bláfánaverkefni skóla akraneskaupstaðar 2014

5
Markmið verkefnisins er að börnin fái að upplifa Langasand á eigin forsendum og kynnist því sem umhverfið þar hefur upp á að bjóða. Að þau kynnist lífríki fjörunnar, hvað þar er að finna og hvernig hægt sé að nýta í leikskólanum. Farið var að lágmarki einu sinni í viku á Langasand. Markmið ferðanna voru að upplifa og leika. Stundum voru teknar með fötur og skóflur, stundum stækkunargler og tangir og stundum pokar til að tína fjársjóð í. Gljúfur á Langasandi Bláfánaverkefni Akrasels Leikskólinn Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | [email protected]

Upload: akraneskaupstadur

Post on 01-Apr-2016

222 views

Category:

Documents


3 download

DESCRIPTION

 

TRANSCRIPT

Page 1: Bláfánaverkefni skóla Akraneskaupstaðar 2014

• Markmið verkefnisins er að börnin fái að upplifa Langasand á eigin forsendum og kynnist því sem

umhverfið þar hefur upp á að bjóða. Að þau kynnist lífríki fjörunnar, hvað þar er að finna og hvernig hægt

sé að nýta í leikskólanum.

• Farið var að lágmarki einu sinni í viku á Langasand. Markmið ferðanna voru að upplifa og leika. Stundum

voru teknar með fötur og skóflur, stundum stækkunargler og tangir og stundum pokar til að tína fjársjóð í.

Gljúfur á Langasandi

Bláfánaverkefni Akrasels

Leikskólinn Akrasel | Ketilsflöt 2 | 300 Akranes | Sími: 433 1260 | [email protected]

Page 2: Bláfánaverkefni skóla Akraneskaupstaðar 2014

Markmið verkefnisins er:

• að börnin fái að upplifa Langasand á eigin forsendum

• að börnin læri að þekkja nánasta umhverfi Langasands

• að börnin læri að þekkja sjávarföllin ( flóð, fjara, öldur / bárur)

• að börnin læri góða umgengni og þekki hætturnar í umhverfinu

• að börnin þekki heiti þess sem hafið færir að landi ( steinar, þang, kuðungar, skeljar, hrúðurkarlar, fuglar, fiskar, fjaðrir, annað )

• að börnin nýti þann efnivið sem þau finna á sandinum

Börnin í Garðaseli fara reglulega á Langasand og skipar hann stóran sess í útinámi þeirra. Farið er með hópa á

Langasand þar sem börnin leika sér, tína það sem þau finna og sumt taka þau með heim í leikskólann og vinna

frekar með það

(listsköpun, rannsóknir, söngur og sögur, stærðfræði).

Rætt er um mikilvægi góðrar umgengni og hjálpað til að við að tína rusl sem finnst. Hugtök sem tengjast

hafinu er hluti af verkefni tengd Langasandi og börnin læra fuglaheiti, heiti sjávarfalla ásamt kennileitum sem

sjást frá sandinum.

Það sem hafið færir að landi

Bláfánaverkefni Garðasels

Leikskólinn Garðasel | Lerkigrund 9 | 300 Akranes | Sími: 433-1240 | [email protected]

Page 3: Bláfánaverkefni skóla Akraneskaupstaðar 2014

Markmið:

• Að kynna Langasandinn fyrir börnunum. Hvaða möguleika hefur hann upp á að bjóða og kenna þeim á hvenær er flóð

og fjara.

fara með þau á Langasandinn til að finna efnivið til að búa til listaverk (sameiginlegt), að börnin læri að bera virðingu

fyrir náttúrunni.

Þriðjudaginn 21.janúar fórum við í ferð á Langasand. Börnin á Lundi báru ábyrgð á börnunum á

Völlum. Þau áttu að fara saman um sandinn og týna það sem þeim fannst áhugavert. Ferðin gekk

mjög vel og börnin voru áhugasöm um Langasandinn. Það var skemmtilegt að fara saman tveir

árgangar og vinna svo áfram með verkefnið.

Langisandurinn okkar

Bláfánaverkefni Vallarsels

Leikskólinn Vallarsel | Skarðsbraut 6 | 300 Akranes | Sími: 433-1220 | [email protected]

Page 4: Bláfánaverkefni skóla Akraneskaupstaðar 2014

Börn af elstu deild Teigasels tóku sig til og hreinsuðu Langasand hress og kát þann 27. maí

sl. Markmið verkefnisins er að vekja áhuga og vitund hjá nemendunum um hve mikilvægt er að halda

umhverfinu hreinu. Ein af forsendum þess að strönd geti orðið Bláfánaströnd er fræðsla um mikilvægi

þess að halda ströndinni hreinni.

Vorhreinsun á Langasandi

Bláfánaverkefni Teigasels

Leikskólinn Teigasel | Laugarbraut 20 | 300 Akranes | Sími: 433-1280 | [email protected]

Page 5: Bláfánaverkefni skóla Akraneskaupstaðar 2014

Nemendur í 6. bekk á Akranesi mættu ásamt kennurum sínum á Langasand þann 16. maí síðastliðinn

til þess að týna rusl á sandinum og í nánasta umhverfi. Markmið verkefnisins er að vekja áhuga og

vitund hjá nemendunum um hve mikilvægt er að halda umhverfinu hreinu. Ein af forsendum þess að

strönd geti orðið Bláfánaströnd er fræðsla um mikilvægi þess að halda ströndinni hreinni.

Nemendurnir tíndu tæplega 200 kg af rusli.

Vorhreinsun á Langasandi

Bláfánaverkefni Brekkubæjarskóla og Grundaskóla

Grundaskóli | Espigrund 1 | 300 Akranes | Sími 433 1400 | [email protected]

Brekkubæjarskóli | Vesturgötu 120| 300 Akranes | Sími 433 1300 | [email protected]