valgreinar í 8.bekk - 2013-14
DESCRIPTION
Valgreinar í 8.bekk - 2013-14TRANSCRIPT
Valgreinar 9. bekkur 1 2012-2013
8. BEKKUR 2012—2013
VA
LG
RE
IN
AR
Heiðarskóli
Valgreinar 9. bekkur 2 2012-2013
Námsskipan og valáfangar í 8. bekk skólaárið 2013 - 2014
Nemendum í væntanlegum 8. bekk gefst tækifæri til að velja námsgreinar næsta vetur. Í
þessu hefti eru lýsingar á þeim valáföngum sem þeir geta valið.
Tilgangur með valfrelsi er að gera nemendum kleift að leggja eigin áherslur í námi miðað
við áhugasvið og framtíðaráform.
Miðað er við að nemandi í 8. bekk hafi að lágmarki 37 kennslustundir á stundatöflu. Allir
nemendur stunda nám í kjarnagreinum sem eru samtals 33.
Nemandi velur 4 kennslustundir til viðbótar. Athugaðu vel að sumar valgreinar eru allt árið
en aðrar greinar hálft árið. Bent skal á að allar valgreinar hafa sama vægi og í lýsingunum á
þeim kemur fram hvernig námsmati verður háttað. Valgreinar eru jafn mikilvægar og
kjarnagreinar og sömu kröfur eru gerðar um ástundun og námsframmistöðu.
Mikilvægt er að nemendur fari vel yfir lýsingar á valgreinum með foreldrum/
forráðamönnum sínum og íhugi vandlega hvað sé æskilegt að velja.
Nemendur skulu varast að velja valgrein einungis af því að besti vinur velur hana.
Það skal tekið fram að aðstæður geta orðið á þann veg að erfitt getur reynst að verða við
aðal óskum nemenda um valgrein og er þá vara valkostur tekinn. Einnig áskilur skólinn sér
rétt til að fella niður námstilboð ef umsækjendur eru of fáir.
Skipulag á stundatöflu næsta vetrar tekur mið af valgreinunum og er því ekki hægt að breyta
vali í haust þegar skóli hefst.
Það er von okkar að allir nemendur finni áhugaverða valkosti.
Nemendur eru beðnir að skila undirrituðum valblöðum til umsjónarkennara í síðasta lagi
7. maí 2013.
Með góðum kveðjum
Skólastjórnendur
Íslenska 7 st Náttúrufr. 3 st Stærðfr. 6 st Sund 1 st Hönnun og smíði/textíl 2 st
Enska 4 st Danska 3 st Samfélagsfr. 3 st Íþróttir 2 st Myndl./heimilisfr. 2 st
Valgreinar 9. bekkur 3 2012-2013
Valgreinar — hálft árið
Afmælisveislan Markmið
Að nemandi:
kynnist stærðfræði í daglegu lífi
tengi stærðfræðina við sína eigin reynslu og upplifun
fái tækifæri til að tengja saman ólíka þætti stærðfræðinnar
fái frelsi fyrir skapandi vinnu í stærðfræði
læri að vinna í hóp
Kennslutilhögun
Nemendur skipuleggja afmælisveislu í hópum og skoða allt sem viðkemur slíkum viðburði.
Inn í afmælisveisluna fléttast ótal þættir sem allir á einhvern hátt tengjast stærðfræði, s.s.
hversu margir gestir mæta, hvað þarf mikið af veitingum, hvernig eiga pakkarnir að líta út
o.s.frv. Hóparnir gera líkan af staðnum þar sem veislan fer fram, búa til afmælispakka, gera
boðskort, útbúa skreytingar, baka afmælskökuna og fleira. Afmælisveislan fer fram í lokin
þar sem hver hópur kynnir sína útgáfu.
Námsmat
Mat byggist á áhuga, virkni, vinnusemi og þátttöku í umræðum og verkefnagerð.
