kjarni skátastarfs
DESCRIPTION
ÂTRANSCRIPT
1 | Kjarni skátastarfs
skátastarfsKjarni
2 Kjarni skátastarfs |
Kjarni skátastarfs© Bandalag íslenskra skáta
Bandalag íslenskra skáta, Reykjavík 2013
Ritstjórn: Benjamín Axel Árnason og Ólafur Proppé
Aðstoð við þýðingar og textagerð: Ása Sigurlaug Harðardóttir
Útlitshönnun og umbrot: Birgir Ómarsson og Guðmundur Pálsson
Prentun: Litlaprent
Bókin er að hluta til þýdd og staðfærð útgáfa bókarinnar The Essential Characteristics of Scouting
sem gefin var út af the World Organization of the Scout Movement (WOSM) í september 1998.
Ljósmyndir: Ljósmyndir eru úr ljósmyndasafni BÍS og er ljósmyndurum þakkað framlag til þessarar bókar.
1. prentun nóvember 2013.
Öll réttindi áskilin.
Bók þessa má ekki afrita með neinum hætti, svo sem með ljósmyndun, prentun, hljóðritun eða á annan
sambærilega hátt, að hluta til eða í heild, án skriflegs leyfis ritstjóra og útgefanda.
ISBN: 978-9979-850-28-1
Bandalag íslenskra skátaHraunbæ 123 – 110 ReykjavíkSími: 550 9800 – [email protected] – www.skatar.is
3 | Kjarni skátastarfs
Skátahreyfingin er uppeldishreyfing
Grunngildi skátahreyfingarinnar
Skátaaðferðin
Skátastarf á Íslandi
Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi
Upphaf og saga skátastarfs
Skátastarf er markviss menntun
skátastarfsKjarni
4 Kjarni skátastarfs | Efnisyfirlit
Efnisyfirlit
Inngangur .........................................................................................................................................6
Skátahreyfingin er uppeldishreyfing ................................................................................................7
Menntakerfi skátahreyfingarinnar ..........................................................................................................9
Grunngildi skátahreyfingarinnar ....................................................................................................11
Samfélagsleg grunngildi skátahreyfingarinnar .....................................................................................12
Siðferðileg grunngildi skátahreyfingarinnar ..........................................................................................14
Aðferðafræðileg grunngildi skátahreyfingarinnar .................................................................................17
Skátaaðferðin .................................................................................................................................18
Lykilþættir Skátaaðferðarinnar .............................................................................................................18
„Hverjir” ...........................................................................................................................................19
„Hvað“ ..............................................................................................................................................19
„Hvernig“ .........................................................................................................................................21
Skátaaðferðin í framkvæmd ................................................................................................................24
Skátaflokkurinn ..................................................................................................................................29
Skátasveitin ....................................................................................................................................... 30
Uppbygging skátasveitarinnar .............................................................................................................33
5Efnisyfirlit | Kjarni skátastarfs
Skátastarf á Íslandi ........................................................................................................................36
Upphaf skátastarfs á Íslandi ...............................................................................................................36
Skipulag skátastarfs á Íslandi ..............................................................................................................37
Bandalag íslenskra skáta .....................................................................................................................37
Skátafélög ..........................................................................................................................................38
Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi .............................................................................................39
Mikilvægi sjálfboðaliða .......................................................................................................................39
Eitt sinn skáti, ávallt skáti ...................................................................................................................40
Engin þörf á að hafa verið skáti sem barn eða unglingur ....................................................................40
Fjölgun fullorðinna sjálfboðaliða .........................................................................................................41
Af hverju velja fullorðnir að taka þátt í skátastarfi? ..............................................................................41
Leiðtogaþjálfun fyrir fullorðna sjálfboðaliða .....................................................................................42
Upphaf og saga skátastarfs............................................................................................................44
Robert Baden-Powell ..........................................................................................................................45
Skátahreyfingin verður til ....................................................................................................................45
Skátahreyfingin um víða veröld ...........................................................................................................47
Lokaorð ..........................................................................................................................................48
6 Kjarni skátastarfs | Inngangur
Inngangur
Ritið Kjarni skátastarfs er skrifað fyrir alla sem hafa áhuga á að kynna sér þá hugmynda- og
aðferðafræði sem skátahreyfingin um víða veröld byggir á. Efnið á erindi við alla sem hafa áhuga á
uppeldi og menntun ungs fólks og því hvernig lífsleikni og samfélagsvitund getur eflt einstaklinginn
og bætt hvert samfélag.
Skátahreyfingin er uppeldishreyfing sem stefnir að því að hver skáti læri smám saman á þroskaferli
sínum frá barnsaldri til fullorðinsára að vera sjálfstæður, virkur og ábyrgur og láta gott af sér leiða í
samfélaginu.
Skátastarf er óformlegt uppeldisstarf sem byggir á því að efla sjálfsnám ungs fólks með því að nýta
tómstundir þess til uppbyggjandi verkefna.
