Útvegsblaðið 4. tbl 2012

32
úTVEGSBLAðIð Þ J ó N U S T U M I ð I L L S J á V A R ú T V E G S I N S apríl 2012 » 4. tölublað » 13. árgangur Hvalkjöt er á matseðli yfir 100 veitingahúsa Frumvarp gegn eigin markmiðum Mikið af stórum þorski á línuna Íslenskar sjávarafurðir í Bretlandi »10 »6 »8 »18 FRíVAKTIN » „Nýja skipið verður hreinlega bylting fyrir okk- ur. Sífellt eru gerðar meiri kröfur um burðar- getu, kæligetu og hraða til að skila úrvals hrá- efni til að vinna úr því hágæða afurðir. Nýja skipið gerir okkur þetta kleift og svo margt fleira. Það var löngu orðið tímabært að láta smíða svona skip, en það kostar 4.000 millj- ónir króna. Góða afkomu þarf því til að standa undir slíkri fjárfestingu. Við teljum okkur hafa góða möguleika á því, þó veiðar á uppsjávar- fiski séu alltaf nokkurri óvissu háðar. Nú blasir hins vegar við að auki pólitísk rekstraráhætta, sem ætti ekki að vera til staðar og leysist von- andi sem fyrst,“ segir Stefán Friðriksson, fram- kvæmdastjóri Ísfélags Vestmannaeyja. Félagið tekur við hinu nýja uppsjávarveiði- skipi sínu Heimaey VE 1 í Chile í dag. Skipið hef- ur verið lengi í smíðum og tafðist afhending þess meðal annars vegna náttúruhamfara. Gert er ráð fyrir að skipið sigli heim á næstu dögum og verði komið til heimahafnar í Eyjum þremur vikum eftir að lagt verður af stað. Skipið er búið fyrir veiðar í flotvörpu og nót og mælist 2.263 brúttótonn að stærð. Mesta lengd er 71 metri, breiddin er 14,4 metrar og djúprista 9,5 metrar. Siglingarhraði er að hámarki 17 mílur. Skipið er með 10 hráefnistanka, sem allir eru jafnstórir og burðargetan er 2.000 rúmmetrar. Svefnaðstaða er í skipinu fyrir 20 manns í fjórum eins manns klefum og átta tveggja manna. Fiskileitar- og siglingatæki eru af bestu og nýjustu gerð. Ísfélagið gerir fyrir út fimm uppsjávar- veiðiskip, en það eru álsey, Guðmundur, Júpít- er, Sigurður og Þosteinn og bolfiskveiðiskipið Suðurey. „Gríðarlega mikil kæligeta er í skipinu og tankarnir djúpir, sem bæta meðferð aflans og kælinguna. Aflinn fer til mannneldis og verður ýmist unninn í Vestmannaeyjum eða á Þórs- höfn. Vegna mikils ganghraða skipsins mun- um við geta haldið úti vinnslu á báðum stöðum hluta sumars, en undanfarin ár, hefur aðeins verið unnið á öðrum staðnum í einu yfir sum- arið, eftir því hvor staðurinn er nær miðunum. Ganghraðinn og hin öfluga kæling stækka líka veiðisvæðið fyrir okkur. útlitið í loðnunni er nú gott, kolmunnastofninn er á uppleið og ís- lenska síldin að braggast, en kvótinn á þeirri norsk-íslensku hefur minnkað. óvissan um makrílinn er auðvitað slæm, en hann er okkur afskaplega mikilvægur. Við höfum séð að ná- grannaþjóðir okkar hafa á undanförnum árum getað endurnýjað skip sín reglulega og eru undantekningarlítið með afar góð ný skip. Við höfum svo verið að kaupa notuð skip af þeim. Skýringin á þessu liggur að mestu leyti í því, að þessar þjóðir hafa notið þess að fiska mik- ið af makríl, sem hefur skilað þeim mjög góð- um tekjum. Því er mikilvægt að veiðar okkar á makrílnum verði tryggðar. Með þeim hætti verður endurnýjun uppsjávarveiðiflotans ekki eins erfið og verið hefur og ekki er vanþörf á endurnýjun þar,“ segir Stefán Friðriksson. VERðUR BYLTING FYRIR OKKUR Ísfélag Vestmannaeyja tekur á móti nýju og glæsilegu uppsjávarveiðiskipi, Heimaey VE 1, í Chile í dag: Hjörtur Gíslason skrifar: [email protected] Íslenskir sjómenn Frívaktin fjallar um daglegt líf sjómanna og annarra sem starfa í íslenskum sjávarútvegi. Þar er að finna sögur af sjónum, viðtöl og annað athyglisvert efni. ábyrgð 5 ára * ábyrgð 5 ára * Þú getur treyst þeim upplýsingum sem berast frá nýja SS4 nemanum frá Scanmar. SS4 getur unnið á sama tíma í senn sem: Aflanemi - hitanemi - hallanemi (pits og roll) Dýpisnemi - hitanemi - hallanemi (pits og roll) Scanmar búnaður er þekktur fyrir áreiðanleika, endingu og lága bilanatíðni sem á sér ekki hliðstæðu. Ný rafhlöðutækni - allt að tveggja mánaða ending á rafhlöðu Nýr SS4 frá Scanmar! Grandagarði 1a 101 Reykjavík Sími: 551 3300 / 691 4005 Netfang: [email protected] www.scanmar.no *12 mánaða ábyrgðartími á rafhlöðu Nýr SS4 frá Scanmar! Ný rafhlöðutækni - allt að tveggja mánaða ending á rafhlöðu » Heimaey VE 1 kemur til heimahafnar í maí.

Upload: goggur

Post on 22-Mar-2016

254 views

Category:

Documents


5 download

DESCRIPTION

Þjónustumiðill sjávarútvegsins

TRANSCRIPT

Page 1: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

útvegsblaðiðÞ j ó n u s t u m i ð i l l s j á v a r ú t v e g s i n s

a p r í l 2 0 1 2 » 4 . t ö l u b l a ð » 1 3 . á r g a n g u r

Hvalkjöt er á matseðli yfir 100 veitingahúsa

Frumvarp gegn eigin markmiðum

mikið af stórum þorski á línuna

Íslenskar sjávarafurðir í Bretlandi

»10 »6 »8 »18

Frívaktin »

„nýja skipið verður hreinlega bylting fyrir okk-ur. sífellt eru gerðar meiri kröfur um burðar-getu, kæligetu og hraða til að skila úrvals hrá-efni til að vinna úr því hágæða afurðir. nýja skipið gerir okkur þetta kleift og svo margt fleira. Það var löngu orðið tímabært að láta smíða svona skip, en það kostar 4.000 millj-ónir króna. góða afkomu þarf því til að standa undir slíkri fjárfestingu. við teljum okkur hafa góða möguleika á því, þó veiðar á uppsjávar-fiski séu alltaf nokkurri óvissu háðar. nú blasir hins vegar við að auki pólitísk rekstraráhætta, sem ætti ekki að vera til staðar og leysist von-andi sem fyrst,“ segir stefán Friðriksson, fram-kvæmdastjóri Ísfélags vestmannaeyja.

Félagið tekur við hinu nýja uppsjávarveiði-skipi sínu Heimaey ve 1 í Chile í dag. skipið hef-

ur verið lengi í smíðum og tafðist afhending þess meðal annars vegna náttúruhamfara. gert er ráð fyrir að skipið sigli heim á næstu dögum og verði komið til heimahafnar í eyjum þremur vikum eftir að lagt verður af stað. skipið er búið fyrir veiðar í flotvörpu og nót og mælist 2.263

brúttótonn að stærð. mesta lengd er 71 metri, breiddin er 14,4 metrar og djúprista 9,5 metrar. siglingarhraði er að hámarki 17 mílur. skipið er með 10 hráefnistanka, sem allir eru jafnstórir og burðargetan er 2.000 rúmmetrar. svefnaðstaða er í skipinu fyrir 20 manns í fjórum eins manns klefum og átta tveggja manna. Fiskileitar- og siglingatæki eru af bestu og nýjustu gerð.

Ísfélagið gerir fyrir út fimm uppsjávar-veiðiskip, en það eru álsey, guðmundur, júpít-er, sigurður og Þosteinn og bolfiskveiðiskipið suðurey.

„gríðarlega mikil kæligeta er í skipinu og tankarnir djúpir, sem bæta meðferð aflans og kælinguna. aflinn fer til mannneldis og verður ýmist unninn í vestmannaeyjum eða á Þórs-höfn. vegna mikils ganghraða skipsins mun-um við geta haldið úti vinnslu á báðum stöðum hluta sumars, en undanfarin ár, hefur aðeins verið unnið á öðrum staðnum í einu yfir sum-

arið, eftir því hvor staðurinn er nær miðunum. ganghraðinn og hin öfluga kæling stækka líka veiðisvæðið fyrir okkur. útlitið í loðnunni er nú gott, kolmunnastofninn er á uppleið og ís-lenska síldin að braggast, en kvótinn á þeirri norsk-íslensku hefur minnkað. óvissan um makrílinn er auðvitað slæm, en hann er okkur afskaplega mikilvægur. við höfum séð að ná-grannaþjóðir okkar hafa á undanförnum árum getað endurnýjað skip sín reglulega og eru undantekningarlítið með afar góð ný skip. við höfum svo verið að kaupa notuð skip af þeim. skýringin á þessu liggur að mestu leyti í því, að þessar þjóðir hafa notið þess að fiska mik-ið af makríl, sem hefur skilað þeim mjög góð-um tekjum. Því er mikilvægt að veiðar okkar á makrílnum verði tryggðar. með þeim hætti verður endurnýjun uppsjávarveiðiflotans ekki eins erfið og verið hefur og ekki er vanþörf á endurnýjun þar,“ segir stefán Friðriksson.

verður bylting fyrir okkurÍsfélag Vestmannaeyja tekur á móti nýju og glæsilegu uppsjávarveiðiskipi, Heimaey vE 1, í Chile í dag:

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

Íslenskir sjómenn Frívaktin fjallar um daglegt líf

sjómanna og annarra sem

starfa í íslenskum

sjávarútvegi. Þar er að

finna sögur af sjónum,

viðtöl og annað

athyglisvert efni.

ábyrgð5ára*

ábyrgð5ára*

Þú getur treyst þeim upplýsingum sem berast frá nýja SS4 nemanum frá Scanmar.

SS4 getur unnið á sama tíma í senn sem:• Aflanemi - hitanemi - hallanemi (pits og roll)• Dýpisnemi - hitanemi - hallanemi (pits og roll)

Scanmar búnaður er þekktur fyrir áreiðanleika, endingu og lágabilanatíðni sem á sér ekki hliðstæðu.

Ný rafhlöðutækni - allt að tveggjamánaða ending á rafhlöðuNýr SS4 frá Scanmar!

Grandagarði 1a • 101 Reykjavík • Sími: 551 3300 / 691 4005Netfang: [email protected] • www.scanmar.no*12 mánaða ábyrgðartími á rafhlöðu

Nýr SS4 frá Scanmar! Ný rafhlöðutækni - allt að tveggjamánaða ending á rafhlöðu

» Heimaey VE 1 kemur til heimahafnar í maí.

Page 2: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Margt jákvætt er að gerast í íslenskum sjávarútvegi þessa dagana. Þar ber líklega hæst að rannsóknir Hafró sýna að þorskárgangurinn frá síðasta ári er meðal þeirra stærstu frá árinu 1985. Þá hefur stofnvísitala þorsks hækkað

fimmta árið í röð og hefur ekki verið hærri síðan 1985. loks er þorskur-inn feitari og pattaralegri en undanfarin ár. Þetta þýðir á mannamáli að þorskstofninn sé í töluverðum vexti og aðstæður í hafinu séu hon-um hagstæðar. Þar má meðal annars nefna annan mikilvægan fisk-stofn á uppleið, loðnuna, sem er ein mikilvægasta fæða þess gula.

Þessar staðreyndir hafa reyndar verið að koma fram í veiðunum eins og útreikningar gunnars tómassonar, framkvæmdastjóra Þorbjarn-ar í grindavík sýna. Það kemur sífellt stærri þorskur á línuna. já, það hleypur á snærið hjá þeim. nánast allt bendir til aukningar þorskkvót-ans á næsta fiskveiðiári og árgangurinn frá síðasta ári gefur vísbend-ingar um það að stofninn haldist sterkur áfram þegar hann skilar sér inn í veiðstofninn og hrygningarstofninn þar á eftir. aukin gengd stór-þorsks á hrygningarslóðinni styrkir ennfremur hrygninguna eins og rannsóknir vísindamannsins guðrúnar marteinsdóttur sýna.

en ekki er nóg að veiða þorskinn. Hann þarf líka að selja og það ger-um við betur en keppinautar okkar. Í úttekt á breska fiskmarkaðnum í útvegsblaðinu í dag kemur fram að íslenskir fiskútflytjendur fá mun hærra verð fyrir þorskafurðir en norðmenn svo dæmi séu nefnd. Þeir eru bæði að selja þorskinn á hærra vinnslustigi en keppinautarnir og að fá hærra verð fyrir sambærilegar afurðir. lykillinn að árangri eins og þessum er stöðugleiki í afhendingu og gæði. sá stöðugleiki byggist svo á jöfnu og góðu framboði úr veiðunum. Þar er kvótakerfið mikil-vægur þáttur, en það stuðlar að jöfnu framboði allt fiskveiðiárið og eykur gæðavitund manna.

stórhugur Ísfélags vestmannaeyja sem er að taka við nýju uppsjávar-skipi í Chile í dag sýnir kraftinn sem í útveginum býr og sókn íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja á erlenda markaði endurspeglast í kraftmik-illi þáttöku á tveimur sjávarútvegssýningum í Brussel síð-ar í mánuðinum og útflutningi á smábátum úr plasti frá trefjum og seiglu. vonandi átta stjórnvöld sig á því við breytingu á lögum um stjórnun fiskveiða að þau eru með fjöregg þjóðarinnar í höndunum. Fyr-irhyggjulaus leikur að því getur leitt til þess að það brotni. Hjörtur Gíslason

2 aprÍl 2012 útvegsblaðið

útvegsblaðiðÞ j ó n u s t u m i ð i l l s j á v a r ú t v e g s i n s

leiðari

Það hleypur á snærið

Allt til grásleppuveiða

www.isfell.is

Starfsstöðvar Ísfells og Ísnets:• Ísnet Þorlákshöfn - Óseyrarbraut 28• Ísnet Vestmannaeyjar - Flötum 19• Ísnet Húsavík - Barðahúsi• Ísnet Akureyri - Oddeyrartangi• Ísnet Sauðárkrókur - Háeyri 1• Ísfell / Ísnet Hafnarfjörður - Óseyrarbraut 28 • 220 Hafnarfjörður • Sími 5200 500 • [email protected]

áhrif hvalaskoðunar á Faxaflóa á hegðun og fæðunám hrefnunnar eru neikvæð samkvæmt skýrslu, sem legið hefur fyrir hjá alþjóða-hvalveiðiráðinu frá því síðastliðið sumar. sú niðurstaða byggist á rann-sóknum þriggja erlendra vísinda-manna. Þá var nýverið varin meist-araprófsritgerð við útibú Háskólans á akureyri á vestfjörðum, þar sem fram kemur að við hvalaskoðun á skjálfanda virðist takmarkaðar regl-ur gilda um það, hvernig staðið sé að hvalaskoðun á flóanum. lítt sé far-ið að þeim reglum og viðmiðunum, sem almennt hafi verið settar við hvalaskoðun annars staðar í heim-inum.

Í skýrslunni um hvalaskoðun á Faxaflóa kemur fram að nærvera hvalaskoðunarbáta hafi áhrif á samhengi milli köfunar hrefnunnar og sunds í yfirborði sjávar. Hrefn-an reyni að forðast bátana með því að kafa í styttri tíma í hvert sinn og synda meira óreglubundið með örum stefnubreytingum í yfirborðinu. aukning í öndun í nærveru hvala-skoðunarbátanna gæti endurspegl-að meiri áreynslu hvalanna við að forðast truflun af völdum bátanna. Þetta geti leitt til vaxandi orkunotk-unar hvalanna í nærveru bátanna. auk þess hafi lengri djúpkafanir, sem taldar eru tengjast fæðunámi, ekki sést, þegar hvalaskoðunarbát-arnir hafi verið á svæðinu. Þetta gefi

til kynna að hvalaskoðunin trufli fæðunám hrefnunnar, sem sé henni afskaplega mikilvægt. Hún verði að ná að byggja sig upp á fæðuslóðinni til að geta síðar fjölgað sér og fram-leitt nóg af mjólk fyrir kálfinn. nái hrefnan ekki að éta nóg geti það haft áhrif á getu hennar til fjölgun-ar. Því geti þessi truflun við fæðu-námið haft verulega neikvæðar líf-fræðilegar afleiðingar.

meistaraprófsritgerðin er eftir söru martin, meistaranema í haf- og strandsvæðastjórnun. Þar er viðfangsefnið hvernig staðið er að umgjörð hvalaskoðunar á skjálf-andaflóa, hvaða reglur gildi um um-gengni við hvalina og hvernig þeim sé framfylgt. niðurstaðan er sú að fáar reglur eða leiðbeiningar séu um það með hvaða hætti megi og eigi að haga sér við hvalaskoðunina og framfylgni þeirra liggi ekki fyrir. allt að fjórir bátar í einu fylgist með sama hvalnum, þegar mest er. Hvalaskoð-unarbátarnir fari auk þess mjög ná-lægt hvölunum eða í allt að fjögurra metra fjarlægð og komi oft á mikl-um hraða upp að þeim. Í ritgerðinni segir að komið hafi í ljós að farið sé nær hvölunum og á meiri hraða en sagt sé til um í leiðbeiningum og reglum þeim, sem hvalaskoðendur á skjálfanda hafi sjálfir sett sér. Þessi nálgun sé einnig í ósamræmi við er-lend hvalaskoðunarsvæði þar sem ákveðnar reglur hafi verið settar. Því ættu hvalaskoðunarfyrirtækin að íhuga að taka upp ákveðnar leið-beiningar og reglur til að draga úr

mögulegri truflun vegna nálgunar við hvalina.

Þess má geta á sumum svæðum erlendis er gert ráð fyrir sérstökum hvíldartíma fyrir hvalina frá hvala-skoðuninni.

niðurstöður þessara tveggja rann-sókna eru einkar athyglisverðar í ljósi ítrekaðra ummæla forsvarmanna hvalaskoðunarfyrirtækja að erfiðara sé með hverju árinu að skoða hrefn-ur vegna aukinnar fælni dýranna. samkvæmt þeim gæti þessi aukna fælni stafað af framgangi hvalaskoð-unarfyrirtækjanna sjálfra fremur en hrefnuveiðum sem fara fram utan hvalaskoðunarsvæðanna.

fælingarmáttur veiða lítill sem enginnekki er fjallað um áhrif veiða á hrefnuna í þessum rannsóknum. Í greinargerð Hafró frá árinu 2009 með tillögu að afmörkun svæða til hvalaskoðunar á hvalveiðivertíð-inni árið eftir er fjallað um hugs-anleg áhrif veiða utan hvalaskoð-unarsvæða á hegðun hrefnunnar á skoðunarsvæðunum. Þar segir með-al annars: „engar rannsóknir benda til að hrefnur séu almennt styggari á svæðum þar sem hvalveiðar eru stundaðar en á öðrum svæðum. Í veiðigögnum hér við land sem og er-lendis má finna mörg dæmi þess að margar hrefnur hafi verið veiddar á tiltölulega afmörkuðum blettum allt sumarið og ár eftir ár og bendir það ekki til að veiðarnar hafi mikinn ef nokkurn fælingarmátt.“

Hvalaskoðun truflar hvalinaEkki virðist farið að reglum við hvalaskoðun hér við land:

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

Útgefandi: goggur ehf. kennitala: 610503-2680 Heimilisfang: stórhöfða 25 110 reykjavík Sími: 445 9000 Heimasíða: goggur.is netpóstur: [email protected] ritstjórar: Hjörtur gíslason, sigurjón m. egilsson ábm. aðstoðarritsjóri: Haraldur guðmundsson Höfundar efnis: Haraldur guðmundsson, geir a. guðsteinsson, Karl eskil Pálsson, sigurjón m. egilsson og fleiri. auglýsingar: [email protected] sími: 899 9964 Prentun: landsprent. Dreifing: Farmur. Dreifing: útvegsblaðinu er dreift til allra áskrifenda morgunblaðsins, útgerða, þjónustuaðila í sjávarútvegi og fiskvinnslustöðva. útvegsblaðið kemur út átta sinnum á ári.

