zotero sett upp á apple stýrikerfi, word notendur · 2012. 12. 4. · 2. takið eftir að í...

12
Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur Athugaðu að þessar leiðbeiningar eru fyrir Zotero í Firefox. Zotero hjálparforritið samanstendur af tveimur forritsbútum. Annar keyrir í vafranum þínum og heldur utanum vistaðar heimildir, og hinn er eins konar brú þaðan og yfir í ritvinnsluforrit (t.d. Word) Fyrri forritsbútur: 1. Farðu á www.zotero.org og smelltu á (efst til hægri) 2. Náðu í Zotero fyrir Firefox (nýjasta útgáfan gæti haft annað númer). 3. Þá birtist lítill gluggi þar sem þú skalt staðfesta að þú viljir leyfa uppsetningu (Allow) 4. Síðan birtist gluggi þar sem þú skalt smella á Install Now (grár gluggi, install only add-ons from authors whom you trust). 5. Zotero will be installed after you restart Firefox (má bíða). Seinni forritsbútur: 1. Á download síðunni þar sem þú náðir í Zotero fyrir Firefox þarftu að ná í skrá sem tengir Zotero við Word ritvinnsluforritið. Smelltu á Add a plugin for Word or LibreOffice. 2. Þá ætti ný síða að opnast, og þar velur þú þann hlekk sem passar fyrir ritvinnsluforritið og stýrikerfið þitt. Word notendur sem eru með Mac smella á Word for Mac Plugin (nýjasta útgáfan gæti haft annað númer).

Upload: others

Post on 14-Apr-2021

1 views

Category:

Documents


0 download

TRANSCRIPT

Page 1: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur Athugaðu að þessar leiðbeiningar eru fyrir Zotero í Firefox.

Zotero hjálparforritið samanstendur af tveimur forritsbútum. Annar keyrir í vafranum þínum og heldur utanum vistaðar heimildir, og hinn er eins konar brú þaðan og yfir í ritvinnsluforrit (t.d. Word)

Fyrri forritsbútur: 1. Farðu á www.zotero.org og smelltu á

(efst til hægri)

2. Náðu í Zotero fyrir Firefox (nýjasta útgáfan gæti haft annað númer).

3. Þá birtist lítill gluggi þar sem þú skalt staðfesta að þú viljir leyfa uppsetningu (Allow)

4. Síðan birtist gluggi þar sem þú skalt smella á Install Now (grár gluggi, install only add-ons

from authors whom you trust).

5. Zotero will be installed after you restart Firefox (má bíða).

Seinni forritsbútur: 1. Á download síðunni þar sem þú náðir í Zotero fyrir Firefox þarftu að ná í skrá sem tengir

Zotero við Word ritvinnsluforritið. Smelltu á Add a plugin for Word or LibreOffice.

2. Þá ætti ný síða að opnast, og þar velur þú þann hlekk sem passar fyrir ritvinnsluforritið og stýrikerfið þitt. Word notendur sem eru með Mac smella á Word for Mac Plugin (nýjasta útgáfan gæti haft annað númer).

Page 2: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

3. Smelltu á Allow þegar þessi gluggi birtist, og bíddu á meðan forritsbúturinn hleðst niður:

4. Síðan birtist þessi gluggi, þar sem þú skalt smella á Install Now

5. Þessi skilaboð birtast í vafranum og þá velurðu restart now.

6. Til að fullvissa þig um að uppsetningin hafi tekist skaltu opna Word og staðfesta að Zotero sé komið sem valmöguleiki í Script-valmyndina. Ef þú varst með Word opið á meðan

Page 3: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

uppsetningunni stóð þarft þú að endurræsa það.

Athugið að það er mismunandi eftir Office útgáfum hvernig Zotero birtist inn í Word á Mac stýrikerfi. Ef þú færð ekki upp svona „S“ tákn í Word hjá þér (sjá myndina beint fyrir ofan) þá getur verið að þú sért með Zotero hnappana ofarlega í hægra horninu á Word.

Til þess að fá þessa Zotero hnappa upp í Mac þá þarftu að fara inn í View – Toolbars og velja þar Zotero. Þá eiga þessir hnappar að birtast efst í vinstra horninu í Word.

Page 4: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

Sync-aðu Zotero heimildirnar þínar örugglega Við viljum hvetja alla notendur Zotero að stofna sér ókeypis aðgang inn á Zotero.org. Þegar þú gerir það, þá vistast allar heimildirnar þínar inn á vefsvæðið þitt hjá Zotero.org og varðveitast þar. Það myndast speglun (synchronization) á milli Zotero forritsins í Firefox (local) og Zotero.org (global). Ef eitthvað myndi koma fyrir tölvuna þína, þá ert þú ekki að glata neinu sem þú hefur sett inn í Zotero. Þú þyrftir aðeins að setja upp Zotero aftur og síðan sótt allar heimildirnar þínar með því að innskrá þig. Með því að gera þetta þá getur þú einnig notað sama Zotero á mörgum tölvum.