Hér er gerð grein fyrir markmiðum skátahreyfingarinnar, þeim grunngildum sem starfið byggir á og
Skátaaðferðinni, sem einkennir skátastarf um allan heim. Það er einungis ein Skátaaðferð og hún
er kynnt í þessu riti. Aðferðin er löguð að aldri og þroska skátanna. Þess vegna er táknræn umgjörð
skátastarfs breytileg fyrir ólík aldursstig. Þrátt fyrir það er grunnurinn hinn sami fyrir alla skáta.
Skáti merkir í raun könnuður og sem könnuður er skátinn ávallt viðbúinn, kannar ný svið, nemur
nýjar lendur í hópi jafningja, sama á hvaða aldri hann er; sem barn, ungmenni eða fullorðinn.
Kjarni skátastarfs á erindi við alla, hvort sem þeir hafa verið skátar í æsku eða aldrei kynnst
skátastarfi af eigin raun. Lestur ritsins eykur vonandi þekkingu lesandans á skátastarfi og
skátahreyfingunni, dýpkar skilning á markmiðum hennar og Skátaaðferðinni.
6 Kjarni skátastarfs | Inngangur
7Skátahreyfingin er uppeldishreyfing | Kjarni skátastarfs
Skátahreyfingin er uppeldishreyfing
Hvað er menntun?
Samkvæmt skilgreiningu alþjóðasamtaka skáta er skátahreyfingin fyrst og fremst uppeldishreyfing.
Uppeldi og menntun er ævilangt ferli sem felur í sér alhliða þroska og aukna færni.
Hugtakið menntun á því ekki eingöngu við um formlegt nám eða skólagöngu.
Menntun er ævilangt ferli:
Manneskjan byrjar að þroskast í æsku og heldur því áfram alla ævi. Í þroskaferlinu eru tímabil sem
einkennast af auðveldum og erfiðum viðfangsefnum og stundum er mikil þörf á stuðningi.
Þroskinn er alhliða: • Tilgangurinn með menntun er að einstaklingurinn verði sjálfstæður,
virkur og ábyrgur þjóðfélagsþegn:
- Sjálfstæður: Geti tekið eigin ákvarðanir og stjórnað eigin lífi.
- Virkur: Hafi frumkvæði, sé til staðar fyrir aðra, standi við orð sín og ljúki því sem hann
byrjar á.
- Ábyrgur: Beri ábyrgð á afleiðingum gjörða sinna. Leitist við að fylgja eigin gildismati og
lifa samkvæmt eigin sannfæringu.
Sem einstaklingur: • Aukin færni á öllum þroskasviðunum sex: Í líkamsþroska, vitsmuna-
þroska, tilfinningaþroska, persónuþroska, félagsþroska og andlegum þroska.
Sem hluti af samfélagi: • Einstaklingurinn sýnir æ meiri umhyggju fyrir öðrum eftir því sem
hann þroskast og á auðveldara með að setja sig í spor annarra. Hann áttar sig á því að hann
er hluti af sögu og þróun samfélags.
Hugtökin menntun og þroski fylgjast allaf að. Menntun leiðir af sér þroska og eykur hæfni til að lifa
í samfélaginu.
„Menntun felst í færni til að skapa
sér sjálfstæða þekkingu sem gagnast
í daglegu lífi og til að tileinka sér
greinandi og gagnrýna hugsun
sem er forsenda virkrar þátttöku í
lýðræðisþjóðfélagi.“
Maria Montessori
„Að læra af reynslunni er fyrst og
fremst í því fólgið að taka eftir
afleiðingum athafna og finna
orsakatengsl milli athafna og
afleiðinga.“
John Dewey
8 Kjarni skátastarfs | Skátahreyfingin er uppeldishreyfing
Fjórar grunnstoðir menntunar
Grunnstoðir menntunar eru fjórar:Að auka þekkingu• með því að tengja nýja þekkingu við það sem áður var lært og
endurnýja sífellt þekkingu sína. Þannig eykst hæfnin til að njóta þess sem lífið býður upp á.
Að læra að framkvæma • og starfa með öðrum. Þetta eflir færni í samskiptum og nýtist á
vinnumarkaði sem og í lífinu almennt.
Að læra að lifa í samfélagi við aðra• , geta sett sig í spor annarra og vinna með öðrum.
Í þessu felst skilningur á lýðræðislegri hugsun og aukin færni í að jafna ágreining og að
stuðla að friði og réttlæti.
Að eflast sem manneskja,• öðlast aukinn þroska og sjálfstæði og að læra að taka
skynsamlegar og ábyrgar ákvarðanir. Í þessu samhengi er augljóst að við menntun og
sjálfsmenntun þarf að taka tillit til allra eiginleika hvers einstaklings og byggja á styrk og
færni hvers og eins.
Þrjú menntakerfi
Hver einstaklingur tekur út þroska sinn og menntast á fleiri en einum vettvangi. Sameinuðu
þjóðirnar (UNESCO) skilgreina þrjú menntakerfi.