Staðan í afla EinStakra tEgunda innan kVótanS:

» í skýrslu um hvalaskoðun á faxaflóa kemur fram að nærvera hvalaskoðunarbáta hafi áhrif á samhengi milli köfunar hrefnunnar og sunds í yfirborði sjávar.

» ufsin aflamark: 43.178n afli t/ aflamarks: 23.154

» karfin aflamark: 41.458n afli t/ aflamarks: 31.482

» Þorskurn aflamark: 140.399n afli t/ aflamarks: 101.208

» Ýsan aflamark: 38.737n afli t/ aflamarks: 29.094

72.1%

75.9%

53,6%

75,1%

Page 3: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Ísþykknisvélarnar eru til í �mm mismunandi útgáfum: B útgáfa er venjuleg vél, BP með innbyggðum forkæli, BPH þar sem H stendur fyrir Hydraulic (glussadri�n), BT er hönnuð fyrir hitabeltisnotkun, þar sem sjóhiti er allt að +32°C og BR þar sem R stendur fyrir Rekkaker�.

BP - 105Framleiðslusvið er frá 230 L/klst með 40% íshlutfalli til 490 L/klst með 10% íshlutfalli.

Framleiðslugeta: 14.5 kW/12.470 kcal/klst sem jafngildir 299.000 kcal/sólarhring.

BP - 120Framleiðslusvið er frá 920 L/klst með 40% íshlutfalli til 2.210 L/klst með 10% íshlutfalli.

Framleiðslugeta: 65.0 kW/55.900 kcal/klst sem jafngildir 1.341.000 kcal/sólarhring.

BP - 140Framleiðslusvið er frá 1.780 L/klst með 40% íshlutfalli til 3.650 L/klst með 10% íshlutfalli.

Framleiðslugeta: 107.0 kW/92.000 kcal/klst sem jafngildir 2.208.000 kcal/sólarhring.

OPTIMAR Iceland | Stangarhyl 6 | 110 Reykjavík | Sími 587 1300 | Fax 587 1301 | www.optimar.is

Tryggirgæðinalla leið!

Optim-Ice® ísþykknið getur orðið allt að

43% þykkt

Optim-Ice® ísþykknið getur orðið allt að

43% þykkt

af viti af viti svellkælann!svellkælann!

Hafðu samband við okkur, við höfum lausnina!Hafðu samband við okkur, við höfum lausnina!

Ætlar þú ekki að gera eitthvað Ætlar þú ekki að gera eitthvað

Þá þarftu aðÞá þarftu að

viðvið Makrílinn?Makrílinn?

Makríll...Makríll...

Ísþykknisvélar

BP - 130Framleiðslusvið er frá 1.380 L/klst með 40% íshlutfalli til 3.070 L/klst með 10% íshlutfalli.

Framleiðslugeta: 90.0 kW/77.400 kcal/klst sem jafngildir 1.857.000 kcal/sólarhring.

Page 4: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

4 aprÍl 2012 útvegsblaðið

Dalvegi 6-8201 KópavogurSími 535 [email protected]

Eigum til nýja rafmagns- og dísellyftara á lager, tilbúna til afhendingar.

Þýska tímaritið „DHF Intralogistik“ hefur mælt veltu allra lyftaraframleiðanda heims um árabil, og samkvæmt þeim mælingum hefur Toyota Industrial verið stærsti lyftaraframleiðandi heims undanfarin 9 ár.

Vertu í sambandi við sölumenn okkar og fáðu tilboð í tæki sem hentar þínu fyrirtæki. Nánari upplýsingar má finna á www.kraftvelar.is.

Gerðu verðsamanburð

Toyota rafmagns- og dísellyftarar

„við erum hérna á reki sunnan við munkagrunnið, langt suður af Fær-eyjum og erum að frysta. við komum á miðin í gærkvöldiog tókum þá um

150 tonna hal og erum að vinna úr því. Þetta er stór og fallegur fisk-ur og frystingin gengur vel, en við afköstum um 120 tonnum á sólar-hring í frysting-unni,“sagði skip-stjórinn á Hákoni ea, Björgvin

Birgisson, þegar útvegsblaðið spjall-aði við hann.

á síðasta ári stunduðu íslensku skipin engar kolmunnaveiðar enda var kvóti Íslendinga þá aðeins 6.500 tonn af 44.000 tonna heildarkvóta. nú er kvóti íslensku skipanna rétt rúm 60.000 tonn og hafa því mörg þeirra haldið til veiða og landað úr einni veiðiferð.

717 tonn fryst í fyrsta túr„Þetta er önnur veiðiferðin hjá okk-ur, en við vorum í þeirri fyrri komnir á miðin um 60 mílum vestar en við erum nú fjórða apríl. Þá var kolmunn-inn að ganga inn í færeysku lögsög-una úr þeirri skosku. við frystum 717 tonn, eða fullfermi,í þeirri veiði-ferð og lönduðum í neskaupstað. Það er svolítið langt stím, um 360 mílur eða 28 tímar en við erum ýmsu van-ir í þeim efnum. við erum með tæp-lega 3.000 tonna kvóta og það dugir í fjóra túra. við tökum yfirleitt ekki meira en rúm 100 tonn í hali og það tekur svona um 6 daga í frystingu að fylla bátinn. túrinn tekur því 8 til 9 daga með stíminu. Ég geri ráð fyrir að við verðum að sækja áfram hing-að suðureftir því kolmunninn hefur ekkert verið að ganga mikið norðar

síðustu árin, líklega vegna þess hve lítið hefur verið af honum. Þetta lít-ur hins vegar miklu betur út nú og fiskurinn er stór og fallegur,“ sagði Björgvin.

vertíðin er rétt að byrja hjá öllum þjóðunum sem stunda veiðarnar svo ekki er komin ákveðin verðmyndun á fiskinn. Björgvin segir að norðmenn og skotar veiði mest til vinnslu í landi í skotlandi en Hollendingar frysti aflann um borð. á síðasta ári fiskaði Hákon fyrir um þrjá milljarða króna og var uppistaðan í því síld og mak-ríll. vel hefur svo gengið á þessu ári því skipið tók 19.500 tonn af loðnu í vetur, sem var ýmist fryst um borð eða landað til vinnslu. „Það munar svakalega miklu um loðnuna. gott að hún skuli vera að koma til enda mikil búbót að henni,“ segir Björgvin. Hákon fer í smá slipp í maí að lokinni

kolmunnavertíðinni og síðan liggur leiðin á norsk-íslensku síldina.

skemmdarverkastarfsemien það er ekki hægt að spjalla við karlinn í brúnni án þess að minn-ast á fiskveiðistjórnun. „Framtíðin er eiginlega óskrifað blað. Þetta lítur hreinlega ekki vel út eins og „fagn-aðarerindið“ er boðað. mér líst illa á þessi frumvörp, sem eru ekkert nema skemmdarverkastarfsemi. Það er ótrúlegt hvernig menn eins og stein-grímur geta umpólast. Fyrir nokkrum árum sagði hann að auðlindagjald á sjávarútveginn væri ekkert annað en landsbyggðarskattur og ætti eng-an rétt á sér. nú gengur hann lengra í þessum efnum en nokkurn tíman hefur verið gert áður, miklu lengra og þá er þessi skattheimta í lagi,“ sagði Björgvin Birgisson.

Stór og fallegur fiskurBjörgvin Birgisson, skipstjóri á Hákoni Ea:

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

» „Þetta er önnur veiðiferðin hjá okkur, en við vorum í þeirri fyrri komnir á miðin um 60 mílum vestar en við erum nú fjórða apríl. Þá var kolmunninn að ganga inn í færeysku lögsöguna úr þeirri skosku.“ kMynDir: þorgEir BalDurSSon

» Björgvin Brigisson.

Page 5: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

útvegsblaðið aprÍl 2012 5

Nýr og léttari Helix þankaðall

Þanorkan þenur trolli› út. Stærra trollop.

Trolli› heldur sér vel í miklum og strí›um straumi.

Myndin af trollopi helst sk‡r og stö›ug á sónarnum.

Au›veldara a› hífa og slaka trollinu.

GLORIAGLORIA®

ÞantrollÞantroll

– fyrir öll heimsins höf

Björgvin Birgisson, skipstjóri á Hákoni Ea: aðalfundur HB granda var haldinn 13. apríl sl. Þar upplýsti Árni

vilhjálmsson, stjórnarformað-ur HB granda, að síðasta ár skilaði fyrir-tækinu mesta hagnaði í sögu þess. Í krónum talinn nam hagnaðurinn tæp-um sex milljörðum. „starf-semin á árinu var með svip-uðu sniði og árið áður, en verð afurða nokkru betra. Það sem skar sig úr var þáttur mak-rílsins í allri starfsemi fyrir-tækisins; í veiðum, vinnslu og markaðssetningu,“ sagði árni m.a. í ræðu sinni á aðal-fundinum.

Bátasmiðjan trefjar í Hafnarfirði hefur á undanförnum vikum

afgreitt tvo nýja Cleopatra báta. Fyrirtækið seldi fyrst bát af gerðinni Cleopatra 36 til vallersund í syðri Þrænda-lögum í noregi. sá bátur mælist 15 brúttótonn og hef-ur hlotið nafnið vasøyfisk. Í síðustu viku afgreiddi báta-smiðjan síðan nýjan Cleo-patra 31 til lorient á vestur-strönd Frakklands. Báturinn er níu brúttótonn og útbúinn til línu- og handfæraveiða.

Fulltrúar sjávarklasa við norður-atlantshaf munu hittast á fundi í

reykjavík í sumar þar sem rædd verður frekari sam-vinna klas-anna á sviði haftengdrar starfsemi. Full-trúarnir koma allt frá Kan-ada og grænlandi, til Fær-eyja og noregs. vilhjálmur Jens Árnason hjá íslenska

sjávar-klasanum vinnur nú að kortlagn-ingu allra sjávarklasa á norður-atlantshafi

sem kynnt verður á fund-inum.

Frosti ehf. á grenivík hefur fest kaup á Smáey vE 144, 200 brúttólesta ísfisktogara

frá vestmannaeyjum. togarinn

mun leysa frystitogarann Frosta þH 229 af, en hann var seldur til Kanada í febrúar sl. áætlað er að Frosti ehf. fái smáey afhenta 27. apríl nk. og mun hún fara á tog-veiðar, en aflaheimildir Frosta ÞH 229 færast yfir á smáey, sem og stór hluti áhafnarinnar. Frá þessu var greint á vef grýtubakka-hrepps.

Fyrsta mat Hafró á 2011 ár-gangi þorsks bendir til að hann sé meðal stærstu ár-

ganga frá 1985. Hann kemur í

kjölfar lítils árgangs frá 2010, en árgangarnir frá 2008 og 2009 hafa mælst yfir meðallagi. „meðalþyngd þorsks eftir aldri hefur farið hækk-andi undanfarin ár og er nú um og yfir meðaltali hjá flestum aldurs-hópum. við sunnanvert landið var holdafar þorsks með því besta sem verið hefur frá 1993, þegar vigtanir hófust. Fyrir norðan var þorskur í betri holdum og lifrarmeiri en verið hefur frá 1996,“ segir í fréttatil-kynningu frá Hafró.

Page 6: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

markmið frumvarps til nýrra laga um fiskveiðistjórnun eru tíunduð í fyrstu grein laganna. Því er eðlilegt að fara yfir þau og leitast við að finna sam-svörun markmiðanna í hinum tilvon-andi lögum. markmið laganna eru eft-irfarandi:

a. að stuðla að verndun og sjálf-bærri nýtingu fiskistofna við Ísland,

b. að stuðla að farsælli sam-félagsþróun með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi,

c. að treysta atvinnu og byggð í landinu,

d. að hámarka þjóðhagslegan ávinning af sjávarauðlindinni og tryggja þjóðinni eðlilega auðlinda-rentu,

e. að sjávarútvegurinn sé arð-samur og búi við hagstætt og stöðugt rekstrarumhverfi.

nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameiginleg og ævarandi eign ís-lensku þjóðarinnar. Íslenska ríkið veitir tilskilin leyfi, fer með og ráðstaf-ar hvers kyns heimildum til nýting-ar. slík veiting eða ráðstöfun myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir þeim.

sé litið á lið a er þar engin breyt-ing frá núgildandi lögum frekar en í síðustu málsgreininni um sameigin-lega og ævarandi eign. liðir b,c,d, og e eru fallega orðaðar yfirlýsingar, sem segja þó í raun ekkert um það hvern-ig þeim markmiðum skuli náð. Því er ætlunin að leita eftir þeim greinum í frumvarpinu og fylgiskjölum, sem kunna að styðja við ofangreind mark-mið.

Fyrst skal staldrað við 8. grein frumvarpsins þar sem segir:

Hafi nytjastofni, sem veiðar eru takmarkaðar úr skv. 7. gr., verið ráð-stafað í aflahlutdeildir, skal ráðherra með reglugerð skipta heildarafla-marki hvers fiskveiðiárs í stofninum í flokka sem hér segir:

1. Flokkur 1: samkvæmt aflahlut-deildum og krókaaflahlutdeildum, sbr. iv. kafla.

2. Flokkur 2: samkvæmt annarri aflahlutdeild, sbr. vi. kafla.

verði ákveðinn heildarafli þorsks fyrir fiskveiðiár, sbr. 1. mgr., sem nem-ur meira en 202.000 lestum, fyrir ýsu sem nemur meira en 66.000 lest-um, fyrir ufsa sem nemur meira en 50.000 lestum eða fyrir steinbít sem nemur meira en 14.000 lestum skulu 60% þess aflamarks sem umfram er í hverri tegund renna til flokks 1 og 40% til flokks 2.

fá ekki að njóta aukningar til fullsÞessi grein frumvarpsins þýðir í raun að þeir handhafar veiðiréttar-ins undanfarin ár, sem tekið hafa á sig skerðingar vegna niðurskurðar á leyfilegum heildarafla tiltekinna tegunda, skuli ekki njóta þess til fulls þegar veiðiheimildir verða auknar á ný. 40% aukningarinnar umfram nefnd mörk skulu tekin út fyrir afla-hlutdeildarkerfið og færð öðrum með einhverjum hætti sem ekki er fylli-lega skýrður. Hagræðing?

Í greinum 11 er fjallað um leyfi til að nýta aflahlutdeild:

til og með 1. ágúst 2012 býðst

eigendum þeirra skipa sem þá ráða yfir aflahlutdeild að staðfesta hjá Fiskistofu, með undirritun eða öðr-um fullgildum hætti, að gangast undir leyfi til að nýta aflahlutdeild til 20 ára frá upphafi fiskveiðiárs-ins 2012/2013 að telja. tefjist veit-ing leyfis umfram frest þennan af ástæðum sem ekki varða stjórnvöld er viðkomandi aðila óheimilt að nýta aflamark frá upphafi fiskveiðiársins 2012/2013. aflaheimildum hans verður ráðstafað til flokks 2 hinn 1. desember 2012 hafi hann á þeim tíma ekki gengist undir leyfið.

Hér er mikil breyting frá gildandi lögum, en þar eru engin tímamörk á nýtingu aflahlutdeildar. Í greininni segir ennfremur að nýtingarleyfi sé ekki framseljanlegt. eins og fram kemur er leyfið til 20 ára, en tilkynni ráðherra ekki að annað sé fyrirhug-að, framlengist nýtingarleyfið um eitt ár í senn ár frá ári þannig að 15 ár verði jafnan eftir af gildistíma þess.

aðgangurinn verður einskis virðiÞetta gerist eftir næstu 5 fiskveiðiár og þýðir í raun að útvegsmenn geta ekki reiknað með því í framtíðinni að þeir hafi vissu um að nýtingar-leyfi þeirra gildi lengur en í 15 ár. Og í raun að eftir 5 ár styttist tími nýt-ingarleyfa um eitt ár á hverju ári sem líður og renni loksins út. eftir þann tíma hafa menn ekki lengur leyfi til að nýta auðlindina. árið 2032 renn-ur svo út heimild til framsals afla-hlutdeilda eða eftir 20 ár. Þá verða að engu þau verðmæti sem hingað til hafa falist í heimildinni til að nýta auðlindina, og reyndar miklu fyrr, því eftirspurn eftir óvissri framtíð hlýtur að vera lítil. aðgangurinn verður einskis virði. ekki liggur fyrir hvað muni taka við að þessu loknu. vera kann að þetta stuðli að vernd-un fiskistofna, en ekki getur þetta talist hagstætt og stöðugt rekstrar-umhverfi.

Þrátt fyrir að nýtingarleyfi séu ekki framseljanleg, er leyfilegt að flytja aflahlutdeild milli skipa, en þá skal Fiskistofa skerða aflahluddeild fiskiskipsins, eða þá aflahlutdeild sem framseld er, um 3% og ráðstafa í flokk 2.

Þetta gildir þó ekki um flutning aflahlutdeilda milli skipa í eigu eins og sama aðila. Þetta þýðir í raun 3% skattheimtu á allan flutning afla-

hlutdeildar, varanlegs kvóta, milli óskyldra aðila og getur það varla talist til hagræðingar í þágu grein-arinnar. Heimildirnar verða svo færðar til annarra í gegnum pottana margumtöluðu. Þetta er í raun aukin skattheimta á handhafa veiðileyfa og getur engan veginn talist stuðla að hagstæðu og stöðugu rekstrar-umhverfi.

Hömlur á framsali aflahlutdeildarloks er í 13. grein frumvarpsins fjallað um hömlur á framsali aflahlut-deildar, þegar kynntur er til sögunn-ar forgangsréttur að aflahlutdeildum. Þar er tekið upp gamalt ákvæði úr fyrri lögum með þeim breytingum að nú fær ráðherra að ganga inn í gerða samninga sem milliliður en ekki önn-ur fyrirtæki á sama stað eða í sama landshluta eins og var. Þessu ákvæði var og verður ætlað að sporna við flutningi aflahlutdeildar frá þeim stöðum, sem þær voru þá vistaðar á. samkvæmt greininni er ráðherra heimilt að neyta forgangsréttar til kaupa á aflahlutdeild sem er umfram 20% aflaheimilda í þorskígildum talið frá viðkomandi byggðarlagi eða sveit-arfélagi. ráðherra skal ráðstafa afla-hlutdeildum, sem hann innleysir á grundvelli forgangsréttar, innan við-komandi byggðarlags, sveitarfélags eða landshluta samkvæmt skilgrein-ingu Hagstofu Íslands. skal ráðherra auglýsa hlutdeildina til sölu í við-komandi landshluta. eigendur skipa í byggðarlagi skulu hafa forgang að umræddum aflaheimildum, síðan eigendur skipa í sveitarfélagi og loks eigendur skipa í landshlutanum.

ákvæði af þessu tagi kom ekki í veg fyrir flutning aflahlutdeild-ar á milli byggðarlaga á sínum tíma og nýja ákvæðið mun ekki geta það heldur. Þeir sem vilja sækja aflahlut-deild á tiltekinn stað þar sem hún er til sölu, geta annað hvort keypt við-komandi félag eða stofnað nýtt á sama stað eins og gerðist á sínum tíma og ráðstafað kvótanum svo að vild. enn og aftur er erfitt að koma auga á að þetta ákvæði styðji mark-miðin úr fyrstu grein frumvarpsins, það er leiði til hagstæðs og stöðugs rekstrarumhverfis.

opinbert kvótaþingÍ 15. grein frumvarpsins eru kynnt ákvæði um skorður við flutningi á aflamarki, það er leigu á kvóta inn-an hvers árs. leiga aflaheimilda skal eingöngu fara í gegnum opinbert kvótaþing, sem jafnframt er boðað í frumvarpinu. meginreglan er sú að ekki má leigja frá skipi meira en þriðjung aflaheimilda þess í þorsk-ígildum talið. veiðiskylda er því auk-in. Þá er tekið fyrir flutning afla-marks úr stóra kerfinu niður í það litla, en slíkt er leyft nú. enn er erfitt að sjá að lagagreinin styðji við yfir-lýst markmið laganna því smábat-arnir hafa notið góðs af því að geta leigt til sín heimildir úr stóra kerf-inu, einkum í ýsu.