1. Farðu inn á https://www.zotero.org/user/register/ og stofnaðu þér aðgang. Username verður að vera einstakt og það skiptir ekki máli hvaða netfang þitt þú notar (HR, gmail, hotmail...)

2. Þegar þú hefur lokið skráningu færð þú sendan tölvupóst með staðfestingartengli. Farðu strax inn í tölvupóstinn þinn og smelltu á tengilinn og staðfestu skráninguna þína.

3. Þegar þú ert búin/n að stofna þér aðgang þá þarft þú að setja notendanafnið þitt og lykilorð inn í Zotero forritið. Opnaðu Zotero með því að smella á Zotero táknið neðst hægramegin í vafranum. Smelltu þar á tannhjólatáknið (Actions) og veldu Preferences.

4. Þá opnast nýr gluggi og undir Sync flipanum setur þú inn nýja notandanafnið þitt og lykilorð og hakar við „Sync automatically“. Smellir síðan á rauða Xið til að loka.

ATH. Ef þú eyðir eða breytir einhverju í Zotero þá speglast það á Zotero.org. Ef að Zotero getur ekki „sync-að“ og þú sérð rauðan hring með upphrópunarmerki þá hefur þú slegið inn annað hvort rangt notendanafn eða lykilorð.

Page 5: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

Heimildir fluttar inn í Zotero 1. Farðu á þá síðu sem inniheldur upplýsingar um þá heimild sem þú vilt vitna í. Þetta getur

verið síða í gagnasafni, en einnig heimasíða fyrirtækis, frétt á vef eða rafræn útgáfa skýrslu, svo eitthvað sé nefnt. Hér er tekið dæmi úr EBSCO Host gagnagrunninum. Vertu á vefsíðu

greinarinnar. Ekki opna pdf útgáfuna.

2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir því sem við á, þ.e. hvernig heimild Zotero býr sig undir að grípa):

Smelltu á táknið sem er litað gult hér til að vista heimildina inn á Zotero-svæðið þitt. (Ef ekkert tákn birtist ertu líklega ekki með fræðilega heimild á vefsíðunni og Zotero getur ekkert gripið. Hinsvegar má handfæra slíkar heimildir inn í Zotero)

3. Grár gluggi birtist þá neðst í hægra horni vafrans:

Glugginn sést á meðan Zotero vistar heimildina en hverfur svo . Þegar hann hverfur er búið að vista þær upplýsingar sem Zotero hefur þekkt.

4. Smelltu á Zotero-hnappinn neðst í hægra horni vafrans, og staðfestu að heimildin sé vistuð (sést í miðjuglugganum):

Page 6: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

Lengst til hægri geturðu skrunað niður og skoðað hvort allar upplýsingar hafa skilað sér rétt. Ef þú vilt laga eitthvað geturðu smellt á þann texta sem er rangur og fyllt rétt út.

Page 7: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

Zotero – vitnað í heimildir á Apple stýrikerfi Þessar leiðbeiningar eru fyrir Word á Apple OS

1. Opnaðu Word, skrifaðu inn texta og settu bendilinn svo þar sem þú vilt setja heimildina inn í textann.

2. Ef forritið er rétt sett upp hjá þér er valmöguleiki sem er svona:

Veldu Add Citation

3. Þá birtist þessi gluggi þar sem þú getur valið þann staðal sem þú ætlar að nota í ritgerðinni þinni, t.d. APA

Smelltu á OK. (Athugaðu að þú velur staðalinn bara í fyrsta skipti sem þú setur inn tilvísun. Þessi gluggi ætti því ekki að birtast nema einu sinni.)

Page 8: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

4. Þá birtist annar gluggi þar sem þú velur heimildina sem þú er að vitna í. (Athugaðu að hér býðst þér að velja úr þeim heimildum sem þú hefur sett inn í þitt Zotero, My Library)

5. Veldu heimildina og smelltu á OK.

6. Þá kemur tilvísunin inn þar sem bendillinn er í skjalinu, t.d. svona:

7. Á sama hátt getur þú sett inn fleiri tilvísanir með því að endurtaka punkta nr 2, 4 og 5.