Formlegt menntakerfi• (formal education) er stigskipt og aldursskipt menntakerfi sem nær
frá leikskóla yfir í æðri menntastofnanir. Yfirleitt rekið af eða viðurkennt af opinberum aðilum
– ríki eða sveitarfélögum.
Óformlegt menntakerfi • (non-formal education) er skipulögð dagskrá og viðburðir
– jafnvel námsbrautir – sem eiga sér stað utan formlega menntakerfisins og er ætlað að
þjóna tilteknum hópi fólks með skilgreind lærdóms-, menntunar- og uppeldismarkmið.
Oftast rekið af óopinberum aðilum, félagasamtökum eða sjálfseignarstofnunum.
Formlaust nám • (informal education) er sá þroski sem hver og einn öðlast í daglegu lífi í
samveru með fjölskyldu, vinum, jafningjum eða vinnufélögum. Einnig koma til sögunnar
fjölmiðlar og aðrir áhrifavaldar sem hafa áhrif á viðhorf, gildismat og þekkingu.
Stundum er talað um „skóla lífsins“.
„Menntun er það að verða að manni,
að nýta þá möguleika til þroska sem við
fáum í vöggugjöf.
Menntun er ekki það að vita mikið, að
vera fróður, heldur að vera leitandi -
að tengja saman hugsun, gagnrýni og
athafnir.“
Ólafur Proppé
„Menntunin segir mönnum hvað máli
skiptir og hvað ekki, til hvers þeir geta
lifað lífinu og hvernig þeir eiga að fara
að því; hún kennir mönnum að beita
eigin dómgreind, nýta frelsi sitt til að
móta sína eigin lífshætti og lífsstíl.“
Páll Skúlason
9Skátahreyfingin er uppeldishreyfing | Kjarni skátastarfs
Menntakerfi skátahreyfingarinnarSem uppeldishreyfing fyrir börn og ungt fólk fellur starf skátahreyfingarinnar mjög vel undir
ofangreinda skilgreiningu á óformlegu menntakerfi.
Markmiðið er að stuðla að þroska barna og ungs fólks þannig að það verði sjálfstæðir, virkir •
og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu.
Það felur í sér allar fjórar grunnstoðir menntunar; að auka þekkingu, að læra að framkvæma, •
að læra á lífið og að eflast sem manneskja.
Að auki einkennist nálgun skátahreyfingarinnar af eftirtöldu:
Heildstæðu uppeldi barna og ungs fólks.•
Hún leitast við að ná uppeldismarkmiðunum með því að stuðla markvisst að sjálfsuppeldi og •
reynslunámi einstaklingsins.
Sem óformleg menntun er skátastarf viðbót við annað í uppeldi og menntun ungs fólks. •
Ofangreind atriði eru skýrð nánar hér fyrir neðan.
Heildstætt uppeldi ungs fólks
Í augum skátahreyfingarinnar er sérhvert ungmenni:
Flókin manneskja sem mótast af umhverfi sínu. Þar af leiðandi snýst skátastarf um að stuðla að
alhliða og heildstæðum þroska hvers og eins:
Þroskasviðin sex eru innbyrðis tengd og hafa áhrif hvert á annað.•
Víðtæk reynsla eflir heildarþroska einstaklingsins. •
Einstaklingur með eigin sögu, eiginleika, þarfir, hæfni og þroska. Þar af leiðandi miðar
skátastarf við það að hver og einn öðlist heildarþroska á eigin verðleikum:
Sérhvert ungmenni þroskast á sínum hraða. Þroski á ólíkum sviðum gengur misjafnlega hratt •
fyrir sig, með þroskastökkum á sumum sviðum og hléum á öðrum. Reynt er að styðja hvern
og einn til þroska eftir því sem við á.
Hver og einn er einstakur og því skal hlúð að hæfni hvers og eins á eigin forsendum. •
Hann er ávallt hvattur til að gera sitt besta og því er reynt að þroska hæfni á forsendum
hvers og eins („gera sitt besta“).
Óaðskiljanlegur hluti af samfélaginu sem hann tilheyrir. Skátastarf snýst því um að efla
þroska og tengsl einstaklings við samfélagið.
Ungmennin læra að upplifa sig sem þátttakendur í samfélagi og rækta með sér tilfinningu •
þess að tilheyra. Það hjálpar honum eða henni að finna tilgang í lífinu. Ungmenni þurfa að fá
tækifæri til virkni í samfélaginu og að auka vitund sína um tengslin við fjölskyldu,
nærsamfélag og heiminn í heild. Þannig eykst skilningur á menningarlegri arfleifð, náttúrunni
og umhverfinu.
10 Kjarni skátastarfs | Skátahreyfingin er uppeldishreyfing
Sjálfsmenntun og reynslunám
Á grundvelli ákveðinna grunngilda, leitast skátahreyfingin við að stuðla að þroska ungs fólks með
skýrt skilgreindri uppeldisaðferð – Skátaaðferðinni. Í því felst að hverjum skáta gefst kostur á að
setja sér þroskamarkmið:
Þegar skátinn hefur ákveðið að gerast skáti og farið með skátaheitið hefur hann lofað •
sjálfum sér að vera „virkur við eigið uppeldi“. Starfið þróast svo með tímanum.
