möguleikar í mosfellsbæ

8
Laugardagur 15. júní 2013 9000 íbúar 84 kílómetrar af stikuðum gönguleiðum 594 hundar Tvær sundlaugar Safnið um nóbelskáldið 1270 hestar 93% íbúa mjög ánægðir með bæinn sinn Tveir golfvellir B laðið Möguleikar í Mosfellsbæ sem fylgir Morgun- blaðinu í dag er samantekt á þeim miklu möguleikum og tækifærum sem Mosfellsbær býður upp á. Þrátt fyrir efnahagsþrengingar undanfarinna ára hafa miklar framkvæmdir verið í gangi á vegum sveitarfélagsins. Nú eru stór og eftirsóknarverð byggingasvæði í landi Mosfellsbæjar að koma í sölu og segja má að sveitarfélagið sé komið í þá stöðu að stíga stórt skref til uppbyggingar, bæði á sviði atvinnulóða og íbúðabyggðar. Markmiðið með þessu blaði er að taka þessa marg- víslegu möguleika saman á einn stað og deila með öðrum Íslend- ingum. Samhliða þeirri uppbyggingu sem er framundan leggur Mosfellsbær mikla áherslu á að standa vörð um það jákvæða and- rúmsloft og þá vinalegu stemmingu sem ríkir jafnan í bænum. MOSFELLSBÆ Möguleikar í

Upload: mosfellsbaer

Post on 07-Mar-2016

235 views

Category:

Documents


0 download

DESCRIPTION

Kynningarblað um uppbyggingu í Mosfellsbæ kom út helgina 15. júní 2013 . Markmiðið með útgáfu blaðsins var að taka saman þá margvíslegu möguleika til uppbyggingar sem er að finna í Mosfellsbæ. Undanfarin misseri hefur verið hugað að innviðum og hér eru að rísa framhaldskóli, hjúkrunarheimili og fleiri byggingar sem munu bæta þjónustuna við bæjarbúa enn frekar. Þá þótti tilvalið að segja frá og deila með öðrum Íslendingum möguleikum í Mosfellsbæ til útivistar og hreyfingar sem felast í náttúrunni hér í kring.

TRANSCRIPT

Page 1: Möguleikar í Mosfellsbæ

Laugardagur 15. júní 2013

9000 íbúar

84 kílómetrar af stikuðum

gönguleiðum

594 hundar

Tvær sundlaugar

Safnið um nóbelskáldið

1270 hestar

93% íbúa mjög ánægðir með bæinn sinn

Tveir golfvellir

Blaðið Möguleikar í Mosfellsbæ sem fylgir Morgun-blaðinu í dag er samantekt á þeim miklu möguleikum og tækifærum sem Mosfellsbær býður upp á. Þrátt fyrir efnahagsþrengingar undanfarinna ára hafa miklar framkvæmdir verið í gangi á vegum sveitarfélagsins.

Nú eru stór og eftirsóknarverð byggingasvæði í landi Mosfellsbæjar að koma í sölu og segja má að sveitarfélagið sé komið í þá stöðu að stíga stórt skref til uppbyggingar, bæði á sviði atvinnulóða og íbúðabyggðar. Markmiðið með þessu blaði er að taka þessa marg-víslegu möguleika saman á einn stað og deila með öðrum Íslend-ingum. Samhliða þeirri uppbyggingu sem er framundan leggur Mosfellsbær mikla áherslu á að standa vörð um það jákvæða and-rúmsloft og þá vinalegu stemmingu sem ríkir jafnan í bænum.

MosfellsbæMöguleikar í

Page 2: Möguleikar í Mosfellsbæ

2 Laugardagur 15. júní 2013

Það eru miklir og skemmtilegir möguleikar framundan til upp-byggingar í Mosfellsbæ. Lóðir í

Helgafellslandi og Leirvogstungu eru að fara í almenna sölu eftir óvissu-ástand síðustu missera. Á sama tíma er Ístak með metnaðarfull áform á Tungumelum þar sem án efa mun rísa glæsileg þyrping stórfyrirtækja. Bær-inn hefur stórlækkað verð á atvinnu-lóðum í Desjamýri og Sunnukrika. Allar þessar lóðir geyma möguleika sem vonandi verða nýttir til uppbygg-ingar í bænum. Mosfellsbær hefur staðist áhlaup efnahagsþrenginga síðustu árin og með samhentu átaki erum við nú fjárhagslega vel í stakk búin til að nýta þá möguleika sem framundan eru.

Mosfellsbær er ungt barnmargt sveitarfélag. Íbúarnir urðu 9000 í byrj-un ársins með fæðingu lítils drengs sem var fjórði í systkinaröðinni, en það er mikið um stórar fjölskyldur í bænum. Íbúafjöldi bæjarins hefur tvö-faldast á síðustu 20 árum. Fyrsta stóra stökkið í íbúafjölgun varð eftir eldgos-ið í Vestmannaeyjum. Þá komu margir Vestmannaeyingar og settust að í Mos-fellsbæ og fjölmargir eru hér enn. Spár benda til þess að íbúafjölgunin muni verða enn hraðari á næstu áratugum.

Við erum vel undirbúin fyrir þessa fjölgun en íbúafjölgun mun skila sér í ákveðinni stærðarhagkvæmni þeg-ar kemur að rekstri sveitarfélagsins. Það mun gefa okkur möguleika til að

veita enn betri þjónustu í framtíðinni. En Mosfellsbær hefur í gegnum tíð-ina lagt metnað sinn í að veita fyrsta flokks þjónustu. Hins vegar mun verða lögð áhersla á að halda þeirri stemmingu og andrúmslofti sem hef-ur einkennst af því að vera sveit í borg og flest okkar telja svo mikils virði.