Aðrar leiðir til að vitna í heimildir

Að nefna höfundinn í texta, og hafa bara ártal í tilvitnun í sviga Stundum vill maður tilgreina höfund greinarinnar í textanum sínum, þannig að tilvitnunin sé bara ártal í sviga. Þetta getur maður gert, með smá fráviki frá leiðbeiningunum hérna að ofan. Mismunurinn felst í lið 4. Áður en þú smellir á OK skaltu haka við Suppress Author:

Tilvísunin birtist þá svona:

Page 9: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

Að vitna í fleiri en eina heimild í sama sviganum Þetta er líka gert í valmyndinni sem er sýnd í lið 4 hér fyrir ofan. Þegar hún birtist skaltu smella á

Multiple Sources: Þá breytist valglugginn:

Í miðjum glugganum getur þú valið heimildir og sett þær í listann með því að smella á örina sem bendir til hægri (græn á myndinni hér fyrir ofan). Þú getur fjarlægt úr listanum með því að smella á örina sem bendir til vinstri, og með örvunum sem benda upp og niður getur þú raðað röð heimildanna sem þú ert að fara að vitna í. Að þessu loknu smellir þú á OK og þá gæti heimildin litið út svipað og þessi hér:

Page 10: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

Heimildaskrá í Zotero 1. Nú ertu búin að nota Zotero til að setja inn tilvísanir og ætlar að gera heimildaskrá yfir

tilvísanirnar. Opnaðu Word-skjal og settu inn tilvísanir í heimildir (sjá leiðbeiningar á vefsíðu BUHR).

2. Settu bendilinn aftast í skjalið (eða þar sem þú vilt fá heimildaskrána inn). (Getur skrifað Heimildaskrá eða References í línuna fyrir ofan)

3. Veldu Add Bibliography (ath. ekki Citation eins og myndin sýnir:

4. Þá ætti heimildaskráin að vera komin inn:

5. Lestu heimildaskrána yfir og lagaðu hana til, t.d. til að tryggja að hún standist íslensk viðmið. (Hér fyrir ofan þarf t.d. að breyta & í og.)

Page 11: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

APA á íslensku í Zotero Fyrir þá sem skrifa á íslensku hefur hingað til verið nauðsynlegt að þýða heimildaskrána úr ensku; breyta „Retrieved from“ í „Sótt af“, „Eds.“ í „ritstj.“ o.þ.h. Vegna þess að Zotero er „open source“ er hægt að breyta bæta og laga eftir því sem hentar, t.d. þýða staðal yfir á íslensku. Styrmir Magnússon nemandi í HÍ hefur þýtt APA yfir á íslensku til eigin nota, og hefur góðfúslega veitt okkur leyfi til að nota þýðinguna. Athugið að þetta er ekki lokaútgáfa þýðingarinnar, heldur handrit sem sífellt er verið að vinna í til þess að bæta þýðinguna enn frekar, en þetta er mikil hjálp við þá sem skrifa á íslensku. Hvernig á að setja íslenska staðalinn upp (þú þarft að vera búin/-n að setja Zotero upp, sjá leiðbeiningar á heimasíðu BUHR):

1. Byrjið á að hlaða þessu skjali niður á eigin tölvu. Á netinu finnurðu skjalið á þessari slóð: http://www.ru.is/media/skjol---bokasafn/apa_isl.csl

2. Opnið Zotero (smellið á táknið neðst í hægra horni vafrans).

3. Smellið á Actions valmyndina ( ) og veljið Preferences. Nýr gluggi opnast.

4. Veljið Cite og þar undir Styles-flipann.

5. Smellið á hnappinn með + merkinu.

6. Þá birtist gluggi þar sem þú þarft að finna skjalið sem þú hlóðst niður. Veldu skjalið og smelltu á Open / Opna.

7. Veldu install í litla glugganum sem opnaðist.

8. American Psychological Association – Íslenskt hefur þá bæst í listann.

9. Smellið á rauða Xið til að loka glugganum.

Page 12: Zotero sett upp á Apple stýrikerfi, Word notendur · 2012. 12. 4. · 2. Takið eftir að í línunni þar sem url síðunnar birtist er nú Zotero tákn (blað, mappa og bók eftir

Staðlar í Zotero / APA Þar sem APA-staðallinn er búinn til fyrir hugvísindasvið hefur ekki verið hugsað fyrir því hvernig á að vitna í staðla (ekki er hægt að velja staðal sem tegund heimildar). Skásta leiðin til að leysa þetta í Zotero er að fara með staðalinn eins og bók án höfundar.

Titilinn er ágætt að skrá svona (til dæmis): EN 1992-1-1: Eurocode 2: Design of concrete structures. Part 1-1: General rules and rules for buildings.

Ekki skrá neinn höfund, en settu staðlasamtökin sem bera ábyrgð á útgáfunni í Útgefandi, t.d. European Committee for Standardization, eða Staðlaráð Íslands. (Muna að setja útgáfustað í Staðsetning). Setjið útgáfuár í Dagsetning. Og svo kemur trikkið: Setjið titilinn eins og hann á að birtast í tilvitnun í texta í sviðið Short Title, t.d. EN 1992-1-1. Tilvitnun í texta samanstendur af Short Title og ári, og yrði þá eftirfarandi: (EN 1992-1-1, 2004)

Dæmi: