landmótun – vatnið og landið

50
Hringrás vatns Grunnvatn Landmótun Flokkun áa Fossar Landmótun – vatnið og landið

Upload: roscoe

Post on 26-Jan-2016

112 views

Category:

Documents


2 download

DESCRIPTION

Landmótun – vatnið og landið. Hringrás vatns Grunnvatn Landmótun Flokkun áa Fossar. Hringrás vatns á jörðinni. Hringrás vatns. Vatn gegnir stóru hlutverki í landmótun. Líkt og aðrir þættir landmótunar er hringrás vatns knúin af sólarorku. Sólin “dælir” vatni upp í lofthjúpinn. - PowerPoint PPT Presentation

TRANSCRIPT

Page 1: Landmótun – vatnið og landið

Hringrás vatnsGrunnvatnLandmótunFlokkun áaFossar

Landmótun – vatnið og landið

Page 2: Landmótun – vatnið og landið

Hringrás vatns á jörðinni

Page 3: Landmótun – vatnið og landið

Hringrás vatnsVatn gegnir stóru hlutverki í landmótun.Líkt og aðrir þættir landmótunar er hringrás

vatns knúin af sólarorku. Sólin “dælir” vatni upp í lofthjúpinn.

Höfin geyma stærstan hluta vatns á jörðinni. Þar á eftir koma jöklar og grunnvatnsgeymirinn.

Neðan við 3 km dýpi í jarðlögum er þrýstingur orðinn það hár að holrými í jarðlögum lokast.

Grunnvatn, olía og annar vökvi er því bundinn við efstu 3 km jarðskorpunnar.

Page 4: Landmótun – vatnið og landið
Page 5: Landmótun – vatnið og landið

Grunnvatn og grunnvatnsgeymir

Page 6: Landmótun – vatnið og landið

LandmótunFræðigrein sem fjallar um ferli sem móta

landslag – yfirborð jarðskorpunnar.Landmótun er gjarnan skipt í; veðrun, rof

og setmyndun.Landmótun er knúin af sólarorku. Oft kallað

útræn öfl til aðgreiningar frá innrænum öflum sem eru ferli sem drifin eru af hrörnun geilsavirkra efna inni í jörðinni.

Page 7: Landmótun – vatnið og landið

LandmótunVeðrun – lýsir niðurbroti jarðlaga.Rof – lýsir flutningi jarðlags sem hefur

veðrast. Oft óljós skil milli veðrunar og rofs.

Setmyndun – efni sem hefur rofist og sest til - rofi lýkur við setmyndun.

Page 8: Landmótun – vatnið og landið

VeðrunVeðrun lýsir niðurbroti bergs – jarðlags.Veðrun er ýmist aflveðrun, efnasamsetning

breytist ekki, eða efna-veðrun, efnasamsetning breytist.

Hér á landi var lengi talið að efnaveðrun væri lítil samanborið við heitari lönd en nú er ljóst að hún er mikil.

Page 9: Landmótun – vatnið og landið

Efnaveðrun

Page 10: Landmótun – vatnið og landið

EfnaveðrunVerður við efnahvörf milli jarðlaga og vatns.Lengi talið að efnaveðrun væri nær engin á

Íslandi.Nú er talið að hún sé með því mesta sem

gerist í heiminum.Efnaveðrun hér að miklu leiti bundin við

háhitasvæði. Móberg veðrast hraðar en annað berg.

Page 11: Landmótun – vatnið og landið

Aflveðrun

Page 12: Landmótun – vatnið og landið

Aflveðrun á ÍslandiAflveðrun lýsir molnun bergs án þess að

efnahvörf eigi sér stað.Aflveðrun verður fyrir tilstuðlan vatns er

frýs og þiðnar á víxl. Er ráðandi hér og kallast frostveðrun.

Aflveðrun getur orðið fyrir tilstuðlan róta plantna sem þrengja sér inn í sprungur í bergi.

Page 13: Landmótun – vatnið og landið

Almenningaskarð á Hornströndum

Page 14: Landmótun – vatnið og landið

RofRof lýsir flutningi efnis frá veðrunarstað.Oft er rof flokkað eftir roföflum; sjávarrof,

árrof, jökulrof, vindrof, hrun og jarðsil.Oft getur verið erfitt að greina milli

veðrunar og rofs, hvenær veðrun sleppir og rof tekur við.

Page 15: Landmótun – vatnið og landið

Hlíðar St. Helenu eftir gos 1980

Page 16: Landmótun – vatnið og landið

Sami staður ári síðar

Page 17: Landmótun – vatnið og landið

RofHér á landi hefur rof orðið vegna jökla en á

síðustu árþúsundum hafa jökulár grafið djúp gljúfur (t.d. Jökulsá á Brú og Jökulsá á Fjöllum).

