fyrirlestur um filippseyjar
DESCRIPTION
Filippseyjar samanstanda af 7.107 eyjum en aðeins 13 eyjar eru stærri en 1000 ferkílómetrar. Alls eru 880 eyjar í byggð. Stærst þeirra er Luzon, sem er á stærð við Ísland, á henni búa 46,2 milljónir íbúa og er fimmta fjölmennasta eyja heims. Á Filippseyjum búa rúmar 92 milljónir manna og er tólfta fjölmennasta ríki heims.TRANSCRIPT
![Page 1: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/1.jpg)
Fyrirlestur um Filippseyjar
Sóley C. Villaespin og Elvie G. Bacalso Febrúar 2013
![Page 2: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/2.jpg)
Hvar eru Filippseyjar ?
![Page 3: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/3.jpg)
Hvar eru Filippseyjar ?
![Page 4: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/4.jpg)
Um Filippseyjar Filippseyjar samanstanda af 7.107 eyjum en aðeins 13 eyjar eru stærri en 1000 ferkílómetrar. Alls eru 880 eyjar í byggð. Stærst þeirra er Luzon, sem er á stærð við Ísland, á henni búa 46,2 milljónir íbúa og er fimmta fjölmennasta eyja heims. Á Filippseyjum búa rúmar 92 milljónir manna og er tólfta fjölmennasta ríki heims.
![Page 5: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/5.jpg)
Um Filippseyjar Á Filippseyjum er mikill fjöldi borga, þar af fjórar milljónaborgir. Tólf aðrar eru með meira en hálfa milljón íbúa. Höfuðborgarsvæðið, kallað Metro Manila er langstærst með 11,5 milljónir íbúa. Hún er meðal 10 stærstu borga heims. Fimm stærstu borgirnar eru : Quezon City 2,7 milljónir Manila 1,6 milljónir Caloocan City 1,5 milljónir Davao 1,4 milljónir Cebu City 866 þúsund
![Page 6: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/6.jpg)
5stærstu borgirnar
Quezon City
Cebu City Davao
Caloocan City
Manila
![Page 7: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/7.jpg)
Saga Filippseyja 1521 Ferdinand Magellan kannar eyjarnar sem nú eru þekktar sem Filippseyjar 1542 Spænskur herflokkur helgar sér eyjarnar fyrir Spán og kallar þær "Filippseyjar" eftir Filippusi prins, síðar Filippusi II Spánarkonungi. Filippseyjar verða hluti af spænska heimsveldinu. 1886 José Rizal gefur út andspænska skáldsögu, Noli Me Tangere. Hún örvaði mjög þjóðerniskennd. Hann er þjóðhetja Filippseyinga. 1896 Spánverjar taka Rizal af lífi fyrir að æsa til uppreisnar. Almenn reiði kveikir uppreisn. 1899 Friðarsamningur í París bindur endi á Spænsk-ameríska stríðið og Spánverjar afsala sér Filippseyjum til Bandaríkjannna. 12. júní. Filippseyingar lýsa yfir sjálfstæði án samþykki Bandaríkjanna og Spánar. Þjóðhátíðardagur Filippseyinga. Emilio Aguinaldo stýrir skæruhernaði gegn Bandaríkjunum.
![Page 8: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/8.jpg)
Saga Filippseyja 1901 Bandaríkjamenn taka Aquinaldo til fanga; William Howard Taft kemur sem fyrsti landstjóri Bandaríkjamanna á Filippseyjum. 1902 Uppreisninni lýkur. Taft bætti efnahagsástandið og kom á fót ýmsum endurbótum sem auðveldaði að gera landið nútímalegra og vestrænna. 1916 Bandaríkjastjórn staðfesti lög Jones til að stofnsetja kjörið Filippínskt löggjafarþing með neðri deild og öldungadeild. 1934 Bandaríkin samþykkja Tydings-McDuffie lögin sem lofa Filippseyingum sjálfstæði árið 1946. Aðdragandi að sjálfstæði hefst. 1935 Filippseyska þjóðin samþykkir stjórnarskrá sem myndar Samveldi Filippseyja með Manuel Quezon y Molina sem forseta.
![Page 9: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/9.jpg)
Saga Filippseyja 1941 Japanir ráðast inn í Filippseyjar og sigra Douglas MacArthur hershöfðingja við Bataan og Corregidor . Um 750.000 almennir borgarar deyja í stríðinu á Filippseyjum. 1944 20. október, MacArthur ræðst aftur inn í Filippseyjar. 1945 september, MacArthur frelsar Manila. Osmeña stofnar ríkisstjórn. 1946 Filippseyjar verða sjálfstæð þjóð; Manuel Roxas y Acuña kosinn fyrsti forseti.
