábær-lega vel tekið og vakti verðskuldaðahrifningu þeirra sem á horfðu. Höf-undur verksins er Felix Bergsson ogleikstjóri Valur Freyr Einarsson.Leikararnir fóru á kostum í leik sín-um en þeir voru Björgvin FransGíslason, Jakob Þór Einarsson ogKristjana Skúladóttir. ValdimarKristjónsson stjórnaði lifandi tón-list.

Að leiksýningunni lokinni komsíðan Sproti og skemmti yngsta fólk-inu. Boðið var upp á kaffi og kökureins og vera ber í afmælum.

Brot úr sögu banka

Starfsmenn Landsbankans í Höfðabakka fylgdust spenntir með gangi mála. GV-myndir AB Þessir viðskiptavinir Landsbankans fylgdust spenntir með.

Kristján Guðmundsson, útibússtjóri Landsbankans við Höfðabakka,bauð viðskiptavini velkomna.

Leikararnir Björgvin Frans Gíslason, Jakob Þór Einarsson og Krist-jana Skúladóttir fóru á kostum......

... og skiluðu sínum hlutverkum af mikilli prýði.

Hér var það Gleðibankinn sem tekinn var fyrir með tilþrifum.

Page 14: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

FrístundamiðstöðvadagurinnMiðvikudaginn 1.nóvember var fé-

lagsmiðstöðvadagurinn haldinn há-tíðlegur í Reykjavík.

Dagurinn var samstarfsverkefniþeirra 18 félagsmiðstöðva sem starfaí borginni og voru því allar mið-stöðvarnar í Grafarvogi opnar milli17 og 21.

Dagskráin var misjöfn á millistaða en á öllum stöðunum var for-eldrum og allri fjölskyldunni boðiðað kíkja í heimsókn. Þar gátu ungir

sem aldnir kynnt sér starfsemi sinn-ar félagsmiðstöðvar og skorað á hinakynslóðina í borðtennis og pool.Unglingarnir sýndu hvað í þeim bjóog skemmtu gestum og gangandimeð: söng, dansi, rappi, gítarleik ogleikrænum tilburðum.

Aðsókn var á flestum stöðumglimrandi góð og er það von allra aðþessi dagur sé kominn til að vera.Sjáumst að ári!

FréttirGV15

Þessar vinkonur tóku sig vel út.

Eins gott að vera liðugur i svona leik.Foreldrarnir fjölmenntu og létu ekki sitt eftir liggja.

GrafarvogsblaðiðGrafarvogsblaðiðDreift ókeypis í öll hús í Grafarvogi10. tbl. 17. árg. 2006 - október

70% íbúa í Grafarvogi lesa GrafarvogsblaðiðMest lesni fjölmiðillinn í GrafarvogiLangbesta verðið og mesti lesturinn

Jólablaði okkar verður dreift 7. desember

587-9500

Page 15: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Fréttir GV16

FréttirGV17

Dagana 25. október til 3. nóvemberhéldu félagsmiðstöðvarnar í Grafar-vogi sína árlegu Grafarvogsleika. Áþeim keppa félagsmiðstöðvarnar sín ímilli í hinum ýmsu íþróttagreinum,bæði hefðbundunum og óhefðbundn-um.

Leikarnir fóru fram nú með aðeins

breyttu sniði að því leyti að leikarnirdreifðust á tvær vikur í stað einnar áð-ur og keppniskvöldin voru fjögur í staðþriggja áður. Á meðal keppnisgreinavar fótbolti, kappát, softí, ,,dodgeball’’,,,guitar hero’’, billjard, stultuboðhlaupen þetta eru bara örfá dæmi um þærmargvíslegu greinar sem keppt var í.

Grafarvogsleikarnir enda alltaf á sam-eiginlegu balli og nú fór það fram í fé-lagsmiðstöðinni Fjörgyn í Foldaskóla.Nú í ár var metmæting en 365 ungling-ar úr öllum félagsmiðstöðvunumskemmtu sér frábærlega undir ferskumtónum frá DJ Lilla B. og fór ballið afarvel fram. Á ballinu voru sigurvegarar

heiðraðir og nú í ár sigraði félagsmið-stöðin Engyn í Engjaskóla. Fyrir höndGufunesbæjar vilja starfsmenn félags-miðstöðvanna þakka unglingunum fyr-ir frábæra leika.

Kveðja, Félagsmiðstöðvarnar Engyn,Fjörgyn, Flógyn, Frígyn/Tegyn, Græð-gyn, Nagyn, Sigyn og Sængyn.

Keppnin í snóker var spennandi.

Frábærir taktar í Dodgeball.

Kolbrún keppti fyrir Hamraskóla.

Keppendur frá Rimaskóla.

Þessir nemendur voru í miklu stuði á ballinu.

Axel í Foldskóla vann kappátið með glæsibrag.

Í byrjun var keppt í púsli. Þessir keppendur sýndu góð tilþrif í softí.

Keppnin á stultum var spennandi.

Knattspyrnan var vinsæl.

Keppendur spreyta sig í fótboltaspilinu.

Beðið eftir úrslitunum á ballinu í Fjörgyn.

Keppt í púsli.

Fulltrúar skólanna taka við bikurum.

Fjör á ballinu.

Hrafnhildur tekur við bikarnum fyrir hönd Engyn í Engjaskóla.

Strákarnir létu ekki sitt eftir liggja á ballinu.

Úrslitin tilkynnt og spennan mikil.

Grafarvogsleikar- Engjaskóli fór með

sigur af hólmi

Page 16: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Fréttir GV18

Jóliní skókassaÍ byrjun nóvember tóku nokkur frístundaheimili í Grafarvogi þátt í verk-

efninu Jól í skókassa en það er verkefni sem KFUM og KFUK standa að og felstí því að safna dóti í skókassa og senda út til bágstaddra barna í Úkraínu.

Krakkarnir sem tóku þátt í verkefninu komu með dót af ýmsum toga s.s.bíla, dúkkur, föndur, fatnað o.fl. sem þau settu í skókassa. Síðan var kössun-um pakkað inn í jólapappír og skráð á þá hvort innihaldið væri sérstaklegaætlað stelpu eða strák og fyrir hvaða aldur það hentaði.

Þátttaka í svona verkefni vekur krakkana örugglega til umhugsunar umkjör barna víða í heiminum og kennir þeim að það skiptir máli að rétta hjálp-arhönd.

Söfnuðu dóti í skókassa og sendu út til bágstaddra barna í Úkraínu:

Áhuginn var mikill og jólapakkarnir margir.