Mosfellsbær býður upp á óþrjótandi möguleika til hvers konar útivistar og íþróttaiðkunar. Sérstaða bæjarins liggur meðal annars í þeirri fjölbreyttu náttúru sem umlykur hann. Lögð hefur verið áhersla á það í öllu skipulagi að íbúar geti búið í nálægð við fell,fjörur, dali og ár og nýtt sér þá sérstöðu til heilsueflingar og skemmtunar. Við

höfum lagt kapp á að leggja göngu- og hjólastíga og reiðleiðir teygja sig víða og bjóða upp á skemmtilega möguleika fyrir hestamenn. Tveir glæsilegir golf-vellir í fallegu umhverfi eru í bænum og afar gott aðgengi er að öllum þessum svæðum. Auk þess hefur bærinn látið gera fjölmörg kort sem sýna gönguleiðir. Gildi Mosfellsbæjar, virðing – jákvæðni

– framsækni – umhyggja voru mótuð í stefnumótunarvinnu bæjarins snemma árs 2008 og hafa reynst bænum vel í gegnum erfiða tíma. Þessi gildi munum við kappkosta að halda í og lifa eftir.

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar

Ný slökkvistöð rís í MosfellsbæFyrsta skóflustungan að nýrri slökkvistöð við Skarhólabraut í Mos-fellsbæ var tekin í vikunni. Framkvæmdin er mikið hagsmunamál fyrir íbúa í Mosfellsbæ og nágrenni enda mun slökkvistöðin auka ör-yggi á svæðinu til mikilla muna ásamt því að fjölga störfum í sveitar-félaginu. Viðbragðstími slökkviliðsins verður þá innan þeirra marka sem telst ásættanlegt og sambærilegur við það sem hann er á öðrum svæðum á höfuðborgarsvæðinu. Nýja stöðin mun einnig hýsa sjúkra-bíla og starfsemi sjúkraflutninga þegar samningar milli Slökkviliðs Höfuðborgarsvæðisins og Sjúkraflutninga Íslands hafa náðst. Þess má þó geta að stöðin við Tunguháls í Reykjavík verður áfram í notkun þar til ný stöð hefur verið sett niður í efri byggðum Kópavogs. Jarðvegs-framkvæmdir á svæðinu eru þegar hafnar og stefnt er að því að húsið verði tilbúið í nóvember 2014.

Möguleikar í Mosfellsbæ

Viðbragðstími slökkviliðsins verður þá innan þeirra marka sem telst ásættanlegt og sambærilegur við það sem hann er á öðrum svæðum á höfuðborgarsvæðinu.

Mosfellsbær hefur í gegnum tíðina lagt metnað sinn í að veita fyrsta flokks þjónustu.

Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri. LjóSMynd RutH ÖRnóLfSdóttiR

tölvugerð mynd af nýju slökkvistöðinni eins og hún mun líta út

Page 3: Möguleikar í Mosfellsbæ

Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • eignamidlun.is

Sími 586 8080Þverholti 2fastmos.is

Til sölu byggingalóðir á frábærum stað í suðurhlíðum Helgafells þar sem gert er ráð fyrir um 1.000 íbúða blandaðri byggð sérbýlis- og fjölbýlishúsa. Skipulag hverfis-ins er nútímalegt og fjölskylduvænt. Hverfið er, eins og sveitarfélagið allt, umkringt fallegri náttúru. Einstakar gönguleiðir eru upp með Varmánni, inn í Reykjalundar-skóg, inn í Skammadal og upp á Helgafell. Skóla- og íþróttasvæði við Varmá er í öruggu göngufæri. Mosfellsbær mun annast gatnaframkvæmdir, gerð göngu-stíga og frágang á svæðinu. Mosfellsbær mun einnig koma upp grunnþjónustu en undirbúningur er hafin á skólabyggingu í hverfinu, bæði er gert ráð fyrir leik- og grunnskóla.

Nánar á: www.helgafell.is

Nánari upplýsingar veita:

Sérfræðingar Landsbankans í Grafarholtsútibúi veita upp lýsingar um fjár mögnunarleiðir

Einar Páll Kjærnested, löggiltur fasteignasali. Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.

Ástu-Sólliljugata

Snæfríðargata

SölkugataEfstaland

Vefarastræti

Ásland

Gerplustræti

Brúnás

Bergrúnargata

Uglugata

13

6-82-4

10-1214

1617

15

13

9

1-512

1311

2-4

24

6

8

10

9

7

5

3

13-15

17-19

21-23

30

22

18

1-28

32-38

40-46

57

16182022

6

2725

2321

17

19

15

13

11

9

6664

62

56-58

52-54

48-50

40-46

32-3824-30

Einbýlis-, rað-, fjórbýlis- og fjölbýlishúsalóðir í landi Helgafells tilbúnar fyrir framkvæmdir

frÁBærT úTSýni oG fallEG úTiViSTarSVæði

ByGGinGalóðir í MoSfEllSBæ

BrúnásEin einbýlis húsa lóð.

ÁslandTvær einbýlis húsa-

lóðir.

Efstaland Níu einbýlis húsa-

lóðir.

Ástu-SólliljugataSex einbýlis húsa - og þrjár fjórbýlis-

húsalóðir.

UglugataÞrettán einbýlis-

húsa-, 3 fjórbýlishúsa- og 3 fjölbýlishúsalóðir.

Berg rúnargataTvær einbýlis húsa-

lóðir.

SölkugataSjö einbýlis húsa lóðir.

SnæfríðargataFimm einbýlishúsa-

lóðir og lóð undir 13 íbúðahús.

Gerplu strætiSex fjölbýlishúsa-

lóðir.

VefarastrætiTvær fjölbýlis-

húsa lóðir.

Höml_080613.indd 1 5.6.2013 09:37

Page 4: Möguleikar í Mosfellsbæ

4

hreyfðist á markaðnum. „Svo fór þetta í gang árið 2010 og hefur verið á fínu róli síðan. Það er ásókn í hús hérna og eignir seljast yfirleitt fljótt. Eins og staðan er í dag er mest spurt um smærri sérbýli. Lítil einbýlishús, parhús og raðhús. Eignir á bilinu 30 til 45 milljónir er það sem flestir eru að leita að.“

Pétur segir að það sé mikil vöntun á eignum og að eftirspurnin sé mun meiri en framboðið. Hjá yngra fólkinu eru það eignir á bilinu 18 til 25 millj-ónir sem mest er spurt um.