Vindrof er nokkuð á gosbeltunum sérstaklega norðan Vatnajökuls.

Sjávarrof er að mestu bundið við ákveðin svæði eins og í Melabökkum og Ásbökkum.

Page 18: Landmótun – vatnið og landið

Gígjökull flæðir norður úr Eyjafjallajökli

Page 19: Landmótun – vatnið og landið

Þversnið af daljökli/skriðjökli

Page 20: Landmótun – vatnið og landið

JökulrofBergmylsna fellur á

ísinn af fjalllendi sem jökullinn skríður um.

Öskulög falla á yfirborð jökulsins og berast niður að botni hans.

Rof verður við það að bergmolar dragast eftir berggrunninum.

Page 21: Landmótun – vatnið og landið

JökulrofJökullinn hvílir með þunga sínum á

bergmylsnunni.Jökulfargið er mest þar sem ísinn er

þykkastur og þar verður rofið því mest.Jökulsorfnir dalir eru því U-laga.Bergmylsnan molnar niður um leið og hún

sverfur bergið undir ísnum. Jökullinn skilar því fínum salla fram við jaðar íssins.

Page 22: Landmótun – vatnið og landið

Jökulrof er að mestu bundið við skriðjökla

Page 23: Landmótun – vatnið og landið

Jöklar hörfa við hlýnandi loftslag. Eftir stendur jökulsorfið land.

Page 24: Landmótun – vatnið og landið

Jökulgarðar myndast við enda og jaðra skriðjökla.

Page 25: Landmótun – vatnið og landið

Rof á ÍslandiUpphleðsla er það mikil á gosbeltunum að

rofs gætir þar lítið.Utan gosbeltanna er upphleðsla engin og

rof allsráðandi. Landslag er þar mótað af jökulrofi, dalir og

firðir eru jökulsorfnir.Undir núverandi jöklum er rof og þar er að

verða til landslag svipað því sem sést utan gosbeltanna!

Page 26: Landmótun – vatnið og landið
Page 27: Landmótun – vatnið og landið

Flokkun áa

• Ár eru flokkaðar eftir uppruna vatnsins í : Lindár, dragár og jökulár.

• Lindár koma úr grunnvatnsgeyminum.

• Dragár eru rennsli af yfirborði.

• Jökulár eru leysingavatn jökla.

• Rennsli ánna draga dám af uppruna vatnsins.

Page 28: Landmótun – vatnið og landið

28

Rennslishættir lindáa, jökuláa og dragáa

Page 29: Landmótun – vatnið og landið

Lindár

Helstu einkenni:

- augljós upptök

- jafnt rennsli allt árið

- stöðugt hitastig

- leggur seint í frostum

- grónir bakkar

Page 30: Landmótun – vatnið og landið

Laxá í S-Þingeyjarsýslu hefur einkenni lindáa

Ár og landmótun 30

Page 31: Landmótun – vatnið og landið

Dragár

Helstu einkenni:

- óljós upptök

- óreglulegt rennsli

- hitastig breytilegt

- leggur fljótt í frostum

- flóðbakkar og ógrónir bakkar

Page 32: Landmótun – vatnið og landið

32

Öxnadalsá

Page 33: Landmótun – vatnið og landið

Jökulár

33

Helstu einkenni:

- koma undan jökuljöðrum

- miklar árstíðabundnar sveiflur í rennsli

- dægursveifla í rennsli

- mjög gruggugar

- kvíslóttur farvegur og gljúfur

- ósar þeirra einkennast af söndum

Page 34: Landmótun – vatnið og landið

Jökulá

34

Jökulsá á Fjöllum

Page 35: Landmótun – vatnið og landið

35

Þjórsá

Page 36: Landmótun – vatnið og landið

Jökulhlaup

Í jökulár koma stundum skyndileg flóð sem kallast jökulhlaup.

- jökulhlaup frá jaðarlónum.

- jökulhlaup frá háhitasvæðum.

- jökulhlaup frá gosum undir jökli.

Page 37: Landmótun – vatnið og landið

Jökulhlaup frá jaðarlóni

Ár og landmótun 37

Ef skriðjökull lokar mynni íslauss þverdals safnast vatn í dældina og þegar það er orðið nógu hátt flýtur jökullinn upp og vatnið brýst út undan jöklinum. Þekktust jökul-hlaupa af þessari gerð eru hlaupin úr Grænalóni.

Page 38: Landmótun – vatnið og landið

Jökulhlaup frá háhitasvæðum.

Háhitasvæði eru undir stóru Vatnajökli. Jarðhitinn bræðir jökulinn neðanfrá og stundum safnast vatnið fyrir í dældum undir ísnum. Að lokum kemur að því að jökullinn flýtur upp og vatnið brýst fram í jökulhlaupi. Í kjölfarið myndast miklir sig-katlar í jöklinum. Þekktustu jökulhlaup af þessari gerð eru úr Grímsvötnum og í Skeiðará.