Það var nóg að gera hjá börnunum og pakkarnir merktir á ensku.

Stoltur með stóran pakka. Einbeitt dama að pakka í skókassa. Eins gott að merkja þetta vel - á ensku.

Stoltar dömur með fallega jólapakka handa bágstöddum börnum í Úkr-aínu.

Page 17: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Grillið í Grafarvogi Gylfaflöt 1-3 - 567-7974

Frábær tilboð íGULLNESTIFjölskyldutilboð:4 ostborgararStór af frönskumKokteilsósa2 ltr. af kók

2.150,-Frábært tilboð

Pylsa, Hraun og lítil kók í gleri

370,-Tilbo

ðin gi

lda fr

á 16.

- 26.

nóve

mbe

r

Page 18: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Fréttir GV20

Framhalds-skóla-

kynninginDagana 28. og 29. nóvember

næstkomandi kl. 18:00 - 20:00standa námsráðgjafar grunnskól-anna í Grafarvogi og á Kjalarnesifyrir sameiginlegri kynningu áframhaldsskólum.

Hér gefst nemendum og for-eldrum einstakt tækifæri til aðkynna sér skólana. Fulltrúar eft-irtalinna skóla mæta og segjastuttlega frá námsbrautum, inn-tökuskilyrðum og svara fyrir-spurnum.

Kynningarnar fara fram íBorgarholtsskóla

Og verða væntanlega sem hérsegir:

Þriðjudaginn 28. nóvember:Kl. 18:00 - 19:00

- Borgarholtsskóli.- Fjölbrautaskólinn í Breið-

holti.- Fjöltækniskólinn.

Kl. 19:00 - 20:00- Fjölbrautaskólinn við Ár-

múla.- Menntaskólinn í Kópavogi.- Iðnskólinn í Reykjavík.

Miðvikudaginn 29. nóvember:Kl. 18:00 - 19:00

- Kvennaskólinn í Reykjavík.- Menntaskólinn í Reykjavík.- Menntaskólinn við Sund.

Kl. 19:00 - 20:00- Menntaskólinn við Hamra-

hlíð.- Menntaskólinn Hraðbraut.- Verslunarskóli Íslands.

Vonandi er að allir nemendurog foreldrar nýti sér þetta tæki-færi og mæti til að kynna sér semflesta skólanna. Ætti það að auð-velda valið í vor.

Borgarstjóri á aðventukvöld-

inu 3. des.Ræðumaður á aðventukvöldi í

Grafarvogskirkju þann 3. desem-ber nk. verður Vilhjálmur Þ. Vil-hjálmsson, borgarstjóri í Reykja-vík.

Við munum birta ræðu Vil-hjálms í jólablaði Grafarvogs-blaðsins.

Bikarmót í listdansiBikarmót Skautasambands Ís-

lands í listdansi verður haldið íEgilshöll helgina 25.-26. nóvem-ber.

Mótið hefst kl: 08.00 báða dag-ana og má búast við mjögskemmtilegri keppni.

Laugardagskvöldið 21. október sl.spilaði 4. flokkur kvenna í handboltaí Fjölni, áheitaleik. Var þetta hluti affjáröflun vegna Svíþjóðarferðarflokksins næstkomandi sumar.

Fyrir leikinn gengu stelpurnar ííbúðarhús og fyrirtæki og var þeimtekið vel víðast hvar.

Spilað var frá kvöldi og fram ásunnudagsmorgun. Hinir ýmsu fjöl-skyldumeðlimir fengu að spreyta sigmeð stelpunum og sýndu gamla

takta og vakti framganga þeirramikla lukku. Þegar komið var langtfram á sunnudagsmorgun vorustúlkurnar og þeir sem með þeimvoru þreyttir en að sama skapiánægðir.

Það var öllum ljóst sem að þessustóðu að stelpurnar stóðu sig meðmikilli prýði í alla staði og vilja þærhér með þakka einstaklingum og fyr-irtækjum kærlega fyrir veittanstuðning.

Áheitaleikur Fjölnis-stelpna tókst mjög vel

Í skáksveitum Fjölnis eru áberandi keppendur á öllum aldri og af báð-um kynjum.

Öflug A sveit Fjölnis: Tomas Oral, Regina Pokorna, Faruk Tairi, Tóm-as Björnsson, Jón Árni Halldórsson og Ingvar Ásbjörnsson.

Hrafn Jökulsson skákfrömuður fór fyrir B-sveitinni. Sveitin vann allar sínar viðureignir. F.v. Hrafn, Hörður Aron, Dagur Andri, Vignir Bjarna-son og Sigríður Björg.

Þeir Patrekur Þórsson og Jón Trausti Harðarson voru að tefla sínar fyrstu keppnisskákir á Ís-landsmóti. Þessir 9 ára strákar eru nú þegar orðnir mjög góðir skákmenn.

Skákdrottningin Regina Pokorna kemur fráSlóvakíu. Hún tefldi einnig fjöltefli við 40krakka í Rimaskóla á vegum KB banka í Graf-arvogi.

Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga fór fram helgina20. - 22. október. Um 400 þátttakendur frá öllum lands-hornum og á öllum aldri tefldu undir sama þaki íMenntaskólanum við Hamrahlíð. Skákdeild Fjölnissendi fjögur lið til keppni. A sveit Fjölnis sem sigraði íþriðju deild í fyrra er strax komin með yfirburðarstöðueftir fyrri hlutann og fátt virðist koma í veg fyrir aðGrafarvogsbúar tefli í deild þeirra bestu á næsta vetri.Skákdeild Fjölnis hefur þurft að leita út fyrir landstein-ana að liðsmönnum enda flestir íslenskir skákmeistar-ar bundnir í sveitum eldri skákfélaga. Þau Tomas Oral

frá Tékklandi og Regina Pokorna frá Slóvakíu reynastFjölni góður liðsstyrkur og eru bæði ósigruð eftir fjórarumferðir af sjö. Skáksveit Fjölnis hefur eins og áðursegir góða forystu í 2. deild með 20 vinninga. Næstusveitir eru með 15,5 vinninga.

B, C og D skáksveitirnar tefla í fjórðu deild og eruskipaðar skákmeisturum á öllum aldri, mest bráðefni-legum grunnskólanemendum. B-sveitin er í 4 sæti af 28liðum. Skákfrömuðurinn Hrafn Jökulsson fer fyrirsveitinni og vann hann allar sínar skákir með glæsileg-um hætti. Seinni hluti Íslandsmótsins fer fram í byrjun

mars og verður þá áfram stefnt að öruggum sigri í 2.deild og að sæti í 1. deild að ári.