Magnaður staður Mosfellsbær„Fólk utan af landi leitar gjarnan hing-að í Mosfellsbæinn. Það er svona eins og þetta sé eitthvað millistig. Ég til dæmis kem austan af fjörðum og kon-an mín er frá Selfossi. Mosfellsbær-inn hentaði okkur mjög vel. Svo sér maður ótrúlega mikið af því að fólk er að koma aftur heim í Mosó. Bæði er það fólk sem hefur prófað að flytja annað og einnig fólk sem ólst hér upp og er að fara að stofna fjölskyldu. Það segir mikið um andrúmsloftið hér þegar yngra fólkið vill flytja heim.

Þetta er dálítið magnaður staður Mos-fellsbær. Gott samfélag með þægilegu og jákvæðu andrúmslofti.“

Pétur horfir til nýju byggingasvæð-anna og er bjartsýnn með að þar takist vel til. Hann vonar að þar muni menn horfa til þeirrar eftirspurnar sem er nú í gangi, þ.e. að fjölbýlishús og minni eignir verði í forgangi hjá þeim verktökum sem munu byggja í Helgafellslandi og Leirvogstungu.

Pétur og félagar hans á fasteigna-sölunni Berg, þeir Daníel G. Björns-son og Magnús Ingþórsson annast sölu fasteigna um allt land, en þegar Pétur er spurður hvernig hann tali við væntanlegan kaupanda að fasteign í Mosfellsbæ, segir hann það auðvelt.

Perla fyrir útivistar- og íþróttafólk„Ég upplýsi fólk einfaldlega um mína sýn á þetta góða bæjarfélag. Hér er maður í nánu samneyti við náttúruna og auðvelt að stunda allt sport. Mos-fellsbær er perla fyrir íþróttaáhuga- og útivistarfólk. Flottir golfvellir, stígar og fellin okkar eru skemmtileg fyrir þægilegar fjallgöngur eða jafn-vel aðeins meira krefjandi göngur.

Hér eru góðir leikskólar og grunnskól-ar og Mosfellsbær státar af góðu tóm-stundastarfi fyrir unga fólkið. Hér er einnig öflugt íþróttastarf og allt þetta saman lagt segir okkur að hér er gott að ala upp börn. Á sama tíma er verið að efla og treysta þjónustu við eldri borgara með byggingu hjúkrunar- og elliheimilis.Samgöngurnar hérna eru líka mjög þægilegar. Landið er opið og hringtorgin greiða leið. Við lendum síður í miklum umferða-hnútum en til að mynda í Kópavogi og Hafnarfirði.“

Pétur er sjálfur golfari og stundar íþróttina af krafti. „Maður verður

náttúrulega að stilla þessu í hóf eins og öðru.“ Pétur spilar reglulega Hlíðavöllinn sem golfklúbburinn Kjölur í Mosfellbæ á og sinnir. Hann er mjög ánægður með hvernig tókst til með að stækka völlinn en hann er nú 18 holur og sambærilegur við það sem best gerist í golfheiminum á Íslandi.

Pétur horfir einnig til þeirra lóða sem Mosfellsbær hefur skipulagt í Desjamýri og Sunnukrika og segir þar um að ræða áhugaverðar lóðir.

„Sunnukriki er mjög skemmtilegt svæði í hjarta bæjarins og hentar vel fyrir verslun og þjónustu en einnig fyrir léttan iðnað. Tengingin við Vesturlandsveg eykur enn frekar gæði staðsetningarinnar. Desjamýrin er öðruvísi svæði en líka áhugavert. Þetta svæði hentar vel fyrir léttan iðn-að og lóðirnar eru í fallegu umhverfi sem spillir aldrei fyrir. Ég held að sú ákvörðun bæjarstjórnar að lækka verð þessara lóða hafi verið skynsam-leg og það hefur fram til þessa endur-speglast í áhuga fyrir svæðinu. Ég tel að ekki sé langt í að uppbygging hefj-ist á báðum þessum svæðum.“

Laugardagur 15. júní 2013

Berg fasteignasala hefur verið staðsett í Mosfellsbæ síðan 2010. Fyrirtækið var hins vegar stofnað 1989 og er því með eldri fasteigna-

sölum á höfuðborgarsvæðinu. Pétur Pétursson löggiltur fasteignasali er borinn og barnfæddur austfirðingur en hann fluttist í Mosfellsbæ árið 1990 og hefur búið þar síðan. „Nú er þetta orðið virkilega þægilegt. Stutt í vinn-una.“ Pétur brosir. Hann keypti Berg fasteignasölu árið 2000 og söðlaði þá um. Hætti sem sölustjóri hjá Toyota og gerðist fasteignasali.

Hann segir stöðuna á fasteigna-markaðnum í Mosfellsbæ vera virkilega góða. Árin 2008 og 2009 voru mjög erfið og lítið sem ekkert

Forsíða: Myndir úr ljósmyndasamkeppni

Mosfellsbæjar frá síðastliðnu hausti og úr myndasafni Mosfellsbæjar.

Útgefandi: Mosfellsbær

Ritnefnd: Eygló Jónsdóttir, Aldís Stefánsdóttir

og Eggert Skúlason

Umsjón: Franca ehf almannatengsl

Prentun: Landsprent

Pétur er mikill golfari og mætir reglulega á Hlíðavöll í Mosfellsbæ. Hér slær hann upphafshöggið á fyrsta teig.

Eins og staðan er í dag er mest spurt um smærri sérbýli. Lítil einbýlishús, parhús og raðhús. Eignir á bilinu 30 til 45 milljónir er það sem flestir eru að leita að.

Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkti nú í vetur að nýta sér heimildir til að lækka gatnagerðargjöld og fella niður byggingarréttagjöld á lóðum undir atvinnuhúsnæði. Með þessu vill Mosfellsbær hvetja fyrirtæki og atvinnurekendur til fjárfest-inga og stuðla að því að bærinn verði fyrsti val-

kostur þeirra sem eru með uppbyggingu í huga. Bærinn mun einnig bjóða upp á fjármögnun vegna lóðanna og sanngjarna skilmála. Þetta er í fyrsta skipti sem Mosfellsbær býður upp á slík kjör. Með þessu vonast bæjaryfirvöld til að koma á móts við atvinnurekendur og fjárfesta sem eru að

huga að uppbyggingu og fjárfestingum. Lóðirnar sem um ræðir eru annars vegar við Sunnukrika sem er nýtt svæði undir atvinnustarfsemi í hjarta Mosfellsbæjar og liggur við Vesturlandsveg. Hins vegar á athafnasvæði við Desjamýri í útjaðri bæjarins næst höfuðborginni.

Mosfellsbær lækkar verð á lóðum undir atvinnuhúsnæði

Ásókn í hús í Mosfellsbæ og vantar eignir á sölu

Pétur Pétursson löggiltur fasteignasali á Berg fasteignasölu:

Page 5: Möguleikar í Mosfellsbæ

LÓÐIR TIL SÖLULeirvogstunga í Mosfellsbæ er eitt glæsilegasta byggingar-

land höfuðborgarsvæðisins. Hér rísa samtals 400 sérbýli

á frábærum útsýnisstað. Fjölskylduvænt og heillandi

umhverfi og stutt í útivistarperlur.

Frábærar lóðir á góðum verðum.

Lóðirnar eru byggingarhæfar strax.

Nánari upplýsingar á www.leirvogstunga.is og hjá söluaðilum:

LEIRVOGSTUNGA

LEIRVOGSTUNGA.ISSími 527 3060 • [email protected]

Sími 586 8080www.fastmos.is

Sími 569 7000www.miklaborg.is

Page 6: Möguleikar í Mosfellsbæ

Ístak flutti inn í nýjar höfuð-stöðvar á Tungumelum fyrir réttu ári síðan. Tungumelar hafa verið skipulagðir sem atvinnulóðir og eru í eigu Ístaks. Samtals er

svæðið um 122 hektarar. Ákveðið var að skipta landinu í fjóra áfanga í uppbyggingu og hefur verið unnið að skipulaginu í samstarfi við Mos-fellsbæ. Í fyrsta áfanga, sem er 33 hektarar, eru 22 lóðir, en Ístak nýtir sjálft tvær lóðir. Á þessu svæði eru lóðir frá 3.900 til 15.200 fermetrar að stærð og byggingar geta verið frá 1.100 til 4.600 fermetrar. Þá er möguleiki að reisa enn stærri bygg-ingar með sameiningu lóða. Í öðrum áfanga, sem er um 22 ha. er gert ráð fyrir 13 lóðum, sem eru heldur stærri og er sá áfangi nú í aðalskipulagsferli. Þá eru eftir seinni tveir áfangarnir sem eru samtals 63 hektarar.

Höfuðstöðvar Ístaks eru í 5000 fermetra byggingu sem um leið er stærsta húsið í sveitarfélaginu Mos-fellsbæ. Að auki hefur Ístak reist 1.300 fermetra geymsluhúsnæði á lóðinni. Hvergi á stór-höfuðborgarsvæðinu eru svo stórar lóðir til ráðstöfunar nema á Tungumelum. Ístak leggur áherslu á að byggja húsnæði á þess-um lóðum fyrir kaupendur og finna bestu og hagkvæmustu lausnina fyrir hvern og einn viðskiptavin.

Þrjátíu ára verkefni Árið 2007-2008 voru sex bygginga-verkefni komin í frumvinnslu á Tungumelum. Hætt var við þau öll eftir bankahrunið.

Nú er á nýjan leik blásið lífi í þetta verkefni. Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Ístaks leggur þó mikla áherslu á að verkefnið byggir á langtíma hugsun. „Við erum að horfa á þetta verkefni til þrjátíu ára,“ segir hann, og er þá að líta til alls svæðisins.

„Sennilega fer ástandið á þessum markaði ekki að glæðast í alvöru fyrr

en eftir 2 – 3 ár. Hér stöðvaðist allt. Byggingariðnaðurinn hefur ekki far-ið varhluta af þessu ástandi, og við höfum misst mikla fagþekkingu úr greininni. Fólk fór hreinlega í önnur

störf, eða fluttist erlendis. Nú þarf að byggja upp á nýjan leik, og vonandi tekst að koma á jöfnum og öruggum vexti, í staðinn fyrir þessar koll-steypur sem við höfum þurft að búa

við. Kolbeinn segir að Ístak hafi náð að halda sínu í gegnum kreppuna en það hafi kallað á miklar breyt-ingar. Fyrir hrun voru heildartekjur Ístaks að lang stærstum hluta eða 80 – 85% tilkomnar á Íslandi. Þetta hlutfall hefur nú snúist við. 70% af veltu félagsins í fyrra var vegna verkefna erlendis. „Okkur tókst að halda okkar rekstri nokkurn veginn í horfinu með því að færa starfsemina út. Í fyrra vorum við með um 600 milljónir króna í hagnað fyrir skatta og veltan hjá okkur þessi ár hefur verið í kringum 20 milljarða.“

Kolbeinn viðurkennir að þetta hafi kostað peninga og verið á köflum strembið en með þessu móti hafi tek-ist að halda í þá sex hundruð starfs-menn sem félagið hefur að jafnaði verið með á launaskrá. „Þess vegna eigum við að getað komið sterkari inn í endurreisnina en ýmsir aðrir.“

Tungumelar aftur á kortiðÍ ljósi þessa alls er Ístak nú reiðubúið að vekja á nýjan leik upp verkefnið á Tungumelum og trúir Kolbeinn því að innan skamms muni sjónir fyrir-tækja sem þurfa stórar lóðir fyrir sína starfsemi beinast að Tungumelum. Mislægu gatnamótin sem tengja Leir-vogstungu og Tungumela við Vestur-landsveg voru mikilvægt skref. Brúin yfir Vesturlandsveg er framtíðarhugs-un og mikilvæg fyrir svæðið. Sam-göngur hafa verið tryggðar í takti við þau áform sem henta svæðinu.

