Download - Heimsferðir Sumar 2011
1Heimsferðir • Skógarhlí› 18 • 105 Reykjavík • Sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
SumarFerðaævintýri Heimsferða í
vor, sumar og haust
2011
Marmaris – Tyrkland
Bodrum – Tyrkland
Kemer / Antalya – Tyrkland
Costa del SolPrag
BúdapestBarcelonaSevillaLjubljanaRóm
AlicanteGolfferðirGönguferðirSérferðirSiglingar
MarmarisFrá 119.900 kr.*
Heimsferðir bjóða Íslendingum frábærar ferðir til Marmaris í Tyrklandi í
sumar. Tyrkland er stórbrotið land þar sem austrið mætir vestrinu og
heimsálfurnar Evrópa og Asía mætast, enda er hjartsláttur austursins
alltaf nálægur. Marmaris er Íslendingum að góðu kunnur enda einn eftirsóttasti
áfangastaður Tyrklands. Í boði er frábært úrval gististaða; góð íbúðahótel sem og
glæsleg hótel, þar sem ýmist fylgir með hálft fæði eða þá að allt er innifalið.
Marmaris er gamall fallegur bær sem hefur svolítið evrópskt yfirbragð. Hér er falleg
bátahöfn sem er ein sú stærsta í landinu. Bærinn Marmaris kúrir í vík, umkringdur
fjöllum og þykir hann með fallegri bæjum landsins. Hér eru veitingastaðir um
allan bæinn, við ströndina og höfnina. Þá er hér ekta „bar-street“, sem er þröngt
stræti í gamla bænum, sem og fjöldinn allur af næturklúbbum og börum sem gera
bæinn mjög líflegan. Svæðið er upplagt til gönguferða, meðfram ströndinni, að
útimörkuðum eða um göngugöturnar þar sem tilvalið er að prútta, verði eitthvað
fallegt á vegi manns. Tyrkir taka vel á móti ferðamönnum með sinni einstöku
gestrisni.
Marmaris í Tyrklandi bíður þín með hagstætt verðlag, fallega smábátahöfn með
iðandi mannlífi, fjörugt næturlíf, og heillandi markaði.
Í Marmaris finna allir eitthvað við sitt hæfi og njóta sumarleyfisins til hins ítrasta.
Einn eftirsóttasti áfangastaður Tyrklands
*) Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð í 10 nætur á Club Kibele, 21. maí.
3
Mar
mar
isClub KibeleÞetta er frekar einföld íbúðagisting, ýmist stúdíó, íbúðir með einu svefnherbergi eða íbúðir með tveimur svefnherbergjum. Allar íbúðir eru með loftkælingu, öryggishólfi, síma og á baðherbergi er hárþurrka. Hótelið er á þremur hæðum en þar er ekki lyfta. Á hótelinu eru 44 íbúðir og 16 hótelherbergi. Garðurinn er lítill og notalegur, með sundlaug, barnalaug og sólbekkjum, bar og veitingastað. Athugið að ekki er hægt að fá leigð handklæði hér. Hægt er að ná þráðlausu internetsambandi á ákveðnum svæðum á hótelinu (WiFi) gegn gjaldi. Um 2 km eru í miðbæ Marmaris en örstudd er niður á strönd og hótelið er í göngufjarlægð við verslanir, veitingastaði og bari.Hótelið þykir sérlega fjölskylduvænt og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Grand CettiaGott 190 herbergja hótel í norðurhluta Marmaris. Öll herbergi eru með svölum, loftkælingu, öryggishólfi, sjónvarpi síma og minibar. Á hótelinu eru tvö útivistarsvæði með sundlaugum og veitingarstöðum. Þar er m.a. að finna vatnsrennibraut, körfuboltavöll og tennisvelli auk þess er tyrkneskt bað, sauna og nuddpottar á hótelinu. Þráðlaust internet er á hótelinu. Góðar samgöngur er með strætisvagni á ströndina, sem er í eins kílómetra fjarlægð.
Frábært verðFrá kr. 119.900 – 2 vikurNetverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð í 2 vikur, 2. júlí.Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 149.900 í studio í 2 vikur, 2. júlí.
Frábært verðFrá kr. 125.940 – 10 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur með „öllu inniföldu“, 21. maí, Verð m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu inniföldu“ kr. 149.280.
Íbúðir
„allt innifalið“
Cettia Beach ResortGlæsilegt og fjölskylduvænt hótel í um 3,5 km fjarlægð frá miðbæ Marmaris og rétt við ströndina. Það er fjölskyldurekið og er mikið lagt upp úr persónulegri þjónustu og vellíðan gesta. Hótelið er innréttað á smekklegan hátt og eru herbergi flest rúmgóð. Hér eru 214 herbergi, öll með sjónvarpi (flatskjá), loftkælingu, minibar, öryggishólfi, síma og litlum svölum. Á baðherbergi eru hárþurrkur og baðkar. Á hótelinu eru tvær útisundlaugar, innilaug og barnalaug. Í garðinum er vatnsrennibraut og leiksvæði fyrir börnin. Á hótelinu, eru barir, veitingastaður, líkamsræktaraðstaða og heilsulind. Þá er barnaklúbbur starfræktur hérna og hægt er að spila borðtennis, billiard, fótbolta, blak eða tölvuleiki. Einhver skemmtidagskrá er í gangi yfir daginn og á kvöldin. Þá er hér einnig háhraða internettenging, hárgreiðslustofa og þvottaaðstaða. Cettia Beach Resort er eitt besta fjögurra stjörnu hótelið á Marmaris!
EleganceEitt af betri lúxushótelum Marmaris með mjög góðan aðbúnað og einstaklega fjölbreytta þjónustu. Herbergi eru fallega og hlýlega innréttuð, með loftkælingu, minibar, síma, sjónvarpi og svölum. Baðherbergi eru með hárþurrku og baðkari. Hótelgarðurinn er einstaklega fallegur og þar er stór og góð sundlaug og lítill foss. Rétt við ströndina er einnig minni sundlaug og þar er líka ísbar, ef einhver þarf að kæla sig í hitanum. Á hótelinu er heilsulind, hægt er að komast í alls konar sjó- og vatnasport eða spila billiard, borðtennis og tölvuleiki. Skemmtidagskrá er í boði bæði á daginn og á kvöldin. Þá eru á hótelinu veitingastaðir, barir, ísbar og snarlbar. Þetta er frábær valkostur fyrir þá sem vilja hafa það sem allra best í fríinu, sameina góða og fjölbreytta þjónustu ásamt íburði og nálægð við strönd.
Frábært verðFrá kr. 149.940 – 10 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur með „öllu inniföldu“, 21. maí, Verð m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu inniföldu“ kr. 164.580.
Frábært verðFrá kr. 159.900 – 10 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur með „öllu inniföldu“, 21. maí, Verð m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu inniföldu“ kr. 199.900.
„allt innifalið“
„allt innifalið“
*) Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Fargjald A.
BodrumHeimsferðir bjóða enn á ný Íslendingum ferðir til Bodrum í Tyrklandi, sem
sló svo sannarlega í gegn í fyrra. Bodrum er fallegur hafnarbær sem
stendur á samnefndum skaga á Eyjahafsströnd Tyrklands með endalaust
úrval veitingastaða, bara, kaffihúsa, verslana og mikið nætur-og skemmtanalíf í
boði. Stutt er að fara frá flugvellinum í Bodrum og á gististaði Heimsferða sem
eru í bæjunum Gumbet, Bitez og Turgutreis, sem standa hver við sína vík við
suðurströnd Bodrumskagans. Bæirnir eru allir skammt frá Bodrum bænum og
gengur strætisvagn (s.k. Dolmus) á milli bæjanna á svæðinu.
Í Gumbet eru fallegar strendur og urmull veitingastaða, bara og kaffihúsa. Gumbet
er staðurinn fyrir þá sem vilja vera í eða við hringiðu mesta næturlífsins.
Bitez er fjölbreyttur og skemmtilegur bær en hér er andrúmsloftið rólegra en
í Gumbet. Bærinn býður fallega strönd, gott úrval veitingastaða og bara auk
verslana. Hér er falleg strönd og allt til staðar sem þarf til að virkilega njóta lífsins í
sumarleyfinu í frábæru umhverfi.
Turgutreis er næst stærsti bær á Bodrumskaga og býður úrval veitingastaða, bara
og verslana og eina allra bestu ströndina á svæðinu. Fallegur bær sem er einstakur
dvalarstaður í fríinu fyrir jafnt fjölskyldur sem einstaklinga.
Frá 121.640 kr.*
Frábærar 10, 11 eða 14 nátta ferðir í allt sumar og haust!
5
*) Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð í 10 nætur á Hotel Eken, 21. maí með allt innifalið.
La Blanche Resort & Spa La Blanche Resort & Spa er glæsilegt lúxushótel sem er frábærlega staðsett rétt við hinn fallega bæ Turgutreis. Á hótelinu eru 362 herbergi sem eru rúmgóð og bjóða öll þægindi sem vænta má, s.s. baðherbergi með baðkari, síma og hárþurrku, gervihnattasjónvarp, öryggishólf, síma, minibar, loftkælingu og svalir eða verönd. Hótelsvæðið er stórt og aðstaðan þar hreint frábær. Við hótelið er einkaströnd í sérstöku lóni þannig að aðstæður eru alveg einstakar. Sundlaugargarðurinn og sundlaugarnar eru stórar 1800m2 og sólbaðsaðstaðan er mjög góð. Frábært barnasundlaugarsvæði með vatnsrennibrautum o.fl. Á hótelinu eru fjórir veitingastaðir (þar af þrír A la Carte veitingastaðir), 5 barir þar af einn sportbar og vítamínbar. Skemmtidagskrá í boði á daginn og á kvöldin. Sérstök skemmtidagskrá fyrir börnin (4-12 ára). Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða, tennisvellir, bortennisborð, leiktækjasalur og margt fleira til afþreyingar.Þráðlaust internetaðgengi fyrir gesti. Glæsileg heilsulind (spa) er á hótelinu, þar sem mjög fjölbreytt þjónusta er í boði fyrir þá sem vilja nota tækifærið og láta dekra við sig í fríinu. Frá hótelinu er aðeins um 1 km til Turgutreis og um 19 km eru til miðbæjar BodrumÁ hótelinu er allt innifalið (s.k. Ultra All Inclusive), þ.e. morgun-, hádegis- og kvöldverðir, áfengir og óáfengir drykkir (allir innlendir drykkir og tilteknir innfluttir drykkir), snarl milli mála, vatnasport á ströndinni (án mótors), afnot af öryggishólfi, skemmtidagskrá, barnaklúbbur, handklæði á ströndina, þráðlaust internet o.fl.Fyrir ýmsa þjónustu á hótelinu þarf að greiða sérstaklega, t.d. sérstaka innflutta drykki, alla þjónustu í heilsulind o.fl.
Frábært verðFrá kr. 165.840 – 10 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur á La Blanche Resort & Spa, 21. maí. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 195.180 í herbergi í 10 nætur, 21. maí með allt innifalið.