Skátastarfið hefur ekki þann tilgang að fá ungmenni til að fylgja tilteknu þröngu kerfi. •
Skátanum gefst kostur á að efla færni sína til að ná þroska á sem flestum sviðum.
Hægt er að tala um árangur af skátastarfi þegar skátinn hættir í formlegu skátastarfi með •
jákvætt viðhorf til fullorðinsáranna og tekst á við þau einbeittur og meðvitaður um að lifa
lífinu sem sjálfstæður, virkur og ábyrgur einstaklingur. Markmiðið er að skátinn verði
„leiðtogi í eigin lífi“.
Viðbót við annað í lífi ungmenna
Eins og kom fram í kaflanum um menntakerfin þrjú hér að framan, koma þau öll þrjú að þroskaferli
hvers einstaklings. Skátastarf er hluti af óformlega menntakerfinu og þar af leiðandi er hægt að
segja að framlag skátahreyfingarinnar sé viðbót við formlega menntakerfið og „skóla lífsins“.
Innan skátahreyfingarinnar er ekki lögbundið formlegt uppeldis- og menntunarstarf eins og er
í skólum. Uppeldismarkmiðunum er heldur ekki náð á tilviljunarkenndan hátt eins og gerist í
formlausu námi innan fjölskyldna, meðal jafningja, á vinnustöðum eða vegna áhrifavalda á borð
við internet, sjónvarp eða aðra fjölmiðla. Skátastarfið gegnir afmörkuðu hlutverki. Það kemur
ekki í staðinn fyrir fjölskyldulíf, skólagöngu eða aðrar stofnanir sem hafa áhrif á þroska barna og
ungmenna. Þar af leiðandi er hlutverk skátaforingja og annarra leiðtoga í skátastarfi sérstaklega
skilgreint. Þeir eru því ekki ígildi kennara, foreldra, yfirmanns, íþróttaþjálfara eða prests.
10 Kjarni skátastarfs | Skátahreyfingin er uppeldishreyfing
11Grunngildi | Kjarni skátastarfs
Grunngildi
Grunngildi skátahreyfingarinnar eiga uppruna sinn í hugmyndum og skrifum Baden-Powell frá
upphafi tuttugustu aldar og í samþykktum alþjóðasamtaka skáta eftir að skátahreyfingin var
formlega stofnuð sem alþjóðahreyfing árið 1920.
Grunngildi skátahreyfingarinnar eru af þrennum toga:
Samfélagsleg gildi1. sem tengjast hlutverki skátahreyfingarinnar:
Skátahreyfingin er alþjóðleg uppeldis- og friðarhreyfing sem stuðlar að menntun ungs •
fólks með sjálfsnámi og sjálfsuppeldi.
Skátahreyfingin er opin öllum og óháð stjórnmálasamtökum.•
Siðferðileg gildi2. sem finna má í:
skátaheiti og •
skátalögum.•
Aðferðafræðileg gildi 3. sem fólgin eru í Skátaaðferðinni:
Stigvaxandi sjálfsmenntun.•
Kerfi innbyrðis tengdra lykilþátta.•
Grunngildi skátahreyfingarinnar mynda sameiginlega grundvöll skátastarfs og skilgreina þannig
sérstöðu þess. Ef þau eru ekki grundvöllur starfsins má spyrja hvort um raunverulegt skátastarf sé
að ræða.
skátahreyfingarinnar
12 Kjarni skátastarfs | Grunngildi
Samfélagsleg grunngildi skátahreyfingarinnar
Markmið skátahreyfingarinnar
Markmið skátahreyfingarinnar er að leggja sem mest af mörkum við uppeldi ungs fólks, á grundvelli
siðferðilegs gildakerfis sem byggist á skátaheitinu og skátalögunum, til þess að skapa betri heim
þar sem fólk öðlast lífsfyllingu sem einstaklingar og sinna uppbyggjandi hlutverkum í samfélaginu.
Þetta er gert með því að:
Virkja ungt fólk á þroskaskeiði þeirra með óformlegu uppeldis- og menntakerfi.•
Beita sérstökum aðferðum sem gera hvern einstakling virkasta áhrifavaldinn í eigin uppeldi •
og þroskaferli til að verða sjálfstæður, virkur og ábyrgur einstaklingur í samfélaginu.
Hjálpa ungu fólki að byggja upp eigið gildakerfi sem grundað er á siðferðilegum lífsgildum, •
félagslegu réttlæti og persónulegri staðfestu í anda skátalaga og skátaheitis.