Byggðin og aðstaðan að Tungumel-um verður nútímaleg, glæsileg og hag-lega ofin inn í fallegt og fjölbreytt um-hverfi. Innra skipulag hennar er bæði

hlýlegt og hæfilega formfast. Fyrirhug-að er að leggja jarðrauða göngustíga um svæðið og verða þeir hellulagðir þar sem þeir teygja sig yfir akbrautir. Grasflatir verða á milli göngustíga og akbrauta en við þá hlið sem snýr að fyrirtækjunum verða gróðurbelti með grænum runnum. Hærri tré verða við aðalgöngustíg sem er í miðju svæðisins, við aðkomuvegi og víðar. Þetta kemur til með að móta þægilega og hlýlega rýmistilfinningu á öllu svæðinu.

Kolbeinn segir að það hafi komið þeim þægilega á óvart hvað tengslin við náttúruna eru sterk þarna og hvað náttúrufegurðin er mikil. „Það eru ekki margir sem búa við jafn fallegt útsýni og við, og það má víða fara í göngutúra í hádeginu,“ segir hann

Tungumelar eru austan við Vestur-landsveg við rætur Mosfells í fögru umhverfi milli Köldukvíslar og Leir-vogsár. Frá Tungumelum er stutt í alla þjónustu. Óspillt náttúra er einnig skammt undan og margvíslegir möguleikar á útivist og afþreyingu í næsta nágrenni.

Allar nánari upplýsingar um svæðið má finna á vefsíðunni www.tungumelar.is

LEIRVOGSÁ

KALDAKVÍSL

ODDSBREKKUR

LEIRVOGSTUNGA

VESTURLANDSVEGUR

NGUSTÍG

UR

GÖNGUSTÍGURREIÐGATA

HVERFISVERND

REIÐGATA

BRÚ

GÖNGUSTÍGUR

NG

USTÍG

UR

NG

USTÍG

UR

RK HELGUNARSVÆ

ÐIS ÞJÓÐVEG

AR

RK H

ELG

UNA

RSV

ÆÐ

IS Þ

JÓÐ

VEG

AR

GÖNGUSTÍGUR

REIÐGATA

FOSSAVEGUR

BRÚARFLJÓT

BUG

ÐUF

LJÓ

T

BUGÐUFLJÓT

BUGÐUFLJÓT

2

4

6

8

1

3

5

7

1

3

5

7

9

11

2

4

613

15

1719

219.252m²

N=0,5 H=18m

33.179m²

N=0,4 H=14m

12.503m²

N=0,3 H=10m

6.108m²

N=0,3 H=10m

3.872m²

N=0,3 H=10m

15.891m²

N=0,3 H=10m

4.157m²

N=0,4 H=14m

6.009m²

N=0,4 H=14m

10.824m²

N=0,4 H=14m

4.583m²

N=0,4 H=14m

6.397m²

N=0,4 H=14m

5.719m²

N=0,4 H=14m

6.103m²

N=0,4 H=14m

8.788m²

N=0,5 H=18m

6.455m²

N=0,5 H=18m

7.726m²

N=0,5H=18m

8.146m²

N=0,5 H=18m

5.564m²

N=0,3 H=10m

4.802m²

N=0,3 H=10m

9.628m²

N=0,4 H=14m

9.343m²

N=0,4 H=14m

10.968m²

N=0,4 H=14m

4.583m²

N=0,4 H=14m

N=0,8 H=16m

2

1

3

5

9

N=0,8 H=16m

N=0,8 H=16m

N=0,8 H=16m

N=0,8 H=16m

EFRAFLJÓT

26.023 m²

13.225 m²

12.760 m²

12.100 m²

12.808 m²

15.149 m²

N=0,8 H=16m

4

15.752 m²

N=0,8 H=16m

6

17.905 m²

N=0,8 H=16m

8

7

N=0,8 H=16m14.532 m²

16.611 m²

N=0,8 H=16m

14

FOSSAVEGUR

11.077 m²

N=0,8 H=16m

1011.587 m²

N=0,8 H=16m

12

15.101 m²

N=0,8 H=16m

16

SVÆÐI A2

SKIPULAG Í VINNSLU

MÖRK SKIPULAGSSVÆÐIS

H

N

HÁMARKSHÆÐ HÚSA

HÁMARKS NÝTINGARHLUTFALL

HLUTI AÐALSKIPULAGS MOSFELLSBÆJAR 2002 - 2024

N

1:2000100 m806040200

LÓÐIR

BINDANDI BYGGINGARLÍNA

LÓÐAMÖRK

BYGGINGARREITUR

TÍÐNI VINDÁTTA 28.08.1997 - 17.05.2000, ALLIR MÁNUÐIR

GRÓIN SVÆÐI INNAN LÓÐA

SKÝRINGAR :

REIÐGÖTUR

GANGSTÉTTIR OG GÖNGUSTÍGAR

OPIN SVÆÐI

AKBRAUTIR

VERKNR: TEIKN.NR:

TEIKNING:

VERK:

STAÐUR:

TEIKNAÐ:

MÆLIKVARÐI:

TUNGUMELAR

DEILISKIPULAGTILLAGA

1

AFSTÖÐUMYNDLÓÐARMÖRK

MOSFELLSBÆR

Ístak flutt á Tungumela í Mosfellsbæ í 5000 fermetra hús:

Tuttugu atvinnulóðir í yfirstærð á Tungumelum

Ljóslitaða svæðið við Leirvogsá er fyrsti áfangi verkefnisins og þar eru samtals 22 lóðir. Ístak hefur nýtt tvær þeirra og eru því tuttugu lóðir til-búnar til umsóknar. Blálitaða svæðið við Köldukvísl er áfangi tvö og er það svæði í aðalskipulagsferli. Þar verða þrettán stórar lóðir til úthlutunar.