Bitez Garden Life Hotel & Suites Fallegt og gott hótel í Bitez sem býður einstaklega góðan aðbúnað og fjölbreytta þjón-ustu. Hótelið var endunýjað á smekklegan hátt fyrir um tveimur árum. Stutt er að ganga frá hótelinu bæði á ströndina og í miðbæinn. Fallegur sundlaugargarður með sólbekkjum og sólhlífum, sundlaug, barnalaug og sundlaugarbar. Á hótelinu eru veitingastaðir, vínbar og bar. 107 herbergi eru á hótelinu. Herbergin eru smekklega innréttuð og með loftkælingu (gegn aukagjaldi), síma, öryggishólfi, sjónvarpi, baðherbergi með hárþurrku og svölum eða verönd. Skemmtidagskrá á daginn og kvöldskemmtun þrisvar í viku. Þráðlaust internetaðgengi, sauna, tyrkneskt bað o.fl. fyrir gesti. Hálft fæði er innifalið, morgun- og kvöldverður.
Frábært verðFrá kr. 125.940 – 10 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur með „öllu inniföldu“, 21. maí, Verð m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu inniföldu“ kr. 149.280.
Glæsileg gisting – „allt innifalið“
„allt innifalið“
7
Bo
dru
m
Hotel Eken Resort Hotel Eken Resort er vel staðsett við ströndina í Gümbet og stutt frá miðbænum. Aðeins eru um 3 km til miðbæjar Bodrum. Hótelið var byggt árið 2004 og býður gestum fjölbreytta þjónustu og góðan aððbúnað í fríinu. Á hótelinu eru 101 herbergi með öll helstu þægindi, s.s. loftkælingu, baðherbergi með hárþurrku, gervihnattasjónvarp, öryggishólf (leiga), síma og litlar svalir eða verönd. Aðeins eru um 30 m. á ströndina. Í sundlaugargarðinum er góð sólbaðsaðstaða með sólbekkjum, sólhlífum og sundlaugarbar. Á hótelinu er veitingastaður og 2 barir. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða, sauna, lítil verslun, internetaðstaða, bortennisborð og fleira til afþreyingar.Hér er allt innifalið, þ.e. morgun-, hádegis- og kvöldverðir, innlendir áfengir og óáfengir drykkir (kl. 10.00-24.00), snarl milli mála o.fl. Fyrir ýmsa þjónustu á hótelinu þarf að greiða sérstaklega, t.d. sérstaka innflutta drykki o.fl.
Frábært verðFrá kr. 142.840 – 14 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi í 14 nætur á Hotel Eken, 2. júlí í 14 nætur. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 176.480 í herbergi í 14 nætur, 2. júlí með allt innifalið.
„allt innifalið“
L’Ambiance Resort L’Ambience Resort er fallegt og notalegt hótel í Gümbet. Hér er góður aðbúnaður og vel hugað að þörfum gesta í fríinu. Á hótelinu eru 162 herbergi sem bjóða öll helstu þægindi, s.s. baðherbergi með hárþurrku, gervihnattasjónvarp, öryggishólf (leiga), síma, lítinn kæli, loftkælingu og litlar svalir eða verönd. Sund-laugargarðurinn er fallegur og sólbaðsaðstaða er góð með sólbekkjum, sólhlífum og sundlaugarbar. Í garðinum er góð sundlaug og barnalaug. Á hótelinu eru veitingastaðir og barir auk setustofu, líkamsræktaraðstöðu, lítillar verslunar, bortennisborðs, pílukasts og fleiru til afþreyingar. Um 10 mín. gangur er í miðbæ Gümbet og álíka langt á ströndina. Hótelskutla gengur á ströndina á morgnana og til baka í eftirmiðdaginn. Hér er allt innifalið, þ.e. morgun-, hádegis- og kvöldverðir, innlendir áfengir og óáfengir drykkir (kl. 10-23), snarl milli mála o.fl. Fyrir ýmsa þjónustu á hótelinu þarf að greiða sérstaklega.
Frábært verðFrá kr. 123.740 – 10 næturNetverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur á L´Ambiance, 21. maí Netverð á mann m.v. 2 fullorðna kr. 145.880 í herbergi í 10 nætur, 21. maí með allt innifalið.
Blue Bay Hotel Gott og einstaklega vel staðsett hótel í Bitez sem var algjörlega endurnýjað 2009. Hótelið stendur við ströndina og miðbæinn. Herbergi eru með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, síma og baðherbergi með hárþurrku. Við hótelið er sundlaugargarður með sólbekkjum, sundlaug, barnalaug og sundlaugarbar. Á hótelinu er veitingastaður og bar. Mjög gott og notalegt fjölskyldurekið hótel á frá-bærum kjörum. Örstutt er að skreppa til Bodrum og stoppar strætóinn við hótelið.Hér er allt innifalið, þ.e. morgun-, hádegis- og kvöldverður auk innlendra áfengra og óáfengra drykkja (til kl. 23). Fyrir ýmsa aðra þjónustu á hótelinu þarf að greiða sérstaklega.
Frábært verðFrá kr. 128.820 – 10 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur með „öllu inniföldu“, 21. maí, Verð m.v. gistingu í tvíbýli með „öllu inniföldu“ kr. 139.080.
Nýlega endurnýjað – mjög góður kostur!
„allt innifalið“
„allt innifalið“
Kemer – AntalyaFrá 164.840 kr.*
Heimsferðir bjóða tvær frábærar haustferðir til Antalya í Tyrklandi í október.
Antalya er einn allra vinsælasti ferðamannastaður Tyrklands og býður
einstaklega glæsileg hótel, fjölbreytt mannlíf og fyrsta flokks aðstæður í
hvívetna fyrir ferðamenn.
Hótel Heimsferða eru annars vegar staðsett á Lara ströndinni, rétt utan við borgina
Antalya. Þetta svæði er oft kallað Vegas Tyrklands því þar eru hótelin stór og mjög
tilkomumikil. Hins vegar eru hótel Heimsferða staðsett í litla sjávarþorpinu Kemer,
sem var þar til fyrir nokkrum árum síðan alveg óþekktur ferðamannastaður. Nú er
þar blómleg ferðaþjónusta og það er ekki erfitt að sjá hvers vegna. Bærinn er sannur
gimsteinn, rétt vestan við Antalya. Í bænum búa um 12 þúsund manns, en mikill
fjöldi ferðamanna njóta þess að dvelja í þessum
yndislega bæ. Strandgatan er ótrúlega falleg og
mikið er af veitingahúsum og börum í bænum.
Margar skútur og bátar liggja við höfnina, enda
er bærinn mjög þekktur meðal áhugamanna
um siglingar. Þá er Moonlight Park, dýra- og
skemmtigarðurinn einstaklega skemmtilegur.
Við garðinn er einnig mjög fjörugt skemmtanalíf
á kvöldin.*) Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð í 11 nætur á Hotel Ambassador, 18. okt með allt innifalið.
9
Limak Lara – Antalya Limak Lara hótelið á Lara ströndinni er eitt það glæsilegasta, ef hægt er að gera upp á milli þeirra 5 stjörnu hótela sem eru hér staðsett. Hótelið er í um 25 km fjarlægð frá miðbæ Antalya og ganga hótelskutlur frá hótelinu á daginn. Herbergin eru nútímalega innréttuð og mjög rúmgóð. Öll eru þau búin loftkælingu, öryggishólfi, síma, sjónvarpi, minibar og hægt er að komast á internetið gegn aukagjaldi, baðherbergi eru með hárþurrku, baðkari og sturtu. Á hótelinu eru barir, kaffitería og veitingastaðir og þar er veitt fjölbreytt og góð þjónusta og eitthvað í boði fyrir alla. A la carté veitingastaðir eru líka fjölbreyttir m.a. sushi og indverskur staður. Athugið að panta þarf í móttöku, við komu á hótelið, borð á A la carté veitingastöðunum.Garðurinn er stórkostlegur með nokkrum sundlaugum, vatnsrenni-brautum, börum, veitingastöðum og skemmtidagskrá er í gangi allan daginn. Hægt að er að komast í tennis, blak, fótbolta, bocchia og fleira sport, allt eftir því hvað hugurinn girnist hverju sinni.
Kemer Resort – Kemer Afar gott hótel í Kemer sem býður mjög fjölbreytta þjónustu. Á hótelinu eru 357 ákaflega vel búin herbergi, öll með loftkælingu, síma, öryggishólfi, internetaðgengi og minibar, þá er hárþurrka á baðherbergi. Á hótelinu eru nokkrir veitingastaðir og ber fyrst að nefna hlaðborðsveitingastaðinn Merhaba en á hótelinu eru einnig kínverskur, japanskur og ítalskur a la carté veitingastaðir. Nokkrir barir eru á hótelinu, bæði á inni- og útisvæði og vert að nefna að einn þeirra er sérstakur Karaoke bar, ef einhvern langar að taka lagið. Fjölbreytt afþreying er í boði fyrir gesti hótelsins og skemmtidagskrá í gangi bæði fyrir fullorðna og börn. Hægt er að spila blak, tennis, mini-golf, pílukast eða læra hinn tælandi tyrkneska magadans. Þá er hér “diskótek” og á stundum eru haldin sérstök bryggjupartí eða strandpartí á vegum hótelsins. Á hótelinu er að sjálfsögðu heilsulind (spa) þar sem upplagt er að fara í nudd eða aðra slökun, því fjölbreytt þjónusta er þar í boði. Vatnasport af öllum tegundum er að finna við ströndina og mikið úrval í boði.
Kem
er –
Ant
alya
Frábært verðFrá kr. 164.840 – 11 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi á Hotel Ambassador í 11 nætur 18. okt. Netverð á mann m.v. 2 fullorðna kr. 184.900 í herbergi í 10 nætur, 8.okt. með allt innifalið.
Frábært verðFrá kr. 174.840 – 11 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi í 11 nætur á Melas Lara, 18. okt. Netverð á mann m.v. 2 fullorðna kr. 235.380 í herbergi í 11 nætur, 18. okt. með allt innifalið.
Frábært verðFrá kr. 193.840 – 11 nætur Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi í 11 nætur á Limak Lara, 18. okt. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 244.280 í herbergi í 11 nætur, 18. okt. með allt innifalið.
Frábært verðFrá kr. 171.140 – 11 nætur Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í fjölskyldu herbergi í 11 nætur á Kemer Resort, 18. okt. Netverð á mann m.v. 2 fullorðna kr. 182.580 í herbergi í 11 nætur, 18. okt. með allt innifalið.
Melas Lara – Kemer Melas Lara er afar glæsilegt 5 stjörnu hótel sem opnaði vorið 2009 og stendur alveg við ströndina. Á hótelinu eru 264 herbergi, öll vel búin með loftkælingu, síma, öryggishólfi, LCD sjónvarpi og minibar. Í hverju herbergi er einnig te-/kaffivél og baðherbergin eru með góðu baðkari og hárþurrku. Þá eru öll herbergin með svölum. Á hótelinu eru nokkrir barir og veitingastaðir og úr mörgu að velja meðan á dvölinni stendur. Sundlaugagarðurinn er glæsilegur með sundlaugum, rennibrautum og góðri aðstöðu til sólbaða. Hér er einnig afar góð líkamsræktarstöð og heilsulind með gufubaði og innisundlaug og hægt er að komast í hið rómaða tyrkneska bað eða nudd (gegn aukagjaldi). Við hótelið er tennisvöllur og hægt er að komast í billiard og þá er skemmtidagskrá í boði fyrir hótelgesti.