Page 39: Landmótun – vatnið og landið

Jökulhlaup frá gosum undir jökli.

Í eldgosi undir jökli bræðir kvikan jökulinn uns leysingavatnið nær að lyfta jöklinum og brjóta sér leið fram. Mikið eðjuhlaup kom niður á Mýrdalssand í kjölfar gossins 1918.

Þriðjudaginn 5. nóvember 1996, þremur vikum eftir lok gossins í Gjálp, varð mikið hlaup á Skeiðarársandi.

Ár og landmótun

Page 40: Landmótun – vatnið og landið

Árrof

40

Page 41: Landmótun – vatnið og landið

Framburður vatnsfalla

Framburður vatnsfalla

- Svifaur: Fínkorna set í grugglausn í árvatninu

- Botnskrið: Grófkorna set sem dregst með skoppar eftir árbotninum.

Page 42: Landmótun – vatnið og landið

Skessuketill

Hringiður myndast yfir holum og skorum í árbotninn. Þessar holur eru jafnan hálf fullar af möl og grjóti sem hringiðurnar hræra í.

Þessi stöðuga hringhreyfing malarinnar slípar innan holurnar þannig að þær verða djúpar, ávalar að innan og kallast skessukatlar.

Mölin í holunni slípast og setkornin verða hnöttótt.

Page 43: Landmótun – vatnið og landið

Árset

Ár og landmótun 43

Við árósa dettur straumhraðinn niður og þar fellur allt setið til botns. Við það byggjast upp óshólmar sem með tímanum geta skagað talsvert úr. Setið er lagskipt og skáhallandi, fínt efni fellur til í eðlilegu rennsli en í flóðum verða lögin grófari. Efst er þó setið jafnan fínt og lögin lárétt.

Page 44: Landmótun – vatnið og landið

44

Ósar Eyjafjarðarár

Page 45: Landmótun – vatnið og landið

Aurkeila

45

Snjóflóð og aurflóð bera efni niður úr gilkjöftum þar sem það byggir smátt og smátt upp aurkeilur.

Page 46: Landmótun – vatnið og landið

Fossar

Fossar verða til þar sem ár falla fram af stalli í farvegi sínum. Landslag á Íslandi er mjög ungt ef miðað er við jarðsöguna í heild. Hér er auk þess mikil úrkoma og mikið af stórum og smáum ám og lækjum sem falla ofan í dali sem skriðjöklar ísaldarinnar hafa grafið í bergstaflann.

Fossberi er hart jarðlag oft með veikara lagi undir. Veika lagið kallast þá fossvaldur.

GlymurAldeyjarfoss

Page 47: Landmótun – vatnið og landið

Helstu gerðir fossa Höggunarfossar verða til vegna

höggunar (misgengja) og brota í berggrunninum. Öxarárfoss og Gullfoss eru dæmi um höggunarfossa. Gullfoss hefur myndast þar sem tvær misgengissprungur skerast í kross.

Roffossar eru þeir fossar nefndir sem eru eingöngu myndaðir við rof af einhverju tagi. Strútsfoss í Strútsá fellur ofan í jökulsorfin dal líkt og hefur því myndast líkt og flestir fossar á Íslandi.

Stíflufossar eru fossar sem myndast hafa við náttúrulegar stíflur af einhverju tagi t.d. þegar hraunstraumur rennur þvert yfir árfarveg eða eftir honum. Goðafoss er stíflufoss sem myndaðist þegar hraun rann niður Bárðardal.

Goðafoss

Gullfoss

Strútsfoss

Page 48: Landmótun – vatnið og landið

Landmótun vatnsfalla

Gil og gljúfur myndast fyrst og fremst í vatnavöxtum í dragám og jökulám og mestu gljúfrin í jökulhlaupum.

Með tímanum hrynja gilbarmarnir og farvegurinn verður í laginu eins og bókstafurinn Y og loks eins og bókstafurinn V.

Þegar lengra líður víkkar v-ið og áin myndar sléttlendi sem hún bugðast um.

ungt landslag

þroskað landslag

Page 49: Landmótun – vatnið og landið

Ungt landslag

Merkigil í Skagafirði

Dimmugljúfur

Page 50: Landmótun – vatnið og landið

Frostveðrun veldur því að með tímanum hrinur úr börmum gljúfranna sem árnar grafa og þau fara að líkjast bókstafnum - Y. Framhaldið verður síðan V-laga form (jöklar mynda U-laga form). Hér á landi er lítið um V-laga dali því flestir dalir eru jökulsorfnir og aðeins 10.000 ár síðan árnar urðu einráðar um myndun sýnilegra dala.