Áhugasvið Markmið
að þjálfa nemendur í sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum
að þjálfa nemendur í að nýta sér fjölbreytni í gagnasöfnun
að þjálfa nemendur í að koma upplýsingum á framfæri á greinagóðan hátt
að gefa nemendum tækifæri til að kynna sér einstök viðfangsefni mjög vel
Kennslutilhögun
Nemendur vinna að einu til tveimur stórum verkefnum sem tengjast þeirra áhugasviði sem
þeir velja í samráði við kennara.
Verkefnið byggist á öflun upplýsinga, úrvinnslu og skilum í fjölbreyttu formi.
Við öflun upplýsinga leita nemendur víða fanga s.s. í bókum, á netinu, með viðtölum og
vettvangsheimsóknum og þeir skoða viðfangsefnið frá mörgum ólíkum sjónarhornum.
Í lok vinnunnar standa nemendur skil á verkefnum frammi fyrir áheyrendum. Þeir flytja
fyrirlestra og setja upp sýningar með miðlum upplýsingatækninnar.
Verkefnið krefst sjálfstæðra vinnubragða, hugmyndaauðgi og vinnusemi.
Nemendur velja sér tjáningarform; þeir geta t.d. búið til bæklinga, líkön, stuttmynd,
skjásýningu eða annað sem þeim dettur í hug.
Nemendur mæta í tvær kennslustundir á viku og vinna sjálfstætt að sínu verkefni.
Þeir gera tímaáætlun og setja sér vinnuramma sem þeir skila til kennara. Kennari fer yfir
framgang verkefnisins og vinnubrögð nemandans.
Valgreinar 9. bekkur 4 2012-2013
Námsmat
Ástundun, virkni og sjálfstæð vinnubrögð 30%, vinnuferli og efnistök 30, kynning 20,
afrakstur 20%.
Frumkvöðlafræði Markmið
Nemendur læra að stofna fyrirtæki utan um vöru eða þjónustu sem þeir ákveða.
Kennslutilhögun Farið verður í grunnatriði sem hafa verður í huga til þess að koma vöru eða
viðskiptahugmynd á framfæri. Lögð er áhersla á hópavinnu og að viðskiptahugmynd
hópsins sé raunhæf. Nemendur koma sér saman um eina hugmynd (vöru eða þjónustu) og
þurfa að fjármagna hana, markaðssetja, framleiða og selja eða veita.
Námsmat
Vinna og virkni í tímum
Gler Markmið
Að nemendur:
þekki og kunni að nota þau verkfæri sem til þarf við vinnslu á
gleri
nýti sér tölvutækni við hugmyndaleit
læri að búa til nytjahlut
geti metið á sjálfstæðan hátt hvaða kröfur eru gerðar til vandvirkni og frágangs
geti unnið sjálfstætt og haldið sér við verkefni
hafi fengið innsýn í og öðlast þekkingu á vinnsluaðferðum við glervinnslu
Kennslutilhögun
Mósaik. Nemendur kynnast og fá tilsögn um mósaik og gerð hennar. Nemendur mega nýta
sér hugmyndir af veraldarvefnum og úr bókum við gerð verkefna. Nemendur fá kennslu í
hvernig nota á verkfæri sem til þarf. Kennarinn verður með ákveðin verkefni en nemendur
ráða útliti hlutarins.
Gler/bræðsla. Nemendur kynnast glervinnu. Nemendur æfst í að skera gler og læra að
þekkja mismunandi gler. Nemendur hanna sína eigin útfærslu á ýmsum glerverkefnum og
nota ýmis form og liti.
Tiffanýs. Nemendur kynnast Tiffanys glervinnu og hanna sinn eigin hlut í samráði við
kennarann.
Námsmat
Ástundun, virkni í tímum, hegðun, verklagni og framfarir (30%)
Hvert verkefni er metið til einkunnar: bræðsla/gler (35%), mósaík (20%), tiffanys (15%)
Valgreinar 9. bekkur 5 2012-2013
Glíma
Markmið:
að nemandi kynnist þjóðaríþrótt Íslendinga og læri
nokkur glímubrögð
að nemandi kannist við glímuíþróttir annarra þjóða
að nemandi þekki helstu þætti sögu glímunnar á
Íslandi
að nemandi hljóti alhliða þjálfun þ.e. líkamlega, andlega og félagslega
Kennslutilhögun
Kennslan verður að mestu leyti verkleg, þ.e. æfingar og nemendur spreyta sig í glímunni.