Ambassador – Kemer Ambassador Group hótelið er notalegt 4ra stjörnu fjölskyldurekið hótel í göngufæri við lífið og fjörið í miðbæ Kemer, þar sem urmull af verslunum, veitingastöðum og börum er að finna. Hótelið var allt endurinnréttað árið 2007 og samanstendur af fimm fjögurra hæða byggingum. Á hótelinu er hlaðborðsveitingastaður, a la carte veitingastaður og fjórir barir. Hér er einnig nýleg heilsulind og góð líkamsræktaraðstaða og þá er góður garður umhverfis hótelið með vatnsrennibrautum og fossum í sundlaugunum tveimur. Nuddpottar (jacuzzi) eru bæði á úti- og innisvæði. Einkaströnd er rétt við hótelgarðinn og þar eru sólbekkir og sólhlífar í boði án aukagjalds. Herbergin eru rúmgóð (25 fermetrar) og öll með loftkælingu, minibar, öryggishólfi, síma og LCD sjónvarpi. Þá er sturta á baði og hárþurrka.
Costa del Sol er tvímælalaust vinsælasti áfangastaður Íslendinga í sólinni,
enda býður enginn annar áfangastaður á Spáni jafn glæsilegt úrval
gististaða, veitingastaða og skemmtunar. Héðan er örstutt að skreppa yfir
til Afríku og Gibraltar og töfrar Andalúsíu heilla alla þá sem henni kynnast. Hér ertu
í hjarta fegursta hluta Spánar í seilingarfjarlægð frá Granada, Sevilla og Cordoba,
Jerez, Ronda og Cadiz.
Heimsferðir bjóða frábært úrval vinsælla gististaða á Costa del Sol. Hér er frábær
aðstaða fyrir ferðamanninn, einstakt loftslag og ótrúlegt úrval veitinga- og
skemmtistaða. Ströndin hefur
ár eftir ár verið valin hreinasta
strönd Evrópu og fyrir þá
sem vilja upplifa menningu,
músík og fagra byggingarlist
þá er Andalúsía sá staður
Spánar sem hefur mest að
bjóða, enda er hér að finna
sterkustu sérkenni spænskrar
menningar.
Frá 98.840 kr.*
Costa del Sol
*) Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð í 10 nætur á Apartamentos Alay´s, 15. maí.
11
Hotel PalmasolMjög gott 3ja og hálfs stjörnu hótel með 269 herbergjum á Benalmadena ströndinni, rétt hjá Puerto Marina snekkjubátahöfninni. Á hótelinu eru upphituð sundlaug, líkamsræktaðstaða, sauna, nuddpottur og góður garður umhverfis hótelið. Öll herbergin eru með loftkælingu og á baðherbergjum er hárþurrka. Næstum öll herbergi eru með svölum eða verönd.Á hótelinu er bar og veitingastaður, hægt að spila borðtennis og fara í billiard og á kvöldin er skemmtidagskrá fyrir hótelgesti. Athugið að fjölskylduherbergin eru eitt stórt herbergi með 2 tvíbreiðum rúmum þar sem gert er ráð fyrir að 2 fullorðnir og 2 börn geti sofið. Örstutt á ströndina eða einungis um 250 metrar.
Frábært verðFrá kr. 123.940 – 10 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur á hotel Palmasol, 15. maí. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 151.280 í herbergi í 10 nætur, 15. maí með allt innifalið.
Co
sta
del
So
l
Á Costa del Sol er eitt mesta úrval af glæsilegum veitingastöðum á Spáni. Bæirnir Torremolinos,
Fuengirola og Marbella státa af úrvali veitingastaða af öllum þjóðernum, enda fátt skemmtilegra
en að upplifa mismunandi stemmningu í fríinu.
Andalúsía er ótrúlega falleg og upplagt að nota dvölina, taka sér bílaleigubíl og flakka á meðan
maður er í fríi. Hér eru ótrúlega falleg þorp upp um allar sveitir, hvítu þorpin, með einstöku
andrúmslofti horfins tíma. Jerez de la Frontera, Chiclana, Arcos de la Frontera með kastalanum
uppi á toppi, Ronda með gljúfrinu fræga, hvíta ströndin í Tarifa, Granada, Sevilla og Cordoba.
„allt innifalið“ Nýr frábær valkostur á Costa del Sol
Hotel Griego MarMjög gott þriggja stjörnu hótel skammt frá miðbæ Torremolinos. Hótelið er nokkuð stórt og býður mjög fjölbreytta aðstöðu og þjónustu fyrir gesti. Á hótelinu er stór veitingastaður, kaffitería, snarl-bar og barir. Fjölbreytt afþreying í er boði á hótelinu, m.a. billiard og borðtennis. Þá er við hótelið góður sundlaugargarður með sundlaug, sundlaugarbar og sólbaðsaðstöðu. Á herbergjum er loftkæling, sími, öryggishólf, gervihnattasjónvarp, baðherbergi og svalir eða verönd. Skemmtidagskrá er í boði fyrir hótelgesti. Rétt við hótelið er hringiða Torremolinos með úrvali verslana, veitingastaða, næturklúbba og bara. Frá hótelinu er um 15 mín. gangur á ströndina. Hér er allt innifalið, þjónusta sem felur í sér að morgun-, hádegis-, og kvöldverður er innifalinn ásamt léttu snarli á milli mála. Þá eru drykkir, áfengir og óáfengir (innlendir) einnig innifaldir meðan á dvöl stendur. Fyrir einhverja tegund af drykkjum og þjónustu þarf að greiða aukalega, fáið upplýsingar um það við komu á hótel.
Hotel Roc Flamingo Roc Flamingo er gott og huggulegt hótel rétt við miðbæ Torremolinos. Við hótelið er sundlaug, sundlaugarbar og sólbaðs-aðstaða. Á herbergjum er loftkæling, sími, öryggishólf, gervihnattasjónvarp, bað-herbergi og svalir eða verönd. Rétt við hótelið er hringiða Torremolinos með ótrúlegu úrvali verslana, veitingastaða, næturklúbba og bara. Skemmtidagskrá í boði fyrir hótelgesti. Frá hótelinu er aðeins um 15 mín. gangur á ströndina. Á hótelinu er „allt innifalið“ sem felur í sér morgun, hádegis- og kvöldverð auk áfengra og óáfengra innlendra drykkja, s.s. bjór, gos, vatn, léttvín og sterkt vín. Jafnframt er snarl o.fl. á milli mála.
Frábært verðFrá kr. 104.240 – 12 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í herbergi í 12 nætur á hotel Griego Mar, 28. mars. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 124.900 í herbergi í 12 nætur, 28. mars með allt innifalið.
Frábært verðFrá kr. 110.900 – 10 nætur með „öllu inniföldu“Netverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur á Hotel Roc Flamingo, 15. maí. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 126.280 í herbergi í 10 nætur, 15.maí með allt innifalið.
Hotel Las Palomas Gott hótel sem býður fína aðstöðu og góða stað-setningu í Torremolinos við hið vinsæla Carihuela svæði. Hótelið var endurnýjað árið 2007. Fullt af verslunum og veitingastöðum í næsta nágrenni. Veitingastaður, bar, fallegur og góður sundlaugargarður með sól-baðsaðstöðu, sundlaug og barnalaug. Örstutt á hina frábæru Carihuela strönd og aðeins um 15 mín. gangur í miðbæ Torremolinos. Hentar ekki vel fyrir þá sem eiga erfitt með gang þar sem ganga þarf upp brekku að hótelinu. Herbergin eru smekkleg með baðherbergi, loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, öryggishólfi, síma og internetaðgengi. Ath. ekki eru öll herbergi með svölum eða verönd. Kvöldskemmtanir á hótelinu nokkrum sinnum í viku.
Frábært verðFrá kr. 112.640 – 10 nætur með fullu fæðiNetverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í fjölskyldu herbergi í 10 nætur á Hotel Las Palmas, 15. maí. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 135.900 í herbergi í 10 nætur, 15. maí með fullu fæði.
„allt innifalið“
„allt innifalið“
fullt fæði
13
Co
sta
del
So
l
AguamarinaGott íbúðahótel sem býður góða aðstöðu og frábæra stað-setningu. Hér er að finna fallegar stúdíóíbúðir og íbúðir með 1 eða 2 svefnherbergjum, með eldhúskrók, baði, svölum, sjónvarpi og síma. Athugið að ekki eru allar stúdíóíbúðirnar með svölum. Íbúðirnar með einu svefnherbergi eru með glugga á svefnherberginu sem opnast inní stofu. Móttaka á jarðhæð og veitingastaður sem opnast út í garðinn. Örstutt er að fara í gamla bæinn, því ef farið er með lyftunni á efstu hæð hótelsins, er gengið beint út á götu sem liggur að göngugötunni í gamla bænum. Góður kostur fyrir þá sem leita að rólegum og þægilegum gististað.
Aparthotel BajondilloFrá bær lega sta› sett hótel vi› strönd ina me› afar fal leg um gar›i og mik illi fljón ustu. Ör stutt er a› ganga í mi› bæ inn og geng i› er úr gar› in um, yfir göt una og ni› ur á strönd. Í bo›i eru stúdíó í bú›-ir og í bú› ir me› einu svefn her-bergi, all ar me› ba›i, eld hús krók og svöl um. Inn rétt a› ar á ein fald an en smekk leg an hátt. Tveir veit inga-sta› ir, sundlaugar, b ar og leikja-her bergi. Bajond illo hef ur ver i› einn vin sæl asti gisti sta› ur Heims-fer›a far flega og nú eru all ar í bú› ir me› sjón varpi, síma og loft kæl-ingu.
Melia Costa del SolGlæsilegt hótel í Sol hótelkeðjunni sem staðsett er rétt við Bajondillo. Hér er að finna alla þá þjónustu sem þú vilt á einu hóteli, veitingastaður, bar, verslun, hárgreiðslustofa o.fl. Úr garðinum er gengið beint niður á strönd. Á hótelinu eru 540 herbergi öll með loftkælingu, gervihnattasjónvarpi, síma, minibar, öryggishólfi, mjög vel útbúnu baðherbergi. Aðeins 5 mín. gangur í gamla bæinn (með því að nota lyftu við hlið hótelsins). Frábær kostur fyrir þá sem vilja gistingu með fullri þjónustu.
Frábært verðFrá kr. 101.840 – 11 næturNetverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð í 11 nætur, 14. júní. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 119.700 í studio í 11 nætur, 14. júní.
Frábært verðFrá kr. 110.540 – 11 næturNetverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára í íbúð í 11 nætur, 14. júní. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 117.800 í studio í 11 nætur, 14. júní.
Frábært verðFrá kr. 149.520 – 10 nætur með hálfu fæðiNetverð á mann með 10.000 kr. afslætti, m.v. 2 fullorðna og 1 barn, 2-11 ára í herbergi í 10 nætur á Melia Costa del Sol, 15. maí. Netverð a mann m.v. 2 fullorðna kr. 165.380 í herbergi í 10 nætur, 15.maí með hálfu fæði.
Aðrir gististaðir í boði
• Partamentos MS Alay’s• Ecuador Park• Sunset Beach Club• Hotel Amaragua
• Hotel Marbella Banus• Hotel Puente Real• Hotel Balmoral
Prag er ótvírætt ein fegursta borg Evrópu. Stórkostlegar byggingar og
listaverk bera vott um ríkidæmi og völd, baráttu, hugsjónir og listsköpun
allt fram til þessa dags. Hradcanykastalinn og Vitusarkirkjan sem gnæfa
yfir borgina, iðandi Karlsbrúin, gamli bærinn með Staromestske-torginu, þröngar
göturnar og Wenceslas-torgið; allt eru þetta ógleymanlegir staðir. Ekkert jafnast
á við að rölta um götur Prag
og drekka í sig mannlífið og
söguna. Í Prag er endalaust úrval
veitingastaða, bara og kaffihúsa
og í borginni er einnig hreint
frábært að versla. Heimsferðir
bjóða fjölbreytta gistingu auk
spennandi kynnisferða með
fararstjórum Heimsferða sem
gjörþekkja borgina.