Að sögn Helga Árnasonar liðsstjóra og formannsskákdeildarinnar hafa markmið skákdeildarinnargengið eftir þ.e. að koma Fjölni upp í fyrstu deild og gefahinum ungu og efnilegu skákmönnum Fjölnis tækifæriá að tefla meðal þeirra bestu. Ingvar Ásbjörnsson nem-andi í Rimaskóla hefur átt fast sæti í A sveitinni og þauHörður Aron Hauksson, Dagur Andri Friðgeirsson ogSigríður Björg Helgadóttir sem öll eru á grunnskóla-aldri tefldu með B sveitinni og stóðu þar vel fyrir sínu.

Fjölnir á flugi upp í fyrstu deild

Stelpurnar í 4. flokki ásamt aðstoðarfólki.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,borgarstjóri í Reykjavík, flyt-ur ræðu á aðventukvöldi íGrafarvogskirkju þann 3.desember nk.

Page 19: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Alhliða líkamsrækt og sjúkraþjálfunEgilshöllinni

Simi: 594 9630

Leggðu inn á hei lsu-bankann fyrir jól inn

Tveggja mánaða kort 7.990 kr.-

1 Frír tími Föstudagsfjör

1 Frír tími í Jóga

1 Frír tími í spinningGildir út nóvember 2006

Gildir út nóvember 2006

Gildir út nóvember 2006

www.orkuverid.is

Fyrsta Íslandsmót vetrarins í handbolta 6. flokks karlavar haldið í Kaplakrika af FH. Fjölnir mætti með fjögur liðtil leiks, A-lið, B-lið og tvö C-lið. Fjölmargir foreldrarmættu til að styðja liðin og leikgleðin og baráttan ein-kenndi liðin í öllum leikjum. Strákarnir stóðu sig vel ogkomust þrjú liðanna í úrslit, sem er frábær árangur.

A-liðið sigraði mótið eftir spennandi úrslitaleik viðFram sem endaði 8-7. B-liðið stóð sig ágætlega, en komstekki upp úr riðlinum að þessu sinni. Annað C-liðið lenti í7. sæti og hitt C-liðið í 8. sæti.

Til hamingju með árangurinn strákar!

FréttirGV21

Íslandsmótið byrjarvel hjá 6. flokki karla

Dagskrá tileinkuðSigurbirni biskupi

EinarssyniÁ sunnudaginn 19. nóvember nk. kl.

10-14 verður dagskrá á Degi Orðsins íGrafarvogskirkju, sem tileinkuð erSigurbirni biskupi Einarssyni.

Dagur Orðsins er nú haldinn í fyrstasinn í Grafarvogskirkju. Í framtíðinniá hann að verða árviss viðburður íkirkjunni. Hann er hátíð Guðs orðs ogútleggingar þess.

Á þessum fyrsta Degi Orðsins heiðr-um við sérstaklega Sigurbjörn biskupEinarsson. Hann fagnaði 95 ára afmælisínu 30. júní síðastliðinn. Hann hefurgefið út tvær bækur á þessu ári: Meðanþín náð, ræðusafn og JátningarÁgústínusar. Hann hefur verið ein-stakur boðberi kirkju og kristni ímeira en sjö áratugi. Hann er sterkurprédikari, frábært sálmaskáld og mikilhæfur kennimaður. Honum verður hik-laust skipað í flokk með þeim andans jöfrum örðum sem við Íslendingar eig-um, eins og sr. Hallgrími Péturssyni, meistara Vídalín og sr. Matthíasi Joc-humssyni.

Kl. 10-11 á sunnudagsmorgun verða flutt fjögur stutt erindi um Sigurbjörnbiskup. Dr. Sigurður Árni Þórðarson, prestur í Neskirkju fjallar um kenni-manninn, dr. Svanur Kristjánsson, prófessor, fjallar um Sigurbjörn og pólitík-ina, dr. Margrét Eggertsdóttir, rannsóknaprófessor á Árnastofnun fjallar umsálmaskáldið og Guðrún Helgadóttir, rithöfundur og fyrrv. forseti Alþingismun segja frá því hvernig Sigurbjörn biskup hefur birst henni á opinberumvettvangi.

Kl. 11 verður messa í Grafarvogskirkju, þar sem Sigurbjörn biskup prédik-ar. Allir sálmar messunnar verða eftir Sigurbjörn biskup. Biskup Íslands,herra Karl Sigurbjörnsson þjónar fyrir altari ásamt prestum safnaðarins.

Í hádeginu verður boðið upp á léttar veitingar.Kl. 13-14 verður lesið úr verkum Sigurbjarnar biskups. Guðrún Ásmunds-

dóttir, leikkona, Gunnar Stefánsson, dagskárfulltrúi RÚV, Bryndís Pétursdótt-ir, leikkona, Hjörtur Pálsson, cand. mag., Halla Kjartansdóttir, menntaskóla-kennari og Sigmundur Ernir Rúnarsson, fréttastjóri og skáld lesa. Tónlistverður flutt á milli lestra.

Barnagæsla verður allan daginn í Grafarvogskirkju.Prestar og sóknarnefnd safnaðarins vonast til þess, að sem flestir sjái sér

fært að koma í Grafarvogskirkju á sunnudaginn kemur og heiðra Sigurbjörnbiskup með nærveru sinni. Bjarni Þór Bjarnason, prestur í Grafarvogssókn.

Hr. Sigurnjörn Einarsson biskup.

Strákarnir efnilegu í 6. flokki Fjölnis. Hér eru fram-tíðar handboltamenn á ferð. Á myndinni til hliðar erlagt á ráðin fyrir erfiðan leik.

Page 20: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Fréttir GV22

Laus störf í leikskólum

Viltu vinna í þínu hverfi? Þá höfum við störf fyrir þig .Laus störf í Grafarvogi.

Deildarstjórar.Hulduheimar, Vættaborgum 11, sími 586-1870. Staðan er laus um áramót..Lyngheimar, v/Mururima, sími 567-0277.

Leikskólakennarar/leiðbeinendur.Brekkuborg, Hlíðarhús 1, sími 567-9380..Engjaborg, Reyrengi 11, sími 587-9130..Fífuborg, Fífurima 13, sími 587-4515..Hamrar, Hamravík 12, sími 577-1240..Hulduheimar, Vættaborgum 11, sími 586-1870. Um er að ræða stöðu eftirhádegi..Laufskálar, Laufrima 9, sími 587-1140..Lyngheimar, v/Mururima, sími 567-0277.