Einnig verða fyrirlestrar þar sem farið verður yfir helstu þætti glímusögunnar. E.t.v verða
gestir fengnir í heimsókn og munu þeir vera með stuttar kynningar bæði í fyrirlestra- og
verklegu formi. Farið verður á Grunnskólamót Glímusambands Íslands.
Námsmat
Ástundun, virkni, framfarir og hegðun nemenda verður metin jafnt og þétt yfir önnina.
Heiðarsport Markmið:
Að nemendur fái kynningu á hinum ýmsu
íþróttagreinum
Að nemendur auki styrk og þol
Að nemendur fái aukna hreyfingu
Að kveikja áhuga nemenda á aukinni hreyfingu
Kennslutilhögun:
Tímarnir eru verklegir í íþróttasal skólans. Kennt er einu sinni í viku. Farið verður í hinar
ýmsu íþróttagreinar, leiki og þrek. Kennd verða undirstöðuatriði í æfingum með bjöllum,
teygjum, lóðum, boltum og fleira.
Námsmat:
Byggir á virkni, jákvæðni, mætingu, viðhorfi, samstarfi og frumkvæðni í tímum.
Valgreinar 9. bekkur 6 2012-2013
Heilabrot Markmið
að auka skilning nemenda á fjölbreytileika stærðfræðinnar
að auka rökhugsun nemenda
að undirbúa nemendur til þátttöku í Stærðfræðikeppni grunnskólanna á
Suðurnesjum
Kennslutilhögun Farið verður í ýmsar stærðfræðiþrautir og heilabrot. Nemendur spreyta sig á verkefnum úr
Stærðfræðikeppni grunnskólanna undangenginna ára. Þeir sem velja þennan áfanga munu
taka þátt í keppninni sem haldin er í Fjölbrautaskóla Suðurnesja síðar á skólaárinu.
Námsmat Virkni, áhugi og ástundun verður metin til umsagnar ásamt því að nemendur fá vitnisburð úr
Stærðfræðikeppni grunnskólanna.
Hljómsveit Þessi valgrein er ætluð hljóðfæraleikurum og söngvurum sem vilja
komast í hljóðfærasamspil.
Nemendur koma saman ásamt kennara, ákveða lög og æfa til flutnings.
Gott er ef nemendur spila á hljóðfæri að þeir noti þau annars verður notast við þau hljóðfæri
sem skólinn á. Nemendur og kennari velja og útfæra lögin saman og æfa síðan bæði söng
og undirleik eftir hljóðfæraskipan með handleiðslu kennara.
Stefnt verður að því að flytja lögin á sal við sérstök tækifæri.
Námsmat verður byggt á frammistöðu og áhuga í tímum
Hraðlestur Markmið
Að nemendur:
• fái meiri áhuga á lestri
• auki lestrarhraða sinn
• auki lestrarskilning sinn
• geti lesið með mismunandi hraða eftir efni
• haldi áfram að æfa lestur eftir að vali lýkur
Kennslutilhögun Nemendur æfa hraðlestur með ýmsum æfingum. Heimalestur á hverjum degi.
Námsmat Nemendur taka hraðlestrarpróf í upphafi annar og við lok annar. Árangur metinn. Einkunn
samsett úr eftirfarandi þáttum: tímavinna 30%, framfarir 40%, lestrardagbók 30%
Valgreinar 9. bekkur 7 2012-2013
Kynjafræði Kynjafræði er þverfagleg fræðigrein þar sem meðal annars er fjallað
um sögu jafnréttisbaráttunnar, skólagöngu, vinnumarkað og launajöfnuð
kynjanna, fjölmiðla, auglýsingar og stjórnkerfi svo eitthvað sé nefnt.