Frá 69.900 kr.
Prag
Frábært verð69.900 kr.Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
79.900 kr.Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 3 nætur á Hotel Ilf. Sértilboð 28. apríl.
Frábærar helgarferðir í vor og haust
Vorferð28. apríl – 3 nætur
Haustferðir29. sept. – 3 nætur
6. okt. – 4 nætur
Í VOR OG HAUST
15
Pra
g
Hotel IlfHotel IBIS Mala StranaJurys InnPark InnNovotelHotel IBIS Old TownCentury Old Town PragueHotel Pachtúv Place
Nánar á www.heimsferdir.is
Önnur hótel í Prag
Adria
Clarion Congress
Ibis Wenslas Square
Crowne Plaza Prague Castle
Heimsferðir bjóða nú beint flug til Búdapest, einnar eftirsóttustu borgar
Evrópu, tíunda árið í röð. Vorin og haustin eru vinsælasti tíminn til að
heimsækja borgina en þá iðar hún af lífi auk þess sem menningarlífið er
með fjörugasta móti. Búdapest stendur á einstökum stað við Dóná sem skiptir henni
í tvennt: annarsvegar er Búda, eldri hluti borgarinnar, sem stendur í hlíð vestan
árinnar og hinsvegar Pest.
Frá 69.900 kr.
Búdapest
Frábært verðFrá aðeins
69.900 kr.Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
89.900 kr.Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 4 nætur á Hotel Arena ****. Sértilboð 21. apríl.Ath. takmarkaður fjöldi herbergja!
Í VOR OG HAUST
Vorferðir21. apríl – 4 nætur (páskaferð)
28. apríl – 4 nætur (uppselt)
Haustferðir6. okt. – 4 nætur
20. okt. – 4 nætur
17
Búd
apes
tÍ Búda eru margar stórfenglegar byggingar,
listaverk og sögulegar minjar. Má þar nefna
Kastalahverfið, sem gnæfir yfir borgina og
hina stórfenglegu Matthíasarkirkju, rústir
Aquincum sem var fyrsta baðhús Rómverja,
hellana og Gellért-hæðina með hinni 14
metra háu frelsisstyttu. Frá henni er frábært
útsýni yfir Pest sem byggð er á sléttunni
austan megin árinnar.
Í Pest er verslunarhverfið, leikhúsin og Óperan.
Þar blómstrar menningarlífið, en alla daga
má velja um fjölda leiksýninga, tónleika eða
listsýninga. Pest státar einnig af hinu fræga
hetjutorgi og þinghúsinu, sem er hið þriðja
stærsta í Evrópu. Ungverjar eru orðlagðir fyrir
gestrisni og í Búdapest er frábært að njóta
góðra veitinga og kynnast þessari heillandi
og fögru borg í fylgd með fararstjórum
Heimsferða sem gjörþekkja hana.
Spennandi kynnisferðir í boði
Nánar á heimsferdir.is
Ibis Váci útMercure DunaMercure MetropolMercure MuseumMercure KoronaHotel MarmaraNovotel CentrumRadisson SASHotel ArenaHotel Erzsébet
Önnur hótel í Búdapest
VORIN OG HAuSTIN ERu VINSæLIR TíMAR í BORGINNI SEM IðAR AF LíFI
AuK þESS SEM MENNINGARLíFIð ER MEð FJöRuGASTA MóTI
Mercure Duna
Mercure Museum
Radisson BLu Beke
Heimsferðir bjóða nú einstakt tækifæri til borgarinnar eilífu, í beinu leiguflugi
í október. Nú getur þú kynnst þessari einstöku borg, sem á ekki sinn
líka í fylgd fararstjóra Heimsferða og upplifað árþúsundamenningu og
andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið,
Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið. Skoðaðar
verða hallir og meistaraverk endurreisnartímans, barokk-kirkjur og stórkostleg
Frá 79.900 kr.
Róm
Frábært verðFrá aðeins
79.900 kr.Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
119.900 kr.Netverð á mann í tvíbýli á Hotel Galles í 4 nætur, 28. okt.
28. OKTÓBER – 4 NæTUR
Ró
mSpennandi kynnisferðir í boði
Nánar á heimsferdir.is
NH Hotel Vittorio Veneto
Hotel Beverly Roma
Hotel Torino
Hotel Royal Santina
Hotel Galles
19
meistarverk þeirra Rafaels og Michelangelos.
Við skoðum torgin í Róm, sérstaklega litríkt
mannlífið á Piazza Novona og við hinn fræga
Trevi brunn. Eyðum kvöldstund í gömlu
miðborginni Trastevere og borðum gómsætan
ítalskan kvöldverð. Eða einfaldlega að rölta um
þessa stórkostlegu borg, drekka í sig mannlífið,
njóta veitinga- og skemmtistaða og upplifa
hversvegna allar leiðir liggja til Rómar
Nýr ferðamannaskattur í RómÞann 1. janúar 2011 var settur á nýr ferðamannaskattur í Róm. Skattinn þurfa ferðamenn að greiða sjálfir á viðkomandi hóteli. Upphæðin er: 3 Eur á mann á dagá 3* hótelum og 4 Eur á mann á dag á 4* hótelum. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn. Sjá nánar á vefsíðu: http://en.turismoroma.it
SevillaHeimsferðir bjóða nú frábæra helgarferð til Sevilla, höfuðborgar hins einstaka
Andalúsíuhéraðs á Spáni. Sevilla er einstaklega fögur borg, rík af sögu og
stórfenglegum byggingum, s.s. Dómkirkjunni með Giraldaturninn þeirri
þriðju stærstu í heimi. Í miborginni og hinum eldri hlutum borgarinnar er einstök
stemmning, þröngar götur, veitinga- og kaffihús og heillandi torg. Auk þess er
óendanlegt úrval verslana í borginni. Vorið bregður Sevilla í sinn fegursta búning og
hún skartar öllu sem hún hefur til að bera. Gríptu þetta einstaka tækifæri og smelltu
þér í einstaka helgarferð.
Helgarferð31. mars - 4 nætur
Hotel Monte CarmeloHotel Monte TrianaHotel Vime CorregidorHotel Becquer
Nánar á www.heimsferdir.is
Hótel í Sevilla
*) Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
Sjá upplýsingar um umboðsmenn Heimsferða um land allt á www.heimsferdir.is
Frábært verð99.900 kr.Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 4 nætur á Hotel Monte Carmelo.
Frábær 4 nátta helgarferð
Frá 69.900 kr.*
Almennir skilmálarInnifalið í verði pakkaferða: Flug fram og til baka, gisting og íslensk fararstjórn. Staðgreiðsla miðast við að ferð sé greidd a.m.k. mánuði fyrir brottför. Annars gildir almennt verð sem er 5% hærra. Greiðsla með kreditkorti þarf að hafa borist 6 vikum fyrir brottför svo staðgreiðsluverð gildi. Í boði eru staðgreiðslulán MasterCard og VISA skv. sérstökum skilmálum þar um.Verðbreytingar: Verð er háð almennum gengisbreytingum fram að brottför og miðast við gengi evru, dollars og verð eldsneytis 1. febrúar 2011. Athygli er vakin á því að ef ferð er að fullu greidd tekur hún ekki verðbreytingum vegna gengisbreytinga sem kunna að verða fram að brottför.Uppgefið áætlað verð við staðfestingu pöntunar kann að taka breytingum ef breyting verður á einum eða fleiri eftirfarandi verðmyndunarþátta: • Flutningskostnaði, þar með töldum eldsneytiskostnaði. • Sköttum eða gjöldum fyrir tiltekna þjónustu, s.s. lendingargjöldum eða gjöldum fyrir að fara um borð eða frá borði í höfnum eða á flugvöllum. • Gengi þess gjaldmiðils sem á við um tiltekna ferð, þ.e. 1. febrúar 2011 sbr. hér að ofan.Athygli er vakin á að þessi gengisviðmiðunarákvæði eru liður í samningi milli aðila. Ekki er gripið til verðbreyt-inga nema heildarverð ferðar breytist um 10% eða meira. Ferð sem er að fullu greidd tekur ekki verðbreytingum og sé ferðin greidd að meiru en hálfu en þó ekki að fullu tekur ferðin verðbreytingum að 50% hluta.Ekki má breyta umsömdu verði síðustu 20 dagana áður en ferð hefst.Ath. að allt verð er viðmiðunarverð og getur tekið breytingum án fyrirvara.Bókunargjald: Öll verð í bæklingi miðast við netbókun á www.heimsferdir.is. Ef bókað er á skrifstofu eða í síma bætist við bókunargjald kr. 2.400 á mann.Forfallagjald: Fullorðnir kr. 2.200 og börn kr. 1.100. Valkvætt.Afsláttur: Smábarn greiðir kr. 7.000.Breytingargjald: Eftir að pöntun er staðfest skal greiða kr. 5.000 breytingargjald fyrir hverja breytingu, s.s breytingu á farþegafjölda, gististað, framlengingu ferðar o.s.frv. Með 14 daga fyrirvara er unnt að breyta flug-farseðli eftir að ferð er hafin, gegn greiðslu breytingargjalds kr. 5.000. Breytingar á flugfarseðli með minna en
7 daga fyrirvara eru ekki mögulegar.Pöntun á sérþjónustu: Bókunargjald fyrir miða á söngleiki, leikhús, fótboltaleiki, o.s.frv er kr. 2.000 fyrir hverja bókun. Bókun og afpöntun ferða: Til að staðfesta farpöntun skal greiða kr. 25.000 fyrir fullorðna og kr. 25.000 fyrir börn, nema þar sem annað er tekið fram (sbr. sérferðir og siglingar). Almennt skal staðfesta pöntun innan 5 daga, annars fellur hún sjálfkrafa niður. Staðfestingargjald er óafturkræft.Heimilt er að afturkalla farpöntun, sem borist hefur fimm vikum fyrir brottför eða fyrr, án kostnaðar, sé það gert innan viku frá því að pöntun var gerð. Berist afpöntun síðar, en þó fjórum vikum fyrir brottför, áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að halda staðfestingargjaldinu eftir. Sé pöntun afturkölluð með minna en 28 daga en meira en 14 daga fyrirvara heldur ferðaskrifstofan eftir 50% af verði ferðarinnar en þó aldrei lægri upphæð en sem nemur staðfestingargjaldi. Berist afpöntun með skemmri en 14 daga fyrirvara á ferðaskrifstofan kröfu á 75% fargjaldsins, en sé fyrirvarinn aðeins fjórir virkir dagar eða skemmri er allt fargjaldið óafturkræft. Sjá frekari skilmála um afpantanir í ferðaskilmálum Heimsferða.Forfallagjald: Forfallagjald tryggir endurgreiðslu (6.000 kr. sjálfsábyrgð á mann) ferðakostnaðar ef forföll eru vegna veikinda, slyss, þungunar, barnsburðar og veikinda eða andláts ættingja. Slíkt verður að staðfesta með læknisvottorði og áskilja Heimsferðir sér rétt til að kalla til tryggingalækni sinn. Greiðsla forfallagjalds er ekki í boði í allar ferðir, s.s. sérferðir og siglingar.Gerður er fyrirvari um villur, s.s. prentvillur sem kunna að vera í bæklingi þessum og áskilja Heimsferðir sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að allt verð í bæklingi er viðmiðunarverð og getur tekið breytingum án fyrirvara.Skilmálar: Ferðaskilmálar Heimsferða.