Ferdinand Marcos Forsetahöllin Malacanang Palace Hefur setið lengst í forsetaembætti. Frá1965 til 1986
![Page 10: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/10.jpg)
Fáni þessi var fyrst dreginn að húni 1898 eftir uppreisn Filippseyinga gegn Spánverjum. • Hvíti þríhyrningurinn táknar jafnrétti og bræðralag. • Blái reiturinn merkir frið, sannleik og sanngirni. • Rauði reiturinn merkir föðurlandsást og kjark. • Sólin stendur fyrir frelsi og héruðin átta sem voru til 1898. • Stjörnurnar þrjár tákna hina þrjá aðalhluta sem Filippseyjar samanstendur af
(Lúson, Mindanaó og Visayas-svæðið þar á milli).
Þjóðfáni
![Page 11: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/11.jpg)
Gjaldmiðill
Í landinu er notaður filippínskur pesó. 1 pesó jafngildir 100 centavos. Pesóinn var innleiddur af Spánverjum í upphafi. Þótt Bandaríkjamenn hafi stjórnað landinu í nokkra áratugi, var pesóinn látinn standa. Þegar Filippseyjar urðu sjálfstætt ríki 1946 var enn notast við pesó en auðkenndur við nafn landsins. einn PHP er jaft og þrjár IKR
![Page 12: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/12.jpg)
Landslag Landslag er mest fjalllendi og misvíðlent láglendi með ströndum fram. Hæsta fjall er Apo fjall 2,954 m. Fallegar strendur eru víða.
![Page 13: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/13.jpg)
Eldfjöll Nær öll fjöll á Filippseyjum hafa myndast við eldvirkni. Við austurjaðar eyjanna mætast tveir jarðflekar, Filippseyjaflekinn hreyfist í vestur og ýtist undir Filippseyja. Þetta skýrir hina miklu eldvirkni eyjanna. Mörg eldfjallanna eru virk og hafa á síðustu áratugum orsakað mikla eyðileggingu í nágrenni sínu. Gosið í Pínatúbó 1991 var eitt allra stærsta gos 20. aldarinnar.
Legazpi City 350km frá Manila
Bulusan 360 km frá Manila
![Page 14: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/14.jpg)
Jarðhiti Á Filippseyjum eru ein af kraftmestu jarðhitasvæðum heims. Mesta raforkuframleiðsla jarðgufustöðva á háhitasvæðum er í Bandaríkjunum og Filippseyjum, um 2000 MW í hvoru landi, til samanburðar er uppsett afl í jarðgufustöðvum á Íslandi 170 MW.
Mynd af Össuri Skarphéðinssyni á fundi með Gloriu Arrayo í forsetahöllinni í Manilla. Arrayo lýsti ánægju með áhuga Íslendinga á að taka þátt í uppbyggingu jarðgufuvirkjana á Filippseyjum. (október 2007)
Valencia, Negros Oriental
![Page 15: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/15.jpg)
Veðrátta
Á þurrkatímanum, maí til októbers, rignir líka en í miklu minna mæli. Árlega fara að meðaltali 9 hitabeltisstormar og fellibyljir um eyjarnar og koma yfirleitt að landi á austurhluta eyjana sérstaklega á Lúson.
Filippseyjar eru í hitabeltinu og þar eru eingöngu tvær árstíðir, regntími og þurrkatími. Regntíminn einkennist af monsúns-rigningum en þá getur rignt í margar vikur sem getur skapað hættuleg flóð og aurskriður. Regntíminn er yfirleitt frá nóvember til apríl en hann flytur svalara loft frá hafinu.
![Page 16: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/16.jpg)
Veðrátta
Árs meðalhiti í Filippseyjum er 26.6 °C. Kaldasti mánuðurinn er janúar en þá er meðalhiti “aðeins” 25.5 °C. Heitasti mánuðurinn er maí en þá er meðalhiti 28.3 °C .
![Page 17: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/17.jpg)
Samgöngur Ferjur eru langmest notaða samgöngutæki sem sigla til allra stóru og smærri eyjar. Flugsamgöngur eru einnig mikið notaðar en lítið er um járnbrautir. Sérfyrirbæri er Jeppneys sem er mjög vinsælt farartæki. Jeepneys eru nokkurs konar smárútur eða stórir bílar. Pedicab og Sikad eru líka vínsælt í litlum bæjum. Flug frá London til Filippseyja eru tæpir 14 tímar.