Í þessum áfanga verður rýnt í birtingarmyndir karl- og kvenímyndar í myndmiðlum,
kvikmyndum og tísku. Fjallað verður um kynbundið ofbeldi og staðalímyndir svo eitthvað
sé nefnt.
Markmið námsins er m.a. að :
nemendur þekki og geti útskýrt grundvallaratriði í kynjafræðum
nemendur öðlist þekkingu á stöðu karla og kvenna í samfélaginu og áhrifum
jafnréttisbaráttu
nemendur geti komið skoðunum sínum á framfæri
nemendur þjálfist í gagnrýninni hugsun
Kennslutilhögun
Umræður um hlutverk og stöðu kynjanna. Fjölbreytt verkefnavinna um tiltekna efnisþætti.
Notaðar verða kvikmyndir og fréttir ásamt efni sem unnið er af kennara. Ef mögulegt er
koma gestafyrirlesarar t.d. frá jafnréttisstofu.
Námsmat
Þátttaka og virkni í umræðum 50%
Vinnubók og verkefnaskil 50%
Leik- og sönglist Markmið
að nemendur fái þjálfun í almennri framkomu á sviði, radd- og líkamsbeitingu
að nemendur efli/öðlist sjálfstraust og sköpunargleði
að nemendur geti komið fram fyrir áhorfendur, sungið og/eða haldið stuttar
ræður/fyrirlestra
Kennslutilhögun
Kennslan byggist á léttum leiklistaræfingum, hópefliæfingum og spuna. Þá verður einnig
farið í undirstöðuatriði í söng og túlkun, raddbeitingu, framkomu á sviði og notkun
hljóðnema. Í lok annar verður flutt stutt leikverk á sal fyrir aðra nemendur skólans.
Námsmat
Virkni og áhugi 50%, frumleiki og túlkun 20% jákvæðni 20%, framfarir 10%
Valgreinar 9. bekkur 8 2012-2013
Mitt líf Markmið
Að nemendur:
styrki sjálfsmynd sína
öðlist skilning á mikilvægi þess að temja sér heilbrigðan lífsstíl
kynnist undirbúningi undir ökunám
öðlist grunnfærni í skyndihjálp
Kennslutilhögun
Fjallað verður um þætti eins og hollt mataræði, hreyfingu, slökun og umhirðu á húð og hári.
Farið verður í undirbúning undir ökunám, og rætt um forvarnir. Nemendur skoða
sjálfsmynd sína ásamt framkomu og viðhorfi til sjálfs síns og annarra sem verða á vegi
manns í lífinu. Fjölmargir gestir koma í heimsókn.
Námsmat
Virkni og vinna í tímum 40%, verkefni 30%, glósur 30%
Skólablað – blaðamennska og auglýsingar Markmið
Að nemendur:
kynnist heimi blaðamennsku og auglýsinga í prent- og vefmiðli
þjálfist í að skrifa ýmiskonar blaðagreinar, s.s. pistla, fréttir, viðtöl og gagnrýni
öðlist aukið fjölmiðlalæsi
geti notfært sér þau forrit sem nauðsynleg eru í blaðamennsku
kynnist hugmynda- og skipulagsvinnu sem fylgir blaðamennsku og auglýsingum
Kennslutilhögun
Farið verður yfir undirstöðuatriðin í blaðamennsku með fyrirlestrum, umræðum, lestri á
völdu efni og í vettvangsheimsókn. Nemendur munu spreyta sig á því að skrifa pistla, fréttir
og taka viðtöl sem birt verða í fréttabréfi valgreinarinnar og á vefsíðu. Auk þess verður
fjallað um eðli auglýsinga, nemendur skoða þær í ýmsum fjölmiðlum með gagnrýnum hætti
og prófa að semja þær sjálfir.