Heimsferðir 25. febrúar 2011
Umbrot og hönnun: ENNEMMPrentun: Oddi
141 776
UMHVERFISMERKI
PRENTGRIPUR
21
LjubljanaHaustferð 20. október
Einstök 4 nátta helgarferð
Heimsferðir bjóða nú aftur frábæra fjögurra nátta helgarferð til Ljubljana
höfuðborgar Slóveníu, einnar af leyndu perlum Evrópu sem allt of fáir
þekkja. Á hæð ofan við borgina gnæfir Ljubljana kastali og áin Ljubljanica
liðast um borgina. Það er einstakt að rölta með ánni og fylgjast með iðandi
mannlífinu. Miðbærinn er fullur af kaffi- og veitingahúsum og skemmtistöðum.
Margar verslanir eru í borginni, bæði risastór verslunarmiðstöð, sérverslanir af öllu
tagi og skemmtilegur miðbæjarmarkaður.
Hotel LevHotel Best Western SlonHotel ParkHotel City
Nánar á www.heimsferdir.is
Hótel í Ljubljana
Frá 79.900 kr.
Spennandi kynnisferðir• Ljubljana - bæjarferð• Fjallaperlan Bled• Postojna – hellarnir
Nánar á heimsferdir.is
Frábært verð79.900 kr.Flugsæti með sköttum.
99.900 kr.Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði á Hotel Park, 20. okt. í 4 nætur.
Heimsferðir bjóða, nítjánda árið í röð, beint flug til Barcelona. Í Barcelona
er iðandi mannlíf jafnt að nóttu sem degi, frægustu veitingastaðir og
skemmtistaðir Spánar, blómlegt tónlistarlíf og frábært veðurfar. Hér nýtur
þú daganna innan um fræg listasöfn og byggingarlist sem er ólík allri annarri í
heiminum. Gamli borgarhlutinn, Barrio Gotico, er frá 13. öld og hefur einstakt
aðdráttarafl. Þar drekkur þú í þig mörghundruð ára gamla sögu, á göngu um
þröng strætin, innan um gallerí,
veitingastaði, verslanir og söfn.
Frábært að verslaÍ Barcelona er frábært að versla.
Stórglæsilegar verslanir eru á
Diagonal breiðgötunni og gaman er
að rölta innan um litlar smáverslanir
í Barrio Gotico. Ekki má gleyma
verslunarmiðstöðvunum sem eru
fullar af spennandi búðum.
Frá 69.900 kr.
Barcelona
Frábært verðFrá aðeins
69.900 kr.Flugsæti báðar leiðir með sköttum.
109.900 kr.Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með morgunverði í 4 nætur á Hotel Ayre Gran Via. Sértilboð 5. maí.Ath. takmarkaður fjöldi herbergja!
Vorferð5. maí – 4 nætur
Haustferð13. okt. – 4 nætur
23
Bar
celo
naSpennandi kynnisferðir í boði
Nánar á heimsferdir.is
MenningarlífiðMenningarlífið er með ólíkindum í þessari fögru borg enda hefur hún alið af sér marga frægustu
syni Spánar. Tónleikar á hverjum degi, hvort sem er klassík, jass, einhver alþjóðleg poppstjarnan
eða hinn hefðbundni flamenkó. Liceu, óperuhöllin, Palau de Musica með klassík og óperur,
listasöfn Picassos, Mirós og Dalís. Þjóðlistasafnið, MNAC, hefur að geyma minjar Katalóníu og
nýlistasafnið, MACBA, í miðju Raval hverfinu hýsir nýstárlegar sýningar nútímalistamanna.
Ekki má gleyma að í borginni eru heimkynni eins frægasta fótboltaliði heims, FC Barcelona.
Óhætt er að fullyrða að heimsókn á Camp Nou leikvanginn líður þeim sem reyna seint úr minni.
Hotel Ayre Gran Via
Tryp Apolo
Hotel Zenit BarcelonaHotel Catalonia AtenasHotel Catalonia Barcelona PalaceHotel NumanciaHotel Zenit BorrelHotel Ayre RosellonHotel AtlantisHotel Barcelo SantsHotel Husa OrienteHotel Catalonia BernaHotel Astoria
Önnur hótel í Barcelona
Nánari upplýsingar á heimsferdir.is og hjá Herði H. Arnarsyni í
síma 618 4300 og á [email protected]
Frábært verðKr. 169.900Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í 7 nætur, 28. sept.
Innifalið: Flug, skattar, gisting með hálfu fæði, ferðir til og frá flugvelli, ótakmarkað golf alla daga, golfkerrur, æfingaboltar og fararstjórn.
FRáBæR GOLFSVæðI
– traust fararstjórn
Í HAUST
COSTA BALLENA I NOVO SANCTI PETRI I ARCOS GARDENS I MONTE CASTILLO
Golfveisla
28. september – 7 nætur5. október – 10 nætur
15. október – 10 nætur25. október – 7 nætur
25
Ben
ido
rm -
Alic
ante
Alicanteflugsæti til
Vinsældir Alicante svæðisins hafa vaxið ár frá ári enda fara
ferðamenn þangað aftur og aftur til að njóta alls þess sem það
hefur að bjóða. Hér er að finna eitt stöðugasta veðurfar á Spáni,
sól alla daga og hitinn er milli 25-30 gráður yfir sumartímann.
Heimsferðir bjóða flugsæti til Alicante frá apríl og fram í október.
Nánar á www.heimsferdir.is
Frá 59.900 kr.
Benidorm Frábær haustferðfyrir eldri borgara
1.-22. október Benidorm hefur verið einn vinsælasti áfangastaður Íslendinga í yfir 30 ár, enda er hér að finna eitt öruggasta veðurfar í Evrópu, sól og blíða í yfir 300 daga ár ári. Hingað sækja margir ár eftir ár til að njóta lífsins í veðurblíðunni og við aðstæður eins og þær gerast bestar. Það er notalegt að rölta eftir strandgötunni, bregða sér á kaffihús, sýna snilli sína í minigolfi eða fara á útimarkaðinn sem er haldinn á hverjum miðviku- og
laugardegi. Á Benidorm er fjöldi frábærra veitingastaða, bæði í gamla bænum og við strandgötuna og þar eru skemmtistaðir með lifandi tónlist sem ómar langt fram á kvöld. Gamli bærinn er heillandi og hefur mikið aðdráttarafl þar kemur fólk saman til að sýna sig og sjá aðra. Í þessum vor- og haustferð er boðið uppá gistingu á stórglæsilega 4* hóteli Hotel Mediterraneo og ÖLLU INNIFÖLDU.
Hotel MediterraneoAvda.Dr.Severo Ochoa, N. 16 3503 Benidorm Sími: 0034 96 688 9353 www.mediterraneobenidorm.com
Hótel Mediterraneo er staðsett beint á móti Benidorm Palace. Gott 4 * hótel sem fyllilega er hægt að mæla með. Góður aðbúnaður á allan hátt og hlaðborðið þeirra svíkur engann. Það tekur um 25 mínútur að ganga niður á strönd. Strætisvagn sem gengur meðfram ströndinni og niður í gamla bæinn stoppar beint fyrir utan hótelið. Sameiginleg aðstaða er mikil og góð. Stór móttaka er á jarðhæð með glæsilegum veitingastað, setustofu og bar. Skemmtidagskrá er á kvöldin og hljómsveit sem leikur fyrir dansi til miðnættis. Stór og fallegur garður með stórum sundlaugum og góðri sólbaðsaðstöðu. Að auki er á hótelinu innisundlaug, sauna, heitir pottar og líkamsræktarsalur. Hótelið er 3ja hæða með 172 loftkæld herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð með sjónvarpi, öryggishólfi, síma, ísskáp, internettengingu og öll með svölum. Hárþurrka á baði.
Sértilboð209.900 kr.með „öllu inniföldu“Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli með öllu inniföldu í 21 nótt á Hotel Mediterraneo.Verð fyrir einbýli kr. 277.580.
Tilboðið gildir til 20. mars!Eftir það hækkar verðið um 10.000 kr.
Gönguferðir
Heimsferðum er það mikil ánægja að kynna glæsilegar sérferðir sem verða í boði vor,
sumar og haust 2011. Í boði eru spennandi ferðir til staða sem notið hafa mikillar
hylli auk fjölda ferða um nýjar og framandi slóðir. Heimsferðir hafa á að skipa
einvala hópi sérfræðinga og fararstjóra með áratuga reynslu af skipulagningu og framkvæmd
sérferða um allan heim. Það er einlæg von okkar að þú finnir ferð við þitt hæfi og við óskum
þér og þínum góðrar ferðar hvert sem leiðin liggur á árinu 2011. Við kappkostum að gera
þína ferð sem ánægjulegasta.
Sérfe
rðir
Ítalía – á bökkum Gardavatnsins 4.-11. júní • 22.-29. ágústFararstjóri: Einar Garibaldi Eiríksson Vikulöng gönguferð til hins undurfagra Gardavatns þar sem dvalið verður á góðu 3*+ hóteli í útjaðri bæjarins Malcesine við norðausturenda Gardavatnsins. Scaligero kastalinn stendur á litlum tanga við vatnið og setur sterkan svip sinn á umhverfið. Í bakgrunni gnæfir fjallið Monte Baldo. Bærinn er mikið eftirlæti ferðamanna enda einstaklega skemmtilegur bær með þröngum hellulögðum strætum, litlum veitingastöðum, kaffihúsum og spennandi sérverslunum - og þar fær maður líklega besta ísinn við Gardavatnið!. Góðar samgöngur eru frá höfninni í Malcesine um Gardavatið vítt og breitt. Daglega verður haldið í spennandi dagsgöngur eftir ægifögrum göngustígum á milli litskrúðugra þorpa, gróðursællra unaðslunda og fjallstinda með óviðjafnanlegu útsýni yfir eina rómuðustu náttúruperlu Norður-Ítalíu.
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3*+ hóteli með hálfu fæði ( morgunverður og kvöldverður). Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 15 manns.
Ekki innifalið: Tilfallandi kostnaður á göngu; s.s. aðgangs-eyrir, bátar, kláfar, rútur og annað sem ekki er tilghreint íferðalýsingu. Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 15 manns. Hámarksþátttaka er 20 manns.
Netverð á mann Netverð á mann 4.-11. júní 22.-29. ágústkr. 196.600 á mann í tvíbýli kr. 203.800 á mann í tvíbýli. kr. 214.700 á mann í einbýli kr. 219.900 á mann í einbýli.
Ítalía – Cinque Terre28. maí - 4. júní 22.-29. ágúst 29. ágúst - 6. sept. Vinsælasta gönguferð Heimsferða! Vikulöng gönguferð um ströndina og þorpin í Cinque Terre á Ítalíu, á svæði sem býr yfir óviðjafnanlegri náttúrufegurð, menningu og sögu. Cinque Terre heitir eftir fimm þorpum sem virðast hanga utan í bröttum hlíðunum við ströndina sunnan við Genúa. Þarna mynda fallegar hafnir, fullar af litskrúðugum fiskibátum og þröng strætin mjög sérstaka stemmningu. Á millli þorpanna liggur fjöldi göngustíga, ýmist um þverhníptar klettasnasir eða um iðagrænar og ávalar hæðir þaktar vínviði og ólífuviðarlundum. Gist er á heimilislegu hóteli í einu þorpinu og farið þaðan í dagsgöngur. Gengið er í um 4-6 tíma á dag og flokkast ferðirnar sem léttar til miðlungserfiðar og henta því flestum sem eru í nokkuð góðu formi.