Skátahreyfingin stuðlar að menntun ungs fólks með sjálfsnámi og sjálfsuppeldi
Þegar Baden-Powell sneri aftur til Englands frá Suður-Afríku í upphafi 20. aldarinnar veitti
hann eftirtekt „þúsundum drengja og ungra manna sem voru fölir, horaðir, hoknir og brjóstum-
kennanlegir, keðjureykjandi og jafnvel betlandi“. Hann hafði áhyggjur af þessari hnignun siðferðis
hjá ungu fólki og þeirri hættu sem það skapaði fyrir samfélagið. Skátahreyfingin varð þannig til út
frá hugsjón hans um að bæta samfélagið, sem hann trúði að gæti aðeins orðið með því að efla
einstaklinginn. Baden-Powell leit á „persónuleika“ einstaklinganna sem mesta styrk samfélagsins.
Árið 1913 skrifaði hann eftirfarandi um uppeldismarkmið skátastarfs: „Menntun til að efla
sjálfstraust, skyldurækni, hugprýði og þolgæði, virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum – í
einu orði sagt allt það sem skapar sterkan persónuleika.“
Skátahreyfingin er fyrir ungt fólk, með ungu fólki
Skátahreyfingin er ekki aðeins hreyfing fyrir ungt fólk sem er stýrt af fullorðnum. Hún er líka
hreyfing ungs fólks, studd af fullorðnum. Þar af leiðandi er skátahreyfingin lærdómssamfélag
fyrir ungt fólk og fullorðna sem deila eldmóði og reynslu. Þessi grunnregla ætti að vera við lýði
í skátastarfi allra skátafélaga. Gefa þarf skátum á öllum aldursstigum tækifæri til að taka þátt í
ákvarðanatöku sem hefur áhrif á skátastarfið. Með aldrinum eykst ábyrgð þeirra í ákvarðanatöku
og framkvæmd verkefna.
Skátastarf gefur unglingum og ungu fólki tækifæri til að þjálfa hæfnina til að taka eigin ákvarðanir
og öðlast meira sjálfstæði. Skátastarf er í raun leiðtogaþjálfun sem leiðir bæði til virkrar þátttöku
í samfélaginu og til þess að verða „leiðtogi í eigin lífi“. Uppeldishreyfing sem hefur þann tilgang
13Grunngildi | Kjarni skátastarfs
að skapa ungu fólki tækifæri til að þroskast og verða virkir í samfélagi nær mestum árangri ef
ungmennunum er fylgt eftir í gegnum unglings- og ungdómsárin.
Skátahreyfingin er opin öllum
„Skátahreyfingin er opin öllum, án tillits til uppruna, kynþáttar eða trúar.“ Þessi yfirlýsing í
grundvallarlögum alþjóðasamtaka skáta er mjög skýr. Samsvarandi yfirlýsingu er að finna í lögum
Bandalags íslenskra skáta:
„BÍS virðir sérhverja lífsskoðun sem samræmist skátaheitinu og skátalögunum.
Í skátastarfi og við inngöngu nýliða skal virða og engan greinarmun gera
vegna kynþáttar, litarháttar, kynferðis, tungu, trúar, stjórnmálaskoðana eða
annarra skoðana, þjóðernis, uppruna, eigna, ætternis, kynhneigðar eða annarra
ástæðna.“
Það að skátahreyfingin sé opin öllum merkir ekki að skátastarf sé fyrir alla – heldur að hún sé opin
fyrir alla sem vilja fylgja markmiðum hennar, grunngildum og Skátaaðferðinni. Lokaákvörðunin um
að taka þátt eða ekki er í höndum hvers og eins. Það er ekki á valdi fullorðinna að ákveða hvort
barn eða unglingur sé „ákjósanlegt“ í skátastarfi eða að miða þátttöku við ákveðinn þjóðfélagshóp.
Skátahreyfingin er „uppeldishreyfing“ sem hefur þá skyldu að samþykkja alla sem vilja taka þátt í
skátastarfi. Skátahreyfingin er ekki hreyfing fyrir útvalda. Hins vegar er ljóst að skátahreyfingin getur
aðeins tekið á móti einstaklingum með miklar sérþarfir þegar aðstæður og mannafli er fullnægjandi
til að mæta þörfum þeirra, svo sem hentugt húsnæði og hæfir foringjar sem hafa lokið fullnægjandi
leiðtogaþjálfun.
Skátahreyfingin er óháð stjórnmálasamtökum
Skátahreyfingin er frjáls og óbundin stjórnmálaflokkum. Þegar einstaklingar koma fram í
nafni skátahreyfingarinnar mega þeir ekki tengja sig stjórnmálaflokkum þar sem slíkt væri
ógnun við sjálfstæði skátahreyfingarinnar. Það sama gildir um útgáfu eða yfirlýsingar í nafni
skátahreyfingarinnar.
Þetta merkir þó ekki að skátastarf sé algjörlega aðskilið félags- eða stjórnmálalegum raunveruleika.
Sú menntun sem felst í skátastarfi getur ekki átt sér stað í tómarúmi og hreyfingin þarf að geta
varið þau gildi sem hún stendur fyrir og skapa kjöraðstæður fyrir það uppeldi sem hún boðar.
Þess vegna hamlar ekkert skátahreyfingunni frá því að taka afstöðu í tilteknum málefnum,
eins og til dæmis hvað varðar réttindi barna, að því tilskildu að afstaðan sé í samræmi við
uppeldismarkmiðin og grunngildin og að umræðan sé ekki hluti af valdabaráttu eða átökum, sem
skátahreyfingin tekur ekki þátt í.