Í 17. grein er kynnt til sögunnar nýtt kvótaþing, sem Fiskistofa skal starfrækja. um það skal öll kvóta-leiga fara. Þá verður úr sögunni sú kvótamiðlun sem hingað til hefur átt sér stað hjá sérstökum fyrirtækjum

6 aprÍl 2012 útvegsblaðið

frumvarp gegn eigin markmiðumMarkmið laga um stjórn fiskveiða að sjávarútvegurinn sé arðsamur og búi við hagstætt og stöðugt rekstrarumhverfi.

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

» Samkvæmt greininni er ráðherra heimilt að neyta forgangsréttar til kaupa á aflahlutdeild sem er umfram 20% aflaheimilda í þorskígildum talið frá viðkomandi byggðarlagi eða sveitarfélagi.

Page 7: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

útvegsblaðið aprÍl 2012 7

frumvarp gegn eigin markmiðum

og lÍú. Hver áhrif þessa kvótaþings verða er erfitt að segja. óljóst er hvert framboðið muni verða, en lík-lega mun það minnka vegna aukinn-ar veiðiskyldu. minna framboð leiðir væntanlega til hærra verðs. Fram-boðið mun reyndar ráðast meira af því hve mikið hið opinbera setur þangað inn. Það veltur þá á því hver heildarúthlutun verður í hverri fisk-tegund hverju sinni, hve mikið af út-hlutuðum heimildum rennur í flokk 2. ekki liggur fyrir með hvaða hætti heimildir úr leigupottinum verða leigðar. Hvort einfaldlega verði um opið uppboð að ræða eða einhverj-ar skorður settar við því hverjir megi leigja úr pottinum.

Í 18. grein laganna er heimild sem hljóðar svo: Frá og með fiskveiði-árinu 2015/2016 er heimilt að ráð-stafa tilteknu magni aflahlutdeilda sem ríkið hefur yfir að ráða sam-kvæmt flokki 2 til að stuðla að nýlið-un með útgáfu nýrra nýtingarleyfa. verða þá slík nýliðunarleyfi annað-hvort boðin út eða úthlutun þeirra bundin svæðum sem hallað hefur á í atvinnu- og byggðalegu tilliti.

ekki kemur fram hve miklar þess-ar heimildir kunna að verða og fram-kvæmdin fremur óljós.

enn skal tekið af þeim, sem heim-ildirnar hafa haft og fært til annarra. nú eru tekin ígildi 20.628 tonna af þorski fyrir útreikning aflahlutdeild-ar í pottana svokölluðu. Í frumvarp-inu kemur fram að á næsta fiskveiði-ári verði þetta 36.015 tonn miðað við að úthlutun verði sú sama. Þar af fari 15.500 tonn á kvótaþing, auk 4.500 tonna af þorski samkvæmt sérstöku ákvæði.

Þrengt að útgerðinni ekki verður annað sé en með frum-varpinu sé verulega þrengt að útgerð-inni og möguleikar hennar til hag-ræðingar og arðsemi skertir verulega. Hvernig útgerðin á svo að standa und-ir verulegri hækkun auðlindagjalds við þær aðstæður er erfitt að sjá.

ennfremur er erfitt eða ómögu-legt að sjá hagræðingu felast í því að taka veiðiheimildir af þeim, sem þegar hafa skip til að nýta þær, og hafa auk þess svigrúm til að veiða töluvert meira, komi til aukningar á leyfilegum afla. að færa þær svo til annarra, sem í flestum tilfellum þurfa að leggja út í verulega kostn-að til að geta nýtt sér þær heimildir, sem þeim er gefinn kostur á getur ekki þýtt annað en aukinn kostnað við veiðarnar. Öllum hlýtur að vera ljóst að með því að stuðla að því að fleiri fleytur veiði fiskinn, er stuðl-að að óhagræði. Kostnaður við veið-arnar eykst einfaldlega. ekki er séð að frumvarpið stuðli að þeim mark-miðum, sem tíunduð eru í fyrstu greininni. Það leysir engan veginn þann grundvallarágreining sem ver-ið hefur um kvótakerfið. Það setur útgerðinni skorður og leggur á hana álögur, sem hæpið er að hún ráði við. Yfirvöld skerða aflaheimildir útgerð-arinnar og leggja svo á hana mjög þungar álögur í ofanálag.

Því er enn spurt: arðsamur sjáv-arútvegur sem búi við hagstætt og stöðugt rekstrarumhverfi!

ráðherra skal ráðstafa aflahlutdeildum, sem hann innleysir á grundvelli forgangsréttar, innan viðkom-andi byggðarlags, sveitarfélags eða landshluta samkvæmt skilgreiningu Hagstofu Íslands.

karin BEatE nøStEruD/norDEn.org

Öflugur sjávarútvegur er hagur okkar allra

UMHVERFISVÆNAR VEIÐAR

VÍSIR hf. • Hafnargötu 16 • 240 Grindavík • www.visirhf.is

Vísir hf. er fjölskyldufyrirtæki sem hefur verið með útgerð og fisk-

vinnslu í rúm fjörutíu ár. Gerð eru út fimm línuskip og geta þau veitt

og landað hringinn í kringum landið, þar sem fyrirtækið er með

starfsstöðvar á Þingeyri, Húsavík, Djúpavogi og í Grindavík. Þannig

er tryggður aðgangur að bestu fiskimiðum og gæðahráefni hverju

sinni. Með því að veiða eingöngu á línu

leggur Vísir hf. sitt af mörkum í að vernda

náttúruna og fiskistofnana við landið.

kROSSEYRI

Page 8: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

„Það er mjög áberandi hvað hlutfall af stórum þorski hefur aukist í afla línubátanna okkar. við sáum það í haust, þegar bátarnir voru fyrir aust-an, að mun meira var af stærri fiski en 2010. svo varð hreinlega bylting í janúar, þegar bátarnir voru komnir hingað vestur eftir. við höfum aldrei séð svona stóran þorsk í svona mikl-um mæli koma á línuna,“ segir gunn-ar tómasson, framkvæmdastjóri hjá Þorbirni hf. í grindavík.

„menn segja að línan sýni þver-snið af þeim fiski, sem er á slóðinni hverju sinni. Hún sé ekki að velja fisk eftir stærð eins og netin gera. við sáum að þessi stóri fiskur, fimm til sex kíló og stærri, kom í janúar og eftir miðjan mars var hann að hverfa. Hann kemur snemma og hrygnir og fer snemma. smærri fiskurinn er þá eftir á slóðinni og er enn að hrygna. Ég tel að skýringin á þessu sé sú að hér við landið sé um að ræða tvenns konar þorsk, grunn- og djúpfars-þorsk eins og guðrún marteinsdótt-ir prófessor í fiski- og fiskavistfræði hefur bent á,“ segir gunnar.

netaveiði sama og engin„miklu meira er sótt í grunnfars-þorskinn, því í honum liggja nánast öll skipin, hvaða veiðarfæri sem þau eru með. Djúpfarsþorskurinn var tekinn í netin á sínum tíma, en nú er netaveiðin sama og engin orðin. Þessi þorskur fær því frið til að vaxa og dafna. Hann kemur svo að hrygna þegar loðnan kemur og hverfur með henni aftur. Það er mjög mikilvægt fyrir þorskstofninn að meira sé af þessum stóra fiski, því hrognin úr honum eru mun lífvænlegri en úr smærri fiskinum, fyrir utan að vera margfalt fleiri. Því er framlag hans til nýliðunar miklu meira. Þá leiðir þetta ennfremur til lengri hrygningartíma í heildina, sem er líka jákvætt. við hljótum því að fara að hitta á óska-stund í hrygningunni, þegar svona mikið er af stóra fiskinum.“

Má draga þá ályktun af þessu að þorskstofninn sé að styrkjast?

„Þorskurinn stendur betur í ár en áður. Hvort það kemur svo nægilega vel fram í stofnstærðarmati Hafró, sérstaklega rallinu, er kannski önnur saga. Þegar rallið fer fram, er mikið af stóra fiskinum horfið af slóðinni, svo hann kemur ekki fram í afla skipanna í rallinu. Þá er stofninn einnig metinn

eftir afla í veiðarfæri, en staðreynd-in er sú að nánast engin skip eru með veiðarfæri, sem taka þann stóra. Það eru bara netin sem það gera og eins og ég sagði áðan er netaveiðin orð-in afskaplega lítil. Því gefa veiðarnar tæplega rétta mynd af samsetningu þorskstofnsins og hlutfalli stórfisks í honum.“

gunnar hefur tekið saman yfirlit yfir stærðarsamsetningu á þorski í afla línubáta Þorbjarnar. Þar má sjá að hlutfall fisks átta kíló að þyngd og yfir hefur nærri þrefaldast frá árinu 2006. Þá var það 2% en var í fyrra 5,6%. Í janúar í ár var hlutfallið svo í 10% en það er reyndar ekki saman-burðarhæft við allt árið. á sama tíma hefur fiskur á bilinu 6 til 8 kíló farið úr 5% í 12,7%. að sama skapi hefur hlutfall smærri fisksins minnkað.

vantar einn árgang„Það er margt sem má lesa úr þessum tölum. til dæmis má nefna að einn

árgang hefur nánast alveg vant-að í veiðina í haust, líklega 2007 ár-ganginn. við sjáum það nokkuð vel í veiðinni, sem fiskifræðingarnir eru að segja, en árgangarnir frá 2001 til 2007 voru allir undir langtíma-meðaltali og 2004 árgangurinn mjög slakur. árgangarnir 2008 og 2009 voru hins vegar yfir þessu meðaltali. Þeir byrja að skila sér inn í veiðina í haust og vonandi verður áframhald á góðum árgöngum. stóri fiskurinn á hrygningarslóðinni í vetur gefur góð fyrirheit um það,“ segir gunnar.

En hvernig er það, er það ekki gott fyrir veiðar og vinnslu að fá meira af stórum fiski?

„á árum áður hefði það vissulega þótt mjög gott. Þessi stóri þorsk-ur er dýr veislumatur í löndum eins og spáni, Portúgal og Ítalíu og fyr-ir hann hefur fengist mjög gott verð saltaðan. nú er því hins vegar svo farið að efnahagsþrengingar hafa leitt til þess að fólk sparar við sig í svona veislumat, bæði heimafyrir og á veitingastöðum. Þessi fiskur hefur verið vinsæll á veitingahúsum en þar kreppir að skórinn líka. mörg þeirra hafa farið á hausinn og sum stytt þann tíma, sem opið er. Fyrir vik-ið minnkar eftirspurn eftir þessum fiski og lægra verð fæst fyrir hann. smærri fiskurinn heldur verðinu bet-ur, því hann dreifist á fjölbreyttari

og stærri markaði, ferskfiskmarkaði norðar í evrópu en einnig á saltfisk-markaðina í sunnanverðri álfunni.“

betri fiskur á markaðina„Fyrir vikið erum við nú að dreifa betri fiski á saltfiskmarkaðina, en á lægra verði. Þó það valdi tíma-bundnum erfiðleikum er það í sjálfu sér kannski ekki svo slæmt, við erum þá að þjóna markaðnum með mjög góðum fiski á tiltölulega lágu verði. Þannig erum við að byggja

upp markað til framtíðar og það á örugglega eftir að skila sér. engu að síður er hráefnisverðið ekki í sam-ræmi við afurðaverðið, en það er hins vegar í samræmi við það kerfi í verðlagningu sem við búum við. Það miðar við 12 mánuði aftur í tím-ann og getur því aldrei endurspegl-að stöðuna eins og hún er á hverjum tíma. Þegar verðið verður svo hugs-anlega leiðrétt, getur staðan ver-ið orðin allt önnur en hún er í dag,“ segir gunnar tómasson.

8 aprÍl 2012 útvegsblaðið

» taflan sýnir vel þá þróun sem orðið hefur á hlutfalli stórs þorsk í línuveiðunum.

2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012*

sl.m.H unDirmál 0,6% 1,8% 0,8% 1,1% 1,6% 1,3% 0,6%

1 - 2.6 Kg 1 - 2.6 Kg 31,7% 42,3% 40,4% 29,6% 28,5% 19,7% 8,4%

2,6 -4 Kg 2,6 -4 Kg 37,4% 29,1% 31,4% 35,6% 31,2% 29,2% 22,1%

4 - 6 Kg 4 - 6 Kg 23,4% 20,1% 19,1% 21,6% 26,8% 31,5% 39,6%

6 - 8 Kg 6 - 8 Kg 5,0% 4,9% 5,5% 7,3% 8,1% 12,7% 19,1%

8 Kg + 8 Kg + 2,0% 1,7% 2,8% 4,8% 3,8% 5,6% 10,2%

100,0% 100,0% 100,0% 100,0% 100,0% 100,0% 100,0%

stærðardreifing Þorsks í afla línuskipa Þorbjarnar Hf. eftir árum

Hittum vonandi á óskastundHafa aldrei séð jafn mikið af stórum þorski koma á línuna eins og í vetur:

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected] » gunnar tómasson,

framkvæmdastjóri hjá Þorbirni hf. í grindavík.

*Tölur miðast við janúar 2012.

Page 9: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Komdu og hittu okkur í höll 4 / bás 6138á sjávarútvegssýningunni í Brussel

Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.eimskip.is

Á leið til Brusselum Norður-Atlantshaf

Eimskip hefur styrkt leiðakerfi sitt á Norður-Atlantshafi. Nýtt skip hefur bæst í flotann og eru nú tvö skip í siglingum til Norður- Ameríku í stað eins áður. Með þessu fjölgar ferðum og við bætast nýir áfangastaðir, sem bætir þjónustu enn frekar við viðskiptavini félagsins.

Styttra á milli ferða– meiri flutningsgeta

FÍT

ON

/ S

ÍA

Hamborg

Szczecin

Klaipeda

Ríga

Moskva

St. Pétursborg

Izmir Mersin

Istanbul

Helsinki

Rotterdam

Fredrikstad

Álasund

Mosjøen

Kirkenes

Hammerfest

TromsøMurmansk

Kristiansund

Sortland

Helsingborg

Portúgal/Spánn

Royal Arc

tic Lin

e/Grænland

Bandaríkin

/Kanada

Hamborg

Szczecin

Klaipeda

Ríga

Moskva

St. Pétursborg

Vigo

Porto

Antwerpen

Genóva

Izmir Mersin

Istanbul

Helsinki

Lissabon

Rotterdam

VelsenImminghamGrimsby

Aberdeen

Gatwick

TórshavnKlakksvíkFuglafjörður

ÁrósarKaupmannahöfn

Fredrikstad

Álasund

Maaloy

Mosjøen

Kirkenes

Bergen

Egersund

Hammerfest

TromsøMurmansk

Kristiansund

Álaborg

Sortland

Helsingborg

Stavanger

Argentia

Boston / Everett

St. Anthony

Halifax

Harbour Grace

New York

St. John’s

Norfolk

Nuuk

GrundartangiReykjavík

Reyðarfjörður

Vestmannaeyjar

Ísafjörður Akureyri

Skrifstofur Eimskips

Frystihús Eimskips

Vöruhús Eimskips

Frystihús samstarfsaðila

Fulltrúar Eimskips

Norðurleið

Suðurleið

Austurleið

Ameríkuleið

Noregsleið

Leiðir samstarfsaðila

For- og Áframflutningar

Tengileiðir

Page 10: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

10 aprÍl 2012 útvegsblaðið

Á matseðli yfir 100 veitingahúsaVeiðar á hrefnu hefjast í þessum mánuði og leyfilegt er að veiða 216 dýr á þessu ári:

Hrefnuvertíðin er að hefjast um þessar mundir. leyfi til veiðanna hafa borist viðkomandi útgerð-um, en kvóti á þessu ári er 216 dýr. Fyrsti báturinn, Hafsteinn sK, gæti hafið veiðar í þessari viku og stærsti báturinn, Hrafnreyður, um mán-aðamótin. Í fyrra veiddist 61 dýr af þremur bátum. veiðarnar eru sniðn-ar að þörfum markaðsins hér heima, en útflutningur hefur verið mjög lítill. ríflega 50 tonn af hrefnukjöti fóru á neytendamarkað hér eftir síðustu vertíð og er það kjöt að segja má uppselt. Kjötið fer í verslanir og á veitingahús.

Það var báturinn Hrafnreyð-ur sem veiddi langflestar hrefnur á síðasta ári, 50 dýr, en það er félagið Hrefnuveiðimenn sem gerir hann út. tveir aðrir bátar veiddu samtals átta dýr. Félagið er einnig með kjöt-vinnslu í Hafnarfirði. Þar er hrefnu-kjötið meðal annars marínerað fyrir verslanir og fyrir þorrann fer tveggja mánaða tímabil í að súrsa hval. Þar er líka pakkað í neytendapakkning-ar fyrir verslanir og gengið frá pönt-unum fyrir veitingahúsin. gunn-ar Bergmann er framkvæmdastjóri Hrefnuveiðimanna. Hann segir það mjög mikilvægt að geta boðið upp á hrefnukjötið allt árið og það sé hægt með því að samnýta starfsfólk í fisk-vinnslu með kjötvinnslunni. vinnsla á kjöti og fiski sé í sama húsinu, en algjörlega aðskilin, en um sjö manns hafa verið við vinnsluna í vetur.

veiðileyfi til eins árs í sennnú eru veiðileyfi gefin út til eins árs í senn. Bátar sem höfðu leyfi áður, sem eru Dröfn re og Halldór sig-

urðsson Ís, þurfa ekki að bíða eftir útgáfu veiðileyfis nú, þar sem þeirra leyfi eru í gildi, voru á sínum tíma gefin út til fimm ára. Hrafnreyður kom síðar inn í veiðarnar og þarf því að sækja um árlega, eins og aðrir bátar. um leið og fyrsta skipið hefur veiðar hefst sex mánaða veiðitíma-bil og hefjist veiðar í apríl, en það má veiða fram í október.

gunnar segir að kvótinn sé meira en nægur fyrir markaðinn innan-lands, þó hann hafi verið lækkaður úr 400 dýrum fyrir nokkrum árum niður í 216, þó nóg sé af hrefnu. Það hafi verið gert vegna þess að minna af hrefnu hafi komið fram í talningu fyrir nokkrum árum. staðan nú sé hins vegar sú að nóg sé af henni og Hafrannsóknastofnunin þurfi að kanna útbreiðslu og fjölda hrefn-unnar á ný. Þetta sé reyndar nóg fyrir heimamarkaðinn en líkur séu á því að opnast geti fyrir útflutningi til japans á þessu ári. Því væri betra að hafa kvótann hærri.

sveiflur í útbreiðslu„nokkrar sveiflur hafa verið á út-breiðslu hrefnunnar og það var klár-lega minna af henni á Faxaflóa í fyrra en áður. Þegar makríllinn kem-ur inn í Flóann fer hún á svakalegt flug, því hann stoppar aldrei. Hún eltir hann því út um allt og fyrir vik-ið er erfiðara að ná henni. Það liggur ekki fyrir hvers vegna minna var af henni í fyrra, en ég get fullyrt að það hefur ekkert með veiðar okkar að gera, eins og þeir, sem stunda hvala-skoðun hafa haldið fram. Það hefur verið staðfest af Hafró að veiðarn-ar hafi ekki áhrif á vöxt og viðgang stofnsins. Þá vaknar sú spurning hvort hvalaskoðunin er að fæla hrefnuna burt. Það eru sex hvala-

skoðunarfyrirtæki núna sem gera út á Faxaflóa. Hvert þessara fyrir-tækja er að fara tvær til fjórar ferð-ir á dag. Öll eru þau að vinna á sama svæðinu með skip með 2.000 hest-afla vélar. Í fyrra var kynnt skýrsla á ársfundi alþjóðahvalveiðiráðsins um áhrif hvalaskoðunar á hrefnuna á Faxaflóa. niðurstaða hennar var að áhrifin væru töluverð.

annars finnst mér eðlilegast að þessar tvær atvinnugreinar lifi í sátt og samlyndi. við veiðum utan línu sem dregin var á sínum tíma og innan hennar hafa hvalaskoðunar-fyrirtækin sitt svæði. staðreyndin er svo sú að ferðamönnum sem til landsins koma fjölgar stöðugt, stöð-ugt fleiri fara í hvalaskoðun og stöð-ugt fleiri borða hvalkjöt á íslenskum veitingastöðum. eru ekki bara allir að gera það gott?“ segir gunnar.

nýting allt að 70%um þúsund kíló af kjöti fást að með-altali af hverri hrefnu. Hlutfallið er lægra á vorin en hækkar eftir því sem líður á sumarið og hrefnan vex og dafnar. innanlandsmarkaðurinn er því ríflega 50 tonn af kjöti og fer vaxandi. „Í ár áætlum við að taka um 80 dýr. markaðurinn hér heima er alltaf að stækka. við höfum fengið frið við að þróa afurðir okkar og erum farnir að bjóða upp á þrjár tegundir af maríneruðu hrefnukjöti og ferskt, frosið, reykt og grafið. við förum út í vinnslu á þurrkrydduðu kjöti og þurrkuðu í sumar. auk þess höfum við verið með súrt rengi og hrefnu-spik í lofttæmdum umbúðum. við erum því alltaf að ná meiri og meiri tökum á þessum markaði og erum að nýta dýrið betur og betur. við nýtum í raun allt nema innyfli og bein. við tökum allt spik, sporða, rengi og kjöt.

afskurður og afgangskjöt fer í refa-fóður svo nýtingin af hverju dýri er því allt að 70%. Íslenska gámafélag-ið hefur tekið spikið og þar er það brætt. við einbeitum okkur að þess-um markað hér heima fyrir og reyn-um að stækka hann eftir bestu getu, ná auknum viðskiptum í gegnum veitingahús og halda áfram í búðun-um, en þar er maríneraða kjötið lang-vinsælasta varan.

nánast allar verslanir, sem á annað borð selja kjöt, eru að selja hrefnukjöt yfir sumartímann og yfir veturinn eru stærstu verslan-irnar að selja þetta. um 65% til 70% kjötsins fara í verslanir en hitt á veitingahús.“

Eru það Íslendingar eða útlend-ingar, sem borða kjötið á veitinga-stöðunum?