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hóteli með morgunverðar-hlaðborði. Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 15 manns. 5 kvöldverðir innifaldir í síðustu ferðinni. Í þeirri ferð er flogið til Íslands með millilendingu í London.
Ekki innifalið: Tilfallandi kostnaður á göngu; s.s. aðgangseyrir, bátar, kláfar, rútur og annað sem ekki er tilgreint í ferðalýsingu. Staðfestingargjald er kr. 25.000. Lágmarksþátttaka er 15 manns. Hámarksþátttaka er 20 manns.
Netverð á mann Netverð á mann 28. maí - 4. júni 22.-29. ágústkr. 199.900 á mann í tvíbýli. kr. 193.700 á mann í tvíbýli. kr. 246.600 á mann í einbýli. kr. 237.300 á mann í einbýli.
Netverð á mann 29. ágúst - 6. sept. kr. 229.600 á mann í tvíbýli. kr. 276.100 á mann í einbýli.
2727
Hjólaferð við Balatonvatnið21.-25 apríl – Páskar Dásamleg páskaferð til Ungverjalands. Ferðin hefst á einnar náttar dvöl í Búdapest. Á öðrum degi er ekið til smábæjarins Tihany er stendur við Balaton vatnið. Þar er dvalið í 3 dýrðar daga og hjólað meðfram bökkum Balaton vatnsins sem er stærsta stöðuvatn mið-Evrópu og mikil náttúruperla. Lítil þorp og bæir standa við vatnið og státa af gömlum fallegum byggingum og forvitnilegri sögu. Héraðið í kring um Balatonvatnið er mikið vínræktarhérað og í ferðinni munu farþegar hjóla í gegnum um lítil syfjuleg þorp, heimsækja vínbændur og fræðast um daglegt líf þorpsbúa. Dagleiðir eru hvorki langar (frá 22-44 km á dag) né erfiðar, þannig að flestir sem eru í góðu formi geta tekið þátt í þessari ferð. Leiga á hjólum er innifalið í verði ferðarinnar.
GyörGyör - Vínarborg - Bratislava - Budapest
21.-25 apríl – Páskar Fararstjóri: Gunnhildur Gunnarsdóttir
Skemmtileg 5 daga sérferð til borgarinnar GYöR sem er í norðvestur hluta Ungverjalands. Borgin stendur við ármót Rába árinnar og þverár Dónár. Afar falleg og vinaleg borg með litríkum miðbæ og stórkostlegum byggingum í barrok stíl. Þar er mikið af sögulegum minjum, og er það aðeins höfuðborgin Búdapest sem státar af fleiri. Györ hefur hlotið Evrópu-verðlaunin fyrir varðveislu og viðhald sögulegra bygginga í gamla miðbænum. Kirkjur, hallir, söfn og þröng hellulögð stræti þar sem notalegt er að fá sér göngutúr og skoða sig um og njóta líðandi stundar. Úrval kaffihúsa,
veitingastaða, spennandi sérverslanna og næturklúbba eru einnig að finna í Györ. Borgin er skammt frá landamærum Austuríkis og Slóvakíu svo það er stutt að heimsækja borgir á borð við Vín og Bratislava og í þessari ferð munum við nota það einstaka tækifæri með Gunnhildi fararstjóra sem er hér nánast á heimaslóðum.
Netverð á mann:kr. 149.900 á mann í tvíbýli. kr. 153.400 á mann í einbýli. Innifalið:Flug til og frá Budapest, skattar, gisting á góðu 3* hóteli í Budapest í eina nótt með morgunverði, gisting í 3 nætur á 4* hóteli í Tihany með morgunverði, 2 kvöldverðir. Leiga á hjólum í 3 daga. Akstur til og frá flugveli og áfangastöðum. Kynnisferð í Budapest. Enskumælandi fararstjóri.
Ekki innifalið:Hádegisverðir, drykkir, aðgangseyrir á söfn, tónleika og aðrar kynnisferðir en þær er tilgreindar eru í ferðalýsingu. Staðfestingargjald er kr. 25.000. Lágmarksþátttaka er 10 manns.
Netverð á mann:Kr. 129.900 á mann í tvíbýli. Kr. 139.900 á mann í einbýli.Kr. 7.800 aukagjald á mann v/stærri herbergis / tvíbýli.
Innifalið:Flug til og frá Budapest, skattar, gisting á góðu 3* hóteli í 4 nætur með morgunverð. 3 kvöldverðir. Kynnisferðir um: Györ, Sopron, Vínarborg, Bratislava og Budapest. Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið:Hádegisverður, aðgangseyrir á söfn, tónleika og aðrar kynnisferðir en þær er tilgreindar eru í ferðalýsingu. Staðfestingargjald er kr. 25.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Aðrar sérferðir
Töfrar Andalúsíu og sólskin á TorremolinosSevilla – Cordoba – Granada – Torremolinos
15.-25. maí Andalúsía er syðsta hérað Spánar eitt fallegasta og frægasta hérað landsins. Allt frá hrikalegum fjallvegum með stórkostlegu útsýni yfir í gróskumikla vínviði og ógrynni ólífutrjáa, til sögufrægra kastala og mikilfenglegra bygginga sem minnir á þann tíma er márar ríktu á Spáni. Í héraðinu er mikil vínrækt og er Andalúsía einkum frægust fyrir
framleiðslu sína á sérrí og sætum desert vínum. Mataræði er jafn fjölbreytilegt og landslagið í Andalúsíu og hér er hjarta tapasréttanna. Gist í Sevilla í 4 nætur. Miðborg Sevilla er einstaklega fögur með þröngum skuggsælum göngugötum, fallegum lágreistum húsum, líflegum gosbrunnum og dásamlegum torgum, kaffihúsum og litríku mannlífi. Hér er sögusvið óperunnar um Carmen og í Sevilla má sjá bestu flamenkódansarar Spánar sýna list sína. Á fimmta degi er ekið til hinnar sögufrægu borgar Córdoba. Á tímum máraveldisins var Córdoba höfuðborg héraðsins og var lengi vel talin glæsilegri en nokkur önnur borg þess tíma og menningarstarfsemin öll hin blómlegasta. Kynnisferð um miðborgina. Þá er haldið í suðurátt til baðstrandarbæjarins Torremolinos þar sem dvalið verður í 6 nætur á góðu hóteli í miðbænum með öllu inniföldu.
Netverð á mann kr. 179.900 á mann í tvíbýli. kr. 222.900 á mann í einbýli. Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hótelum í 10 nætur með hálfu fæði í Sevilla, og öllu inniföldu í Torremolinos. Kynnisferðir um Sevilla, Córdoba og Malaga. Akstur á milli áfangastaða og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið: Aðrar kynnisferðir en tilgreindar eru í ferðalýsingu.
Staðfestingargjald er kr.25.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Sérf
erð
ir
Perlur Tyrklands Sól – saga – menning
2.-16. júlíFararstjóri: Ólafur GíslasonBodrum – Istanbul – Grand Bazaar – Hippodrom – Bláa moskan – Topkapi höllin – Hagia Sophia – Sigling á Bosphorussundi – Canakkale – Troy – Assos – Pergamon – Izmir – Kusadasi – Efsus – Hús Maríu Guðsmóður – Pamukkale – Hierapolis Ógleymanleg ferð um Tyrkland þar sem fortíð og nútíð blandast á heillandi hátt. Ferðin hefst á flugi til Bodrum. Dvalið í Bodrum í 3 nætur. Á fjórða degi er flogið til borgarinnar Istanbul við
Bosporussundið sem skilur á milli Evrópu og Asíu. Ein af merkustu menningarborgum heims og ógleymanleg öllum þeim sem hana heimsækja. Dvalið þar í 4 daga. Á meðan á dvöl stendur er farið í spennandi kynnisferðir um þessa sögufrægu borg þar sem við skoðum m.a. turna, moskur, kirkjur, hallir, markaði og torg. Siglum á Bosphorussundi og njótum tyrkneskrar kvöldveislu með tilheyrandi dansi og gómsætum mat. Á áttunda degi er ekið í suðurvestur átt til borgarinnar Canakkale sem stendur beggja megin við Dardanellasundið sem tengir Eyja- og Marmarahafið. Á meðan á dvöl okkar stendur skoðum við meðal annars rústir borganna Assos og Troy (Tróju). Frá Canakkale er haldið til borgarinn Bergama sem er skammt norðan við Izmir. Dvalið þar í eina nótt. Kusadasi er næsti áfangastaður. Á leiðinni er komið við í hinni fornu borg Pergamon. Þar skoðum við hof, hallir, stræti ásamt víðfrægu bókasafni staðarins og rústum leikhúsins. Izmir er fjölmenn hafnarborgarinnar á vesturströnd Tyrklands. Stutt kynnisferð um borgina. Dvalið í Kusadasi í 2 nætur. Farið verður í kynnisferð til hinnar fornu borgar Efsus sem er eitt best varðveitta fornleifasvæði heims. Í lok ferðar okkar um Tyrkland er haldið til Pamukkale sem er eitt frægasta náttúrufyrirbæri Tyrklands. Gist í Pamukkale í 2 nætur. Frá Pamukkale er ekið til Bodrum flugvallar.
Netverð á mann kr. 289.900 á mann í tvíbýli. kr. 324.200 á mann í einbýli. Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3-4* hóteli í 14 nætur með öllu inniföldu í Bodrum og hálfu fæði á öðrum stöðum. Flug frá Bodrum til Istanbul. Kynnisferðir samkvæmt leiðarlýsingu. Akstur á milli áfangastaða og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið: Aðrar kynnisferðir en tilgreindar eru í leiðarlýsingu.
Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Náttúruperla í Austurríki Íslendingahótelið í St. Michael í Lungau 7.-14. júní • 25. ágúst - 1. september Smábærinn Lungau í Austurríki er mikil náttúruperla og vel þekktur meðal íslenskra skíðamanna sem þar hafa dvalið að vetri til. Á sumrin er bærinn himnaríki útivistarmannsins, því möguleikarnir eru nær endalausir; útreiðartúrar, sundlaugar, fjallarússíbani, svifdrekaflug, tennis, náttúrustígar og í göngufæri er fallegur 18 holu golfvöllur. Fjöllin í kring eru tilvalin fyrir léttar gönguferðir og njóta fjalladýrðarinnar, en ótalmargir möguleikar eru einnig fyrir hjólreiðafólk og annað útivistarfólk. Dvalið er á hinu stórgóða íslendingahóteli Hotel Speiereck þar sem gestir njóta vinalegrar þjónustu hótelhaldara í afslöppuðu andrúmslofti. Staðsetning Lungau er afar miðsvæði og t.d. eru einungis um 100 km til Salzburg, fæðingarbæjar Mozarts. Í boði verða stuttar kynnis- og gönguferðir um Lungau og næsta nágrenni.
7. - 14 júníkr. 169.300 á mann í tvíbýlikr. 187.400 á mann í einbýli
25. ágúst - 1. septemberkr. 152.800 á mann í tvíbýlikr. 164.400 á mann í einbýli
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hóteli með hálfu fæði. Akstur tilog frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið: Kynnisferðir, aðgangseyrir að söfnum og annað sem ekki er tilgreint í ferðalýsingu. Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns, einnig í kynnisferðum.