Kolbeinn Kolbeins-son, framkvæmda-stjóri Ístaks í fyrsta húsinu sem reist var á tungumelum. Ístak er þar með sína starfsemi í stærsta húsi sem byggt hefur verið í sveitarfélaginu Mosfellsbæ.

Í fyrra vorum við með um 600 milljónir króna í hagnað fyrir skatta og veltan hjá okkur þessi ár hefur verið í kringum 20 milljarða.

6 Laugardagur 15. júní 2013

Page 7: Möguleikar í Mosfellsbæ

7

Í Mosfellsbæ er nú óðum að taka á sig mynd Ævintýragarður með áherslu á hreyfingu, leik og náttúru. Undanfarin ár hefur verið unnið að uppbyggingu garðsins í Ullarnes-brekkum í samræmi við samþykkt bæjar-stjórnar á 20 ára afmæli Mosfellsbæjar. Þrátt fyrir efnahagsþrengingar í þjóðfélaginu hafa bæjaryfirvöld lagt á það áherslu að halda uppbyggingu garðsins áfram og nú þegar hefur verið ráðist í margvíslegar fram-kvæmdir í garðinum.

Þar sem garðurinn er byggður upp frá grunni hefur verið lögð áhersla á uppbygg-ingu stíga og gróðurs síðustu ár. Sú vinna er nú að verða sýnilegri og merkum áfanga var náð þegar fyrstu leiktækin voru sett niður í garðinum á þessu ári.

Búið er að leggja malbikaðan og upplýstan aðalstíg sem liggur í gegnum allan garðinn, frá íþróttasvæðinu við Varmá að Leirvog-

stungu, með rósatorgi í miðjunni og göngu-brúm við hvorn enda. Með honum er aðgengi að svæðinu orðið gott og allar samgöngur fótgangandi og hjólreiðamanna milli mið-bæjarsvæðisins og Leirvogstungu mun betri en áður var. Lagður hefur verið Ætistígur með fjölmörgum tegundum ætiplantna þar sem gert er ráð fyrir að gestir og gangandi geti gætt sér á ólíkum tegundum plantna og afurða þeirra úr íslenskri náttúru. Ætistígur verður án efa vinsæll áfangastaður fyrir Mos-fellinga og gesti þegar líður á sumarið.

Jafnframt hafa verið settir upp bekkir og ruslafötur meðfram göngustígunum.

Síðastliðið sumar var sett upp fræðslu-skilti um Ævintýragarðinn við innkomuna að sunnanverðu frá íþróttasvæðinu við Varmá. Fræðsluskiltið sýnir verðlauna-tillögu Landmótunar um skipulag Ævin-týragarðsins og hvernig uppbygging er

fyrirhuguð í garðinum á næstu misserum. Í framtíðinni er gert ráð fyrir að aðal tjald-svæði bæjarins verði í ævintýragarðinum og sérstakt svæði verður hannað sem hátíðar-

svæði þar sem hægt verður að standa fyrir ýmiskonar dagskrá.

Næg bílastæði eru við íþróttasvæðið að Varmá fyrir þá sem koma lengra að.

Laugardagur 15. júní 2013

Einar Páll Kjærnested er löggiltur fasteignasali hjá Fasteignasölu Mosfells-bæjar sem hefur ásamt fleirum fengið umboð til

að annast sölu á þeim lóðum sem nú eru að koma í sölu í sveitarfélaginu. Einar Páll telur að tíminn sé réttur fyrir þetta verkefni. Verktakar eru að taka við sér og almennt er bjartsýni að aukast á byggingamarkaði og í þjóðfélaginu almennt.

„Fasteignasala í Mosfellsbæ hefur verið mjög lífleg allt þetta ár og sl. mánuði hefur eftirspurn eftir lóðum og hálfbyggðum húsum verið góð. Það er ekkert launungamál að fyrstu þrjú árin eftir hrun voru erfið hérna, bæði vegna þess að fasteignamark-aðurinn dróst mikið saman og ekki bætti úr skák að tvö helstu bygg-ingarsvæðin í bænum voru í mikilli óvissu. Nú hefur þessari óvissu verið eytt með samningum við Mosfellsbæ og við höfum fundið fyrir mikilli jákvæðni varðandi þessi svæði síðastliðnar vikur. Fasteignaverð í Mosfellsbæ hefur verið mjög sam-bærilegt við önnur úthverfi höfuð-borgarinnar, eins og t.d. Grafarvog-inn og Grafarholt,“ segir Einar Páll og viðurkennir fúslega að hann er virkilega bjartsýnn varðandi þau tvö byggingasvæði sem nú eru að fara í gang í Mosfellsbæ. Annars vegar er um að ræða Helgafellslandið og hins vegar byggðin í Leirvogstungu. En eru þetta ekki ólík svæði?

