hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni...
TRANSCRIPT
![Page 1: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/1.jpg)
Hvernig á að lesa á
umbúðarmerkingar matvæla?
![Page 2: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/2.jpg)
Innihaldsefni
• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til.
• Það efni sem mest er af er talið upp fyrst
– Svo eru hráefnin talin upp eftir minnkandi magni.
• Athyglisvert er að skoða hvort sykur eða hörð fita eru meðal þeirra hráefna sem fyrst eru talin upp
– Athugið líka að oft eru mörg nöfn á viðbættum sykri og fitu.
– Þannig geta margar tegundir viðbætts sykurs raðast neðarlega á innhaldslýsinguna en myndi lenda ofar í lýsingunni ef eingöngu væri notuð ein tegund sykurs.
• Innihaldslýsing er sérstaklega mikilvæg fyrir þá sem þurfa að varast ákveðin hráefni vegna ofnæmis eða óþols.
![Page 3: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/3.jpg)
Næringargildi
• Veitir upplýsingar um hversu mikið er af orku og næringarefnum eins og t.d. Orkuefnum, vítamínum og steinefnum í matvælum.
• Upplýsingar miðast við innihaldið í 100 g eða 100 ml – En við erum kannski að borða 30 g eða 200 g.
• Á sumum umbúðum er gefið upp hversu mikið er í algengum skammti.
• Almennt er ekki skylda að hafa næringargildismerkingar á vörum en merkingin er valfrjáls – Ef eitthvað er fullyrt um næringargildi, t.d. að varan sé
sykurlaus eða trefjarík, þá á alltaf að vera næringargildismerking á umbúðunum
![Page 4: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/4.jpg)
Dæmi um innihaldslýsingu og
næringargildis merkingu
![Page 5: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/5.jpg)
Verum vakandi við val á vörum
• Heiti vöru og fullyrðingar um hana gefa ekki alltaf rétta mynd af vörunni.
• Fullyrðingar á borð við „sykurlaust” og „fitulaust” geta verið villandi fyrir neytandann, þ.e. hann gæti þar með talið hana holla en reyndin getur verið allt önnur.
– Dæmi: Vörur sem sagðar eru innihalda lítið magn af fitu geta innihaldið þeim mun meira magn af sykri.
![Page 6: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/6.jpg)
Fullyrðingar
• „Sykurlaust” þýðir að það er nánast enginn sykur í vörunni, hvorki náttúrulegur né viðbættur en hinsvegar geta verið í henni sætuefni.
• „Enginn viðbættur sykur” þýðir að sykri hefur ekki verið bætt í vöruna, en hún getur samt innihaldið náttúrulegan sykur sem er þá í hráefnunum s.s. ávöxtum og mjólk.
• Þó að vara sé „fitulaus” þá getur verið í henni mikið magn af sykri og þar af leiðandi verið alveg jafn orkurík og þær vörur sem ekki eru merktar fitulausar.
![Page 7: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/7.jpg)
Fullyrðingar
• Hugtök eins og „skert” og „létt” þýðir að vara hafi að minnsta kosti 30% lægra innihald af t.d. fitu eða sykri en hefðbundnar sambærilegar vörur.
• Orkuinnihald á þá líka að vera 30% lægra í þessum tilvikum.
• Þegar svona fullyrðingar eru notaðar er skylt að hafa næringargildismerkingu á vörunni.
![Page 8: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/8.jpg)
„Þar af sykur”
• Í næringargildismerkingum er stundum tilgreint hversu mikill hluti kolvetna er sykur og þá stendur fyrir aftan kolvetnin „þar af sykur” eða á ensku „of which sugars”.
• Þegar sykurinnihald er skoðað er hægt að styðjast við þessar tölur yfir sykur.
• Merkingin segir hins vegar ekki til um hvers konar sykur er um að ræða né hvort hann er viðbættur eða náttúrulega til staðar í vörunni, sbr. mjólkur- og ávaxtasykur.
![Page 9: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/9.jpg)
„Þar af mettuð fita”
• Í næringargildismerkingum er oft tilgreint hversu mikill hluti fitu er mettuð fita og þá stendur fyrir aftan fituna „þar af mettuð fita” eða á ensku „saturated fat”.
• Á sama hátt er stundum tilgreint hversu mikill hluti fitu er transfita og þá stendur „þar af trans-fita” eða á ensku „trans fat”.
![Page 10: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/10.jpg)
Hvernig er hægt að vita hvort vara
innihaldi transfitusýrur?
• Ef eitthvað af eftirtöldu er nefnt í innihaldslýsingu matvæla þá er nær víst að varan innihaldi transfitusýrur: að hluta til hert fita/jurtafita/jurtaolía. Á ensku er þetta nefnt ,,partially hydrogenated oil/fat“ og á dönsku ,,delvis hærdet fedt”.
• Orðið hert fita (hydrogenated fat) í innihaldslýsingu vörunnar er hins vegar ekki sönnun þess að transfitusýrur séu í vörunni.
• Gera má ráð fyrir að í vöru sem inniheldur herta fitu sé talsvert magn af mettuðum fitusýrum sem einnig eru óæskilegar fyrir hjarta- og æðakerfi líkamans.