Námsmat
Verkefnabók – blaðagreinar 50%
Verkefnabók – auglýsingar 30%
Ástundun og virkni 20%
Valgreinar 9. bekkur 9 2012-2013
Skrautskrift Markmið
Að nemendur:
læri að beita þeim verkfærum sem notuð eru í skrautskrif
læri myndun stafa, stafagerð, form þeirrar og lögun
læri einfaldar skreytingar s.s. lykkjur og skyggingar
Kennslutilhögun
Nemendur læra að beita þeim verkfærum sem notuð eru í skrautskrift. Þegar búið er að ná
tökum á beitingu verkfæra er farið í myndun stafa og stafagerð. Nemendur æfa sig í tímum
eftir forskrift og smám saman læra þeir einnig einfaldar skreytingar. Auk verkefna í tímum
vinna nemendur verkefni heima sem þeir safna í nemendamöppu.
Námsmat
Yfir önnina safna nemendur öllum sínum verkefnum í nemendamöppu sem þeir skila í lok
annar. Verkefnamappa 30%, heimavinna 10%, ástundun, virkni, áhugi og vinnubrögð 60%
Spil Kynning á spilum af öllum gerðum, frá borðspilum til gamla
góða spilastokksins.
Markmið að nemendur kynnist fjöldanum öllum af spilum
að nemendur öðlist góðan skilning og færni í mörgum spilum
að nemendur uppgötvi gleðina sem felst í því að spila.
Kennslutilhögun Kynntar verða spilareglur í ýmsum spilum, jafnt kunnuglegum sem framandi, einföldum
sem flóknum. Nemendur spila saman og keppa sín á milli. Mögulega reynum við fyrir
okkur í því að búa til spil.
Námsmat Áhugi, framfarir, hegðun og þátttaka verður metin til umsagnar.
Valgreinar 9. bekkur 10 2012-2013
Taka 2/stuttmyndagerð Markmið
Að nemandi:
fái innsýn í heim kvikmynda
geti notfært sér þau tæki og forrit
sem nauðsynleg eru við stuttmyndagerð
kynnist hugmynda- og skipulagsvinnu sem fylgir kvikmyndagerð
fái tækifæri til að nýta nýjustu tækni til sköpunar
Kennslutilhögun
Leiðsögn við gerð stuttmynda á iPad/spjaldtölvur Farið verður í handritagerð, myndatökur
og klippingar. Nemendur vinna verkefni tengd myndatöku og gerð handrita. Nemendur
vinna saman í hóp, þróa hugmynd og útfæra hana sem kvikmynd. Nemendur gera stiklu
(trailer) fyrir myndina sína. Farið verður í heimsókn í sýningarherbergi í kvikmyndahúsi.
Námsmat
Mat byggist á áhuga, virkni, vinnusemi og þátttöku í umræðum og verkefnagerð.
Lagt er mat á hversu vel nemendur tileinka sér eftirfarandi þætti stuttmyndagerðar: handrit,
myndataka, hljóðvinnsla, klipping og lokafrágangur.
Tölvumyndlist Markmið
Lögð er áhersla á að leita leiða til að skapa sínar eigin myndir með hjálp tölvutækninnar.
Unnið er með hin ýmsu teikniforrit í tölvunni og Internetinu og gerðar tilraunir.
Kennslutilhögun
Verkin verða prentuð út og búið til myndband með forritinu Moivie Maker. Einnig farið yfir
þætti svo sem litafræði, formfræði, myndbyggingu.
Námsmat
Virkni, frumkvæði og áhugi nemandans. Verkmappa, sem geymir gögn um vinnuferlið, svo
sem skissur, uppdrætti og tillögur.
Athugasemdir og tilraunir eru metnar til jafns við fullunnin verk.
Valgreinar 9. bekkur 11 2012-2013
Veistu svarið? Spurningar um allt milli himins og jarðar. Viskusöfnun í hæsta
gæðaflokki!
Markmið Að nemendur þjálfist í almennri vitneskju, rökhugsun og
útsjónarsemi.
Kennslutilhögun Spurningakeppni er haldin í viku hverri og taka allir þátt í keppninni í hvert skipti. Kennari
sér um aðra hvora keppni og nemendur (tveir saman) um aðra hvora keppni og bregða sér
þá í hlutverk spurningahöfunda, dómara og spyrla.
