velkomin til starfa

17
Velkomin til starfa Lóa Birna Birgisdóttir starfsmannastjóri 13.janúar 2008

Upload: reyna

Post on 19-Jan-2016

84 views

Category:

Documents


9 download

DESCRIPTION

Velkomin til starfa. Lóa Birna Birgisdóttir starfsmannastjóri 13.janúar 2008. Fjölbreyttur vinnustaður. Margþætt menntun starfsmanna Yfir 100 starfsheiti Um 20 kjarasamningar Um 86% konur og 14% karlmenn Um 12% starfsmanna er af erlendum uppruna. Einn vinnustaður. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Velkomin til starfa

Velkomin til starfa

Lóa Birna Birgisdóttirstarfsmannastjóri

13.janúar 2008

Page 2: Velkomin til starfa

Fjölbreyttur vinnustaður

• Margþætt menntun starfsmanna

• Yfir 100 starfsheiti • Um 20 kjarasamningar• Um 86% konur og 14%

karlmenn• Um 12% starfsmanna er af

erlendum uppruna

Page 3: Velkomin til starfa

Einn vinnustaður

• Reykjavíkurborg er einn vinnustaður og starfsmenn hennar eiga að vinna sem ein liðsheild án tillits til þess hvaða þjónustu þeir veita eða hvar þeir eru staðsettir.

Page 4: Velkomin til starfa

Starfsmannastefna Reykjavíkurborgar

• Markmiðið með starfsmannastefnunni er að Reykjavíkurborg hafi alltaf á að skipa hæfum og áhugasömum starfsmönnum sem geta veitt góða þjónustu og brugðist við síbreytilegum þörfum Reykjavíkurborgar.

• Starfsmannastefnan á að tryggja starfsmönnum ákveðin starfsskilyrði og möguleika á að vaxa og dafna í starfi.

Page 5: Velkomin til starfa

Leiðarljós starfsmannastefnu Reykjavíkurborgar

• Virðing fyrir fólki• Samvinna og sveigjanleiki• Jafnræði• Þekking og frumkvæði• Þjónustulund

Page 6: Velkomin til starfa

Hvaða þýða leiðarljósin?

Í þessu felst að stofnanir og fyrirtæki Reykjavíkurborgar:

• Virða alla starfsmenn sína og viðhorf þeirra mikils.

• Virkja starfsmenn til að móta og bæta starfsemina.

• Starfa í anda jafnræðis og jafnréttis.

• Bjóða upp á verkefni þar sem hæfileikar hvers og eins fá notið sín.

• Stuðla að því að starfsmenn geti aukið þekkingu sína og starfshæfni.

• Leggja áherslu á gæði starfs og hátt þjónustustig.

• Upplýsa starfsmenn um hlutverk þeirra og ábyrgð.

Page 7: Velkomin til starfa

Þetta gerir þær kröfur til starfsmanna að þeir:

• Virði samstarfsmenn sína.

• Séu viðbúnir þróun og breytingum og taki þátt í þeim.

• Viðhaldi þekkingu sinni og auki við hana.

• Sinni starfi sínu af trúmennsku og metnaði.

• Sýni ábyrgð.

Page 8: Velkomin til starfa

Vinnuumhverfi• Vinnuvernd

Stjórnendum ber að stuðla að heilbrigðu vinnuumhverfi. Það eru gagnkvæmir hagsmunir borgarinnar og starfsmanna hennar að vellíðan og heilbrigði starfsmanna sé haft að leiðarljósi.

• SamskiptiReykjavíkurborg vill stuðla að trausti í samskiptum milli starfsmanna sinna og á milli starfsmanna og íbúa Reykjavíkurborgar.

• Aðgerðir ef samskiptareglur eru brotnarStarfsmaður, sem með orðum, látbragði eða atferli, ógnar, truflar eða ögrar öðrum á vinnustað, leggur starfsmann í einelti eða sýnir honum kynferðislega áreitni, telst brjóta grundvallarreglur samskipta á vinnustað.

Page 9: Velkomin til starfa

Vinnuumhverfi

• Vinnustaðir án vímuefnaReykjavíkurborg vill halda vinnustöðum borgarinnar reyklausum.

• Samræming vinnu og einkalífs Reykjavíkurborg vill skapa starfsmönnum sínum aðstæður til að samræma kröfur starfs- og einkalífs eins og kostur er.