Helgafellslandið – þúsund íbúða byggð

„Jú það má segja að þessi hverfi séu mjög ólík hvað varðar skipulag. Í landi Helgafells er gert ráð fyrir ríflega

eitt þúsund íbúða byggð þegar hverfið verður fullbyggt. Þarna verður fjöl-breytt úrval af lóðum undir einbýlis-hús, raðhús, fjórbýlis- og hefðbundin fjölbýlishús. Við verðum þarna með 50 lóðir undir einbýlishús og þarna er hægt að finna bæði lóðir á mjög hagstæðu verði og mjög fallegar stað-setningar í jaðri byggðar. Raðhúsin og fjórbýlishúsin henta vel minni verktökum og ég er sannfærður um að þarna gefist gott tækifæri til að hanna hentug hús sem markaðurinn

er að biðja um. Fjölbýlishúsin eru flest þrigga hæða auk bílakjallara og á svæðinu er gert ráð fyrir lóðum fyrir 16 - 32 íbúða fjölbýlishús. Ekkert hefur verið byggt af fjölbýlishúsum í Mos-fellsbæ í fimm ár og því orðin mikil vöntun á 2 - 5 herbergja íbúðum hér í bænum. Í Helgafelli er gert ráð fyrir bæði skóla og leikskóla, en auk þess er tenging við Varmárskólasvæðið og íþróttasvæðið að Varmá mjög góð.

Leirvogstunga – eingöngu sérbýliÍ landi Leirvogstungu er skipulögð 400 íbúða byggð, allt undir sérbýlis-hús. Nú þegar er búið að reisa um það bil 1/3 hluta hverfisins, en hluti húsanna eru enn í byggingu. Þarna er hægt að fá lóðir á mjög hagstæðu verði. Við erum þarna með í sölu 650-900 m2 lóðir undir einbýlishús

á einni til tveimur hæðum, auk rað-húsalóða. Á síðastliðnum mán-uðum hafa selst mörg hálfbyggð hús í hverfinu og mikið líf hefur færst í hverfið. Þarna eru fyrst og fremst einstaklingar að kaupa sér lóðir eða hús til reisa sér þak yfir höfuðið. Í Leirvogstungu er kominn leikskóli og sveitarfélagið er að undirbúa byggingu tengivegar yfir Köldukvísl sem mun tengja hverfið mjög vel við miðbæjarsvæðið og ekki síst við íþróttasvæðið að Varmá.“

Mosfellsbær hefur mikla sérstöðuEinar Páll Kjærnested er sjálfur rótgróinn og uppalinn Mosfellingur. Þetta er bærinn hans og hann sjálfur vill hvergi annars staðar vera. Er það ekki rétt?

„Jú. Í Mosfellsbæ er frábært að vera. Hér er mjög gott að ala börnin upp í rólegu og vinalegu umhverfi. Ég hef oft gagnrýnt málfluttning spekinga á markaðnum sem tala gjarnan um það hve góð sala eigi að vera miðsvæðis í höfuðborginni, því hvað er betra eftir erfiðan dag í vinnunni en að keyra í 7-12 mínútur út úr skarkalanum og upp í Mosfellsbæ og njóta útiverunnar og friðsemdarinnar.

Að mínu mati hefur Mosfellsbær haft mikla sérstöðu á höfuðborgar-svæðinu síðastliðna áratugi, en hún liggur í því að hlutfall sérbýlis

í bænum er miklu hærra en í öðrum sveitarfélögum hér í kring. Hér er byggðin mun dreifðari og lágreist-ari og umhverfið því grænna og vinalegra.

Hér er öll þjónusta og meira í boði en í hefðbundnum hverfum til að mynda í Reykjavík. Öll áhugamál er auðvellt að stunda og mikið hefur verið lagt upp úr því að tryggja gott aðgengi að golfvöllum, hvers konar útvist og hér er öflugt hestamanna-

félag með frábæra aðstöðu. Hérna eru fallegar göngu- og hlaupaleiðir upp á Úlfarsfell, Mosfell, Helgafell, upp með Varmánni og inn í Mosfellsdal. Það ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi í Mosfellsbæ. Ég hvet alla áhuga-sama til að kíkja við hjá okkur upp á 6. hæðina í Kjarnanum hérna í miðbæ Mosfellsbæjar og þar er hægt að virða fyrir sér bæði þessi byggingarlönd og sjá með eigin augum hvað bærinn hefur upp á bjóða.“

Ævintýragarður fyrir alla fjölskylduna tekur á sig mynd:

Fyrstu leiktækin komin á sinn stað – áhersla á hreyfingu, leik og náttúru

Í Leirvogstungu er kominn leikskóli og sveitarfélagið er að undirbúa byggingu tengivegar yfir Köldukvísl sem mun tengja hverfið mjög vel við miðbæjarsvæðið og ekki síst við íþróttasvæðið að Varmá.

Einar Páll segir aðstöðu til allrar útivistar góða. Sjálfur leggur hann stund á hlaup meðal annars. LjóSMynd RutH ÖRnóLfSdóttiR

Krakkar að leik í Ævintýragarðinum. fyrstu leiktækin eru komin á sinn stað. Í garðinum er lögð áherslu á hreyf-ingu, leik og náttúru.

Tvö af stærstu byggingasvæðum landsins eru staðsett í Mosfellsbæ:

Helgafellsland og Leirvogstungatilbúin í sölun Óvissunni loksins eytt n Þúsund íbúðabyggð í Helgafellslandi n Fjögur hundruð sérbýlishús í Leirvogstungu n Núna er rétti tíminn fyrir verktaka og húsbyggjendur

Page 8: Möguleikar í Mosfellsbæ

8 laugardagur 15. júní 2013

Í Mosfellsbæ hafa síðustu misseri staðið yfir umtalsverðar bygg-ingaframkvæmdir og mikil upp-bygging á vegum bæjarins. Í þeirri lægð sem einkennt hefur

efnahagslífið hefur Mosfellsbær verið að byggja upp til framtíðar. Á allra næstu dögum verður fullbúið nýtt 30 rýma hjúkrunarheimili og nú þegar

hefur endurbætt og stækkuð þjónustu-miðstöð fyrir eldri borgara verið tekin í notkun sem bætir þjónustu við þann aldurshóp til mikilla muna. Nýr fram-haldskóli bæjarins FMos sem stofnað-ur var árið 2009, flytur inn í glæsilegt framtíðarhúsnæði í ársbyrjun 2014 þegar nýtt skólahús við Háholt verður formlega fullgert. Í fyrsta áfanga sem

lýkur á þessu ári var miðað við að 4 – 500 bóknámsnemendur gætu stundað nám við skólann. Stefnt er að því að byggingin fái BREEAM vottun, sem er alþjóðleg umhverfisvottun fyrir bygg-ingar. Með BREEAM vottun er stuðlað að vistvænni byggingu, aukinni vel-líðan notenda og lægri rekstrarkostn-aði til framtíðar. Einnig er nú unnið að

því að bæta enn frekar aðstöðu fyrir íþróttaiðkendur. Framkvæmdir eru hafnar við nýtt íþróttahús á Varmárs-væðinu sem mun meðal annars hýsa fimleika og bardagaíþróttir. Þessar byggingar eru samtals ríflega átta þúsund fermetrar og áætlað er að fjár-festing við þær nemi um 2,5 milljörð-um króna.