Ekkert kemur í veg fyrir að félagar í skátahreyfingunni starfi á sama tíma með stjórnmálaflokki, ef
það er gert í eigin nafni en ekki skátahreyfingarinnar.
14 Kjarni skátastarfs | Grunngildi
Siðferðileg grunngildi skátahreyfingarinnarSiðferðileg gildi skátahreyfingarinnar er að finna í skátaheitinu og skátalögunum. Fyrirmynd
þeirra er í samþykktum alþjóðahreyfinga skáta – en orðalag er svolítið mismunandi eftir löndum,
menningarheimum og tungumálum.
Skátaheitið
Skátaheitið er loforð sem skátinn gefur sjálfum sér, eins konar persónuleg áskorun um að
gera sitt besta. Þegar skátinn vinnur skátaheitið er hann að taka fyrsta meðvitaða skrefið á
sjálfsnámsbrautinni til að verða sjálfstæður, virkur og ábyrgur samfélagsþegn.
Texti skátaheitisins er stuttur og einfaldur:
Ég lofa að gera það sem í mínu valdi stendur til þess að gera skyldu mína
við guð og ættjörðina, að hjálpa öðrum og að halda skátalögin.
Skátarnir lofa því ekki að þeim muni aldrei mistakast að standa við heitt sitt. Þeir einfaldlega lofa
því að gera sitt besta til að standa við orð sín.
Siðferðileg gildi skátahreyfingarinnar eru oft flokkuð á eftirfarandi hátt:
„Skyldan við guð“ – tengsl einstaklingsins við leitina að lífsgildum sem eru ofar honum •
sjálfum.
„Skyldan við aðra“ – tengsl einstaklingsins við samfélagið og ábyrgð hans innan þess.•
„Skyldan við sjálfan sig“ – ábyrgð einstaklingsins á að þroska hæfileika sína eins og •
mögulegt er.
Skátahreyfingin er ekki bundin tilteknum trúarbrögðum, löndum eða landsvæðum, ríkjum
eða menningarheimum. Hún er alþjóðleg uppeldis- og friðarhreyfing sem leggur áherslu á
mótun sjálfstæðra og heilsteyptra einstaklinga, sem taka á virkan hátt og af fullri ábyrgð þátt í
uppbyggingu samfélagsins, hvort sem það er innan fjölskyldunnar, í skólanum, á vinnustaðnum,
í viðkomandi þjóðfélagi eða í alþjóðlegu samfélagi allra manna.
Bræðralagssöngur skáta vísar til
skáta hreyfingarinnar sem alþjóðlegrar
friðarhreyfingar:
Vorn hörundslit og heimalönd
Ei hamla látum því,
að bræðraland og friðarbönd
vér boðum heimi í.
Nú saman tökum hönd í hönd
Og heits þess minnumst við,
að tengja saman lönd við lönd
og líf vort helga frið.
Jón Oddgeir Jónsson
15Grunngildi | Kjarni skátastarfs
„Guð“ í skátaheitinu vísar til andlegs þroska skátans sem hugsandi heilsteypts einstaklings sem
byggir líf sitt á lífsgildum eins og kærleika, ígrundun, siðgæði, umburðarlyndi og samhjálp.
Að sjálfsögðu leggur svo hver og einn sína merkingu í guðs-hugtakið í takti við þau trúarbrögð sem
hann eða hún aðhyllist, hvort sem það er kristni, íslam, búddismi, ásatrú eða annað.
Varast ætti, í því fjölmenningarsamfélagi sem Ísland er orðið, að tengja skátastarf um of við tiltekin
trúarbrögð eða beina hefðbundna trúariðkun.
„Ættjörðin“ í skátaheitinu vísar til þess samfélags sem við búum í, þeirrar menningar sem við
þekkjum best og að sjálfsögðu þess lands sem við byggjum. Í augum ungs skáta vísar „ættjörðin“
til nánasta umhverfis og nærsamfélags í faðmi fjölskyldu og skóla. Eftir því sem einstaklingurinn
þroskast, víkkar þessi sýn og nær til Íslands alls, íslenskrar menningar, tungumáls og íslenskrar
náttúru. Fyrir hinn fullorðna og þroskaða skáta vísar „ættjörðin“ til náttúrunnar allrar, fjölbreyttra
menningarheilda og alls mannkyns. Þó að skátar hér á landi leggi áherslu á íslenskan menningararf,
íslenska fánann og íslenska þjóð, ber að varast að tengja skátastarf um of við þjóðerni og alls ekki
við þjóðernisstefnu eða þjóðernisskrum.