• Reykjavíkurborg vill að starfsmenn fái notið sveigjanleika í starfi þar sem hægt er að koma því við.

Page 10: Velkomin til starfa

Eftirlit með framkvæmd

• Mannauðsskrifstofa borgarinnar hefur umsjón með starfsmannamálum stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar, gætir þess að samræmis sé gætt og að heildarhagsmunir ráði ákvörðunum í starfsmannamálum.

• Mannauðsskrifstofa setur nánari reglur og leiðbeiningar um útfærslu starfsmannastefnunnar og fylgist með framkvæmd stofnana og fyrirtækja á henni.

• Mannauðsþjónusta Velferðarsviðs hefur yfirumsjón með öllu sem varðar starfsmanna- og mannauðsmál sviðsins ásamt fræðslu og starfar í nánu samstarfi við mannauðsskrifstofu í ráðhúsi.

Page 11: Velkomin til starfa

Siðareglur starfsmanna Reykjavíkurborgar

• Hafa í heiðri trúnað í samskiptum sínum við viðskiptavini og borgarbúa og gæta þagmælsku um það sem þeir fá vitneskju um í starfi sínu og leynt skal fara samkvæmt lögum, fyrirmælum yfirboðara eða eðli máls. Þagnaraskyldan helst þótt látið sé af störfum.

Page 12: Velkomin til starfa

Hlunnindi• Heilsuræktarstyrkur. Hámarksstyrkfjárhæð er kr.

16.000 á árinu 2008 en styrkfjárhæð tekur mið af starfshlutfalli starfsmanns

• Aðgangskort fyrir starfsmenn að sundstöðum borgarinnar.

• Aðgangskort fyrir starfsmenn að Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.

• Aðgangskort fyrir starfsmenn að söfnum borgarinnar, þ.e. Listasafni, Ljósmyndasafni, Minjasafni og Landnámsskála.

• Notendakort fyrir starfsmenn hjá Borgarbókasafni.

Page 13: Velkomin til starfa

Viðhorfskönnun

• Gerð árlega meðal allra starfsmanna

• Niðurstöður nýttar til að grípa til aðgerða og að bæta starfsumhverfi

Page 14: Velkomin til starfa

Símenntun, starfshæfni og starfsþróun

• SímenntunReykjavíkurborg beitir sér fyrir því að starfsmenn eigi kost á símenntun innan sem utan stofnunar til að auka þekkingu sína og faglega hæfni sem nýtist í starfi.

• StarfsþróunarsamtölStarfsmenn stofnana og fyrirtækja Reykjavíkurborgar eiga rétt á starfsþróunarsamtölum a.m.k. einu sinni á ári.

• StarfsþróunStarfsþróun er á ábyrgð starfsmanns og yfirmanns og er m.a. sinnt með þátttöku starfsmanns í starfsþróunarsamtölum, símenntun og samvinnu.

Page 15: Velkomin til starfa

Nám í takt við þarfir starfsfólks og starfsstaða

• Starfsfólk á að fá tækifæri til símenntunar – efling þekkingar og færni og aukin starfsánægja

• Yfirmenn og starfsmenn eiga í sameiningu að vera vakandi fyrir tækifærum til að viðhalda og bæta við þekkingu starfsmanna

• Í árlegu starfsþróunarsamtali á að leggja drög að símenntunaráætlun fyrir starfsmann– Reynt að koma til móts við óskir starfsmanna og

þeir aðstoðaðir við að ná markmiðum í símenntunaráætlun

• Starfsmenn eru hvattir til að leitast við að ná markmiðum sínum með þátttöku í leshópum, handleiðslu, kennslu eða með öðrum leiðum

Page 16: Velkomin til starfa

Innri vefur borgarinnar

• Vettvangur upplýsinga- og þekkingarmiðlunar

• Ítarlegar upplýsingar um hvað eina sem máli skiptir í störfum starfsmanna, svo sem verklag og annað sem bætir þjónustu og eykur skilvirkni og hagkvæmni

• Innri vefur á að gefa góða sýn á það fjölbreytta starf sem unnið er á vegum allra sviða og undirstofnana og stuðla að því að starfsmenn upplifi borgina sem þjónustufyrirtæki og einn vinnustað

Page 17: Velkomin til starfa

Frekari upplýsingar

• www.rvk.is• www.velferdarsvid.is• http://innri.reykjavik.is