![Page 11: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/11.jpg)
Orkuefnin gefa mismikla orku
• Sú orka sem matvæli gefa okkur er mæld í kílócaloríum (kcal) eða kílójúlum (kJ)
– Í daglegu tali er oft talað um hitaeiningar og þá er átt við kcal sem er algengasti mælikvarðinn.
– Kolvetni 4 kcal/g
– Prótein 4 kcal/g
– Fita 9 kcal/g
– Alkóhól 7 kcal/g
• Til að reikna orkuna (kcal) úr matvælum þarf að margfalda grömm orkuefnanna með þessum stuðlum.
Fita gefur meira en tvöfalt fleiri hitaeiningar en kolvetni og prótein.
![Page 12: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/12.jpg)
Dæmi um útreikning á orkugildi
• Næringargildi í 100 g af skyri með bláberjum
– Orka 92 kcal
– Prótein 9,8 g
– Kolvetni 12,7 g
– Fita 0,2 g
• Reiknað orkugildi: 9,8 g * 4 g/kcal +12,7 g * 4 g/kcal + 0,2 g * 9 g/kcal = 91,8 kcal
Prótein 4 kcal/g
Kolvetni 4 kcal/g
Fita 9 kcal/g
Alkóhól 7 kcal/g
![Page 13: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/13.jpg)
Gott að muna
• Ef við reiknum hlutfall (%) allra orkuefnanna þá verður hlutfallstala þeirra samtals 100%.
• Dæmi um skyrið hér á undan: – Prótein: 9,8g * 4 kcal/g = 39,2kcal – Kolvetni: 12,7g * 4 kcal/g = 50,8 kcal – Fita: 0,2g * 9 kcal/g = 1,8 kcal
• Alls 39,2 kcal + 50,8 kcal + 1,8 kcal = 91,8 kcal
• Hlutfall orkuefna (%) – Prótein: 39,2 kcal/91,8 kcal = 0,427 ~ 43% – Kolvetni: 50,8kcal /91,8 kcal =0,553 ~55% – Fita: 1,8kcal /91,8kcal = 0,0196 ~ 2%
• Alls 43 + 55 + 2 =100%
![Page 14: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/14.jpg)
Annað dæmi
• Næringargildi í 100 g af morgunkorni – Orka 370 kcal
– Prótein 12,3 g
– Kolvetni 65,4 g
– Fita 6,6 g
• Reiknað orkugildi:
12,3 g * 4 g/kcal + 65,4 g * 4 g/kcal + 6,6 g * 9 g/kcal = 370,2 kcal
Prótein 4 kcal/g
Kolvetni 4 kcal/g
Fita 9 kcal/g
Alkóhól 7 kcal/g
![Page 15: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/15.jpg)
Frh.
• Dæmi um morgunkornið
– Prótein: 12,3g * 4 kcal/g = 49,2 kcal
– Kolvetni: 65,4g * 4 kcal/g = 261,6 kcal
– Fita: 6,6 * 9 kcal/g = 59,4 kcal
• Alls 49,2 kcal + 261,6 kcal + 59,4 kcal = 370,2 kcal
• Hlutfall orkuefna (%)
– Prótein: 49,2 kcal/370,2 kcal = 0,13 ~ 13%
– Kolvetni: 261,6kcal /370,2 kcal = 0,706 ~71%
– Fita: 59,4 kcal /370,2kcal = 0,16 ~ 16%
• Alls 13+71+16=100%.
![Page 16: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/16.jpg)
Orkuþéttni
• Mælikvarði á það hversu orkurík matvæli eru miðað við magn matar (kcal í grammi) – Sætindi og fiturík matvæli hafa t.d. mikla orkuþéttni, þ.e.
mikil orka í litlu magni, en grænmeti og ávextir litla orkuþéttni.
• Það er gagnlegt að vita hvaða matvæli eru orkuþétt og hver ekki, þar sem að orkuþétt matvæli eru hitaeiningarík en innihalda oft hlutfallslega lítið af næringarefnum.
• Orkuþétt matvæli ýta einnig undir að við innbyrðum mikið magn hitaeininga þar sem að við verðum síður södd af þeim en af matvælum með lága orkuþéttni.
![Page 17: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/17.jpg)
Dæmi um matarskammta sem veita 200
hitaeiningar
![Page 18: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/18.jpg)
Svona má skoða orkuþéttnina
• Dæmi: Í 100 g af skyri með bláberjum eru 98 kcal (sjá dæmi hér á undan).
98 kcal/100g= 0,98 kcal/g
• Dæmi: Í 100 g af morgunkorni eru 370 kcal (sjá dæmi hér á undan).
370 kcal/100 g= 3,7 kcal/g
![Page 19: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/19.jpg)
Verkefni
• Reiknið út orkuþéttni nokkurra matvæla eins og sýnt er í dæmunum hér að framan.
![Page 20: Hvernig á að lesa á umbúðarmerkingar matvæla?...• Innihaldsefni eru þau hráefni, aukefni og önnur efni sem notuð eru til að búa matvöruna til. • Það efni sem mest](https://reader034.vdocuments.site/reader034/viewer/2022052018/60311d7720d64c535936fa67/html5/thumbnails/20.jpg)
Heimaverkefni
• Veljið tvö eða fleiri matvæli og reiknið hlutfall orkuefna eins og í dæmunum hér að framan (glærur 12-15).