Sérkennsla.Klettaborg, Dyrhömrum 5, sími 567-5970. Um er að ræða 75-100% stöðu.

Yfirmaður í eldhús.Hulduheimar, Vættaborgum 11, sími 586-1870..Klettaborg, Dyrhömrum 5, sími 567-5970.

Aðstoðarmaður í eldhúsi.Brekkuborg, Hlíðarhús 1, sími 567-9380.

Laus störf í Grafarholti

Leikskólakennarar/leiðbeinendur.Geislabaugur, Kristnibraut 26, sími 517-2560.Maríuborg, Maríubaug 3, sími 577-1125..Reynisholt, Gvendargeisla, sími 517-5560.

Aðstoð í eldhús.Maríubaugur, Maríubaug 3, sími 577-1125. Um er að ræða 75% starf.

Nánari upplýsingar um þessi störf veita leikskólastjórar í viðkomandi leik-skóla. Einnig veitir Starfsmannaþjónusta Menntasviðs upplýsingar í síma411-7000. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Reykjavíkurborgar við við-komandi stéttarfélag. Umsóknareyðublað og nánari upplýsingar um lausstörf er að finna á heimasíðunni www.menntasvid.is

Ævintýraferð 5. flokks til Eyja

Íslandsmót 5. flokks kvenna í handbolta hófst helgina 27.-29. október síðast-linn með móti í Vestmannaeyjum. Ekki var nú útlitið gott á föstudeginum,flug féll niður vegna veðurs og stórsjór var þannig að líðan margra þeirra fjöl-mörgu handboltastúlkna sem fóru með Herjólfi var ekki sem best. Fjölnis-stúlkur stóðu sig sem sannar hetjur í þeirri ferð og sýndu og sönnuðu að þarvoru miklir sægarpar á ferð.

Skemmtileg stemmning Mikil stemmning var í hópnum alla helgina, mótið var vel skipulagt af ÍBV-

fólki og veðrið sem Eyjamenn buðu upp á á laugardegi og sunnudegi var tilfyrirmyndar. Stelpurnar áttu góða spretti á mótinu, en komust ekki í úrslit aðþessu sinni.

Skóstuldurinn mikli Margir urðu heldur hissa eldsnemma á sunnudagsmorgni þegar hlaupa átti

út í íþróttahús að keppa, en þá fannst í besta falli annar skórinn í hillunum íanddyri barnaskólans þar sem liðin gistu. Eftir nokkra leit í ruslagámum ogí næsta umhverfi barnaskólans fannst einn og einn skór, en búið var að dreifaskónum um bæinn og fundust þeir oftast í görðum, en stundum uppi á þökumhúsa.

Hafa Eyjamenn löngum verið þekktir fyrir fjör og skemmtilegheit, en hérfannst mörgum of langt gengið. Stelpurnar í Fjölni fundu flestar sína skó, þófóru tvær skónum fátækari heim, en forsvarsmenn ÍBV tóku málið í sínarhendur, héldu leit áfram og lofuðu að leysa málið farsællega.

Sprangað á öðrum skónum og,,skemmtisigling’’ með Herjólfi:

Sprangað á öðrum skónum.

Valdís kát eftir að hafa fundið sinn skó uppi á húsþaki við Brekastíg.

Fjölnisstúlkur urðu illa úti í skóstuldinum, en flestar fundu sína skóáður en haldið var heim með Herjólfi.

Heimferðin með Herjólfi var þægileg í góðu veðri.

Page 21: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Besta vörnin í netverslun í dag

Tilvalin jólagjöf fyrirvandláta veiðimenn!

Framleiðandi Skrautás ehf - Bíldshöfða 14 - Sími: 587-9500 / 698-2844

Flugubox úr mangóviði og viðgröfum nafn veiðimannsins á

boxið - þéttsetið íslenskum flugum í allra fremstu röð!!

,,Flugurnar hans Krist-jáns Gíslasonar fráKrafla.is eru alltaf tilstaðar í mínum flugu-boxum og hafa reynstmér ómissandi í lax- ogsilungsveiði. Flugubox-in frá Kröflu eru stór-glæsileg,’’ segir SturlaÖrlygsson

Sturla Örlygsson með glæsilegan tveggja ára lax sem tók eina af Kröflu-flugunum í Hofsá sl. sumar.

Sjón er sögu ríkari!!Kíktu á www.Krafla.isÞar finnur þú gjöfina sem alla fluguveiðimenn dreymir um

Hágæðaflugur - íslensk hönnun

Page 22: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Enn eru 92 ung skólabörn á bið-lista eftir plássi á frístundaheimilun-um í Grafarvogi, Grafarholti og Ár-bæjarhverfi. Tæplega tvöhundruðforeldrar í þessum hverfum eru áhverjum degi í vandræðum með aðstunda atvinnu sína af því börninþeirra komast ekki að í frístunda-starfi borgarinnar. Þessu reyna for-eldrar að bjarga með ýmsum ráðum,einhver börn eiga eldri systkini semstundum eru búin í skólanum ásama tíma og geta passað þau, nokk-ur eru e.t.v. svo heppin að eiga ætt-ingja eða vini sem hægt er að leita tildag og dag. Sum eru ósköp dugleg oggeta stundum verið ein heima þar tileinhver eldri kemur heim. Það viljahins vegar engir foreldrar láta 6-8ára gömul börn sín vera ein heimajafnvel þótt þau séu dugleg. Þessvegna eru tæplega tvöhundruð pabb-ar og mömmur í Grafarvogi, Grafar-holti og Árbæ á daglegum þönum úrvinnunni að sækja börnin sín, takaþau með sér í vinnuna eða að takavinnuna með sér heim. Oftar þómömmur en pabbar ef marka máreynsluna.

Frá kl. 2 á daginn, flesta daga vik-unnar undanfarnar 13 vikur hafaþessir foreldrar verið í símanum aðathuga hvort börnin hafi skilað sérheim, athuga hvort allt sé í lagi þeg-ar eldri systkinin eru að passa, reddapössun hjá ættingjum og vinum eðahreinlega stinga af úr vinnunni.

Sumir hafa þurft að gefa eftir störfsín að hluta eða öllu leyti vegnaþessa langvarandi ástands. Margirhafa orðið fyrir verulegu tekjutapi.Ástandið er sérstaklega erfitt fyrireinstæða foreldra og foreldra barnameð þroskafrávik eða fötlun. Svonaer þetta búið að vera frá því skólinnhófst um miðjan ágúst. Samt varþetta alveg fyrirsjáanlegt.