Ævintýri í Tyrklandisaga – fornminjar – kastalar – siglingar – léttar göngur – leirböð – sund – strandlíf
11.-21. júníFararstjóri: Ólafur Gíslason Sannkölluð ævintýraferð um suðvestur strönd Tyrklands. Suðurströnd Tyrklands er vogskorin með litlum víkum og vogum þar sem ilvolgur sandurinn gælir við túrkislitaðann sjóinn sem kallast á við skógi vaxnar hlíðar svo langt sem augað eygir. Litríkir bæjir og lítil þorp standa meðfram ströndinni eða kúra í hlíðunum fyrir ofan. Fornminjar og fornar borgir eru víða og munu verða hluti af því sem skoðað verður í ferðinni. Stórar og smáar snekkjubátahafnar setja
svip sinn á landslagið en þar má sjá allt frá litlum skonnortum vaggandi í flæðamálinu til seglskútna og glæsilegra lystisnekkja. Það er á þessar slóðir sem ferð okkar er heitið og dvöl í dásamlega 10 daga. Í upphafi ferðar er dvalið í Bodrum í 3 nætur, þá er dvalið í 2 nætur í Marmaris, 3 nætur í Fethiye og í lok ferðar er dvalið í Pamukkale í 2 nætur en þaðan er ekið til Bodrum flugvallar. Á hverjum áfangastað er haldið í spennandi kynnisferðir um staðinn og næsta nágrenni hans og eru þær innifaldar í verði ferðarinnar.
Netverð á mann kr. 227.200 á mann í tvíbýli. kr. 251.700 á mann í einbýli. Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3 - 4* hóteli í 10 nætur með öllu inniföldu í Bodrum og Marmaris, hálfu fæði á öðrum stöðum. Kynnisferðir samkvæmt leiðarlýsingu. Akstur á milli áfangastaða og íslensk fararstjórn miða við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið: Aðrar kynnisferðir en tilgreindar eru í leiðarlýsingu.
Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
29
Sumar í Sorrento 25. júlí - 1. ágústFararstjóri: Una Sigurðardóttir Við safírbláan Napolíflóann kúrir bærinn Sorrento í hlíðum fyrir ofan flóann innan um vínekrur og sítrustré. Frá Sorrento er stórkostlegt útsýni yfir flóann, með eyjarnar Capri á vinstri hönd og Ischia beint af augum. Þá trjónir Vesuvíus á hægri hönd sem fullkomnar þessa mynd. Stórkostleg umgjörð um þennan fallega bæ. Það er ekki einungis einstök fegurð staðarins sem hefur þetta aðdráttarafl heldur einnig staðsetning hans. Borgin Pompei sem grófst undir ösku um 79 e.kr. er nú í úthverfi Napólíborgar og aðeins um klukkutíma akstur þangað. Þá tekur það aðeins um 15 mínútur með svifnökkva að sigla frá Sorrento
til hinnar fögru eyju Capri. Eyjunar þar sem að rómversku keisarnir áttu sín sumarhús og má enn sjá leifar af. Stórkostlegur staður og einstök upplifun. Síðast en ekki síst þá er fallegasta ökuleið Ítalíu aðeins steinsnar frá Sorrento en það er hin svokallaða Amalfi leið. Flogið er til og frá Bologna. Á leiðinni til Sorrento er gist í eina nótt skammt frá Bologna. Í Sorrento er dvalið í 6 nætur á góðu 4* hóteli með hálfu fæði. Kynnisferðir um Sorrento, sigling til Capri og ferð til Amalfi innifaldar í verði. Á heimleið verður stoppað í Pompei og dvalið þar um stund áður en haldið er til flugvallar.
Á rómantískum slóðum á Englandi 15.-23. ágústOxford – Coventry – Stratford upon Avon – Blenheim Palace – Waddesdon Manor – Cotswold – Bourton on the Water – Tetbury – Lacock – Chipping – Bath – Wells – Glastonbury – Cheddar – Stonehenge – Winchester – Windsor Skemmtileg 9 daga ferð þar sem ekið er um og dvalið á rómantískum og sögulegum bæjum og þorpum mið- og suður Englands. Alls staðar gefur að líta spennandi söguslóðirr, töfrandi náttúrufegurð, minningarminjar frá fortíðinni og öfugt
listalíf nútímans. Dvalið í bæjunum Oxford, Bath og Windsor og þaðan haldið í kynnisferðri á hverjum degi. Dagleiðir eru stuttar og góður tími að njóta að skoða kastala, herragarða, dásamlega fallega garða og lítil vinaleg þorp sem lítið hafa breyst í tímans rás. Alls staðar er sagan við hvert fótmál og náttúrufegurðin er einstök.
Netverð á mann kr. 179.900 á mann í tvíbýli. kr. 199.700 á mann í einbýli. Innifalið:Flug til og frá Bologna, skattar, gisting á góðu 4* hóteli í 7 nætur með morgunverð. 6 kvöldverðir. Kynnisferðir til: Capri, um Amalfi ströndina og til Pompei. Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarks þátttöku 20 manns.
Ekki innifalið:Hádegisverður, aðgangseyrir á söfn, tónleika og aðrar kynnis-ferðir en þær sem tilgreindar eru í ferðalýsingu. Staðfestingargjald er kr. 25.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Netverð á mann kr. 199.800 á mann í tvíbýli. kr. 239.600 á mann í einbýli.
Innifalið:Flug til og frá London, skattar, gisting á góðum 4* hóteli í 8 nætur með hálfu fæði. Kynnisferðir. Aðgangseyrir að: heimili Shakespeares og Önnu Hathaways, Blenheim höllinni, Christchurch stúdentagarðinn í Oxford, hellaskoðun í Cheddar, akstur í geng um Gorge gilið í Cheddar, Rómversku böðin í Bath, Winchester kastalann og Windsor kastalann. Akstur til og frá flugvelli og milli áfangastaða og íslensk fararstjórn miðað við lágmarks þátttöku 25 manns.
Ekki innifalið:Aðrar kynnisferðir, siglingar eða aðgangur að söfnum en þær er tilgreint í ferðalýsingu. Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 25 manns.
Sérf
erð
ir
Töfrar TyrklandsBodrum – Kos – Ankara – Kappadocia – Konya – Pamukkale
27. ágúst - 6. septemberFararstjóri: Ólafur Gíslason Glæsileg sérferð þar sem farþegar skoða og fræðast um einstaka staði Tyrklands. Ferðin hefst á 4ra nátta dvöl í Bodrum. Á fimmta degi er flogið til höfuðborgarinnar Ankara. Farið verður í stutta kynnisferð um Ankara áður en haldið verður af stað til Kappadocia í hinu einstaka landsvæði Görene þjóðgarðsins sem er á heimsminjaskrá UNESCO. Landslagið í þessu litla héraði mið Tyrklands er vindsorfið móberg, sem varð til í eldgosum fyrir mörgum öldum. Það er ævintýri líkast að skoða þetta landsvæði þar sem meðal annars má sjá álfabyggðir, neðanjarðarþorp á mörgum hæðum, klaustur og
kirkjur sem víða hafa verið höggvin í mjúkt bergið. Þarna eru líka fjölbreyttar höggmyndir sem náttúran hefur sjálf mótað, keilur, pýramýdar, súlur og stallar. Dvalið í Kappadókía og Konya í fimm eftiminnilega daga. Þá er ekið að einu frægasta náttúrundri Tyrklands Pamukkale. Oft nefnt Bómullarhöllin. Kalksteinsklettar sem hafa ummyndast og mynda orðið eins konar svalir með rennandi vatni og þykir afar heilsusamlegt að baði sig í heitum uppsprettunum. Gisting við Pamukkale í eina nótt. Frá Pamukkale er ekið til Bodrum flugvallar og flogið til Íslands.
Netverð á mann kr. 269.900 á mann í tvíbýli. kr. 299.800 á mann í einbýli. Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3-4* hótelum í 10 nætur með öllu inniföldu í Bodrum með hálfu fæði á öðrum gististöðum. Flug frá Bodrum til Ankara. Kynnisferðir samkvæmt leiðarlýsingu. Akstur á milli áfangastaða og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið: Aðrar kynnisferðir en tilgreindar eru í leiðarlýsingu.
Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Aðventuferðir til Heidelberg 24.-28. nóvember • 2.-5. desember Heidelberg stendur við ána Neckar og er að flesta mati ein rómantískasta borg Þýskalands. Borgin er mikil háskólaborg og iðar af lífi. Ein lengsta göngugata í Þýskalandi, Hauptstrasse er lífæð og hjarta bæjarins með fjölda verslana, veitingastaða og iðandi mannlífi. Jólamarkaðurinn í Heidelberg er með eldri og þekktari jólamörkuðum í Þýskalandi. Hann opnar í lok nóvember og er fram að jólum og stemmningin er aldeilis frábær. Miðbærinn er fagurlega skreyttur og ljósum prýddur og fallegar byggingar borgarinnar búa til einstaka umgjörð um jólamarkaðinn. Í fagurlega skreyttum jólahúsum má finna alls konar skemmtilegan jólavarning, skreytingar, handverk, gjafavöru og góðgæti af ýmsu tagi.
Sigling um Miðjarðarhafiðog sæludagar á Benidorm 5.-19. maí • 13.-27. október
Sigling með glæsilegu skemmtiferða skipi verður sífellt vinsælli ferðamáti og þeir sem hafa einu sinni farið í siglingu kjósa að endurtaka það á ný. Í þessum siglingunni um Miðjarðarhafið er siglt með glæsiskipinu Costa Serena sem sjósett var árið 2007. Fimm stjörnu skip með fullu fæði og daglegri afþreyingar- og skemmtidagskrá. Þar er meðal annars „Samsara Spa“ sem er ein stærsta og glæsilegasta heilsulind um borð í skemmtiferðaskipi í dag. Fræðandi og skemmtilegar kynnisferðir eru í boði á hverjum áfangastað. Ferðin hefst á flugi til Barcelona þar verður dvalið í eina nótt. Þá tekur við dásamleg vikusigling um Miðjarðarhafið
þar sem við heimsækjum nýjan og spennandi áfangastað á hverjum degi. Þeir staðir sem siglt verður til eru Marseille í Frakklandi, Savona og Napolí á Ítalíu, Catania á Sikiley og Palma á Mallorca. Að lokum er siglt til Barcelona þar sem siglingunni lýkur. Frá Barcelona er ekið suður á bóginn til sólskins staðarins Benidorm sem ávallt hefur verið mikið eftirlæti Íslendinga. Þar er dvalið á góðu 4* hóteli með öllu inniföldu í 6 sæludaga. Sannarlega góður endir á skemmtilegri ferð. Frá Benidorm er ekið til Alicante og flogið þaðan til Íslands
2-5 desember Netverð á mann: Hótel Crown Plaza Hótel Central Heidelberg kr. 113.800 á mann í tvíbýli. kr. 109.500 á mann í tvíbýli. kr. 133.900 á mann í einbýli. kr. 129.800 á mann í einbýli.
24.-28. nóvember Netverð á mann:Hótel Crown Plaza Hótel Central Heidelbergkr. 123.800 á mann í tvíbýli. kr. 115.900 á mann í tvíbýli. kr. 149.900 á mann í einbýli. kr. 142.800 á mann í einbýli.