![Page 18: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/18.jpg)
Landbúnaður er aðal atvinnugrein Filippseyja eða 33% af heildinni og 20% af heildar landsframleiðslu. Flestir vinna ennþá í dreifbýli í landbúnaði. Landbúnaðinum er skipti í 4 flokka, búskapur, fiskveiðar, búfjár og skógrækt. það sem er aðalega ræktað er hrísgrjón, korn, kókoshnetur, sykurreyr, bananar, ananas, kaffi, mangó, tóbak og abaca.
Atvinnuvegir
![Page 19: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/19.jpg)
Fjöldi á atvinnumarkaði: 40.73 milljón (2012 áætl.) Starf eftir atvinnuvegum: landbúnaður: 33% iðnaður 15% Þjónusta: 52% (2010 áætl.) Atvinnuleysi: 6.9% (2012 áætl.) Fjöldi undir fátækramörkum: 26.5% (2009 áætl.) Verðbólga: 3.4% (2012 áætl.)
Atvinnulíf
![Page 20: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/20.jpg)
Filippseyjar er eina kristna landið í Asíu. Meira en 90% þjóðarinnar er kristin og eru flestir þeirra kaþólskir en fáeinir mótmælendur. Stærsti trúarhópurinn í minnihluta er múslímar 9%, sem búa einkum á Mindanao og á Sulu eyjaklasanum. Rómversk kaþólskir eru 83%, mótmælendur 9%, múslímar 5%, búddistar og aðrir 3%.
Trúarbrögð
The Miagao Kirja byggð1797, Iloilo Kirkja múslíma, Cotabato City, Mindanao
Santo Nino Kirkja Cebu Philippines
![Page 21: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/21.jpg)
Tungumál Á Filippseyjum eru alls töluð 171 tungumál, þótt nokkur þeirra séu aðeins töluð af fámennum hópum manna. Algengustu málin eru: Tagalog (22 milljónir á Lúson) Cebuano (20 milljónir á Cebu) Ilokanó (7.7 milljónir á Lúson) Hiligaynon (7 milljónir á Panay og Negros) Á fjórða áratug 20. aldar ákvað landstjórnin að búa til nýtt tungumál sem allir íbúar Filippseyja gætu sætt sig við, Tagalog var undirstaða nýja málsins en það fékk heitið Pilipino. Um þriðjungur íbúa Filippseyja tala Pilipino sem móðurmál. Mjög algengt er að Filippseyjingar tali einnig ensku.
![Page 22: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/22.jpg)
Íþróttir Það eru 5 aðal íþróttir. Körfubolti, hnefaleikar ,billiard, fótbólti og blak. Ísskautar, lyftingar, fimleikar, hafnarbolti, sund, glíma, köfun, kayak siglingar, sjóskíði og bardagaíþróttir eru líka vinsælar. Ýmsar veðmála-íþróttir eru vinsælar eins og hanaslagur og veðreiðar.
![Page 23: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/23.jpg)
Heilbrigðismál Á Filippseyjum eru skráð 2.400 sjúkrahús, 480 þúsund hjúkrunarfræðingar og 90 þúsund læknar. Þetta gera einn lækni á hverja 833 íbúa. (Ísland, einn læknir á hverja 270 íbúa) Meðhöndlun sjúklinga á ríkisreknum sjúkrahúsum er ókeypis þjónusta en sjúklingar verða þó að greiða fyrir lyfin sjálfir. Einnig eru einkarekin sjúkrahús og er þá einnig greitt fyrir þjónustu.
![Page 24: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/24.jpg)
Skólakerfið
95,9% íbúa sem eru 15 ára eða eldri geta lesið og skrifað. Menntun er skyldubundin og ókeypis fyrir börn frá 7 til 12 ára. Þótt sumar fjölskyldur sendi börn sín í einkaskóla fara flest börn í opinbera skóla. Menntakerfið á Filippseyjum er líkt hinu ameríska. Enska er aðalkennslumál í skólunum þótt filippínska og mállýskur séu líka notaðar, einkum í neðri bekkjum.