„Kjötið er komið á mjög marga veitingastaði og við teljum að þetta skiptist nokkuð jafnt milli Íslendinga og erlendra ferðamanna. annars finnum við vel fyrir aukningu á sölu til veitingastaða þegar ferðamenn-irnir byrja að streyma til landsins yfir sumarið. við teljum að útlend-ingarnir séu meira að borða hval-kjötið yfir sumartímann, en landinn meira á veturna. Þeir tveir veitinga-staðir sem selja mest eru sægreifinn og Þrír frakkar. mjög hátt hlutfall af gestum þeirra eru útlendingar. Þá er veitingastaðurinn Hereford við laugaveg með skilti úti á gangstétt þar sem hvalamatseðill er auglýstur

á ensku. Það skilar þeim töluverðum viðskiptum. útlendingarnar eru því fremur að njóta þessa góða matar en að kvarta undan því að hvalkjöt sé á matseðlinum,“ segir gunnar.

yfir hálf milljón máltíða úr hvalkjöti„sem dæmi um það má nefna að úlfar á Þremur frökkum er búinn að selja eitthvað yfir hálfa millj-ón skammta af hvalkjöti og aðeins fengið tvær kvartanir yfir því að verið sé að bjóða upp á kjötið, ekki út af kjötinu sjálfu. Ég veit þó um dæmi þess að hótel á suðurnesjum hafi tekið hvalkjöt af matseðlinum hjá sér vegna kröfu þýskrar ferða-skrifstofu, sem kemur þangað með mikinn fjölda gesta yfir sumarið, 50 hópa, sem vilja ekki hafa hvalkjöt á matseðli. Það er mjög skiljanleg af-staða að verða við slíkri kröfu, en annars verða menn að standa í lapp-irnar og láta áróður eða kvartanir fárra manna ekki hafa áhrif á sig. Það má líka benda á að nokkur hót-el icelandair bjóða upp á hvalkjöt, þrátt fyrir að fljúga með alla þessa útlendinga hingað. Yfir sumartím-ann er hvalkjöt á matseðli yfir 100 veitingastaða á landinu. menn sjá að kjötið er ekki bara hollur og góð-ur matur, heldur líka mun ódýrari en nautalundir og lambakjöt. Því geta staðirnir bara haft ágætt út úr því að selja kjötið,“ segir gunnar Berg-mann.

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

» í fyrra veiddist 61 hrefna. kjötið fór nánast allt á

innanlandsmarkað. Hér er hrefna skotin á faxaflóa af

bátnum Hrafnreyði.

Í ár áætlum við að taka um 80 dýr. markaðurinn hér heima er alltaf að stækka. við höfum fengið frið við að þróa afurðir okkar og erum farnir að bjóða upp á þrjár tegundir af maríneruðu hrefnukjöti og ferskt, frosið, reykt og grafið.

Page 11: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Persónuleg og traust þjónusta um allan heim.Hjá Samskipum fer saman sóknarhugur nýrrar kynslóðar og áratuga reynsla. Við bjóðum upp á heildarlausnir á sviði flutninga og leggjum stolt okkar í að uppfylla væntingar kröfuharðra viðskiptavina. Samhentur hópur starfsliðs tryggir skjóta og örugga þjónustu. Þinn farmur er í öruggum höndum.

www.samskip.isSaman náum við árangri

Page 12: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Hér verða menn að veraEvrópska sjávarútvegssýningin í Brussel sú stærsta á þessu sviði í heiminum:

Þrír tugir íslenskra fyrirtækja taka nú þátt í sjávarútvegssýningunni í Brussel. Þetta er stærsta sýning á þessu sviði í veröld-inni, sem um 25.000 gestir sækja á hverju ári. Íslandsstofa skipuleggur þátttöku ríf-lega 20 fyrirtækja á svokölluðum þjóðar-básum og hefur gert svo frá upphafi sýn-ingarinnar eða í 20 ár. auk þess er tæpur tugur íslenskra fyrirtækja á sýningunni á eigin vegum. sýningarnar eru í raun tvær, european seafood exposition, sem er helg-uð kynningu og sölu á sjávarafurðum, og svo seafood Processing europe sem er ætl-uð fyrirtækjum sem framleiða vinnslutæki eða bjóða upp á þjónustu tengda útflutningi á sjávarafurðum.

„við byrjum að vinna að skipulagningu vegna sýningarinnar um ár fram í tímann. Fyrirtæki þurfa að vera búin að skrá sig til þátttöku í fyrstu vikunni í júlí. við þurf-um svo að vera búin að ganga frá pöntun á svæði í lok þess mánaðar. við auglýsum sýn-inguna með góðum fyrirvara svo fyrirtækin hafi tíma til að meta hvort þau vilji vera með og staðfesta það. Hins vegar er það raunin að þetta eru nánast sömu fyrirtækin ár eft-ir ár. Það koma kannski eitt til tvö ný fyrir-tæki inn á hverju ári,“ segja þau Berglind steindórsdóttir, sýningarstjóri og aðalsteinn H. sverrisson, verkefnisstjóri, en þau sjá um skipulagningu á þátttöku Íslendinga undir merkjum Íslands á sýningunni í Brussel.

Hafa verið með frá upphafi„við erum búin að vera þarna frá upphafi og Ísland er orðið mjög virt á þessari sýningu. við höfum stækkað okkur smávegis ár frá ári að mestu leyti, ef frá er talið árið 2009. mik-il eftirspurn er eftir plássi í bestu sýningar-höllunum og því óhægt um vik að stækka. Þess vegna þurftu þrjú til fjögur fyrirtæki frá að hverfa vegna plássleysis hjá okkur, því miður. Það góða í því er þó að þarna er um ný fyrirtæki að ræða, sem gjarnan vilja komast inn. við getum í raun lítið gert fyrir þá, sem ekki ná inn nema vera með kynningarefni frá þeim. inni á bás Íslandsstofu erum við með aðstöðu fyrir fyrirtæki, sem eru að byrja, en nú er staðan sú að það pláss er líka upptekið hjá okkur.

við skipuleggjum í raun alla þátttöku fyrirtækjanna, sem þarna eru innan vé-banda okkar, alveg frá því að taka frá gólf-svæði, uppbyggingu á bás, flutninga og öll samskipti við sýningarstjórn og annað. Þeg-ar fyrirtækin koma svo á staðinn er búið að setja upp básinn fyrir þá og varningur þeirra kominn þangað líka. Þau sjá svo um að stilla upp og skreyta básinn og gera klárt fyrir sýninguna. Fyrir vikið geta fyrirtækin betur sinnt sínu markaðsstarfi.

560 fermetra sýningarplássFyrirkomulagið er þannig að Íslandsstofa hef-ur ákveðið gólfpláss eða svokallaða eyju, þar sem hún er sjálf með eigin bás og fyrirtækin raðast svo í kringum hann. Þessar eyjar eru tvær, hvor á sínu sýningarsvæði, samtals um 560 fermetrar. Þessu fylgir mikill kostnaður en með því að vera saman á þjóðarbás get-um við samnýtt ýmislegt. við fáum til dæm-is lægri leigu vegna þess hve stórt svæði við erum að taka, við semjum saman við aðila, sem byggir upp básinn og náum þannig hag-stæðara verði en ella. einnig samnýtum við flutninga, en þar liggur mikill kostnaður. Fyrirtækin bera þennan kostnað hvert fyrir sig. Þau fá enga styrki vegna þátttökunnar eins og áður var, þegar nýsköpunarsjóður og iðnlánasjóður styrktu þátttöku fyrirtækja á sýningum af þessu tagi.

sýningin stendur í þrjá daga. sá fyrsti er mest spennandi, annar er ágætur en þriðja daginn er þetta farið að róast.

Forsetinn okkar, ólafur ragnar grímsson, kemur á sýninguna fyrsta daginn og verð-ur þar allan daginn. Hann mun heimsækja báða þjóðarbásana okkar og verður á há-

degisverðarfundi með iceland responsible Fisheries. Þar eru upprunamerking og vott-un á íslenskum fiski kynnt og hann tekur þar til máls. Í samvinnu við sendiráð Íslands í Brussel verðum við með móttöku á bás Ís-landsstofu seinnipart dagsins að viðstödd-um forsetanum og þar gefst íslensku fyrir-tækjunum kostur á að bjóða viðskiptavinum sínum að koma og fá veitingar. við verðum þarna með íslenskan bjór og eitthvað af ís-lenskum fiski.

Félag atvinnurekenda sér svo um leigu-

flug vegna sýningarinnar. Þá fer stútfull vél af fólki utan eldsnemma á mánudegi og heim aftur á fimmtudagskvöldi, bæði með sýnendur og þá sem eru að fara utan til að skoða sýninguna. Þannig ná smærri fyrir-tæki, sem eru fljót að setja upp básana sína, að taka þessa vél. Þau hafa þá mánudaginn til að stilla upp, en sýningin hefst daginn eft-ir. Þeim gefst ennfremur tími til að taka sam-an og fara heim aftur með vélinni á fimmtu-deginum.

eins og stór fundarstaðursýningin er að miklu leyti eins og einn stór fundarstaður. Hérna áður fyrr var meira um beina sölu á sýningum. Þá var verið að selja

vélar og tæki eða gera samninga um sölu sjávarafurða. Það er ekki mikið um þetta nú. Fólk er meira að hittast og spjalla og viðhalda tengslum. sýnendur skrá svo hjá sér áhuga-verða möguleika, sem unnið er úr þegar heim er komið. menn eru að sýna sig og sjá aðra. reyndar má segja að markaðssetning á ís-lenskri eldisbleikju þarna sé nýjung. Íslend-ingar eru stærstu framleiðendur á eldis-bleikju í heiminum og eru að sækja inn á nýja markaði. annars er þetta bara öll flóran sem Íslendingar hafa upp á að bjóða.

Fyrirtæki sem eru í útflutningi og sölu sjávarafurða og tækja til að vinna þær, verða eiginlega að vera á sýningunni til að gera vart við sig. Íslensku fyrirtækin gætu vafalítið selt meira af fiski, hefðu þau meira af honum. Það vantar fisk á helstu markaði ytra. við erum líka að gera mjög góða hluti í hönnun og sölu á vélum og búnaði fyrir fisk-vinnsluna og í hugbúnaði fyrir vinnsluna. Þetta lítur því bara vel út. Þetta er stærsta sýning sinnar tegundar í heiminum og hér verða menn að vera,“ segja þau Berglind og aðalsteinn.

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

» frá íslenska sýningarbásnum á sýningunni í fyrra, en hann fékk töluverða athygli sýningargesta.

» Berglind Steindórsdóttir, sýningarstjóri.

» aðalsteinn H. Sverrisson, verkefnisstjóri.

Forsetinn okkar, ólafur ragnar grímsson, kemur á sýninguna fyrsta daginn og verður þar allan daginn. Hann mun heimsækja báða þjóðarbásana okkar og verður á hádegisverðarfundi með iceland responsible Fisheries.

12 aprÍl 2012 útvegsblaðið

Page 13: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

útvegsblaðið aprÍl 2012 13

„Brusselsýningin er sú mikilvæg-asta fyrir okkur. Hún tekur í raun og veru yfir öll helstu markaðs-svæði fyrir fiskafurðir í heiminum. Það skilar því miklu að taka þátt í þessari sýningu. Það gerum við á hverju ári og höfum gert í 15 til 20 ár, eða nánast frá upphafi. Fyrst sýndum við með Félagi íslenskra stórkaupmanna á sýningarbás, en höfum verið með okkar eigin bás í þó nokkur ár,“ segir Birgir Bjarna-son, framkvæmdastjóri Íslensku umboðssölunnar.

Birgir segir að aðrar sjávarút-vegssýningar snúist meira um þau lönd, sem þær eru haldnar í og ná-grenni þeirra. Þannig beri sýningin í Boston mikinn keim af því sem er að gerast í Bandaríkjunum og Kanada, sýningarnar í vigo og Barcelona séu sniðnar að spænskum mörkuðum og nágrenni þeirra og loks sé sýn-ingin í Kína mest fyrir asíu, ef svo megi að orði komast. Þar sé því um staðbundnar sýningar og gildi þeirra markist nokkuð af því.

„við höfum góða reynslu af þátt-

töku í svona sýningum og Brussel skilar okkur þar mestu. við erum að kynna flestar okkar afurðir og hitt-um þarna viðskiptavini okkar frá öllum heimshornum til að viðhalda viðskiptasamböndum. Þarna sér

maður þróunina á helstu mörkuðum heims, bæði hvað varðar verð, afurð-ir og breytingar og þróun á neyslu-mynstri. við erum því að fá mjög mikið af upplýsingum á sýningunni sem nýtast okkur vel til að vinna úr

eftir að heim er komið,“ segir Birgir. afurðirnar sem Íslenska umboðssal-an flytur utan eru aðallega úr botn-fiski, frosnar, saltaðar og þurrkaðar. Helstu markaðir fyrirtækisins eru löndin við miðjarðarhafið, spánn,

Ítalía og grikkland, og Portúgal fyr-ir saltfiskinn. ameríka og Bretland spila líka stórt hlutverk sem gamal-grónir markaðir fyrir íslenskan fisk. Þurrkaður fiskur, skreið, fer síðan til nígeríu.

mikilvægasta sýningin fyrir sjávarútveg okkar

íslenska umboðssalan hf. hefur tekið þátt í Evrópsku sjávarútvegssýningunni í Brussel nánast frá upphafi:

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

» Starfsfólk íslensku umboðssölunnar skálar fyrir góðum árangri á sýningunni í Brussel í fyrra.

Page 14: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

skaginn mun kynna nýjung með sjálfvirka frystingu bæði fyrir skip sem vinna uppsjávarfisk og hefð-bundna frystitogara á sýningunni í Brussel. nýjungin byggist á sam-spili sjálfvirkra plötufrysta, sér-hönnuðum frystipönnum úr plasti og vinnslu/pökkunarbúnaði sem myndar heildstæða vinnslurás. Fyrirmyndin er núverandi tækni sem beitt er í öllum uppsjávar-vinnslunum hérlendis og hefur sannað ágæti sitt enda eru íslensku uppsjávarvinnslurnar nánast sjálf-virkar. Hannaðar hafa verið tvær nýjar frystipönnur úr plasti. Önn-ur frystipannan er fyrir núverandi öskjur og ætluð fyrir millilagningu á flökum og pökkun á hausskornum karfa. Hin frystipannan er dýpri og passar mjög vel fyrir allan uppsjáv-arfisk og er afurðinni þá pakkað í poka. Báðar frystipönnurnar passa

síðan mjög vel fyrir sjálfvirka plötu-frystinn og því auðvelt að skipta á milli bolfiskvinnslu og uppsjávar-vinnslu.

sjálfvirkar pokavélar í skipin „svo er það stefnan að koma sjálf-virkum pokavélum út á sjó, sam-svarandi og nú eru komnar í öll uppsjávarfrystihúsin. við vor-um reyndar með vísi að svona vinnslukerfi um borð í fjölveiði-skipinu guðrúnu gísladótt-ur, sem fórst við noreg árið 2002, en nú erum við komnir svo miklu lengra. stefnan er að yfirfæra tæknina sem við höfum byggt upp í uppsjáv-arvinnslunum á landi yfir í skip-in,“ segir ingólfur árnason, fram-kvæmdastjóri skagans.

annars kynnir skaginn vörulín-una alla, sem segja má að sé verk-smiðja fyrir uppsjávarfisk, svona eiginlega ein með öllu. sjálfvirku plötufrystarnir frá fyrirtækinu eru

kynntir í stærðum eins og föt, allt frá „small“ upp í „3Xl“, þá er fyrirtækið með lausfrysta, krapa-kerfi og þvottakerfi, sem sniðin eru að þörfum viðskiptavinarins.

stór verkefni úti í heimiskaginn hefur á undanförnum

mánuðum gert samninga um mjög stór verkefni úti í heimi. Hið stærsta er ný verksmiðja fyrir uppsjávar-fisk fyrir færeyska fyrirtækið varð-in Pelagic, en verksmiðjan er á tvö-royri á suðurey. ingólfur segir að hún sé með svipuðum hætti og upp-sjávarverksmiðjurnar hérna heima,

en þó afkastameiri og með nokkrum nýjungum.

„Þessar verksmiðjur byggjast á mörgum þáttum sem hver um sig hefur verið þróað-

ur og hannaður og síðan hafa þeir verið samtvinnaðir

í eina öfluga heild. verksmiðjurn-ar eru nánast alsjálfvirkar og kem-ur mannshöndin í raun hvergi nærri við vinnsluna. Fiskurinn fer einfald-lega inn beint úr skipunum og kem-ur út pakkaður á bretti. Þarna tengj-ast saman flokkun, forkæling með krapakerfi, sjálfvirk pökkun í poka,

sjálfvirkir plötufrystar sem afkasta 800 – 1000 tonnum á sólarhring og síðan er afurðinni raðað sjálfvirkt á bretti. Forkælingin nær hitastiginu í fiskinum niður og styrkir fiskinn í vinnsluferlinu. Hún flýtir svo fyrir frystingunni um 10%.“

krapa- og þvotta- kerfin fara víðaundanfarin ár hefur um helmingur tekna skagans komið vegna fram-leiðslu til útflutnings, en nú verður hlutfallið mun hærra vegna stórra verkefna erlendis og vegur verk-smiðjan í Færeyjum þar þyngst. Fyr-irtækið er ennfremur með verkefni í Kína í samvinnu við marel, meðal annars fyrir risafyrirtækið Pacific andes. Það hefur selt lausfrysta út um allan heim, m.a. til Kanada og Póllands. „Krapakerfin og þvotta-kerfin okkar fara líka viða og núna eru til dæmis í framleiðslu tæki sem fara til suður-afríku, Bandaríkjanna og Kína,“ segir ingólfur.

Tæknin úr landvinnslunni færð út á sjó

Hafa fengið einkaleyfi á framleiðslunni

Skaginn sækir á úti í heimi og í ár verða tekjur vegna útflutnings meira en helmingur veltunnar:

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

svo er það stefnan að koma sjálfvirkum pokavélum út á sjó, samsvar-andi og nú eru komnar í öll uppsjávarfrystihúsin. við vorum reyndar með vísi að svona vinnslukerfi um borð í fjölveiðiskipinu guðrúnu gísladóttur, sem fórst við noreg árið 2002, en nú erum við komnir svo miklu lengra.