Það skal tekið skýrt fram að þettaástand er engan veginn starfsfólkiÍTR um að kenna. Það hefur lagt ásig mikla vinnu og erfiði við að ráðabót á þessum vanda og þar hafastjórnendur gengið eins langt ogþeim er framast unnt innan þessramma sem þeim er settur. Sú vinnadugar hins vegar ekki til eins og hin-um pólitískt kjörnu fulltrúum á fyrirlöngu að vera orðið ljóst.

AthafnastjórnmálamennÍ lok maí tók við stjórn borgarinn-

ar fólk sem talaði um sjálft sig semathafnastjórnmálamenn, nýja gerðstjórnmálamanna sem eyddi ekkitímanum í samræður heldur létiverkin tala. Þetta ágæta fólk stóðdyggilega vörð um hagsmuni for-eldra í aðdraganda kosninga síðastavetur þegar mannekla var á leikskól-um og frístundaheimilum og krafð-ist þess að þáverandi meirihlutigerði eitthvað í málunum. Samfylk-ingin vék sér ekki undan þeirri póli-tísku ábyrgð, djörf ákvörðun var

tekin um að hækka laun þeirra lægstlaunuðu og ástandið batnaði tilmuna.

Það er hins vegar viðvarandiþensluástand í þjóðfélaginu og þessvegna erfitt að ráða fólk í lágt launuðog krefjandi störf. Það er heldur ekkiendalaust hægt að hækka laun, núþarf að leita fleiri leiða, greinaástandið, ræða við þá sem að málinukoma og finna lausn á vandanum.

Í lok maí vissu allir að þensluá-standinumyndifylgjamanneklaá frí-stunda-heimilumnú í haust.FulltrúarSamfylk-ingarinnarvöktu athygli á þessum vanda áfyrsta fundi nýskipaðs íþrótta- ogtómstundaráðs 23. júní í sumar. For-maður Íþrótta- og tómstundaráðs, at-hafnastjórnmálamaðurinn BjörnIngi Hrafnsson, hélt samt ekki ann-an fund fyrr en 11. ágúst eða rétt áð-ur en börnin áttu að mæta í skólann.Á þeim fundi voru biðlistar skoðaðirog málið rætt, fingur krossaðir ogvonað að nú færi fólk að hópast ívinnu hjá frístundaheimilunum. Þaðgerðist hins vegar ekki.

Næsti fundur var ekki haldinn

fyrr en 6 vikum síðar, 22. september.Þá ítrekaði Samfylkingin nauðsynþess að gera eitthvað í málunum. Aðrætt yrði við fagaðila og foreldra ogfundin lausn. Ítrekaði að börn og for-eldrar biðu í erfiðri stöðu.

Í 13 vikur hafa foreldrar í hund-raðatali þurft að stelast fyrr heim úrvinnunni, taka vinnuna með sérheim eða börnin sín með í vinnuna. Í13 vikur hafa börn þurft að bíða einheima

eftirskóla eða vera á þeytingi á millistaða og ýmissa aðila sem geta litiðeftir þeim stund og stund. Athafna-stjórnmálamaðurinn hefur haft 23vikur til að leysa málið. 10 vikur áð-ur en biðlistar urðu vandamál og 13vikur eftir að þeir urðu vandamál.Oddvitinn sem í vor sagðist ætla að"hugsa stórt, horfa langt og byrjastrax".

Leysum vandannNú er fyrirkomulagið þannig að

einungis er hægt að kaupa fulla frí-stundavistun eða enga. Þetta tel égekki heppilegt fyrirkomulag við nú-verandi aðstæður. Samfylkingin íÍþrótta- og tómstundaráði hefur tal-að fyrir því að kannaðir yrðu mögu-leikar á hlutavistun, t.d. 3-4 daga íviku. Ég tel að margir foreldrarmyndu velja slíka leið ef þeir ættukost á því. Suma daga eru nefnilegabörn að fara í skipulagt tómstunda-starf, stundum er einhver heima ogsuma daga er maður kannski búinnfyrr í vinnunni og vill njóta dagsinsmeð barninu sínu. Þá er óþarfi aðvera að borga fyrir fulla vistun alla 5dagana. Óþarfi að taka frá pláss semeinhvern annan vantar.

Í þeim skólum í Grafarvogi, Graf-arholti og Árbæ þar sem börn eru ábiðlista eru tæplega 333 börn meðfulla vistun. Ef þriðjungi þeirranægir að vera með vistun 3-4 daga íviku er nánast komin 3-4 daga vistunfyrir þau 92 börn sem bíða eftirplássi.

Ég skora á þá sem það geta og viljaað hringja í þjónustusíma Reykjavík-urborgar, 4 11 11 11, fá samband viðfrístundaheimili síns skóla og biðjaum hlutavistun. Það myndi skapapláss fyrir börn sem hafa beðið eftirfrístundavistun í 13 vikur. Leysumvandann.

Dofri Hermannsson varaborgarfull-trúi Samfylkingarinnar og fulltrúi í

hverfisráði Grafarvogs.

Fréttir GV24

Dofri Hermannsson,varaborgarfulltrúi ogfulltrúi í HverfisráðiGrafarvogs, skrifar:

AB Vara-hlutir 10 ára

Leysum biðlistavandann

,,Við hjá AB-Varahlutum leggj-um áherslu á að bjóða gæðavöru ábetra verði og eru allar vörur okk-ar gæðavottaðar,’’ segir Jón S.Pálsson, eigandi verslunarinnarAB-Varahlutir að Bíldshöfða 18.Fyrirtækið var stofnað árið 1996og er því 10 ára um þessar mund-ir.

AB-Varahlutir sérhæfir sig ísölu bifreiðavarahluta og kjörorð-ið er ,,Betri vara - betra verð’’.Áhersla fyrirtækisins hefur veriðá að þjónusta bifreiðar sem fram-leiddar eru í Asíu og Evrópu eðaþær tegundir sem algengastar eruá markaðnum hverju sinni.

AB-Varahlutir bjóða upp á gottúrval boddíhluta, ökuljós ogspegla, sem og slithluti, t.d.hemlahluti, stýrishluti, spyrnur,hjólalegur, öxulliði, öxulhosur,reimar og kúplingasett.