![Page 25: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/25.jpg)
Skólakerfið Stig/gráða Aldur Forskóli For-leikskóli 3-4 ára Leikskóli 4-6 Grunnskóli Bekkur 1 6–7 Bekkur 2 7–8 Bekkur 3 8–9 Bekkur 4 9–10 Bekkur 5 10–11 Bekkur 6 11–12 Yngri framhaldsskóli Bekkur 7 12-13 Bekkur 8 13-14 Bekkur 9 14-15 Bekkur 10 15–16 Framhaldsmenntun
Ýmis háskólastig 17-
![Page 26: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/26.jpg)
Það er engin herskylda í Filippseyjum. Það er samt skylda að fá hermenntun sem er hluti af skólakerfinu. Hermenntun byrjar þegar nemendur eru 15-16 ára.
Herinn
Philippine Air Force P51-D Mustang
Í hernum eru nú 80.000 hermenn. Herinn var stofnaður árið 1935. Japan hertóku svo Filippseyjar 1942. Í lok seinni heimstyrjaldar vann herinn með her Bandaríkjamönnum til ársinns 1947 þegar þeir urðu aftur sjálfstæður her.
![Page 27: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/27.jpg)
Tryggð við fjölskylduna er mjög einkennandi hefð í filippínsku samfélagi. Þessi fjölskyldutryggð sést best á þeirri staðreynd að elliheimili og munaðarleysingjaheimili eru ekki mjög algeng á Filippseyjum. Á Filippseyjum er einnig mikilvægt að koma fram við hina eldri með þeirri virðingu og tillitsemi sem þeir verðskulda og ætlast til. Hægt er að sýna manneskju virðingu á margvíslegan hátt, hvort sem það er með handahreyfingum eða að tala á þann hátt að virðing sé gefin í skyn. Eins og í mörgum Asíulöndum er það venja að fara úr skónum þegar komið er inn á heimili. Með því að gera það sýnir gesturinn fjölskyldunni og heimili hennar virðingu og kurteisi. Ólíkt öðrum löndum þar sem konur eru mun lægra settar, hafa konur á Filippseyjum verið hátt settar í samfélaginu frá því fyrir nýlendutímann. Þar sem jafnrétti kynjanna ríkir eru fyrirtæki móttækilegri fyrir konur í viðskiptum. Þessi afstaða er augljós af forsetaembættinu í dag. Corazon Aquino var fyrsti kvenforsetinn og var í embætti 1986-1992. Gloria Macapagal-Arroyo forseti er önnur í röð kvenna til að gegna þeirri virðingarstöðu.
Siðir og venjur
![Page 28: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/28.jpg)
Karaoke er aðaláhugamál filippseyjinga, að koma saman yfir mússík, mat og bjór er áhugamál nr. 2. Mikill áhugi er á fjárhættuspils leikjum eins og Mahjong og Hanaslagi.
Frístundir
![Page 29: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/29.jpg)
Hátíðir
Feb 10 Chinese New Year's Day Feb 25 People Power Anniversary Apr 9 The Day of Valor Jun 12 Philippine Independence Day Aug 21 Ninoy Aquino Day Aug 25 National Heroes Day Nov 1 All Saints' Day Nov 2 All Souls' Day Nov 30 Bonifacio Day Dec 30 Rizal Day
Helstu hátíðardagar á Filippseyjum sem ekki eru haldnir á Íslandi.
Einnig eru staðbundnar „Fiesta“ hátíðir í ýmsum borgum og bæjum.
![Page 30: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/30.jpg)
Matargerð Matargerð er nokkurs konar sambland af spænskum, mexíkönskum, kínverskum, indverskum, japönskum og bandarískum áhrifum. Mikið er borðað af fiski og sjávar afurðum alltaf með hrísgrónum. Af kjöti er svínið vinsælt nema meðal múslíma í suðri. Þjóðarrétturinn er adobo sem gjarnan er gerður úr svínakjöti en einnig úr nauti eða kjúklingi. Auk kryddtegunda er edik, sojasósa eða kókosmjólk notað, misjaft eftir héruðum.
![Page 31: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/31.jpg)
Matargerð Lechon (heilt svín grillað) er vinsælt t.d. á Fiestum, giftingum og stórafmælum. Pancit (nokkurs konar langar núðlur) eru gjarnan borðaðar á afmælisdögum og táknar langlífi. Einnig er vinsælt margskonar sætandi eftirréttir t.d. Leche flan eða ávaxtasalat, Þurkaður og saltaður fiskur og soðið grænmeti er mikið borðað.
![Page 32: Fyrirlestur um Filippseyjar](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022062400/568bda391a28ab2034a9fdfb/html5/thumbnails/32.jpg)
Takk fyrir