» frystiskáparnir frá Skaganum fást í mörgum stærðum.

fyrirtækið 3X technology á ísafirði kynnir sérstaka tanka, sem kallast roteX til blæð-ingar á fiski hvort sem er í fiskeldi eða úti á sjó, bæði í stórum fiskiskipum og smábát-um. einnig eru þeir notaðir til uppþýðingar á ýmsum fiskafurðum og til að kæla fisk. fyrirtækið fékk síðastliðið haust einka-leyfi á aðferðinni sem notuð er í þessum tönkum en hún byggist á hliðardælingu sem jafnar og stillir þrýsting í tönkunum. Þessi aðferð tryggir að allur fiskur fær sömu réttu meðhöndlunina og að gæðin verða ávallt sem best.

kristján karl aðalsteinsson, sölustjóri 3X technology, segir að fyrirtækið hafi þegar selt alls ríflega 50 rotex-tanka, sem notaðir eru í ýmsum tilgangi, fyrir blæð-ingu og kælingu á laxi, fyrir uppþýðingu

á nánast hvaða frystum afurðum sem til eru og í þann mikilvæga þátt í meðhöndl-un afla, blæðingu og kælingu um borð í fiskiskipum, bæði stórum og smáum. „nú er t.d. verið að klára smíði í roteX tanka um borð í togara Hb granda, Örfisey og Þerney og við erum að þróa og prufa tanka um borð í smábáta undir 15 metrum til að tryggja bætta aflameðferð um borð í þeim. einn slíkur roteX smábátatankur verður til sýnis á bás okkar í brussel. roteX tank-arnir geta því verið af öllum stærðum og sá stærsti sem við höfum hannað er rúmlega 100 rúmmetrar að stærð en hann á að nota í fiskeldi. við höfum selt roteX tankana til landa allt frá suður-afríku í suðri og til nyrstu byggða noregs. nýlega voru settir tveir roteX tankar um borð í plastbátinn

sögu k, sem eru í eigu eskøy í noregi en fyrir var bátur sömu útgerðar, ásta b með svipaða vinnslulínu um borð. kg fiskverkun á rifi hefur notað „roteX on board“ tankana frá okkur í línuskipinu tjaldi í nokkrar vertíðir með mjög góðum ár-angri. við erum svo í verkefni með marel og skaganum fyrir pacific andes í kína þar sem ro-tex tankarnir verða notaðir í uppþýðingu og í tælandi er roteX tankur frá okkur að fara í uppþýðingu á sardínu. við erum þar einnig í þróunarverkefni um maríneringu á hlýsjávarrækju. Það má því segja að þró-unarvinnan hjá okkur sé vaxandi erlend-

is eins og málin standa þessi misserin.

Það er hins vegar alveg óhætt að segja að roteX-tank-

arnir okkar hafi fjölþætt nota-gildi og að við efumst ekki um að

þeir eru mikið þarfaþing fyrir ís-lenska skipa- og bátaflotann.“

sýningin í brussel í ár verður sú 14. hjá fyrirtækinu. „Þetta er

sú sýning sem skilar sér best. Hún er vettvangur þar sem allir eru og þátttak-endur og gestir eru frá öllum heimsálfum. „ef þú ert ekki þar ertu ekki til“ segja sum-ir. Þátttaka í þessari sýningu hefur skilað okkur góðum árangri og því höldum við áfram að sýna okkar nýjungar í brussel,“ segir kristján karl aðalsteinsson.

14 aprÍl 2012 útvegsblaðið

Page 15: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Lausniner hjá okkur

Framsæknar tækja- og hugbúnaðarlausnir okkar byggja á hugviti, verkþekkingu og nánu samstar� við �skiðnaðinn í meira en aldar�órðung.

Okkar markmið er ávallt að tryggja hámarksafköst, framleiðni og arðsemi viðskiptavina okkar.

www.marel.com/SPE2012

Frá veiðum til neytanda

Velkomin á bás okkar á sjávarútvegssýningunni í Brussel 2012Bás nr. 6227, sal 4. Kynntu þér helstu nýjungar okkar í vinnslutækni fyrir �skiðnað.

útvegsblaðið aprÍl 2012 15

vesturlandsblaðið Skessuhorn greindi fyrr í vikunni frá því

að breski leik-arinn robson green væri staddur ásamt tökuliði sínu í grundarfirði við upptökur á þætti í þátta-röðinni Extreme Fishing with robson green. að sögn skessuhorns snerist þátt-urinn um veiðikeppni á milli robsons og formanns sjó-stangveiðifélags reykjavíkur, Elínar Snorradóttur. Keppn-in var fólgin í því að veiða einn steinbít og einn þorsk á sjóstöng og sá keppandi sem yrði fyrri til sigraði. Þátturinn verður sýndur á sjónvarps-stöðinni Discovery á næstu misserum.

laxeldisfyrirtækið Fjarðalax ehf., sem stundar laxeldi á sunn-

anverðum vestfjörðum, mun í sumar setja þriðju kynslóð laxaseiða sinna í sjó í Patreks-firði. um er að ræða stærstu kynslóð fyrirtækisins hingað til, 800-900.000 seiði, að því er segir í fréttatilkynn-ingu frá fyrirtækinu. Þar segir jafnframt: „nú er unnið að slátrun fyrstu kynslóðar fyrirtækisins en hún hefur verið alin í tálknafirði frá miðju ári 2010. Önnur kyn-slóðin dafnar mjög vel í arn-arfirði og verður hafist handa við slátrun úr henni seinna á þessu ári.“

Örvar arnarson, fjár-málastjóri ísfélags vestmannaeyja, vann

nýverið út-reikninga fyrir Fréttir í vest-mannaeyjum þar sem gefnar eru vísbend-ingar um að veiðigjald hins nýja frumvarps til laga um veiðigjöld sé ofmetið um tugi milljarða. útreikningunum er ætlað að leggja gróft mat á áhrif athugasemda í 12 liðum sem viðmælendur blaðsins höfðu nefnt sem áhrifavalda á veiðigjaldið. tekið var sér-staklega fram að útreikn-ingunum bæri að taka með fyrirvara þar sem þeir eru eingöngu hugsaðir til að hafa viðmið um áhrif athugasemd-anna 12. utvegsbladid.is

» þ J ó n u S t u M i ð i l l S J Á v a r Ú t v E g S i n S

Page 16: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Enn er samdráttur í þorski og ýsuFiskveiðar Færeyinga jukust töluvert á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs:

veiðar á bolfiski við Færeyjar fyrstu tvo mánuði ársins jukust um nærri 50% miðað við sömu mánuði í fyrra. alls veiddust 12.213 tonn í ár á móti 8.310 tonnum í fyrra. Fiskaflinn alls jókst einnig en heldur minna, eða um 34%. Heildaraflinn þetta tímabil nú varð 13.800 tonn á móti 10.271 tonni árið áður. Þetta kem-ur fram á vef Hagstofu Færeyja, en þar er bent á að samanburður milli áranna 2011 og 2012 sé erfiður þar sem verkfall á fiskiskipum á þess-um tíma í fyrra hafi dregið verulega

úr sókn og þá hafi tvílembingar hjá Faroe seafood ekki haldið til veiða fyrr en undir lok febrúar.

Þegar litið er nánar á tölur yfir

veiðarnar nú, kemur í ljós að aukn-ingin í bolfiskaflanum er fyrst og fremst í ufsa og öðrum tegundum en þorski og ýsu. Þar hefur aflinn dregist saman. aukning í ufsaafla er 82% og annar bolfiskafli tvö-faldaðist. afli af þorski og ýsu dróst hins vegar saman um 17 og 16%. Þorskaflinn nú var aðeins 1.921 tonn og hefur ekki verið minni áður ef undan er skilið árið 2009. Þá var þorskaflinn aðeins 1.885 tonn. Ýsuaflinn nú var mjög lítill, 660 tonn og hefur líklega aldrei verið jafn lítill.

Flatfiskaflinn jókst einnig veru-lega eða um 69%. Hann fór úr 586 tonnum í 991og þar eru grálúða og skötuselur uppistaðan. sé allur fisk-aflinn tekinn fór hann úr 10.271 tonni, fyrstu tvo mánuði síðasta árs, í 13.800 á sama tíma í ár og jókst um 34%.

aukning verðmæta fiskaflans alls á þessu tímabili er 30% og minni aukning í verðmætum en magnið bendir til að samsetning tegunda sé verri hvað það snertir nú en í fyrra. Þá getur verð á einstökum tegund-um hafa lækkað. Þegar ýsan er til dæmis skoðuð sést að hún dróst saman um 16% í magni en 24% í verðmætum.

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012

ÞOrsKur 3.249 2.680 2.468 1.885 2.376 2.325 1.921

Ýsa 4.626 3.236 2.097 1.134 1.132 784 660

uFsi 15.510 13.524 9.375 11.658 10.214 4.254 7.734

annað* 1.962 1.407 1.247 1.507 1.928 948 1.898

bolfiskafli við færeyjar fyrstu tvo mánuði ársins

*Keila, langa, lýsa, karfi, steinbítur, blálanga og fleira

kolmunninn gengur norður eftir

Bráðabirgðaniðurstöður úr rannsókn-um færeysku hafrannsóknastofn-unarinnar sýna að kolmunninn var genginn inn í sunnanverða lögsögu eyjanna í byrjun apríl. það er nokkuð hefðbundið göngumynstur og það sama og í fyrra. það var rannsókna-skipið Magnus Heinason, sem var við rannsóknirnar en mælingar frá honum einum duga ekki til að meta magn kol-munnans á svæðinu. það verður gert síðar í mánuðinum, þegar niðurstöð-ur frá fleiri skipum liggja fyrir. í ljós kom að töluvert af smáum ókynþroska kolmunna af árgöngunum frá 2009 til 2011 var að sjá innan lögsögunnar suður við Wyville-thomson hrygginn. þessir árgangar hafa komið í trollið hjá rannsóknaskipinu og er vonast til að þeir nái sér vel á strik. Stærri og kyn-þroska kolmunni hélt sig nokkru sunn-ar beggja vegna landhelgislínunnar og innan lögsögu ESB. Hann gengur nú til norðurs eftir hrygningu. rannsókn Færeyingana er í samvinnu við noreg, Evrópusambandið (írland og Holland) og rússland og heyrir undir alþjóða-hafrannsóknaráðið. Skip frá hinum þjóðunum héldu sig sunnar við rann-sóknir sínar. þess má geta að íslensk skip hafa þegar hafið veiðar á kol-munna innan færeysku lögsögunnar.

Hafrannsóknastofnunin í Fær-eyjum kannar nú hvort sam-hengi sé á milli fjölda smáfisks sem kemur í humargildrur og nýliðunar í þorskstofninum. Hugmyndin er að sjá hvort smá-fiskurinn í gild-runum geti gefið vísbendingar um hvort vænta megi góðra eða slakra aflabragða.

Hafstovan, eins og stofnunin heitir á fær-eysku, hefur í mörg ár verið í samstarfi við bátinn Joan, sem stundar veiðar á humri í gildrur við kaldbaksnes. Fjöldi smáfisks í gildrunum hefur verið skráður frá 2006 og eru þeir aldurgreindir, hvort þeir eru eins eða tveggja

ára til dæmis. Stærð þorskstofnsins við Færeyjar hefur verið met-

inn frá árinu 1961. Erfitt hefur verið að meta í

hve miklum mæli ný-liðun skilar sér inn í stofninn, hve mikið af smáfiskinum nær

að komast á legg. því er reynt að bera saman

fjölda smáfiska í humar-gildrunum og fjölda smáfisks

í stofnstærðarmatinu. í ljós kom að þokkalegt samræmi er þarna á milli á

árunum 2006 til 2010. Samsvörunin er hins vegar lítil fyrir árið 2011. Mat á nýliðun 2011 byggir á takmörkuðum grunni og sé eitthvað að marka fjölda smáfiska í humar-gildrunum, er meira af tveggja ára þorski að koma inn í stofninn, en stofnstærðarmatið gefur til kynna.

alls veiddust 12.213 tonn í ár á móti 8.310 tonnum í fyrra. Fiskaflinn alls jókst einnig en heldur minna, eða um 34%. Heildaraflinn þetta tímabil nú varð 13.800 tonn á móti 10.271 tonni árið áður.

smáfiskur í humargildrum, vísbending um nýliðun?

nikolaJ Bock/norDEn.org

16 aprÍl 2012 útvegsblaðið

Page 17: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Þín ánægja er okkar markmið

Þinn rekstur verður hagkvæmari með okkurVið spörum fyrirtækinu tíma og peninga. Þetta vita stjórnendur 7 stærstu sveitarfélaga landsins sem öll eru í viðskiptum hjá Vodafone.

Við einföldum hlutina með hagkvæmum lausnum fyrir þitt fyrirtæki.

Hafðu samband við Fyrirtækjaþjónustu Vodafone í síma 599 9500 eða á .

Page 18: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

18 aprÍl 2012 útvegsblaðið

VIÐ ERUM GÓÐIR

Í SKILVINDUM

Dalshrauni 5 Hafnarfirði Sími 585 1070 Fax 585 [email protected] www.vov.is

Gra

fika

11

lÖnD meðalverð

Kr. á KÍló

magn Í

tOnnum

verðmæti Í

milljÖrð. Kr.

ÍslanD 1061,3 27.003 28,7

KÍna 601,0 16.947 10,2

DanmÖrK 721,6 11.988 8,6

ÞÝsKalanD 773,9 9.789 7,6

rússlanD 697,5 9.710 6,8

nOregur 689,4 9.679 6,7

FæreYjar 731,6 8.546 6,3

PóllanD 810,0 3.038 2,5

grænlanD 530,6 2.008 1,0

HOllanD 536,7 1.892 1,0

allur innFlutningur 783,9 105.746 83,1

innflutningur á Þorski til bretlands 2011 skipt á lÖnd

Ísland er stærsti innflytjandi á þorski og þorskafurðum til Bret-lands, hvort sem mælt er í verð-mætum eða magni. alls fluttu Bretar inn ríflega 105.000 tonn af þorski á síðasta ári. Hlutur Íslands á þessum mikilvæga markaði er um fjórðungur af magninu og 35% af verðmætum. af þeim þjóðum sem flytja þorsk til Bretlands fá íslensk-ir útflytjendur langhæsta verðið, eða að meðaltali langleiðina í 1.100 krónur á hvert kíló. til samanburð-ar fá norðmenn tæpar 700 krón-ur fyrir hvert kíló af sínum þorski og Færeyingar rúmar 700 krónur. skýringin á þessum mismun liggur að mestu leyti í hærra vinnslustigi afurða héðan en annars fá Íslend-ingar að jafnaði hærra verð fyr-ir sambærilegar afurðir en keppi-nautarnir.

algjörir yfirburðirsé litið á einstakar þorskafurðir kemur þetta enn betur í ljós. á síð-asta ári fluttu Bretar inn 66.467 tonn af frystum þorskflökum að verðmæti 52 milljarðar íslenskra króna. Hlutur Íslands í þessum inn-flutningi var 23% í magni og 27% í verðmætum. meðalverð á kíló af íslensku flökunum var rúmar 900 krónur, norðmenn fá 760 krónur og Færeyingar rétt rúmar 800 krónur á kílóið. Yfirburðir Íslands í ferskum og kældum þorskflökum eru svo al-gjörir. Bretar fluttu inn 7.696 tonn

af þessum flökum á síðasta ári, þar af 6.923 tonn frá Íslandi. verð-mæti innflutningsins voru í heild-ina 13,5 milljarðar króna og þar af voru verðmæti flakanna frá Íslandi 12,4 milljarðar króna. Hlutföllin eru 90% í magni og 91% í verðmætum. meðalverð okkar á flökunum er 1.787 krónur á kíló. Helstu keppi-nautar okkar á þessu sviði eru sví-ar sem þó eru aðeins með 334 tonn á síðasta ári og Færeyingar með 215 tonn.

kína og noregur keppi- nautar okkarÍ ýsunni er Ísland ennfremur á verðmætatoppnum með 7,8 millj-arða króna, norðmenn eru með 7,6 og Kínverjar með 5,4 milljarða. norðmenn eru með mesta magn-ið en mun lægra meðalverð en við og munar þar nærri 200 krónum á kílóið. Í frystum ýsuflökum tróna

Kínverjar á toppnum með 9.176 tonn að verðmæti 5,3 milljarðar, en Ísland fylgir þar á eftir með 4,8 milljarða og síðan norðmenn með 4,3. athyglivert er að magnið bak-við þessi verðmæti er langminnst hjá okkur, aðeins 5.524 tonn enda er meðalverð á íslensku flökunum 872 krónur, 679 á þeim norsku og aðeins 581 króna á þeim kínversku. lágt verð á kínversku flökunum skýrist af því að þar er um tvífryst-ar afurðir að ræða. að við skulum fá nærri 200 krónum meira fyrir hvert flakakíló en norðmenn ligg-ur líklega annars vegar í gæðum og hins vegar betri sölusamningum.

Í ferskum ýsuflökum bera ís-lenskir útflytjendur höfuð og herðar yfir keppinautana. Þeir eru með ríflega þriðjung heildarmagns-ins eða 5.746 tonn af 15.292 tonn-um, en næstir koma Færeyingar með 2.787 tonn. enn erum við með

fá að jafnaði hæsta verðiðÍslendingar langstærstir á markaðnum fyrir þorskafurðir á Bretlandseyjum með um 25% hlutdeild:

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

Page 19: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

á síðasta ári fluttu Bretar inn 66.467 tonn af frystum þorskflökum að verðmæti 52 milljarðar íslenskra króna. Hlutur Íslands í þessum innflutn-ingi var 23% í magni og 27% í verðmætum.

útvegsblaðið aprÍl 2012 19

lÖnD meðalverð

Kr. á KÍló

magn Í

tOnnum

verðmæti Í

milljÖrð. Kr.

ÍslanD 884,4 63.243 55,6

tælanD 777,9 52.119 40,6

KÍna 548,7 67.229 36,9

ÞÝsKalanD 661,3 51.634 34,2

DanmÖrK 645,2 51.974 33,5

FæreYjar 715,6 43.679 31,3

nOregur 601,0 33.440 20,0

BanDarÍKin 866,3 21.250 18,4

HOllanD 699,5 25.290 17,7

KanaDa 1.185,90 14.451 17,1

allur innFlutningur 711,5 717.825 502,5

lÖnD meðalverð

Kr. á KÍló

magn Í

tOnnum

verðmæti Í

milljÖrð. Kr.

ÍslanD 906,5 15.531 14,1

KÍna 621,0 10.643 6,6

ÞÝsKalanD 862,3 7.428 6,4

rússlanD 765,8 7.647 5,8

DanmÖrK 747,7 6.816 5,0

nOregur 759,8 6.626 5,0

FæreYjar 802,0 6.163 4,9

PóllanD 908,5 2.035 1,8

grænlanD 530,6 2.008 1,0

KanaDa 888,4 699 0,3

allur innFlutningur 783,9 66.467 52,0

lÖnD meðalverð

Kr. á KÍló

magn Í

tOnnum

verðmæti Í

milljÖrð. Kr.

ÍslanD 679,3 11.502 7,8

nOregur 492,4 15.338 7,6

KÍna 570,8 9.508 5,4

rússlanD 536,7 6.043 3,3

DanmÖrK 458,3 5.049 2,3

FæreYjar 466,3 3.159 1,5

ÞÝsKalanD 621,1 2.282 1,4

POrtúgal 691,4 950 0,7

PóllanD 810,0 550 0,4

FraKKlanD 333,7 1.156 0,4

allur innFlutningur 538,6 59.092 32,0

lÖnD meðalverð

Kr. á KÍló

magn Í

tOnnum

verðmæti Í

milljÖrð. Kr.

tælanD 1.252,3 19.637 24,6

KanaDa 1.239,7 9.409 10,7

BanglaDesH 1.398,9 7.557 10,6

inDlanD 1.183,9 8.445 9,9

vÍetnam 1.091,4 7.726 8,4

DanmÖrK 910,5 8.163 7,4

inDónesÍa 1.139,7 5.917 6,8

ÍslanD 1.099,5 6.056 6,7

nOregur 1.167,8 2.741 3,2

KÍna 902,5 3.533 3,2

allur innFlutningur 1.169,8 90.326 105,7

innflutningur á sjávarafurðum til bretlands 2011 skipt á lÖnd

innflutningur á frystum Þorsk- flÖkum til bretlands 2011 skipt á lÖnd

innflutningur á ýsu til bretlands 2011 skipt á lÖnd

innflutningur á rækju til bretlands 2011 skipt á lÖnd

n viðskipti með sjávarafurðir á breska markaðnum nema gífurlegum fjárhæðum árlega. 80% heimila hafa sjávarafurðir í matinn að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Samtals nam velta vegna sölu sjávarafurða á árinu 2010 5,8 milljörðum punda, 1.166 milljörðum íslenskra króna á gengi um þessar mundir.

n Árið 2010 taldi breski fiskiskipa-flotinn 6.477 fleytur, flestar styttri en 10 metra að lengd. Sjómenn voru 12.700, 6.889 á Englandi og Wales, 5.166 á Skotlandi og 648 á norður-ír-landi.

n Árið 2010 lönduðu bresk fiskiskip 410.696 tonnum af fiski og skelfiski að verðmæti 548 milljónum punda, 110 milljörðum króna. Miðað við árið áður er þetta aukning bæði í magni og verðmætum um 5%. aflinn skipt-ist nokkuð jafnt milli botnfisks, upp-sjávarfisks og skelfisks. Skelfiskur eins og humar og hörpudiskur skila um helmingi af verðmætum landaðs afla. þar á eftir koma botnfiskteg-undir eins og skötuselur og uppsjáv-arfiskur svo sem makríll.