„Að hjálpa öðrum“ í skátaheitinu vísar til þeirra mikilvægu tengsla sem eru milli einstaklings og
samfélags. Það vísar til samfélagslegrar ábyrgðar hvers og eins. Þroski mannsins er algerlega háður
gagnvirkum samskiptum einstaklingsins við aðrar manneskjur, við samfélag manna. Þess vegna er
beinlínis rangt og varasamt að tengja „að hjálpa öðrum“ einungis við það að hjálpa þeim sem eiga
bágt – við góðmennsku eða manngæsku. Að sjálfsögðu ber að hjálpa þeim sem þjást, eru fátækir
eða í jaðarhópum, eru einangraðir eða utanveltu. En við gerum það ekki einungis af því að við erum
svo góð og fórnfús – heldur á grundvelli manngildishugsjónar okkar og hugmynda um réttlæti,
jafnræði, jafnrétti og sjálfbærni til handa öllum samfélögum og öllum mönnum, konum og körlum.
Við hjálpum öðrum til þess að allir fái sem jöfnust tækifæri í lífinu og þannig eflum við samfélagið í
heild.
Að lokum áréttar skátaheitið viljann til „að halda skátalögin“. Það snýst ekki um að kunna
lögin utan að eða að virða þau sem utanaðkomandi reglur – eins og umferðarreglur. Loforðið um
að gera sitt besta til að halda skátalögin er eitthvað meira. Það snýst um að lifa skátalögin – að
gera þau að hluta sannfæringar okkar – hluta af okkur sjálfum. Þá verða skátalögin eðlilegur hluti
af persónuleika okkar, viðmóti og hegðun. Þetta þroskaferli snýst um breytingu frá blindri hlýðni við
lærðar reglur til siðferðilegs sjálfstæðis. Um það snúast skátalögin. Að lifa skátalögin er ekki bara
loforð sem við gefum fyrir unglingsárin eða á meðan við erum í formlegu skátastarfi. Loforðið gildir
allt lífið, í skátastarfi og utan þess. Þetta er það sem margir eldri skátar eiga við þegar þeir segja
„eitt sinn skáti, ávallt skáti“.
15Grunngildi | Kjarni skátastarfs
16 Kjarni skátastarfs | Grunngildi
Skátalögin
Siðferðileg gildi skátahreyfingarinnar eru sett fram á skipulegan hátt í skátalögunum. Skátalögin eru
þó miklu meira en bara skipulagskerfi hugmynda. Þau eru í raun hegðunarmynstur sem ungt fólk
getur valið að fylgja og nota til að móta stefnu sína í lífinu. Til þess að vera sjálfum sér samkvæmur
þarf hver einstaklingur að hugsa og haga sér í samræmi við eigin gildi.
Skátalögin eru ekki tilskipun heldur tilboð um viðhorf og hegðun. Tilboðið er heillandi, sett fram á
einfaldan og auðskilinn hátt á einföldu og aðgengilegu máli. Þegar skátarnir eru tilbúnir til að vinna
skátaheitið lofa þeir sjálfum sér að reyna að framfylgja þeim gildum sem koma fram í skátalögunum
og gera þau þannig að persónulegum lífsgildum sínum.
Skátalögin
Skáti er hjálpsamur•
Skáti er glaðvær•
Skáti er traustur•
Skáti er náttúruvinur•
Skáti er tillitssamur •
Skáti er heiðarlegur•
Skáti er samvinnufús•
Skáti er nýtinn•
Skáti er réttsýnn•
Skáti er sjálfstæður•
Frá 10-11 ára aldri, þegar börn fara að hugsa rökrétt, þróa þau smám saman með sér siðferðilegt
sjálfstæði. Þau verða fær um að dæma fólk eftir gjörðum þess og benda á sérstaka þætti í fari þess.
Þau skynja galla og veikleika og trúa ekki lengur í blindni á „yfirvaldið“. Þess vegna fara þau sjálf
að dæma um eigin athafnir og annarra.
Börn viðurkenna siðferðilegar reglur sem leið til að deila réttindum og skyldum innan þess hóps
sem þau tilheyra. Allt fram til 12 ára aldurs samþykkja þau reglur sem nokkurs konar samning milli
einstaklinga. Eftir það öðlast þau smám saman skilning á að reglur eru ekki ósnertanlegar heldur
er hægt að breyta þeim með samkomulagi. Smám saman, sérstaklega á seinna stigi gelgjuskeiðsins
í kring um 15 ára aldurinn, fer unglingurinn svo að móta með sér altæk gildi eins og réttlæti,
samvinnu, jafnrétti og virðingu.
Aðferðafræðileg grunngildi skátahreyfingarinnar
Skátaaðferðin - Stigvaxandi sjálfsmenntun
Skátastarf byggir á hugmyndinni um sjálfsmenntun og sjálfsuppeldi. Hver skáti er einstakur og ber
ábyrgð á að taka út alhliða þroska og nýta möguleika sína.
Í sjálfsmenntun felst hugmyndin um „menntun innan frá“, andstætt „kennslu utan frá“. Skátinn er
lykilþátttakandi í menntuninni, hann sjálfur er „kennarinn“. Skátaaðferðin er til þess ætluð að leiða
og hvetja skátann til að verða öflugur en jafnframt heilsteyptur einstaklingur. Sjálfsmenntunin er
líka stigvaxandi í takti við aldur og þroska.
