stefna og verkefni 2015-2016

4
HLUTLÆGNI TRÚVERÐUGLEIKI ÞJÓNUSTA STEFNA & VERKEFNI 2015–2016

Upload: hagstofa-islands

Post on 29-Jul-2016

233 views

Category:

Documents


4 download

DESCRIPTION

Stefna og verkefni Hagstofu Íslands fyrir árin 2015-2016.

TRANSCRIPT

Page 1: Stefna og verkefni 2015-2016

HLUTLÆGNI TRÚVERÐUGLEIKI ÞJÓNUSTA

STEFNA & VERKEFNI2015–2016

Page 2: Stefna og verkefni 2015-2016

• Móta stefnu um samskipti við ytri hags-munaaðila

• Koma á samstarfsvettvangi með öðrum fram-leiðendum og eigendum stjórnsýsluskráa og gera samninga við gangaveitendur

• Kynna ríkisstofnunum og sveitarfélögum lögbundna tilkynningarskyldu þeirra við breyting ar eða gerð nýrra stjórnvaldsskráa

• Endurskoða hlutverk notendahópa

• Innleiða gæðaskýrslur og birta opinberlega

• Koma á fót rannsóknarráði og stuðla að því að starfsfólki sé heimilt að rannsaka gögn Hag-stofunnar

• Koma á reglulegum mælingum á svarbyrði

• Skjala aðferðir við árstíðaleiðréttingar

• Skjala aðferðir við að hindra rekjanleika

• Stefna um endurskoðun hagtalna

• Koma á vottuðu stjórnkerfi upplýsingaöryggis

• Kanna kosti vefsköfunar við öflun gagna til hagskýrslu gerðar

• Móta miðlunar- og samskiptastefnu

• Ná betur til almennings

• Koma á nýjum vef

• Skýra hagtölur betur út í útgáfum og frétta-tilkynningum

• Efla tengsl við fjölmiðla

• Kanna notkun samfélagsmiðla við miðlun og samskipti við notendur

• Bæta vinnuumhverfi

Verkefni 2015–2016

STEFNA & VERKEFNI2015–2016

HLUTVERK

Hagstofan vinnur hlutlægar hagskýrslur, hefur forystu um samhæfingu hagtalna, stundar rannsóknir og stuðlar þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðun-um

FRAMTÍÐARSÝN

Hagstofan er framsækin miðstöð hag-skýrslugerðar sem stendur jafnfætis þeim hagstofum í Evrópu sem eru til fyrirmyndar

Hagstofan er góður og eftirsóttur vinnu-staður sem einkennist af skilvirkni og sveigjanleika

GILDI

Hlutlægni — Trúverðugleiki — Þjónusta

STEFNA

Hagstofa Íslands stefnir að því að:

• Uppfylla þarfir innanlands fyrir tölfræði legar upplýsingar um efna-hagsmál, samfélagsmál, fyrirtæki og rekstur fyrirtækja

• Starfsemin sé í samræmi við alþjóð-legar skuldbindingar

• Tryggja gæði opinberra hagtalna á Íslandi með sömu leiðum og fram koma í meginreglum evrópskrar hagskýrslugerðar

• Tryggja öryggi upplýsinga þannig að þær séu aðgengilegar en fullnægi þó kröfum um persónuvernd og falli ekki í rangar hendur

Page 3: Stefna og verkefni 2015-2016

MARKMIÐ

Þekkja þarfir notenda og vinna náið með hagsmunaað-ilum

Hagstofa Íslands hefur frumkvæði að reglulegum samskiptum við notendur til að öðlast betri skilning á þörfum þeirra og til að geta betur mætt þörfum ólíkra hópa. Áhersla er lögð á góð samskipti við gagna-veitendur, meðal annars til að auka skilning á gæðum stjórnsýslugagna. Hagstofan tekur forystu í skipulegu samstarfi við aðra framleiðendur. Markvisst samstarf við hagsmunaðila eykur skilning á þörfum þeirra og leiðir í ljós gagnkvæman ávinning.