,,Okkar aðalsmerki er að eigahlutina til á lager en í þeim tilfell-um sem svo er ekki þá tekur þaðaðeins 10-14 daga að útvega hlut-ina þar sem allir okkar birgjareru innan Evrópu. Einnig bjóðumvið upp á hraðpantanir sem taka

enn styttri tíma,’’ segir Jón.Eins og áður sagði leggja AB-

Varahlutir áherslu á að bjóðagæðavöru á betra verði og eru all-ar vörur fyrirtækisins gæðavott-aðar með ISO-staðli. Fyrir utan aðvera orðnir stærstir á eftirmark-aði í sölu boddíhluta selja AB-Varahlutir almenna bifreiðavara-hluti þar sem þekkt og öruggvörumerki eru höfð í fyrirrúmi.Þá má geta þess að AB-Varahlutirhafa frá upphafi haft í sölu allaekta (original) varahluti fyrirToyota bifreiðar ásamt rafgeym-um, olíum og hreinsivörum fráToyota.

,,Við höfum ávallt lagt upp meðað veita persónulega þjónustu ogvið höfum byggt upp traustan hópviðskiptavina. Við þjónustumhvort heldur sem er bifreiðaverk-stæði og almenning og höfum þaðalltaf að markmiði að vera ,,bestirí þína þágu,’’ sagði Jón S. Pálsson.

AB-Varahlutir eru til húsa aðBíldshöfða 18. Slóðin á heimasíðufyrirtækisins er www.abvarahlut-ir.is og síminn 567-6020.

,,Við þjónustum hvort heldur sem er bifreiðaverkstæði og almenning og höfum það alltaf að mark-miði að vera ,,bestir í þína þágu,’’ sagði Jón S. Pálsson, eigandi AB-Varahluta, Bíldshöfða 18.

GV-mynd PS

Fyrirtækjakynning GV:

Page 23: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Skv

ass SKVASS FYRIR KRAKKA

OG UNGLINGA

Ungl inga- og krakkastarf ið er haf ið.Nánari upplýsingar hjá afgreiðslu

Veggsports í s íma 577 5555.

SKVASSFÉLAG REYKJAVÍKUR

SKVASSFÉLAG REYKJAVÍKUR

FréttirGV25

Haldið var uppá 94 ára afmæli íslenskra skáta í skátaheimilinu 2. nóvembersíðastliðinn. Þá voru 28 skátar og ylfingar vígðir inní skátahreyfinguna í hefð-bundinni vígsluathöfn þar sem skátarnir fóru með skátaheitið. Til að getavígst sem skáti þurfa skátarnir að kunna skil á ýmsum atriðum tengdu skáta-starfi en einnig landi og þjóð. Meðal annars þurfa þau að þekkja sögu skáta-hreyfingarinnar, skátalögin, hver er forseti þjóðarinnar, 1 erindi þjóðsöngs-ins og fleira.

Að vígslu lokinni var kvöldvaka þar sem skátar og foreldrar tóku vel undirí fjörugum skátalögum. Eftir að hafa þanið raddböndin voru allir leystir útmeð nýbökuðum vöfflum og kakó.

28 nýir skátar ogylfingar vígðir

Öldurnar – nývígðar sem sjóskátar.

Sjóskátar vígðir í skátahreyfinguna.

Nývígðir skátar.

Foringjar úr Hamri.

Skátar úr Drekasveit vígðir í skátahreyfinguna.

Skátar úr Drekasveit vígðir í skátahreyfinguna.

- kvöldvaka á 94 ára afmæli íslenskra skáta

Page 24: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Frístundakortin klár !Meirihlutinn í borgarstjórn hefur nú mótað

tillögur um að öll börn 6-18 ára geti valið séríþrótta - og tómstundaiðju án teljandi kostnað-ar.

Tillögurnar taka gildi um mitt næsta ár og

miða að því að niðurgreiða frístundastarfbarna um kr. 12.000. - í upphafi en verði komið íkr. 40.000.- á hvert barna 1. janúar 2009. Hug-myndin er að jafna möguleika allra barna til aðstunda íþrótta - og tómstundastarf og um leiðað efla forvarnarstarf í Reykjavík. Frístunda-

kortin koma sér vel og skila vonandi öflugri ogheilbrigðari einstaklingum.

Hverfisráð Grafarvogs hefur boðið ungmenn-aráði Grafarvogs, fulltrúum grunn - og fram-haldsskóla hverfisins til umræðu um stöðuungs fólks í hverfinu, áherslur og framtíðarsýn.

Unglingarnir í hverfinu er fyrirmyndþeirra sem yngri eru og því er ábyrgðþeirra mikil. Það er mikilvægt að ung-lingunum líði vel ogað það sé til staðarnægjanlegt framboðafþreyingar og tóm-stunda innan hverf-isins. Mikilvægisamkenndar og ster-krar sjálfsmyndar,ánægju með skólannsinn og hlutdeildar ívinahóp er sýn sem við sjá rætast.

Jarðgöng möguleg leið?Ekki hefur verið tekin afstaða til

þeirra möguleika sem nú eru til skoð-unar hjá Vegagerð og borgaryfirvöldumvegna lagningu Sundabrautar. Vit-neskjan um mögulega brúarfram-kvæmd hefur hvílt þungt á íbúumHamra - og Bryggjuhverfis og fátt veriðmeira rætt en mögulegar nýjar lausnirá því umferðarmannvirki. Nú er tilskoðunar lausn sem ekki var sett í um-hverfismat á sínum tíma en áhugibeindist að en það er jarðgangnagerð.Það er leiðin sem flestir álíta farsælustuleiðina og hefur minnst áhrif á núver-

andi byggð við voginn. Leggjum áherslu á þáleið þegar við fjöllum um málið og treystumþví að trúin flytji fjöll.

Bálfarir í GrafarvogiFormaður hverfisráðs Grafarvogs hefur

farið þess á leit við Kirkjugarða Reykjavíkurað hætt verið viðfyrirhugaða bál-

stofu (líkbrennslu)sem gert er ráð fyrir í uppbyggingu við Gufun-eskirkjugarð. Það er ljóst að hér er um gríðar-lega tilfinningalegt og viðkvæmt mál að ræða.Þrátt fyrir nýja tækni við bálfarir hafa marg-ir Grafarvogsbúar lýst óánægju sinni meðþessi áform.

Það er von undirritaðs að KirkjugarðarReykjavíkur dragi þessa fyrirætlan sína útúruppbyggingaráformum sínum og komi að þvíleiti til móts við óskir íbúa í Grafarvogi. Þáeru íbúar ósáttir við að ekki var boðað til ítar-legri kynningar en raun var á, áður en fram-kvæmdir hófust.