Námsmat Vinnusemi, dugnaður og hegðun í keppnum eru metin til umsagnar. Auk þess er
frammistaða nemenda sem spurningahöfunda og spyrla metin.
Valgreinar 9. bekkur 12 2012-2013
Valgreinar — allt árið
Félagsmálafræði/Nemendaráð Valgreinin er ætluð nemendum sem hafa mikinn áhuga á félagsstörfum.
Hlutverk nemendafélags Heiðarskóla er m.a. að:
skipuleggja félagsstarf í skólanum ásamt umsjónarmönnum félagsmála
gæta að hagsmunum nemenda skólans
miðla upplýsingum milli nemenda og stjórnenda skólans
Markmið
að nemendur öðlist aukna félagslega færni
að nemendur efli sinn félagslega þroska
að nemendur öðlist sterkari og jákvæðari sjálfsmynd
að þjálfa nemendur
í lýðræðislegum vinnubrögðum
fundarsköpum
ræðumennsku
í skipulagningu og framkvæmd viðburða
Nemendur auka færni í að koma hagsmunamálum sínum á framfæri á lýðræðislegan hátt.
Kennslutilhögun
Nemendur vinna mikið í hópum að verkefnum og kynna hugmyndir sínar. Þeir læra að setja
upp viðburði, auglýsa þá og stjórna þeim. Unnið verður markvisst að framsögn, framkomu,
fundarsköpum, skoðanaskiptum, samvinnu og virðingu fyrir öðrum.
Nemendafélagið vinnur á öllum skemmtunum sem skólinn heldur, skipuleggur og hefur
umsjón með íþróttastarfi og íþróttakeppnum innan skólans og við aðra skóla.
Nemendafélag skólans setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og
kosningu fulltrúa í skólaráð.
Námsmat
Mat byggir á virkni, áhuga og ástundun og verður í formi umsagnar. Í lok vorannar skila
nemendur ritgerð þar sem þeir meta starf vetrarins.
Valgreinar 9. bekkur 13 2012-2013
Valgreinar utan Heiðarskóla — allt árið
Þeir valáfangar sem koma hér á eftir eru í samstarfi við aðila utan skólans og
kennsla fer fram annarsstaðar en í Heiðarskóla.
Íþróttir/þjálfun í samstarfi við íþróttafélög Þátttakendur Þetta valfag er fyrir nemendur sem stundað hafa sömu íþróttina undanfarin tvö ár eða
lengur. Aðeins kemur til greina að viðurkenna þjálfun nemenda sem stunduð er hjá deildum
íþróttafélaga sem hlotið hafa viðurkenningu ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag/fyrirmyndardeild.
Nemendur greiða sjálfir æfingagjöld og annan kostnað til íþróttafélagsins.
Kennslutilhögun
Nemendur stunda þjálfun sinnar íþróttagreinar hjá sínu íþróttafélagi undir stjórn þjálfara.
Heiðarskóli metur þjálfunina til jafns við tveggja kennslustunda vikulega valgrein innan
skólans. Heiðarskóli tilnefnir kennara sem hefur umsjón með að nemendur stundi þjálfun
sína af vinnusemi.
Nemendur mæta til fundar við kennara í Heiðaskóla í upphafi skólaárs, í nóvember, janúar
og apríl. Fundirnir verða kl. 15:30 á virkum degi eða kl 14:00 á föstudegi og tekur hver
fundur u.þ.b. 1 klst.
Námskröfur
Nemendur mæta til allra æfinga sem þjálfari gerir kröfur um. Félag/deild viðkomandi
íþróttagreinar leggur fram kennslu og æfingaskrá þar sem fram koma markmið þjálfunar,
sbr. Handbók fyrirmyndarfélags ÍSÍ.
Námsmat
Í lok skólaárs fá nemendur umsögn á vitnisburðarblaði.
Tónlistarnám í samvinnu við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Nemendur sem stunda nám í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar geta fengið nám sitt metið sem
valgrein