Tryggja gæði og réttar aðferðir

Hagstofa Íslands gefur út hagtölur og veitir þjónustu í samræmi við þarfir notenda þar sem gæði eru höfð í fyrir rúmi. Áhersla á gæði er nauðsynleg til þess að viðhalda trausti og til að tryggja forystuhlutverk í hag-skýrslugerð. Í samfélagi þar sem er ofgnótt upplýsinga á að vera hægt að treysta því að hjá Hagstofunni séu birtar hlutlægar og traustar upplýsingar.

Tryggja öryggi upplýsinga

Hagstofan tryggir öryggi upplýsinga með stjórnkerfisem byggist á ISO27001 sem er alþjóðlegur staðall um upplýsinga öryggi. Ytri vottun á stjórnkerfið verður komin í upphafi árs 2016. Meðferð trúnaðarupplýsinga er vönduð og örugg.

Nýta nýjar gagnalindir til að bæta gæði og minnka svarbyrði

Hagstofa Íslands metur svarbyrði reglulega og leggur áherslu á að draga úr henni með því að samræma betur og hagnýta eigin gagnasöfn, nýta stjórnvalds-skrár, beita nýjustu tækni við gagnaöflun og með við-eigandi aðferðafræðilegum lausnum.

Bæta miðlun og samskipti

Hagstofan leitast við að ná til breiðs hóps notenda og leggur áherslu á að ná til almennings og fjölmiðla. Stefnt er að því að bæta aðgengi að hagtölum og öðru efni með markvissri notkun á upplýsingatækni. Kynningar fundir og aðrir viðburðir geta verið gagn-legir til að kynna starfsemi Hagstofunnar. Leitast skal við að nýta það form miðlunar og þá tækni sem best á við hverju sinni. Hagstofan mætir þörfum notenda um hagtölur og lagar sig að breyttum þörfum þeirra.

Betra vinnuumhverfi

Mikilvægt er að stuðla að starfsánægju og bættri líðan starfsmanna, þannig verður Hagstofan eftirsóknar-verður og fjölskylduvænn vinnustaður. Gott vinnu-umhverfi stuðlar að ánægju starfsmanna og aukinni framleiðni. Hagstofan leitast við að styðja starfsmenn til að sækja sér aukna fræðslu með það að markmiði að auka færni þeirra og gefa þeim kost á að þróast í starfi. Bætt upplýsingaflæði og opin skoðanaskipti milli starfsmanna og stjórnenda sitja í fyrirrúmi. Hag-stofan stuðlar að því að aðbúnaður á vinnustað upp-fylli kröfur, sé að laðandi og að starfsmönnum sé gefinnkostur á heilsu eflingu

Efla rannsóknir

Hagstofan leggur áherslu á uppbyggingu rannsóknar-starfs og samstarf við rannsóknasamfélagið. Öflug rannsóknarstarf styður við hagtölugerð og gerir Hag-stofunni kleift að stuðla að upplýstri stefnumótun og umræðu. Þá er uppbygging rannsókna mikilvægur liður í að gera stofnunina að eftirsóknarverðum vinnustað. Gerður er skýr greinarmunur á rannsóknum og hag-skýrslugerð í starfsemi stofnunarinnar.

Page 4: Stefna og verkefni 2015-2016

HAGSTOFA ÍSLANDS

BORGARTÚNI 21A

105 REYKJAVÍK

SÍMI 528 1000 / BRÉFASÍMI 528 1099WWW.HAGSTOFA.IS / [email protected]

Grunnurinn að stefnu Hagstofu Íslands er eftirfarandi lög og reglur:

• Lög nr. 163/2007 um Hagstofu Íslands og opinbera hagskýrslugerð

• Reglugerð ESB nr. 223/2009 um evrópska hagskýrslugerð

• Grundvallarreglur um opinbera hagskýrslugerð í ríkjum Sameinuðu þjóðanna

• Meginreglur í evrópskri hagskýrslu-gerð