►Mestu er að jafnaði landað í skosku höfnunum Peterhead og Fraserburg og á Hjaltlandi. af enskum höfnum er mestu landað í Plymouth.

n Bretland flytur megnið af fisk-afla sínum út. Helstu tegundir eru humar, krabbi og makríll, en innlendi markaðurinn tekur mest tegundir eins þorsk, ýsu og lax. Á árinu 2010 voru flutt utan ríflega 512.400 tonn að verðmæti 1,33 milljarðar punda, 267,3 milljarðar króna. Helstu út-flutningsmarkaðir eru Frakkland, Spánn, ítalía, írland og Bandaríkin. þessar þjóðir taka ríflega helminginn

af öllum útflutn-ingnum mælt í verðmætum. verðmætustu tegundirnar eins og skelfiskurinn fara á markaðina á Frakklandi, Spáni og ítalíu. uppsjávarfisk-ur fer til rúss-lands, Hollands og Frakklands.

n Árið 2010 voru flutt inn 687.000 tonn af sjávarafurðum að verðmæti 2,23 milljarðar punda, 448 milljarðar króna. þorskur, ýsa og annar hvítfisk-ur er keyptur frá íslandi, noregi og Danmörku. laxinn kemur frá Færeyj-um og noregi, alaskaufsi frá Banda-ríkjunum, kaldsjávarrækja frá Dan-mörku, kanada og íslandi, túnfiskur frá Máritíus og Seychelleseyjum, hlýsjávarrækja frá indlandi og öðrum austurlöndum fjær. innflutningur úr fiskeldi heldur áfram að aukast eins og til dæmis á rækju.

n Fiskvinnslan á Bretlandseyjum veitti 14.331 einum manni atvinnu

á 384 fiskvinnslu-stöðvum á árinu 2010. Mest af fisk-vinnslunni er á Hum-bersvæðinu (grimsby og Hull) og crampi-ansýslu á Skotlandi. Fullvinnsla afurða er mest á Humber-svæðinu og að auki á norður Englandi, sunnanverðum Miðl-

öndunum og Wales. Fullvinnslufyrir-tækin selja afurðir sínar til heildsala, smásala, veitingahúsa og til útflutn-ings og er eftirspurn mismikil eftir kaupendum.

n Smásölumarkaðurinn fyrir sjáv-arafurðir á Bretlandi velti um 2,8 milljörðum punda árið 2010, 563 milljörðum íslenskra króna. Mest seldu fisktegundirnar eru lax, tún-fiskur, þorskur, ýsa og hlýsjávar-rækja. Stórmarkaðir ráða lögum og lofum á markaðnum með 87% hlut-deild. kældar afurðir eru 56% af markaðnum, frystar 27% og tilbúnar geymsluþolnar afurðir 18%.

n innan veitingageirans eru búðir

sem selja fisk og franskar, matstofur, hótel og veitingahús. Á árinu 2010 vörðu neytendur 3 milljörðum punda, ríflega 600 milljörðum króna, í máls-verði sem innihéldu sjávarafurðir á stöðum utan heimilisins. það svarar til tæplega milljarðs máltíða. Steiktur fiskur er vinsælasti fiskrétturinn með 33% hlutdeild, en næst koma samlokur með rækju eða túnfiski. Hvítfiskur eins og þorskur, ýsa og ufsi eru vinsælustu fisktegundirnar í veitingageiranum með meira en 80% hlutdeild. HEiMild: SEaFiSH

hæsta meðalverðið eða 511 krónur á kílóið.

af öðrum tegundum er Ísland með góða hlutdeild í ufsa og kola, nálægt helming í magni. Þá seljum við Bretum meira af skötusel en nokkur önnur þjóð, 1.538 tonn sem er ríflegur helmingur, en þar snýst myndin við, því við erum með eitt-hvert lægsta meðalverðið fyrir skötuselinn ásamt Kínverjum með 643 krónur á kílóið.

ísland efst á verðmætalistanumÞegar á heildarinnflutning Breta á sjávarafurðum er litið er Ísland á toppnum á verðmætalistanum með 55,6 milljarða króna. Það er ríflega 10% af heildinni sem er um 502 milljarðar. tæland kemur næst á eftir okkur með 40,6 millj-arða og í þriðja sætinu er Kína með 36,9 milljarða. Kína er með mesta magnið, 67.229 tonn, en þar er Ís-land í öðru sæti með 63.243 tonn. tæland er í þriðja sætinu á þessum lista með 52.119. enn vekur það at-hygli hve hátt meðalverðið er á ís-lensku afurðunum, eða 884 krónur á kílóið. aðeins Kanada fær hærra meðalverð, en humar er drjúgur hluti af magninu frá þeim. enn-fremur er það athyglivert að tæ-land skuli vera með ríflega 100 krónum minna á hvert kíló en við í ljósi þess að hlýsjávarrækja er mik-ill hluti þess, sem þaðan kemur.

Bretar búa við verulegan við-skiptahalla á sjávarafurðum. árleg-ur fiskafli þeirra er ríflega 410.000 tonn. Þeir fluttu á síðasta ári út um 435.000 tonn af fiski að verðmæti um 302 milljarðar króna. innflutn-ingur þeirra var hins vegar 718.000 tonn að verðmæti 502 milljónir á síðasta ári. nettó innflutningur var því 283.000 tonn og verðmætahall-inn 200 milljarðar. mikil og vaxandi eftirspurn er eftir sjávarafurðum í landinu. sérstaklega hvítfiski, því þorsk- og ýsuafli Breta er orðinn mjög lítill. Því má gera ráð fyrir að þörfin fyrir innflutning sjávaraf-urða aukist frekar en hitt, en henni hefur reyndar verið mætt í miklum mæli með innflutningi á eldisfiski og alaskaufsa.

milljarður máltíða á ári

Page 20: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

20 aprÍl 2012 útvegsblaðið

Fiskveiðistjórnun er vandasamt viðfangsefni sem taka þarf mið bæði af eiginleikum síbreytilegra líffræðilegra kerfa og af flóknu samspili mannlegra athafna og hvata. Þekking á fiskveiðistjórnun hefur þróast hægt og sígandi og mótast af reynslu, bæði á Íslandi og í fjölda landa um allan heim. mikil-vægt er að þeir sem setja reglur um fiskveiðistjórnun kynni sér þessa reynslu.

Í nýju frumvarpi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er að finna áform um stórtæka skerðingu veiðiréttar aflamarksskipa. aðferð-in er sú að taka umtalsverðan hluta aflamarks í flestum tegundum og 40% af aukningu aflamarks um-fram skilgreind mörk í þorski, ýsu, ufsa og steinbít til ríkisins. Þessu aflamarki verður síðan að stærst-um hluta ráðstafað til leigu á kvóta-þingi og er ætlunin meðal annars að stuðla að nýliðun í greininni.

Þessi breyting á lögum, ef af verður, mun hafa slæmar og fyr-irsjáanlegar afleiðingar fyrir sjáv-arútveginn og almenn lífskjör í landinu.

„nýliðun“ með stækkun of stórs flotaafkastageta núverandi fiskiskipa-flota er hvergi nærri fullnýtt. ekki væri því þörf á aukinni veiðigetu eða fjölgun fiskiskipa þótt afla-heimildir yrðu auknar verulega. „nýliðun“ í formi fleiri báta væri því

sóun þar sem sami afli yrði sóttur með fleiri fiskiskipum og umtals-vert meiri kostnaði og lakari arð-semi veiðanna. sóun af þessu tagi kæmi óumflýjanlega niður á al-mennum lífskjörum í landinu. Þró-un í þessa átt gengi enda þvert á þau markmið sem íslensk stjórn-völd og íslenskur sjávarútvegur hafa unnið að um 30 ára skeið, sem er að auka hagkvæmni sjávarút-vegsins og arðsemi fyrir þjóðarbúið með því að samræma afkastagetu fiskiskipaflotans afrakstursgetu fiskistofnanna. reyndar er þetta ekki aðeins verkefnið hjá íslenskum sjávarútvegi. um allan heim vinna stjórnvöld og sjávarútvegur að því að takmarka og minnka stærð fiski-skipaflotans og er það talið vera forsenda hagkvæmra, sjálfbærra og ábyrgra fiskveiða. Þannig sam-þykkti matvæla- og landbúnaðar-stofnun sameinuðu þjóðanna (FaO) árið 1999 aðgerðaáætlun til að tak-marka stærð og veiðigetu fiski-skipaflotans og evrópusambandið ver stórum upphæðum af fé skatt-greiðanda til að úrelda fiskiskip.

nýliðar fleyta rjómanneinum þætti hefur lengi verið horft framhjá að mestu í umræðum um fiskveiðistjórnun. sú nýliðun sem við höfum séð undanfarin ár og lík-legast yrði ef frumvarp ráðherra næði fram að ganga er einkum í formi minni báta sem veiða aðal-lega þorsk. Fyrir utan þá óhag-

kvæmni sem felst í fjölgun fiski-skipa þá skapa veiðar þessara báta alveg sérstakan vanda fyrir rekstur alls þorra fiskiskipa. Þessi vandi er afleiðing þess að þessir bátar fleyta rjómann ofan af þar sem þeir geta margir lítið sótt í aðrar tegundir en þorsk. Heimildir þessara báta til þorskveiða leiða af sér skerðingu þorskveiðiheimilda annarra skipa. Þetta er skaðlegt því að möguleikar stærri skipa til veiða á öðrum teg-undum takmarkast að verulegu leyti af þorskveiðiheimildum þeirra þar sem þorskur fæst óumflýjan-lega sem meðafli við margar mis-munandi veiðar. ef þorskveiðiheim-ildir klárast er ekki lengur hægt að sækja í veiðar á öðrum tegundum. með því að stuðla að nýliðun í út-gerð smærri skipa sem veiða aðal-lega þorsk væri því verið að skerða almenna möguleika til fiskveiða á Íslandsmiðum.

leigukvóti og slæm umgengnialvarlegastur er þó sá þáttur sem snýr að áhrifum á umgengni um auðlindina. nýliðun í krafti fjölg-unar fiskiskipa sem gera út á leigu-kvóta er skaðleg. útgerð byggð að mestu á leigukvóta ætti að heyra til undantekninga enda liggur fyr-ir slæm reynsla af slíku útgerðar-mynstri.

Í upphafi þessarar aldar var mik-ið fjallað um brottkast í íslenskum fjölmiðlum. Þetta var vegna ástands sem skapaðist Í kjölfar dóms Hæsta-

réttar, svokallaðs valdimarsdóms. Þá var heimilað að skrá veiðileyfi á áður úrelta báta sem staðið höfðu verkefnalausir. Ýmsir aðilar lánuðu til útgerðar þessara skipa. Hátt á annað hundrað bátar án aflahlut-deildar voru gerðir út með þessum hætti, oft af mönnum sem áður höfðu selt frá sér skip og veiðiheim-ildir eins og nú er aftur að gerast í strandveiðunum. Kostnaður vegna leiguaflamarks gerði það að verkum að útgerðir þessara skipa urðu að fá hæsta mögulegt verð fyrir land-aðan afla til að geta haldið áfram starfsemi sinni. Þannig var gjarnan aðeins þorski yfir 3 kg landað, sam-kvæmt fréttum, en smærri þorski og mestu af meðafla hent.ekki var gert rétt upp við sjómenn í mörg-um tilfellum. útgerðaraðilar þess-ara báta kenndu fiskveiðistjórn-unarkerfinu um og sögðu að lögin neyddu þá til lögbrota og gerðu þá að glæpamönnum. samtök útvegs-manna og sjómanna stóðu sameig-inlega að tillögu til stjórnvalda um að takmarka möguleika til leigu-framsals. útgerð af þessum toga gat aldrei gengið og lagðist sem bet-ur fer af að mestu.

Það er með ólíkindum, í ljósi reynslunnar, að stjórnvöld skuli nú hugsa sér að skapa svona aðstæð-ur með ríkisleigu á aflaheimildum, með þeim afleiðingum sem fylgja og eru fyrirsjáanlegar.

dýrkeypt reynslaá þeim árum sem liðin eru frá því að ríki heims fóru að taka sér fiskveiði-lögsögu hefur safnast upp dýrmæt reynsla og þekking á sviði fiskveiði-stjórnunar ásamt skilningi á því hvað virkar og hvað virkar ekki. Ís-land var lengi leiðandi á þessu sviði, en með nýju frumvarpi virðist sem ætlunin sé að snúa af þeirri braut og endurtaka mistök fyrri tíma um leið og umheimurinn er að læra að forðast mistökin.

lanDssamBanD ÍslensKra útvegsmanna

kristján þórarinsson, stofnvistfræðingur lÍÚ, skrifar:

fiskveiðistjórnun, hvatar og afleiðingar

Það er með ólíkindum, í ljósi reynslunnar, að stjór-nvöld skuli nú hugsa sér að skapa svona aðstæður með ríkisleigu á aflaheimildum, með þeim afleiðingum sem fylgja og eru fyrirsjáanlegar.

Page 21: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Suðurhrauni 4 • 210 Garðabæ • Furuvellir 3 • 600 Akureyri • Sími: 575 8000 • Fax: 575 8001 • www.samhentir.is

Kassar læsast saman við stöf lun og brettið verður stöðugra

Heildarlausnir fyrirsjó- og landvinnslu

• Skór• Stígvél• Vettlingar• Vinnufatnaður, • Hnífar• Brýni • Bakkar• Einnota vörur o.fl.

• Kassar• Öskjur• Arkir• Pokar• Filmur

Kassar læsast saman við stöflun og brettið

ð öð

rnaður, ð

vörur o.fl.

Page 22: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

22 aprÍl 2012 útvegsblaðið

36 JANÚAR 2012 ÚTVEGSBLAÐIÐ

Tæp 10% af þorski tekin framhjá aflahlutdeildarkerfinu:

Aldrei hefur hærra hlutfall leyfilegs heild-arafla í þorski farið í pottana svokölluðu en á þessu fiskveiðiári. Leyfilegur heild-arafli þorsks á þessu ári er 177.000 tonn. Fyrir úthlutun innan aflahlutdeildarkerf-isins eru dregin frá því magni 16.852 tonn. Samtals er úthlutuð aflahlutdeild 160.148 tonn. Hlutfallið sem fer í pottana er því um 9,5%. Á síðasta fiskveiðiári var þetta hlut-fall 7,9% en fiskveiðiárin þar áður var hlut-fallið mun lægra eða í kringum 5%, lægst 2006/2007, 4,6%. Hlutfall pottanna hefur því meira en tvöfaldast síðan þá.

Strandveiðar og VS-afli stærsti hlutinnHelsta skýringin á því að mun hærra hlutfall fer nú í pottana er annars vegar strandveið-arnar, sem teknar voru upp á fiskveiðiárinu 2008/2009. Þær eru fyrst dregnar frá fyrir úthlutun á síðasta fiskveiðiári. Hins vegar að svo kallaður VS-afli, sem áður gekk undir nafninu Hafró-afli er nú áætlaður og dreg-inn frá fyrir úthlutun innan aflamarks árs-ins samkvæmt upplýsingum frá sjávarút-vegs- og landbúnaðarráðuneytinu. Í þessa tvo potta renna nú samtals 7.945 tonn af þorski, 5.600 til strandveiðanna og 2.354 í VS-aflann, eða langleiðina í helmingur þess, sem tekinn er útfyrir aflamarkskerfið. Auk þess eru nú tekin frá 300 tonn fyrir áætl-aða frístundaveiði. Loks er byggðakvótinn aukinn um 2.500 tonn frá árinu áður. Aukn-ingin er samkvæmt bráðabirgðaákvæði laga númer 116 frá árinu 2006. Án þessa ákvæð-is hefði byggðapotturinn aðeins orðið 2.341 tonn, en verður nú 4.841 tonn. Sama er að segja um aukninguna á strandveiðikvótan-um, sem nemur 2.000 tonnum. Án hennar hefðu aðeins 3.600 tonn komið í hlut strand-veiðiflotans í stað 5.600 tonna.

Aðrir pottar eru uppbætur vegna skel-

og rækjuveiða, 1.226 tonn, og línuívilnun, 2.531 tonn. Framlag í þann pott hefur verið minnkað um 844 tonn, en fiskveiðiárin þar á undan hefur þetta framlag verið óbreytt í 3.375 tonnum, eða allt frá því á línuívilnun-in var tekin upp árið 2003. VS-aflinn hefur ekki til þessa verið dreginn frá fyrir úthlut-un til aflamarks og frístundaveiðin held-ur ekki. Byggðakvótinn hefur undanfarin ár verið nálægt 3.000 tonnum af þorski, en fór niður í tæplega 2.700 tonn, þegar leyfilegur heildarafli af þorski var aðeins 130.000 tonn.

Á síðasta fiskveiðiári var leyfilegur heildarafli af þorski 160.000 tonn. 12.672 tonn voru þá tekin frá fyrir úthlutun og komu 147.328 tonn til úthlutunar. Þá voru 4.800 tonn tekin frá vegna strandveið-anna eða 3%, en á þessu fiskveiðiári er hlutfall strandveiðanna 3,2% og magnið 5.600 tonn. Á fiskveiðiárunum næst á und-an, eða frá 2004/2005 eru frádráttarliðirn-ir aðeins þrír, skel- og rækjubætur, byggða-kvóti og línuívilnun og samanlagt hlutfall frá 4,6% upp í 6%.

Undirmálið ekki dregið fráÁrið 2001 var sett heimild til að landa svo-kölluðum „Hafró-afla“ þar sem verðmæti aflans rann að stærstum hluta til starfsemi Hafrannsóknastofnunarinnar en seinna meir var ákveðið að þessir fjármunir rynnu til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins og heim-ildin því kölluð VS-heimild. Samkvæmt þessari heimild er skipstjóra leyfilegt að ákveða að allt að 5% botnfiskafla reiknist ekki til aflamarks. Þeim afla skal landa á fiskmarkaði og 20% af aflaverðmæti fara til skipta milli útgerðar og áhafnar. 80% renna til Verkefnasjóðsins. Þessar heimild-ir hafa verið nýttar í vaxandi mæli og mest þegar líður á fiskveiðiárið og þrengist um kvóta. Jafnframt hafa heimildir til löndun-ar á undirmálsfiski utan kvóta verið nýtt-ar töluvert. Þær heimildir hafa ekki verið

metnar og dregnar frá leyfilegum heildar-afla fyrir úthlutun. Síðustu fiskveiðiár hef-ur um 1.300 tonnum af þorski verið landað sem undirmáli.

Eins og áður sagði er VS-aflinn í fyrsta sinn dreginn frá úthlutun til kvóta á þessu fiskveiðiári. Á síðasta ári var 2.100 tonnum af þorski landað samkvæmt þeim heimild-um og á fiskveiðiárinu þar á undan 3.400 tonnum. Fiskveiðiárið 2008/2009 var 3.900 tonnum landað með þeim hætti.

Eins og fram kemur hér fer hlutfall þorsks, sem tekið er frá fyrir úthlutun afla-marks, vaxandi, enda teknir nýir þætti þar inn og skipta strandveiðarnar þar mestu

máli. Hver framvindan verður í þessum málum er erfitt að spá. Í skýrslu starfshóps um endurskoðun á lögum um stjórn fisk-veiða frá því í september 2010 er farið yfir þessi mál og fjallað um mögulegar úrbætur á úthlutun í þessa potta.