Ragnar Sær RagnarssonVaraborgarfulltrúi og formaður

hverfisráðs í Grafarvogi

Fréttir GV26

Kæru viðskiptavinir!Dagana 16. nóvember til 7. desember fá allir viðskiptavinirokkar sem panta lit og strípur PARAFIN handarmeðferð

Hafið samband til að fá frekari upplýsingar

Hársnyrtistofan HöfuðlausnirFoldatorginu - Hverafold 1-3 112 Reykjavík Sími: 567-6330 - www.hofudlausnir.is

Opið: Mán 08.00-18.00 - þri - fim 09.00-18.00 fös 08:00-18:00 Pöntunarsími: 567-6330

Umræðan í Grafarvogi

Ragnar Sær Ragnarsson,varaborgarfulltrúi og for-maður Hverfisráðs Grafar-vogs, skrifar:

Foreldrar þekkja af eigin raun að það er dýrt að eiga börn sem stunda íþróttir og annað tóm-stundastarf. ,,Hugmyndin er að jafna möguleika allra barna og unglinga til að stunda íþrótta-og tómstundastarf og um leið að efla forvarnarstarf í Reykjavík,’’ segir Ragnar Sær meðalannars í grein sinni.

- Frístundakortin klár - Jarðgöng möguleg leið - Bálfarir í Grafarvogi

Page 25: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

FréttirGV27

Allar

pizzur af matseðli

og allt gos á 150 kr.

Tilboð gildir aðeins í Grafarvogi.

Gildir til 19. nóvember

PIP

AR

SÍA

60

70

7

Japanskirþema-dagar í

HúsaskólaÞemadagar voru 1.-3. nóvember í

Húsaskóla og var viðfangsefnið Jap-an. Nemendum skólans var skipt íhópa og fengu þeir eitt verkefni ádag.

Yngsta stig Húsaskóla (1.-4. bekk-ur) var skipt í 9-10 hópa og gerðunemendur margt skemmtilegt t.d.úrklippur, horfðu á video um Japan ásal, bjuggu til kort og plöntur fráJapan og unnu með origami.

Miðstigið (5.-7. bekkur) fjallaði umBúddatrú, nemendur teiknuðulandakort og fræddust um það, skrif-uðu japanskt letur á boli, elduðu jap-anskan mat (sushi og vorrúllur) ogfræddust um eldfjöllin í Japan.Einnig skrifuðu nemendur á ís-lensku og japönsku ,,velkomin íHúsaskóla’’ á borða sem var hengdurupp í miðrýmis skólans.

Nemendur á unglingastigi (8.-10.bekkur) teiknuðu teiknimyndaper-sónur (manga) og landakort af Jap-an, kynntust landi og þjóð, skrifuðuljóð (haikur), lærðu um kúluskít,brutu pappírsbrot (origami), frædd-ust um japanskt handverk og hernaðJapana (samurai), skrifuðu japanskastafi og leystu Sudoku þrautir.

Í hádeginu á fimmtudeginum 2.nóvember borðuðu allir japanskanmat með prjónum, kjúkling í teriy-aki sósu með hrísgrjónum. Japönskkona að nafni Kana kom frá jap-anska sendiráðinu og fræddi nem-endur og kennara um komonoklæðnað og japanska hluti á bóka-safninu.

Bæði nemendur og kennararhöfðu bæði gagn og gaman af og varþetta kærkomin viðbót við hefð-bundið skólastarf.

Þessar ungu dömur máluðu glæsileg listaverk.Þessar vinkonur elduðu sushi og vorrúllur að hætti Japana.

Þessi var glæsileg í japönskumklæðnaði.

Page 26: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Skákdeild Fjölnis stóð annað árið í röð fyrirskákmóti á Torginu, verslunarmiðstöðinni íHverafold 1 - 3. Mótið er haldið í samstarfi viðfyrirtæki á Torginu sem gefa öll verðlaun tilmótsins. Rúmlega 30 börn og unglingar skráðusig til leiks og tefldar voru sex umferðir. Þaðvar heiðursfomaður Fjölnis Snorri Hjaltasonsem lék fyrsta leikinn á mótinu. Snorri fluttiskörulegt ávarp og hvatti hina ungu keppendurog liðsmenn Fjölnis í skákinni til dáða. Hannsagðist hreykinn yfir því að Umf. Fjölnir hefðiinnan sinna banda eitt öflugasta skákfélaglandsins. Þátttakendur á mótinu voru allt fránýgræðingum og upp í núverandi Norður-landameistara.

Það var Hörður Aron Hauksson Fjölni semvann Torg-skákmótið og fékk 5,5 vinninga afsex. Sigríður Björg Helgadóttir Fjölni varð íöðru sæti og efst stúlkna með 5 vinninga. Húnog Hörður Aron voru þau einu sem ekki töpuðuskákum á mótinu og fengu þau verðlaun fráKB-banka að launum. Í næstu sætum urðu þeirDagur Andri Friðgeirsson Fjölni, Daði Ómars-son TR og Matthías Pétursson TR. Verðlaunfyrir níu ára og yngri fengu þeir Patrekur Þórs-son, Jón Trausti Harðarson og Dagur Ragnars-son sem allir eru í Fjölni. Skákstjórn var áherðum þeirra Finns Finnssonar og HelgaÁrnasonar og gekk mótið hratt og vel fyrir sig.Fjölmargir áhorfendur sem leið áttu um versl-unarmiðstöðina fylgdust með einbeittum kepp-endum.

Foldaskálinn færði öllum þátttakendum veit-ingar í hléi og að loknu móti var happadrætti ápítsum frá Papinos - pizza. Stúdíóblóm-Runni,Bókabúðin, Höfuðlausnir, KB banki, Smíðabærog Stúlkur og stælgæjar gáfu verðlaun á skákmót-ið.

Fréttir GV28

SérkennslaLeikskólinn Korpukot auglýsir eftir áhugasömum aðila í hlutastarf

til að annast sérkennslu.

Leikskólinn leggur áherslu á nám og þroska í gegnum leik og starf.

Æskilegir eiginleikar.

. Háskólamenntun á sviði leikskólakennslu, þroskaþjálfunar, upp-eldis- og/eða sálfræði.. Færni í mannlegum samskiptum.. Skipulagshæfni, áreiðanleiki og nákvæmni í starfi.