Innifalið:Flug til og frá Frankfurt, skattar, gisting með morgunverðarhlaðborði. Kynnisferð um Heidelberg. Akstur til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið:Fæði, aðgangseyrir á söfn,kastalann, tónleika og aðrar kynnisferðir. Staðfestingargjald er kr.25.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Heimsferðir eru umboðsaðili Costa Cruises á Íslandi. Costa Cruises býður glæsileg lúxusskip sem sigla um Miðjarðarhafið, Eyjahafið og Atlantshafið
að sumri til, en á veturna sigla þau um hið sólríka Karíbahaf. Auk þess býður Costa Cruises uppá spennandi siglingar í Asíu og Mið-Austurlöndum. Þá skapast spennandi möguleikar á óvenjulegum og spennandi siglingum þegar verið er að sigla skipunum á milli heimsálfa. Víst er að áfangastaðirnir eru fjölbreyttir og spennandi og það ásamt góðum aðbúnað á skipunum gerir siglingar með Costa Cruises að sannkölluðu ævintýri. Val um spennandi kynnisferðir á öllum áfangastöðum. Heimsferðir bjóða skipulagðar hópferðir (lágmarksþátttaka 20 manns), einnig bókum við siglingar flug og gistingu fyrir einstaklinga og hópa, allt eftir óskum hvers og eins.
Kynntu þér nýjan og glæsilegan bækling frá Costa Cruises sem væntanlegur er í byrjun apríl. Spennandi nýjung hjá Costa Cruises fyrir árið 2012 er 100 daga heimsreisa! – sigling með Costa Deliziosa sem er eitt af nýjustu skipum Costa. Dásamleg sigling um öll helstu heimsins höf og margir spennandi viðkomustaðir á dagskrá. Nánari upplýsingar um þessa skemmtilegu nýjung liggur fyrir í byrjun maí 2011.Kynntu þér spennandi siglingar á www.heimsferdir.is en þar má einnig finna tilfallandi tilboð sem Costa Cruises býður viðskiptavinum sínum.
Siglingar
Netverð á mann vorferð kr. 324.600 á mann í klefa án gluggakr. 352.600 á mann í klefa með gluggakr. 369.600 á mann í klefa með svölum
Netverð á mann haustferð kr. 339.400 á mann í tvíbýli í klefa án glugga.kr. 381.400 á mann í tvíbýli í klefa með glugga.kr. 408.400 á mann í tvíbýli í klefa með svölum Innifalið: lug, skattar, gisting á 4* hóteli með morgunverði í Barcelona í 1 nótt og í 6 nætur á Benidorm meö öllu inniföldu. Vikusigling með fullu fæði, hafnargjöld og akstur til og frá flugvelli og til og frá skipi. Fararstjóri miðað við lágmarksþátttöku 20 manns.
Ekki innifalið: Kynnisferðir og annað sem ekki er tilgreint í ferðalýsingu. Þjórfé um borð í skipi.
Bókunargjald á skrifstofu eða hjá umboðsmönnum er kr. 2.400 á mann.
Staðfestingargjald er kr. 50.000.Lágmarksþátttaka er 20 manns.
MEð COSTA CRuISES
Dagur: Staður: Land: Komutími: Brottför:
Föstudagur Barcelona Spánn 18:00Laugardagur Marseille Frakkland 9:00 18:00Sunnudagur Savona Ítalía 8:00 17:00Mánudagur Napolí Ítalía 13:00 19:00þriðudagur Catania Sikiley 8:00 18:00Miðvikudagur Sigling Fimmtudagur Palma Mallorca 8:00 18:00Föstudagur Barcelona Spánn 8:00 Siglingu lýkur
Sigling 6.-13. maí
Kynntu þér spennandi siglingar á www.heimsferdir.is
Barcelona – Marseille – Savona – Napolí – Catania/ Sikiley – Palma – Benidorm
31
Sérf
erð
ir –
sig
ling
ar
Gersemar Miðjarðarhafsinsog Rómarborgar 13.-28. október
Lúxussiglingar eru einstaklega þægilegur ferðamáti og afar spennandi að heimsækja nýtt land og upplifa nýja menningu á hverjum degi. Glæsiskipið Costa Pacifica er eitt af nýjustu skipum Costa Cruises sjósett í júlí 2009. Afar glæsilegt 5 stjörnu skip með daglegri afþreyingar- og skemmtidagskrá og veislu í öllum aðbúnaði ásamt mat og drykk. Siglingin um gersemar Miðjarðarhafsins hefst á flugi til Rómar með millilendingu í London. Frá Róm er ekið í norðurátt til hafnarborgarinnar Civitavecchia og dvalið þar í eina nótt. Þann 14. október hefst stórkostleg 11 daga sigling um austurhluta Miðjarðarhafsins þar sem við skoðum gersemar og fornar minjar Grikklands, Tyrklands og helgar borgir í ísrael. Viðkomustaðirnir í siglingunni eru Savona við Genovaflóann. Þá tekur við dagssigling áður en komið er til Katakolon / Olympia á Grikklandi. Þaðan
er siglt til Ísrael og komið til Haifa sem er stærsta hafnarborg Ísrael byggð á gömlum merg en borgarinnar er getið bæði í gamla og nýja Testamentinu. Borgin stendur undir norðurhlíðum Karmelfjallana við skjólgóða Akkovíkina. Frá Haifa eru kynnisferðir til hinna helgu borga Jerúsalem og Betlehem. Ashdod í Ísrael er næsti áfangastaður. Þetta er lítil hafnarborg við Miðjarðarhafið og sívaxandri ferðamannastaður. Kynnisferðir um borgina og næsta nágrenni hennar. Þá tekur við dagssigling áður en komið er til Izmir sem er þriðja stærsta borg Tyrklands og mikilvæg hafnarborg. Skammt frá borginni er hina forna borg Efsus sem er eitt best varðveitta fornleifasvæði heims. Þá er siglt til til Piraeus hafnarborgar Aþenu í Grikklandi. Að lokum er dagssigling til Civitavecchia. Þaðan er ekið til Rómar og þar dvalið í þessari dásamlegu borg í 3 nætur. Fræðandi og skemmtilegar kynnisferðir eru í boði á hverjum áfangastað. Þann 28. október er flogið frá Róm til Íslands.
Sigling um Gríska Eyjahafiðásamt dvöl í Flórens og Róm 20. júní - 4. júlí
Skemmtisigling undir suðrænni sól er sannarlega draumur sem marga dreymir um. Og nú er sannarlega tækifærið á að láta drauminn rætast. Heimsferðir bjóða afar spennandi ferð sem sameinar dvöl í nokkra daga í tveimur af dásamlegust borgum Ítalíu Flórens og Róm ásamt viku siglingu um töfrandi Eyjahafið. Ferðin hefst á flugi til Bologna á Ítalíu. Þaðan er ekið til Flórens er stendur á bökkum árinnar Arno. Hún er höfuðborg hins heillandi Toscana héraðs sem er eitt það frjósamasta á Ítalíu, hvort sem litið er til matar, drykkjar og lista. Þar er dvalið í 4 dýrðar daga. Stórbrotin saga og menning Ítalíu drýpur af hverju strái í þessari fögru borg. Á fimmta degi er ekið suður á bóginn
til hafnarborgarinnar Civitavecchia. Þaðan hefst vikusigling með Costa Romantica. Skipið tekur um 1.500 farþega, fallegt og vel búið skip og mikið eftirlæti farþega. Siglingin er í sjö dýrðardaga þar sem fyrsti viðkomustaðurinn er borgin Messina á Sikiley. Eftir dagssiglingu taka við nokkrar perlur Eyjahafsins eins og Rhodos, Mykonos og Katakolon. Grísku eyjarnar láta engan ósnortin og seiða stöðugt til sín ferðamenn aftur og aftur. Þá er dagssigling áður er komið er til Civitavecchia á ný. Þaðan er ekið til Rómar og dvalið í 3 nætur. Við kynnumst þessari einstöku borg sem á engan sinn líka og upplifum árþúsundamenningu og andrúmsloft sem er einstakt í heiminum. Péturstorgið og Péturskirkjan, Vatíkanið, Spænsku tröppurnar, Colosseum, Forum Romanum og Pantheon hofið er bara brot af þeim stöðum sem verða á vegi ferðamannsins í Róm. Á öllu áfangastöðum verða fjölbreyttar kynnisferðir í boði. Kvöldflug til Íslands 4. júlí.
Netverð á mann kr. 383.800 á mann í tvíbýli í klefa án glugga.kr. 428.800 á mann í tvíbýli í klefa með gluggakr. 448.800 á mann í tvíbýli í klefa með svölum Innifalið: Flug, skattar, gisting á 4 * hóteli með morgunverði í Civitavecchia í 1 nótt og Róm í 3 nætur. Ellefu daga sigling með fullu fæði og hafnargjöldum. Akstur samkvæmt leiðarlýsingu og íslensk fararstjórn miðað við lágmarks þátttöku 20 manns. Ekki innifalið: Kynnisferðir og annað sem ekki er tilgreint í leiðarlýsingu. Þjórfé um borð í skipi.
Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Netverð á mann 362.600 á mann í tvíbýli í klefa án glugga.404.200 á mann í tvíbýli í klefa með glugga
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 4 * hóteli með morgunverði í Flórens í 4 nætur og Róm í 3 nætur. Vikusigling með fullu fæði og hafnargjöldum. Akstur samkvæmt leiðarlýsingu og íslensk fararstjórn miðað við lágmarks þátttöku 20 manns. Ekki innifalið:Kynnisferðir og annað sem ekki er tilgreint að ofan. Þjórfé um borð í skipi. Bókunargjald á skrifstofu eða hjá umboðsmönnum er kr. 2.400 á mann.
Staðfestingargjald er kr. 50.000. Lágmarksþátttaka er 20 manns.
Dagur: Staður: Land: Komutími: Brottför:
Föstudagur Civitavecchia Ítalia 19:00Laugardagur Savona Ítalía 8:00 17:00Sunnudagur Á siglingu Mánudagur Katakolon / Olympia Grikkland 13:00 18:00þriðjudagur Á siglingu Miðvikudagur Haifa Ísrael 9:00 21:00Fimmtudagur Ashdod Ísrael 7:00 20:00Föstudagur Á siglingu Laugardagur Izmir Tyrkland 8:00 18:00Sunnudagur Piraeus / Aþena Grikkland 8:00 17:00Mánudagur Á siglingu þriðjudagur Civitavecchia Ítalía 8:00 Siglingu lýkur
Sigling með Costa Pacifica
Dagur: Staður: Land: Komutími: Brottför:
Föstudagur Civitavecchia/ Róm Ítalía 17:00Laugardagur Messina Sikiley 13:00 19:00Sunnudagur Sigling Mánudagur Rhodos Grikkland 12:00 19:00þriðjudagur Mykonos Grikkland 8:00 18:00Miðvikudagur Katakolon / Olymia Grikkland 12:00 19:00Fimmtudagur Sigling Föstudagur Civitavecchia / Róm Ítalía 9:00 Siglingu lýkur
Sigling með Costa Romantica 24. júní - 1. júlí. Fullt fæði innifalið.
Flórens – Civitavecchia – Messina / Sikiley – Rhodos
– Mykonos – Katakolon/Olympia – Róm
Civitavecchia – Savona – Katakolon/Olympia – Haifa/
ísrael – Ashdod/ísrael – Izmir – Piraeus/Aþena – Róm
VALITOR er alþjóðlegt greiðslumiðlunarfyrirtæki og útgefandi VISA á Íslandi
VISA – alltaf, allstaðar
GÓÐA FERÐ! Ef þú ert með VISA-greiðslukort getur þú verið viss um að það er vel tekið á móti þér, hvert sem þú ferð. Erlendis er oftast notast við PIN-númer í stað undirskriftar, leggðu það á minnið áður en haldið er af stað. Kynntu þér einnig hvaða ferðatryggingar fylgja VISA kortinu þínu. Aðrar gagnlegar upplýsingar færðu á valitor.is.
VISA ER ÚTBREIDDASTA GREIÐSLUKORT Í HEIMI
HV
ÍTA
HÚ
SIÐ
/ S
ÍA