Skipt á milli tveggja potta„Það er mat meirihluta starfshópsins; Að endurskoða eigi lagaákvæði um bætur og festa þær í lögum sem hlutfall af heild-arafla í stað magntalna líkt og gert er nú. Með þessu móti verði betur tryggt að þegar um samdrátt í heildarafla er að ræða komi hann jafnt niður á þeim sem bæturnar fá

Hefur meira en tvöfaldast

Loks er byggðakvótinn aukinn um 2.500 tonn frá árinu áður. Aukningin er samkvæmt bráðabirgðaákvæði laga númer 116 frá árinu 2006. Án þessa ákvæðis hefði byggðapotturinn aðeins orðið 2.341 tonn, en verður nú 4.841 tonn. Sama er að segja um aukninguna á strandveiðikvótanum, sem nemur 2.000 tonnum. Án hennar hefðu aðeins 3.600 tonn komið í hlut strandveiðiflot-ans í stað 5.600 tonna.

Ásafl hefur gott úrval af vélum, rafstöðvum og öðrum búnaði fyrir báta og stærri skip. Persónuleg þjónusta, snögg og góð afgreiðsla ásmat hagstæðum verðum gerir öll viðskipti við Ásafl ánægjuleg. Okkar helstu vörumerki eru Isuzu, Doosan, FPT, Westerbeke, Helac, Hidrostal, Hung Pump, Tides Marine, Halyard, ZF, BT-Marine, Ambassador Marine, Marsili Aldo, San Giorgi, Guidi, Wesmar, Isoflex ofl ofl.

Ráðg

jöf –

sal

a –

þjón

usta

Hjörtur Gíslason skrifar:[email protected] HLUTFALL AF

HEIMILUÐUM ÞORSKAFLA

Fiskveiðiár Magn Hlutfall %

2003/2004 10.924 5,20%

2004/2005 12.503 6,10%

2005/2006 11.959 6,00%

2006/2007 8.879 4,60%

2007/2008 7.378 5,70%

2008/2009 7.444 5,70%

2009/2010 7.888 5,30%

2010/2011 12.762 7,90%

2011/2012 16.852 9,50%

Hlutfall af heimiluðum þorskafla

» Árið 2001 var sett heimild til að landa svokölluðum „Hafró-afla“ þar sem verðmæti aflans rann að stærstum hluta til starfsemi Hafrannsóknastofn-unarinnar en seinna meir var ákveðið að þessir fjármunir rynnu til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins og heimildin því kölluð VS-heimild.

Nýting og verkun sölva

Sérfræðingar Hafrannsóknastofnunarinnar skrifa:

Hafrannsóknastofnunin sinnir víð-tækum og fjölbreyttum rannsókn-um á sjó og sjávarlífverum. á und-anförnum árum hefur aukin áhersla verið lögð á að leita nýrra tækifæra í sjávarnytjum. eitt af því sem hefur verið rannsakað í því sambandi eru nytjar á botnþörungum við strend-ur landsins. Í samvinnu við matís er unnið að athugunum á möguleikum á nýtingu og verkun sölva.

Hefðbundin nýting sölvasöl eru rauðþörungar sem vaxa víða á norðurhveli jarðar. Þau eru útbreidd um norðanvert atlants-haf og í norður-Kyrrahafi. við Ís-land eru söl algeng allt í kring-um land bæði í fjörunni og neðan fjörunnar þar sem þau eru algeng ásæta á þarastilkum. langmest er um söl við suðvestur- og vestur-land, þéttust eru þau við árósa eða þar sem ferskvatn rennur í fjöruna og blandast sjónum. söl vaxa einnig í skjóli stærri þörunga í þangfjörum til eru skráðar heimildir um notkun sölva til matar hér við land frá því í byrjum 12. aldar, sem jafnframt eru elstu skráðu heimildir um notk-un þörunga til matar á vesturlönd-um. söl hafa alla tíð verið verðmæt hlunnindi bújarða. söl voru borðuð þurr með smjöri eða öðru feitmeti. á 20. öld dró verulega úr sölvaáti landsmanna en á allra síðustu árum hefur áhugi á nýtingu sölva aukist á ný, sérstaklega í tengslum við auk-inn áhuga á hollara mataræði.

vöxtur sölvagerð var rannsókn á sölvum á tveim-ur stöðum í Hvalfirði þar sem þau

vaxa við ólík-ar aðstæður. annars vegar í klettafjöru með þéttum þanggróðri og hins vegar í mal-arfjöru við árós þar sem lítið er um annan gróður. söl-in vaxa aðallega snemma á vorin. al-gengast er að þau vaxi upp af brotum af gömlum stofnblöðum, sem hafa orðið eftir frá fyrra ári. sölin byrja að þroskast seinni hluta marsmánaðar og eru venjulega full-sprottin í lok maí eða byrjun júní. lítill vöxtur er síðan yfir sumarið, um haustið byrja plönturnar síðan að slitna. næsta vor vaxa ný hliðar-blöð aftur út frá jöðrum gamla slitna blaðsins sem lifði af veturinn. Þann-ig getur hver planta lifað í nokkur ár. Þar sem söl vaxa í skjóli þangs halda þau rauða litnum allt árið en á áreyrum þar sem þau hafa lítið skjól af öðrum stærri þörungum eru þau dökkrauð á vorin, upplitast og verða gul eða grænleit um sumarið en fá aftur rauða litinn á haustin. líklega er orsökin fyrir litabreytingunum samspil sólarljóss og næringarefna-styrks. næringarsölt hverfa úr sjón-um í byrjun sumars, styrkur þeirra er í lágmarki yfir sumarið þegar sól er hæst á lofti, en eykst aftur í lok sumars.

efnainnihald og verkungreinilegar árstíðabreytingar á efnainnihaldi mældust sem og munur á milli staða þó þeir væru ná-

lægt hvor öðrum. Prótín innihald sölva minnkar yfir sumarið og er í lágmarki í ágúst. Hins vegar aukast kolvetni, og C-vítamín yfir sumarið og eru í hámarki í ágúst og sama er að segja um fituinnihald, sem þótt lítið sé, er einnig í hámarki í ágúst. aðferðir við vinnslu og verkun hafa áhrif á efnainnihald sölvanna, C-vítamín hverfur t.a.m. nánast al-veg við sólþurrkun en er mun betur varðveitt við frostþurrkun. Breyti-leiki í lit og áferð þurrkaðra sölva mældist einnig milli mismunandi þurrkaðferða.

Hvar, hvenær og hvernig er best að nýta sölin?Þegar sölvum er safnað og þau verk-uð til sölu skiptir litur, áferð, efna-innihald og bragð miklu máli. áður fyrr voru söl yfirleitt uppskorin í lok sumars, sólþurrkuð strax og síðan geymd fergð í tunnum sem borðað var úr yfir veturinn. eins og kem-ur fram hér á undan er munur í lit, áferð og efnainnihaldi eftir árstím-um. einnig er munur á þessum þátt-um eftir því við hvernig aðstæð-ur sölin vaxa. að jafnaði er mest af sölvum á áreyrum við sjó eða ann-ars staðar þar sem vatn rennur um fjöruna. Þau þola ágætlega lága seltu öfugt við flesta aðra botnþör-

unga. Þar eru þau því ekki í sam-keppni við aðrar tegundir um pláss-ið. ókosturinn við slíka staði er að þar vilja sölin upplitast á sumrin og verða grænleit eða gul og fá einnig grófa áferð. rauða litinn fá þau aft-ur í lok sumars en áferðin helst. söl sem vaxa undir þangi í klettafjörum halda hins vegar rauða litnum allan ársins hring og eru mun þynnri og fíngerðari.

rannsóknir á efnainnihaldi benda til þess að ef verið er að sækj-ast eftir sölvum með mikið af auð-

meltanlegum kolvetnum er best að safna þeim í lok sumars. ef ver-ið er að sækjast eftir prótínum er hins vegar best að taka þau á vor-in. Í ferskum sölvum er mikið af C vítamínum sem tapast við vinnslu, verkun og geymslu. Hafa skal þó í huga að tapið er mismikið eftir því hvers konar aðferðum og aðstæð-um er beitt.

Karl Gunnarsson og Svanhildur Egilsdóttir, Hafrannsóknastofnun-

inni, Þóra Valsdóttir, Matís.

» litur og áferð sölva er mjög mismunandi eftir því hvar þau vaxa. Þau gulu uxu við árós en hin undir þangi í klettafjöru.

» Breytingar á prótein- (efri mynd) og kolvetnainni-haldi (neðri mynd) í sölvum á tveimur stöðum í Hvalfirði.

» Við sölvatínslu við árósa fossár í Hvalfirði.

Æxlunarferill sölva er nokkuð sérstakur. til skamms tíma voru aðeins þekktar gró-plöntur og karlplöntur í náttúrunni. Engar kvenplöntur höfðu fundist. við athuganir í rannsóknastofu kom í ljós að kvenplönturn-ar eru mjög litlar og hverfa undir gróliðinn þegar hann vex upp.

í lífsferli sölva eru tveir ættliðir, grólið-ir og kynliðir sem skiptast á. lífsferillinn gengur þannig fyrir sig, að gró myndast við yfirborð blaðsins hjá gróliðnum. Eftir að gróin losna spíra þau og helmingur þeirra verður að karlplöntum og hin að kvenplöntum. karlplantan þroskast og verður eins útlits og gróliðurinn, en kvenplantan verður lítil skán. Örsmá kúlulaga frjó, myndast í karlplöntunni, en í skáninni þ.e. kvenplönt-unni, myndast egg. þegar frjóin losna úr karlplöntunni,

berast þau til kvenplöntunnar og frjóvga eggið. Skömmu síðar spírar eggið og nýr gróliður vex upp og verður eins og karlplantan í útliti. þegar gróliðurinn þroskast vex á honum festuflaga sem vex yfir og hylur kvenplöntuna. það er skýringin á því að kvenplönturnar hafa ekki fund-ist í náttúrunni.

lífsferill sölva

Page 23: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

HV

ÍTA

SIÐ

/ S

ÍA 1

1-10

98

Við erum með hugann við það sem þú ert að gera

Ragnar Guðjónsson hefur starfað við fjármögnun sjávarútvegs í 40 ár. Ragnar er viðskiptastjóri í sjávarútvegsteymi Íslandsbanka.

Okkar vinna snýst um að þín vinna gangi vel. Við leggjum okkur fram um að setja okkur vel inn í það sem þú ert að gera,

við sjávarútveginn og hjá bankanum starfar stór hópur fólks með sérþekkingu á greininni. Þannig getum við ávallt tryggt fyrirtækjum í þessari undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar þá bankaþjónustu sem hún þarfnast.

Þekking sprettur af áhuga.

Page 24: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Sjómennska hefur ætíð verið hættuleg atvinnugrein og slys ver-ið tíð meðal sjómanna. Á hverju skipi þurfa allir skipverjar stöð-ugt að huga að öryggismálum, ekki bara skipsins, heldur einnig persónulegu öryggi sínu. það eru ekki mörg ár síðan hjálmanotk-un varð almenn meðal sjómanna en hjálmurinn er lífsnauðsyn-legur við vinnu úti á þilfari skipa. það eru hættur sem ógna sjó-mönnum við störf þeirra og ein þeirra er að falla í sjóinn eða að taka útbyrðis í sjógangi. Á undanförnum árum hafa stöðugt fleiri sjómenn tekið upp það verklag að búast uppblásanlegum björg-unarvestum við vinnu sína á þilfari. lítið fer fyrir slíkum björg-unarvestum og geta þau verið búin sjálfvirkum búnaði sem blæs vestið upp lendi það í sjó. nota sjómenn slík björgunarvesti jafn-vel þótt þeir hafi einnig klæðst flotvinnubúningum. þá er hægt að koma fyrir í björgunarvestunum sendibúnaði sem verður virk-ur við að koma í sjó og sendir hann þá boð til skipsins um stað-setningu þess sem fallið hefur fyrir borð. þú getur aukið öryggi þitt mikið með því að vera ætíð með björgunarvesti við vinnu úti á þilfari þegar skipið er á sjó.

Slysavarnaskóli sjómanna

Öryggi sjómanna – uppblásanleg björgunarvesti

» Mikilvægt er að notast við þau björgunartæki sem eru í boði. uppblás-anleg björgunarvesti og hjálmar eru ein af þeim nauðsynlegustu. kMynD: þorgEir BalDurSSon

Allt til rafsuðu

Skútuvogi 6 • 104 Reykjavík • Sími 510 4100 • www.danfoss.isDanfoss hf

RafsuðutækiRafsuðuvírFylgihlutir

24 aprÍl 2012 útvegsblaðið

Heildaraflinn jókst um rúm 75.000 tonn

264.900

2012:

2010:

2006:

2008:

2004:

193.296

119.293

133.714

169.690

118.208

108.136

214.669

162.054

185.200

2011:

2009:

2005:

2007:

2003:

HEildarafli íSlEnSkra Skipa í MarS í tonnuM:

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðn-um marsmánuði nam alls 193.296 tonnum, samanborið við 118.208 tonn í mars 2011. metinn á föstu verði var heildaraflinn í mánuðin-um 21,2% meiri en í fyrra. Fyrstu þrjá mánuði ársins hefur aflinn aukist um 29,3% miðað við sama tímabil í fyrra, sé hann metinn á föstu verði.

Í nýbirtum tölum frá Hagstofu Íslands kemur fram að botnfisk-aflinn nam tæpum 46.100 tonn-um, sem er aukning um rúm 1.400 tonn frá mars 2011. Þorskurinn var sem áður mest veidda botnfisk-tegundin, en þorskaflinn var tæp 24.000 tonn, sem er þó samdrátt-ur um rúm 300 tonn frá marsmán-uði 2011. Ýsuaflinn drógst einnig saman, um tæp 600 tonn frá fyrra ári, og var rúm 6.500 tonn. veiðar á karfa skiluðu 7.900 tonnum sem er aukning um rúm 3.600 tonn sam-anborið við mars 2011. ufsaafl-inn var 3.500 tonn, sem er um 400 tonnum minna en veiddist í mars-mánuði í fyrra.

uppsjávaraflinn nam tæpum 143.000 tonnum, sem er aukning um 74.000 tonn frá fyrra ári. aukn-inguna má helst rekja til 141.000 tonna loðnuafla, en loðnuaflinn í mars 2011 var einungis um 69.000

tonn. síldaraflinn í nýliðnum mars-mánuði var tæp 800 tonn, en eng-inn síldarafli var í sama mánuði 2011. að lokum veiddust um 500 tonn af kolmunna, samanborið við tæp 600 tonn í fyrra.

afli flatfisktegunda var um 2.300 tonn og dróst saman um tæp 600 tonn. Þar af var skel- og krabbadýraaflinn 1.200 tonn, sam-anborið við 840 tonna afla í mars 2011.

aukningu aflans má helst rekja til meiri loðnuafla:

Haraldur guðmundsson skrifar:[email protected]

Þorskurinn var sem áður mest veidda botnfisktegundin, en þorskaflinn var tæp 24.000 tonn, sem er þó samdráttur um rúm 300 tonn frá marsmánuði 2011.

» Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði nam alls 193.296 tonnum, samanborið við 118.208 tonn í mars 2011.

Page 25: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

264.900

2012:

2010:

2006:

2008:

2004:

193.296

119.293

133.714

169.690

118.208

108.136

214.669

162.054

185.200

2011:

2009:

2005:

2007:

2003:

HEildarafli íSlEnSkra Skipa í MarS í tonnuM:

Maritech hefur verið leiðandi í þróun hugbúnaðarlausna fyrir sjávarútveginn um árabil. Lausnir Maritech spanna alla

virðiskeðjuna frá �skeldi og veiðum til sölu og drei�ngar.

WiseDynamics lausnir veita �ölbreytta möguleika á að fylgjast með og greina upplýsingar fyrir stjórnendur í rauntíma. Um er að ræða: Wise stjórnendasýn, Wise greiningartól, Wise BI teninga, Wise skýrslur, Wise farsímalausn og Wise samningaker�.

WiseFish lausnir innihalda Gæðastjórnun, Fiskeldi, Útgerð og kvóta,Vinnslu, Birgðir og vöruhús og Sölu og út�utning.

WiseDynamicsstjórnendalausnir

Nýjustu upplýsingar eru forsenda réttra ákvarðana

WiseFishsjávarútvegslausnir

Dynamics NAV í áskrift: Eigðu eða leigðu ker�ð, kynntu þér hagkvæmar lausnir Maritech.

Borgartún 26, 105 Reykjavík » Hafnarstr » » www.maritech.is

Gold Enterprise Resource PlanningSilver Independent Software Vendor (ISV)

TM

Við verðum á sjávarútvegssýningunni í Brussel, líttu við í Bás 6127-4, höll 4

- tryggir þér samkeppnisforskot

Sjávarútvegslausnir

Page 26: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

„Ég fór fyrst á sjó sumarið 1985 á þorskveiðar á ísfisktogaranum Har-aldi Böðvarssyni aK. Þá var ég svo sjóveikur að ég ætlaði aldrei aftur á sjó. á endanum snéri ég þó aftur á Harald og hef verið í þessu nán-ast sleitulaust síðan,“ segir albert sveinsson, skipstjóri á Faxa re-9.

útskrifaðist frá stýrimanna-skólanum 1992albert vann í tæp tvö ár um borð á Haraldi Böðvarssyni en færði sig síðan um set og réð sig sem háseta á Höfrung aK árið 1987. á þeim tíma ákvað hann að skrá sig í stýri-mannaskólann og útskrifaðist það-an 1992. aðspurður um hvers vegna hann ákvað að fara í stýrimanna-skólann segir albert að hann hafi viljað mennta sig innan greinarinn-ar og því var nám við skólann rök-rétt ákvörðun.

„Þegar ég útskrifaðist úr stýri-mannaskólanum var ég ráðinn sem annar stýrimaður á Höfrungnum. síðar fór ég yfir á víking aK og var þar í tvö ár sem fyrsti stýrimaður. Þaðan fór ég síðan á ingunni aK sem fyrsti stýrimaður og afleysingaskip-stjóri,“ segir albert.

árið 2001 færði albert sig um set þegar hann var ráðinn skipstjóri á nótaskipið elliða gK. „Þar var ég í tæp tvö ár, þangað til skipið var selt

til tasmaníu í ástralíu. Ég sigldi skip-inu til tasmaníu og var þar skipstjóri í nokkra mánuði og veiddi makríl og suður-flakkara (redbait). Þegar ég kom heim fór ég aftur á ingunni aK og var þar þangað til 2006 þegar ég var beðinn um að taka við Faxa, þar sem ég hef verið allar götur síðan,“ segir skipstjórinn.

Faxi re var smíðaður í Póllandi árið 1987 og er í eigu HB granda. skipið var endurbyggt árið 2000 þegar það var lengt og sett í það stæri vél.

loðna, kolmunni, síld og makríllstarf skipstjórans um borð í Faxa re er eins og á öðrum hefðbundn-

um uppsjávarskipum. árið byrjar á loðnuveiðum, síðan er farið á kol-munna og þaðan í norska síld og makríl. að lokum er íslenska síldin veidd á síðustu mánuðum ársins.

„loðnuvertíðinni er nú lokið og hún gekk vel hjá okkur. tíðarfarið var hins vegar erfitt en burtséð frá því gengu veiðarnar áfallaust fyrir sig. við vorum lítið með bátinn full-an og vorum í staðinn með kældan afla í flestum ferðum. Það fór mikið í vinnslu hjá okkur og mikið tekið af hrognum,“ segir albert og bætir við að vel hefði verið hægt að veiða meira. „vandamálið er hins vegar að þegar loksins er búið að gefa út kvóta er erf-itt að koma honum öllum í bræðslu.