Áhugasamir hafi samband í síma 577-1900 / 586-1400

LEIKSKÓLARNIR FOSSAKOT OG KORPUKOTEinkaleikskólarnir Fossakot og Korpukot í Grafarvogiauglýsa eftir leikskólakennurum, þroskaþjálfa og leið-

beinendum sem fyrst.Skemmtileg vinnuaðstaða í vel búnum leikskólum þar

sem unnið er með mikilvægasta fólki í heimi.Áhugasamir hafi samband við skrifstofu

í síma 577-1900 eða sendi tölvupóst á [email protected]

FOSSAKOT KORPUKOTFOSSALEYNI 4 FOSSALEYNI 12

Munið að pantatímanlega fyrir jólin!

Verðlaunahafar skákmótsins fengu góða vinninga frá fyrirtækjum í Torginu.

Fjölmennt TORG-skákmót Fjölnis

Snorri Hjaltason heiðursformaður Fjölnis leikur fyrsta leik-inn fyrir Matthías Pétursson Norðurlandameistara úr sveitLaugalækjarskóla.

Verslunarmiðstöðin Torginu er líka ákjósanlegur staður til að halda fjölmenn skákmót.

Sigurvegarar mótsins. Þau Hörður Aron Hauksson og Sigríður BjörgHelgadóttir urðu efst á TORG-skákmóti Fjölnis og þau einu sem töpuðuekki skák.

Page 27: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

FréttirGV29

Sunddeild Fjölnis stóð fyrir ung-lingamóti 3.-5. nóvember í Laugar-dalslaug.

Mótið tókst í alla staði vel og varáberandi hversu mjög foreldrastarf-ið blómstrar í deildinni. Voru þarfjölmargir sem lögðu hönd á plóginnvið alla framkvæmd mótsins, s.s.varðandi tæknilega útfærslu þessvið tímamælingar og þess háttar,sölustarfsemi og dómgæslu.

Sundfólk Fjölnis stóð sig afskap-

lega vel að vanda og var að synda vel.Bætingar urðu að þessu sinni í

nærri helmingi þreyttra sunda og ímörgum tilfellum var um verulegarbætingar að ræða frá fyrri tímum.Gísli Þór sem er 13 ára náði t.d. inná ÍM-25 með því að bæta sig verulegaí 1500 m skriðsundi.

Átta ný Fjölnismet voru sett á mót-inu, en þar voru að verki þau KatrínUnnur Ólafsdóttir, sem bætti eigiðmet í 200 m skriðsundi 9-10 ára hnáta

um rúmar 4 sekúndur og setti nýttglæsilegt Fjölnismet í 200 m bringu-sundi 9-10 ára hnáta á tímanum4:00,60. Ólafur Páll Ólafsson setti síð-an karla- og piltamet í 1500 og 800 mskriðsundi ásamt því að bæta metið í100 m fjórsundi pilta og karla.

Til hamingju með sundfólkið okk-ar í Fjölni!

Ólafur Pétur Pálssonritari sunddeildar Fjölnis

Velheppnað unglingasundmót Fjölnis í Laugardalslaug:

Átta ný Fjölnismet

Formaður deildarinnar veitti hvatningarverðlaun. Frá vinstri: KatrínUnnur, Fríða, Ólöf, Ylfa Björg, Fjóla, Daníel Hannes, Snæbjörn, ArnarKári og Marinó.

Ánægðar að loknu velheppnuðu móti. Frá vinstri: Katrín, Katrín Unn-ur og Bára.

Boðsundssveit 17 ára og yngri. Frá vinstri: Maríanna,Ragnheiður Rún, Steinunn María og Sigrún Brá.

Boðsundssveit 13 ára og yngri. Frá vinstri: Benja-mín Þór, Edward Árni, Snæbjörn og Marinó.

Boðsundssveit 15 ára og yngri. Frá vinstri: Ívar Þór,Sindri, Daníel Hannes og Gísli Þór.

Fjölnismenn í fyrsta og öðru sæti, þeir Ívar Þór ogStyrmir Már. Verðlaunagripir á mótinu.

BarnamyndatökurNú er rétti tíminn til að mynda börnin!

Svart Hvítt og litLjósmyndþjónusta

Hverafold 1-3, pantanir í síma 517-1166, www.svarthvitt.is

Page 28: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006

Fréttir GV30

Suðurströnd 4Sími 561 4110Vagnhöfða 23 - S: 590 2000

Bestu dekkin átta sinnum!

Í átta ár hafa Toyo dekkin verið valin þau bestu af Tire Review Magazine, sem er tímarit sjálfstæðra hjólbarðasala

í Bandaríkjunum.

Helgina 14.-15. október var haldið grunnskólamót Reykjavíkur í fótbolta. Keppt var bæði í stúlkna og drengja flokk-um. Drengirnir byrjuðu á laugardag og stóðu sig mjög vel; spiluðu skemmtilegan fótbolta og skoruðu mikið af mörk-um og sigruðu í sínum riðli með því að vinna 4 leiki og gera eitt jafntefli.

Á sunnudeginum byrjuðu þeir á að vinna granna sína úr Hamraskóla 3 - 0 og svo unnu þeir Álftamýraskóla 1 - 0 ogþar með var sæti í úrslitaleiknum tryggt. Í úrslitaleiknum spiluðu strákarnir einstaklega vel og unnu Fossvogsskóla 1- 0. Liðið var þar með grunnskólameistari í 7. bekk árið 2006.

Stúlkurnar léku á sunnudeginum. Byrjuðu þær leikinn eldsnemma en létu það ekki á sig fá. Þær léku fimm leiki,unnu þrjá og gerðu tvö jafntefli. Það dugaði þeim ekki til að komast í úrslit þar sem markahlutfall var þeim óhagstætt.Engu að síður var frammistaða þeirra frábær og áttu þær skilið að komast áfram úr sínum riðli.

Allir krakkarnir stóðu sig einstaklega vel og voru bæði sjálfum sér og skólanum til mikils sóma.

Skv

ass

SKVASS FYRIR KRAKKAOG UNGLINGA

Ungl inga- og krakkastarf ið er haf ið.Nánari upplýsingar hjá afgreiðslu

Veggsports í s íma 577 5555.

SKVASSFÉLAG REYKJAVÍKUR

SKVASSFÉLAG REYKJAVÍKUR

Lið Foldaskóla, grunnskólameistari í 7. bekk 2006.

Foldaskóli grunnskólameistari

Page 29: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006
Page 30: Grafarvogsbladid 11.tbl 2006