Í fyrsta áfanga sem lýkur á þessu ári var miðað við að 4 – 500 bóknámsnemendur gætu stundað nám við skólann.

Fjölskyldufellin í Mosfellsbæ eru spennandi áskorun fyrir alla fjöl-skylduna þar sem bæði stórir og smáir fá tækifæri til þess að takast á við náttúruna í heillandi umhverfi. Fjölskyldufellin eru sjö talsins og miskrefjandi fyrir smáa fætur. Ef fjölskyldan er að byrja í fjall-göngum eða meðlimir hennar enn smáfættir er mælt með því að hefja ferilinn á fellunum þremur sem eru í jaðri Mosfellsbæjar; Úlfarsfell, Helgafell og Mosfell en þau bjóða upp á spennandi möguleika og eru mjög aðgengileg.

Hin fjögur fellin sem henta fyrir lengra komna eru Reykjaborg á Hádegisfelli, Reykjafell, Æsustaðafjall og Grímannsfell sem er hæst þeirra 484 m.y.s.

Skátafélagið Mosverjar hefur unnið að stikun gönguleiða á úti-vistarsvæði Mosfellsbæjar og einnig gefið út veglegt göngukort með ýmsum fróðleik um svæðið.

Hægt er að nálgast kort af leiðunum á heimasíðu Mosfellsbæjar http://www.mos.is/MosTorgid/UmMosfellsbaeogkort/

Tilvalið er að taka með sér gott nesti og njóta útivistarinnar í góðum félagsskap og láta svo þreytuna líða úr sér í annarri af tveimur sund-laugum bæjarins.

Fyrir þá sem vilja fá verulega áskorun þá verður haldið 7 tinda hlaup í tengslum við bæjarhátíðina Í túninu heima þann 31.ágúst. Hlaupið er krefjandi utanvegahlaup en boðið verður upp á fjórar vegalengdir.

Ef fjölskyldan er að byrja í fjallgöngum eða meðlimir hennar enn smáfættir er mælt með því að hefja ferilinn á fellunum þremur sem eru í jaðri Mosfellsbæjar; Úlfarsfell, Helgafell og Mosfell.

Mosfellsbær - fyrsta heilsueflandi samfélagið á Íslandi

7 tindar - fjölskyldufellin í Mosfellsbæ

Endalausir möguleikar – hlaupaleiðir og stígarÞetta kort má finna í heild sinni inni á heimasíðu Mosfellsbæjar http://www.mos.is/MosTorgid/UmMosfellsbaeogkort/ Leiðirnar eru allt frá því að vera ör-stuttar upp í að vera hátt í maraþon. Á kortinu ættu allir að geta fundið leið við sitt hæfi, hvort sem fólk er að byrja að hreyfa sig eða stundar krefjandi hlaup reglulega. Á síðunni má einnig finna fjölmörg önnur kort sem gagnast útivist-arfólki í lengri og styttri ferðum.

Vegalengdir » 7 tinda hlaup 37 km » 5 tinda hlaup 34 km

» 3 tinda hlaup 19 km » 1 tinda hlaup 12 km

Heilsueflandi samfélag er samstarfsverkefni Mosfells-bæjar, heilsuklasans Heilsuvinjar og Embættis land-læknis. Markmið verkefnisins er að nýta fjölbreyttar, markvissar og heildrænar lýðheilsuaðgerðir til að auð-velda fólki á öllum æviskeiðum að taka heilsusamlegar ákvarðanir og lifa heilbrigðu lífi.

Unnið hefur verið að mótun verkefnisins frá því á haustmánuðum 2012 og í sumar mun koma út grein-ingarskýrsla sem gefur upplýsingar um núverandi stöðu mála í sveitarfélaginu. Það er mikil áskorun að innleiða heilsueflingu fyrir heilt samfélag. Þeirri áskorun hefur verið tekið fagnandi í heilsubænum Mosfellsbæ enda

er hún algerlega í takti við stefnu bæjarins í lýðheilsu-málum.

Helstu áhersluþættir verkefnisins verða næring, hreyfing, líðan og lífsgæði í víðum skilningi. Innleið-ing verkefnisins mun taka að minnsta kosti fjögur ár. Unnið verður með einn áhersluþátt í senn en markviss stígandi verður í umfangi verkefnisins þar sem alltaf verður byggt ofan á þær stoðir sem fyrir eru.

Heilsueflandi samfélag er gríðarlega mikilvægt þró-unarverkefni þar sem samfélagið í Mosfellsbæ vinnur þarft brautryðjendastarf sem getur nýst í öðrum sveitar-félögum sem vilja taka þátt í viðlíka verkefni.

Bæjarblað á 3ja vikna frestiMosfellingur er bæjarblaðið í sveitarfélaginu og það kemur út 3ju hverju viku. Blaðið er veglegt og ritstýrt af Hilmari Gunnars-syni. Mosfellingur er alhliða fréttablað og vettvangur skoð-anaskipta í Mosfellsbæ.

Kreppan stöðvaði ekki framkvæmdir í Mosfellbæ:

Nýr framhaldsskóli um áramót og nýtt hjúkrunarheimili í sumar