HB grandi er með tvær bræðslur, eina á vopnafirði og aðra á akranesi, en plássin eru fljót að fyllast.“

áður en tal berst að öðru en upp-sjávarveiðum liggur beinast við að spyrja skipstjórann út í skoðanir hans á nýja kvótafrumvarpi ríkis-stjórnarinnar. „mér finnst frumvarp-ið hálfgert brjálæði. eins og þetta lítur út ætla þeir gjörsamlega að mjólka útgerðarfyrirtækin, en eins og allir vita þarf að koma inn hagn-aður svo hægt sé að reka þau áfram. menn verða að vita hvaða heimildir þeir hafa á hverju ári og mér finnst skrýtið að taka heimildirnar af þeim sem eiga þær til að láta þær í hend-urnar á einhverjum öðrum.“

mikill hestamaðurÞegar albert er spurður um hvað hann væri að aðhafast ef hann væri ekki skipstjóri kemur upp löng þögn. „Það er nú það. Það hefur alltaf blundað mikil sveitamennska í mér. Ég er mikill hestamaður og dunda mér í hrossarækt og þykir gott að

geta slakað á í hestamennskunni þegar ég er í landi. ætli svarið sé því ekki að ég væri líklegast bóndi,“ seg-ir albert og hlær.

að sögn alberts reynir hann einnig að eyða miklum tíma með fjölskyldunni. albert er giftur ástu Pálu Harðardóttur, þroskaþjálfa, og eiga þau hjón þrjá syni. að auki eru á heimilinu tveir hundar. „eins og áður sagði á fjölskyldan hesta og frítími okkar fer mikið í að sinna þeim. syn-irnir eru einnig með mikinn áhuga á fótbolta og ég reyni að fylgja þeim sem mest eftir þar.“

aðspurður um hvort hann hvetji strákana sína í að fara á sjó segir al-bert svo ekki vera. „elsti strákurinn minn er að vinna í loðnubræðslunni á akranesi en hefur ekki farið með mér á sjó. Hinir tveir, einn 17 ára og annar 16 ára, eru svo uppteknir í fót-boltanum að þeir hafa ekki tíma fyr-ir sjómennskuna í bili. Ég er heldur ekkert að þrýsta á að þeir fari á sjó. Það væri ágætt ef þeir gætu komið sér í eitthvað annað.“

albert Sveinsson, skipstjóri á Faxa rE-9:

Veiddi makríl í TasmaníuHaraldur guðmundsson skrifar:[email protected] elsti strákurinn minn er að vinna í loðnubræðslunni á

akranesi en hefur ekki farið með mér á sjó. Hinir tveir, einn 17 ára og annar 16 ára, eru svo uppteknir í fótboltanum að þeir hafa ekki tíma fyrir sjómennskuna í bili. Ég er heldur ekkert að þrýsta á að þeir fari á sjó. Það væri ágætt ef þeir gætu komið sér í eitthvað annað.

» „Ég er mikill hestamaður og dunda mér í hrossarækt og þykir gott að geta slakað á í hestamennskunni þegar ég er í landi.“

26 aprÍl 2012 fRÍVAKTIN

Page 27: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Cayenne Diesel

Porsche á Íslandi - Bílabúð Benna - Vagnhöfða 23 - 110 Reykjavík - 590 2000 - [email protected] - www.benni.is

Sérfræðingar í bílum

Porsche Cayenne Diesel:Eyðsla: 7,2 l /100 km í blönduðum akstri

Co2: 189 g/km

Tog: 550 Nm

Hröðun: 7,6 sek. 0-100 km/klst.

Page 28: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

28 aprÍl 2012 fRÍVAKTIN

Nítján ára grindvískur sjómaður hefur gert það gott á trollbátnum oddgeiri Ea:

Púlið er peninganna virði„Ég byrjaði á sjónum 15 ára gamall, sumarið eftir níunda bekk árið 2006. Ég var þá á mörtu ágústsdóttur gK, en afi minn ólafur arnberg Þórðar-son, átti hana og var með bátinn. við vorum á netum og það gekk alveg ágætlega en var auðvitað mjög erf-itt. Fara á net í fyrsta skipti og vinna alvöru vinnu, en það var gaman af þessu og gott að læra eitthvað nýtt og ég fann aldrei fyrir sjóveiki. Fyrir utan að hafa góða þénustu úr þessu þá heillaði sjómennskan mig ein-faldlega. Ég var með afa þetta sum-arið og kláraði svo grunnskólann um veturinn. Þar tók ég pungaprófið, sem þá gaf réttindi til skipstjórnar á bátum allt að 30 tonnum. Ég tók líka námskeið í slysavarnaskóla sjó-manna. um sumarið var ég aftur á mörtunni með óla afa sem fastráð-inn háseti. Ég var svo með honum áfram og á tveimur netavertíðum og var orðinn alveg þrælvanur neta-karl,“ segir ólafur arnberg Þórarins-son, 19 ára sjómaður í grindavík.

„um vorið 2009 byrja ég svo í af-leysingum á trollbátnum Oddgeir ea, sem er gerður út frá grindavík og þar er annar afi minn skipstjóri, jón sæmundsson. Ég byrjaði sem þriðji afleysingarmaður en hef síðan unn-ið mig upp í þann fyrsta. Þetta eru góð pláss og menn eru ekkert sleppa þeim. Báturinn er á ísfiski og þetta er auðvitað hörku púl. við erum 10 karlar á og stöndum 16 tíma vakt-ir og fáum þá átta tíma hvíld og svo aftur 16 tímar á vakt. Þannig gengur þetta fyrir sig. við erum aldrei meira en viku úti í einu, en það er mjög sjaldan, sem við erum svo lengi úti. við erum oftast búnir að fylla bát-inn fyrir þann tíma. Þetta eru mest fjórir til fimm dagar sem það tekur að fylla og við komum nánast alltaf með fullan bát í land. við erum núna með minni fiskikörin, sem taka 330 lítra, en lestin tekur 144 svoleiðis kör. við erum líka með nokkur kör á millidekkinu, sem við getum sett fisk í og svo erum við líka með stí-ur ef mikið fiskast. Þetta getur því hlaupið á 35 tonnum upp í 45 tonn. Það fer eftir því hvað mikið við setj-um í stíurnar.

mjög gott fiskiríÞað er búið að vera mjög gott fisk-irí núna í vetur. marsmánuður var besti mánuðurinn. við fylltum bát-inn fimm sinnum og nú í byrjun apríl vorum við að koma í land með full-an bát. Fiskur í öllum körum og stí-um. við lönduðum öllu á markað úr þeim túr, en annars er fyrirtækið með vinnslu á grenivík og þangað fer milliþorskurinn, tvö til sjö kíló. stærri þorskurinn og ufsinn fer í saltfiskvinnslu hjá fyrirtækinu í grindavík en hitt fer allt á markað. Fyrir norðan er fiskurinn unninn ferskur í flug og ferðast því talsvert, norður og aftur til baka og síðan út með flugi.

lífið um borð er bara fínt. við erum tíu á og af þessum tíu eru átta mér náskyldir. jón afi er skipstjór-inn, náfrændi minn er stýrimaður, móðurbróðir minn er þarna og tveir náfrændur mínir að auki. Þeir sem eru svo ekki skyldir mér tengjast inn í fjölskylduna í gegnum frænk-ur mínar. Þetta er því ein stór fjöl-skylda um borð. við gerum reynd-ar lítið annað um borð en að vinna, éta og sofa. Í mokfiskiríi þarf mað-

ur stundum að standa frívaktina að hluta til og stendur þá upp í 19 tíma. Það er auðvitað erfitt en það venst eins og hvað annað. Þreytan í löpp-unum hverfur reyndar aldrei, en hugarfarið heldur okkur gangandi.

smá hrekkir um borðmaður er meira með þessum körl-um heldur en heima hjá sér. Það eru fleiri dagar úti á sjó en heima, svo það er eins gott að samkomu-lagið um borð sé í lagi. við erum lok-aðir saman í litlu rými meðan við erum úti. Því eru menn að lífga upp á tilveruna með smá hrekkjum. einu sinni um daginn vaknaði ég eftir að hafa lagt mig á bekknum í setustof-unni og fann svo mikla terpentínu-lykt. Ég fór að kalla í alla til að spyrja þá að því hvernig stæði á þessari lykt. enginn þóttist skilja hvað ég var að tala um. Þegar ég fór svo fram sá ég að það var búið að naglalakka alla puttana á mér með skipamáln-ingu. Þetta þótti öllum æðislega fyndið, og mér reyndar bara líka. Ég á svo bara eftir að launa fyrir þenn-an grikk. svona gera menn smá grín og hrekkja í góðu. Það viðgengst enginn skepnuskapur um borð.

spurningin er hvort maður nenni þessu eða ekki. Ég meira en nenni þessu, enda er púlið peninganna virði. Þetta er rosalega gott pláss og gefur góðar tekjur. sem fyrsti afleysingamaður er ég nánast allt-af um borð. Ég er undir tvítugu og á bæði góðan bíl og nánast nýja íbúð. Það er meðal annars af því maður er duglegur að vinna og það er alveg þess virði.“

Hugsa um vélstjórnarnámÁ að leggja sjómennskuna fyrir sig?

„mér finnst sjómennskan skemmtileg og hef mikinn áhuga á því að halda henni áfram, þó erfitt sé að vera svona mikið að heiman. tekjurnar skipta þar líka miklu máli. en þá er best að mennta sig eitt-hvað. Framtíðarplanið er þá kannski að mennta sig sem vélstjóri. Þá get-ur maður hoppað í land ef mann

langar til og fengið góða vinnu þar. með vélstjóramenntun getur maður betur valið milli vinnu í landi og úti á sjó. eins ef maður slasast þannig að maður geti ekki unnið úti á sjó, er hægt að nýta þessa menntun í landi. taki maður hins vegar skip-stjórnarréttindin nýtast þau nán-ast eingöngu úti á sjó. sú menntun

gefur lítil sem engin tækifæri í landi.

Það er örugglega góð framtíð í sjómennskunni og núna er mokfisk-irí. Það er sama hvert þú ferð núna, alls staðar er fiskur. síðasta mánuð var fiskurinn fullur af loðnu og alls staðar var stór fiskur á ferðinni, al-vöru grindjánar, 10 kíló og yfir. síð-

asta túr fyrir páska byrjuðum við við eldeyna og fórum þaðan í Djúpa-vatnið og alveg að línunni við sand-gerði til að leita að öðrum fiski en þorski. við vorum að leita að ýsu og og ufsa, einhverri blöndu við þorsk. við megum ekki vera með of mikið af honum. Það væri minnsta málið að fylla bátinn af þorski í hverjum

mér finnst sjómennsk-an skemmtileg og hef mikinn áhuga á því að halda henni áfram, þó erfitt sé að vera svona mikið að heim-an. tekjurnar skipta þar líka miklu máli. en þá er best að mennta sig eitthvað. Fram-tíðarplanið er þá kannski að mennta sig sem vélstjóri. Þá getur maður hoppað í land ef mann langar til og fengið góða vinnu þar. með vél-stjóramenntun getur maður betur valið milli vinnu í landi og úti á sjó. eins ef maður slasast þannig að maður geti ekki unnið úti á sjó, er hægt að nýta þessa menntun í landi.

Hjörtur gíslason skrifar:[email protected]

» ólafur arnberg Þórarinsson og kærastan Sara Jóhannsdóttir.

» komið að landi. ólafur lengst til hægri ásamt skipsfélögunum tilbúnir með endann.

Page 29: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

túr, þegar svona mikið er af honum, en það megum við ekki. til þess er þorskkvótinn of lítill.“

mikil vinna og góð þénustaMyndir þú ráðleggja ungum strák-um að fara til sjós?

„já, ég myndi ráðleggja ungum strákum, sem vita ekki hvert þeir eiga að stefna í lífinu og hafa ekki áhuga á frekari skólagöngu eftir grunnskólann, að reyna fyrir sér á sjónum meðan þeir eru að átta sig. ef þeir geta og nenna að vinna er eina vitið að fara á sjóinn, því þar er mesti peningurinn. Fyrir fólk, sem veit hvert það vill stefna, er auð-vitað best að fara í skóla og mennta sig. Hvort sem það er í sjómennsku eða einhverju öðru. menntunin er alltaf mikilvæg. Ég ákvað að ég vildi ekki verða aumingi þó ég hefði ekki áhuga á því að fara í framhaldsskóla og fór þess vegna á sjóinn. Það eru ekki allir þannig gerðir að bóknám-ið liggi fyrir þeim. Ég vissi að ég gat unnið og nennti því og valdi því sjó-mennskuna og sé ekki eftir því.

Hásetinn er með 30.000 krónur út úr hverri milljón í aflaverðmæti. einn túr, fjórir til fimm dagar, getur skilað aflaverðmæti frá 10 og upp í 12 milljónir króna. Það fer mik-ið eftir samsetningu aflans en al-

gengast er að verðmætið sé í kring-um tíu milljónir í túr. við erum að gera fjóra til sex þannig túra á mán-uði. Þannig að þénusta getur verið mjög góð, en að baki því liggur mikil vinna og langar fjarverur frá fjöl-skyldunni.

Ég er búinn að fara hvern einasta túr núna í meira en ár svo úthaldið er orðið langt. við stoppum þó alltaf einn mánuð yfir sumarið. á haust-in fer svo áhöfnin öll saman til út-landa. Ég er búinn að fara tvisvar með þeim, til spánar og tyrklands. Þetta er fínt líf og ég kvarta ekki. útiveran er reyndar nokkuð löng, en maður þarf að sjá fyrir sjálfum sér og sínum. Ég á kærustu, sem heitir sara jóhannsdóttir, en hún vinnur í nettó hér í grindavík, meðal annars við að afgreiða kost í skip og báta. við erum barnlaus enn, en eigum hund og höfum það mjög gott,“ seg-ir ólafur arnberg Þórarinsson.

fRÍVAKTIN aprÍl 2012 29

Nítján ára grindvískur sjómaður hefur gert það gott á trollbátnum oddgeiri Ea:

Púlið er peninganna virði

jón afi er skipstjórinn, náfrændi minn er stýrimað-ur, móðurbróðir minn er þarna og tveir náfrændur mínir að auki.

» ólafur hóf sjómennskuna á þessum bát, Mörtu Ágústsdóttur, sem ólafur afi hans átti og var með.

» oddgeir Ea er smíðaður í Þýskalandi 1967 og mælist 365 brúttótonn að stærð. Hann hefur landað um 600 tonnum frá áramótum. kMynD: þorgEir BalDurSSon

Page 30: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

30 aprÍl 2012 fRÍVAKTIN

Þorskhnakkar með sinnepsfræjum, kúskús og sítrónumajonesiuppskrift mánaðarins kemur frá Örnu Björk Halldórsdótt-ur í Fiskbúðinni Höfðabakka. réttur hennar samanstendur

af þorskhnökkum með sinneps-fræjum, kúskús og sítrónumajo-

nesi, og er einfaldur, léttur og bragðgóður.

n Byrjið á að krydda þorskhnakkana með salti, pipar, dilli og sinnepsfræjum (t.d. grófu sinnepi frá Maille eða sinnepsdufti) eftir smekk.

n Eldið síðan þorskhnakkana (u.þ.b. 1/2 -1 hnakka á mann eftir stærð) í 7-8 mínútur á 160°c

n kúskús eða hrísgrjón: Eldið samkvæmt

leiðbeiningum en bætið 1/4 teskeið túr-merik, einum teningi af kjúklingakrafti og 1-2 sítrónusneiðum í vökvann.

n Sítrónumæjónes: hrærið saman majó-nesi, sítrónu/lime safa, og saltið og piprið. Smakkið síðan til.

n Á endanum er rétturinn borinn fram með fersku salati.

uppskrift mánaðarins

raunveruleikaþættir um krabbaveiðimenn njóta vinsælda:

Áttunda þáttaröð Deadliest Catch hafin

Bandaríska sjónvarpsstöðin Disco-very hóf í síðustu viku að sýna átt-undu þáttaröðina af hinum geysi-vinsælu raunveruleikaþáttum Deadliest Catch. Þættirnir, sem fjalla um bandaríska krabbaveiði-menn sem gera út frá Dutch Harbo-ur í Beringshafi, á milli síberíu og alaska, hafa notið mikilla vin-sælda um allan heim. áhafnir og skipstjórar þeirra skipa sem fylgst er með í þáttunum eru orðnir tíðir gestir í bandarískum spjallþáttum og þættirnir hafa verið tilnefndir til emmy verðlauna og getið af sér bækur, tölvuleiki og annan sölu-varning.

Þáttaröðin sem nú er hafin mun eins og fyrri fylgjast með veiðum fimm til sex skipa. Í fyrri hluta henn-ar verður fylgst með sjómönnum við veiðar á kóngakrabba frá októ-ber og fram í desember, eða þang-að til skipin hafa klárað kvótann sinn. áhorfandinn fær þar að fylgj-ast með sjómönnunum á meðan þeir undirbúa sig og skipin fyrir veiðarn-ar og þangað til veiðiferðinni lýkur og aflanum er landað. Í seinni hlut-anum verður fylgst með veiðum á snjókrabba, en hann er veiddur frá fyrstu dögum janúarmánaðar og fram í febrúar/mars, og er töluvert minni en kóngakrabbinn.

óhætt er að segja að umgjörð þáttanna verður glæsilegri með hverri þáttaröðinni. Þættirnir hafa hins vegar að mati undirritaðs auk-ið fullmikið á dramatík og sviðs-setningar, þar sem ítrekað er gert úr þeim miklu hættum sem mæta

sjómönnunum í starfinu. Þó má ekki misskilja að þátturinn sé ekki enn fínasta skemmtun.

Haraldur guðmundsson skrifar:[email protected]

» Áhöfnin á krabbaveiðiskipinu northwestern hefur komið fyrir í öllum átta þáttaröðunum.

Sjómannahátíðin á akureyri verður haldin í þriðja sinn dagana 20.- 21. júlí nk. Hátíðin hefur slegið í gegn og á síðasta ári mættu um tvö hundruð manns.

Formleg dagskrá hátíðarinnar hefur nú litið dagsins ljós. Á föstudeginum 20. júlí verður m.a. boðið upp á kvöldverð á odd-vitanum á akureyri, þar sem valgeir guðjónsson, tónlistarmaður, verður veislustjóri, og raggi Bjarna og Helena Eyjólfs skemmta. Síðar um kvöldið verður haldinn dansleikur með gylfa Ægis, Meg-asi og rúnari þór.

Á laugardeginum verður farið í rútuferð til Siglufjarðar og þar fara hátíðargestir í sjómannamessu í Siglufjarðarkirkju og síðar um daginn verður afhent líkan af nýsköpunartogaranum Elliða Si 1.

Samhliða Sjómannahátíðinni verða ýmsar uppákomur um borð í Húna ii. „Á föstudeginum verður farið í klukkutíma siglingu með togarajaxlana þar sem boðið verður upp á fordrykk til að hita menn upp fyrir kvöldið. Á laugardeginum siglir Húni síðan frá Ársskógasandi til akureyrar eftir að hátíðargestir hafa skoðað bruggverksmiðjuna kalda,“ segir Sæmundur Pálsson, fyrrver-andi sjómaður og skipuleggjandi hátíðarinnar.

aðspurður um hvernig hátíðin hafi komið til sögunnar segir Sæmundur að hann hafi lengi viljað smala saman gömlum sjó-mönnum. „upphaflega var ég ekki með neitt sérstakt í huga, annað en að koma saman á kaffihúsi og spjalla. En sumarið 2010 var Húni hér á akureyri og þá sá ég mér leik á borði að setja sam-an dagskrá fyrir endurfundi okkar gömlu jálkanna. Á þeim tíma bjóst ég við 20-30 sjómönnum, en á endanum komu 215 manns,“ segir hann og undirstrikar að allir sjómenn séu velkomnir á há-tíðina.

Frekari upplýsingar og pantanir fást hjá Margréti þóru þórs-dóttur í síma 866-1294 eða á [email protected].

allir sjómenn velkomnir

» um tvö hundruð manns mættu á Sjómannahátíðina í fyrra.

Page 31: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

raunveruleikaþættir um krabbaveiðimenn njóta vinsælda:

Page 32: Útvegsblaðið 4. tbl 2012

Helstu kostir „íslensku leiðarinnar”

Færeyingar völdu„íslensku leiðina“

| | |

Kælismiðjan Frost ehf. | ||

Skaginn hefur í samvinnu við Kælismiðjuna Frost og íslenskar uppsjávarútgerðir þróað eina fullkomnustu vinnslulínu í heiminum sem

hentar öllum tegundum og vinnsluformum uppsjávarfisks.

Fyrsta framleiðslulínan verður tekin í notkun hjá Varðin Pelagic í Færeyjum í sumar.