17Grunngildi | Kjarni skátastarfs
Skátaaðferðinni er ætlað að:
Hjálpa hverjum skáta að nota og þroska eigin hæfni, áhugamál og lífsreynslu. •
Styðja skátann í að öðlast nýja hæfni og þróa ný áhugamál. •
Hjálpa skátanum að finna uppbyggjandi leiðir til að mæta eigin þörfum. •
Opna dyrnar að sjálfstæðu lífi, á þeim hraða sem hentar hverjum og einum.•
Kerfi innbyrðis tengdra lykilþátta
Skátaaðferðin er kerfi innbyrðis tengdra lykilþátta. Þess vegna er heitið „Skátaaðferðin“ í eintölu
en ekki fleirtölu. Hvern þessara þátta væri hægt að líta á sem eina sjálfstæða aðferð, en við getum
aðeins talað um Skátaaðferðina þegar allir þættirnir eru saman komnir. Hver einstakur lykilþáttur
hefur sjálfstætt uppeldis- og menntunargildi og hver þáttur fyrir sig eykur áhrif hinna.
Allir lykilþættirnir þurfa að vinna saman til þess að kerfið virki.
Beita verður Skátaaðferðinni í samræmi við þroska skátanna. Drekaskátar, 7-9 ára, eru til dæmis
of ungir til þess að tileinka sér algild lífsgildi eins og jafnrétti og umburðarlyndi eða til þess að
taka að sér leiðtogahlutverk í litlum hópi. Þess vegna er flokkakerfið ekki notað í starfi drekaskáta
og með þeim er einungis lögð áhersla á fyrstu fjórar greinar skátalaganna. Skátaaðferðin
hentar best í starfi með börnum og ungu fólki á aldrinum 10-22 ára. Hlutverk fullorðnu
foringjanna er að sjá til þess að starf skátanna sé í takti við aldur þeirra og þroska – til þess að þeir
læri af reynslunni og verði smám saman sjálfstæðir, virkir og ábyrgir. Við eðlilegar aðstæður þar sem
öryggis og frjálsræðis er gætt velja skátarnir sjálfir mátulega ögrandi verkefni til að takast á við.
Í því er uppeldis- og menntunargildi skátahreyfingarinnar fólgið.
Þó að unnið sé eftir öllum lykilþáttum Skátaaðferðarinnar í skátastarfinu eru þeir ekki allir sýnilegir
í einu. Sumir eru aðeins virkir baksviðs á tilteknum tímapunkti. Með tímanum, til dæmis eftir nokkra
fundi, ferðir og útilegur hafa þó allir þættirnir verið virkjaðir.
18 Kjarni skátastarfs | Skátaaðferðin
Skátaaðferðin
Lykilþættir SkátaaðferðarinnarSkátaaðferðin er uppeldis- og menntunaraðferð skátahreyfingarinnar. Hún felst í að efla
sjálfsmenntun skátanna sem leiðir til aukins þroska bæði einstaklinga og hópa. Hún kemur til
viðbótar öðru í uppeldi og menntun hjá fjölskyldu, í skóla og öðru frístundastarfi. Nauðsynlegt er að
skilja hvernig lykilþættirnir tengjast og vinna saman til að átta sig á hvernig aðferðin virkar í raun.
Skátaaðferðin er eins árangursrík og raun ber vitni þegar þessir þættir eru samræmdir og í jafnvægi.
Alþjóðasamtök skáta skipta Skátaaðferðinni gjarnan í þrennt:
Hverjir • – eru þátttakendur eða gerendur í skátastarfinu?
Hvað • – er gert í skátastarfnu?
Hvernig• – er skátastarfið framkvæmt?
„Hverjir”
Ungu skátarnir, fullorðnu foringjarnir og tengslin þeirra á milli
Efst á myndinni, í norður á áttavitanum, eru börnin eða ungmennin og neðst (suður) eru
sveitarforingjarnir sem eru fullorðnir sjálfboðaliðar sem eru á ólíkum aldri en þó aldrei yngri en
átján ára. Örvarnar á myndinni tákna gagnvirkt samband þeirra á milli.
19Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
Fullorðnir styðja við skátastarf á þremur sviðum sem öll eru í samræmi við hin ólíku hlutverk þeirra:
Leiðbeinandi • sem styður við ferli sjálfsmenntunar og tryggir að reynsla unga fólksins stuðli
að þroska þess.
Leiðtogi í hverju verkefni • sem tryggir að verkefnin gangi upp. Ekki er hægt að ætlast til
þess að einn og sami fullorðni sjálfboðaliðinn hafi til að bera alla þá færni sem krafist er fyrir
öll verkefni.
Stuðningur við hópinn í heild • sem gætir þess að tengslin innan skátasveitarinnar séu
jákvæð og gefandi. Til þess að þetta gangi upp er mikilvægt að tengsl fullorðnu sjálf boða -
liðanna og ungu skátanna byggist á gagnkvæmri virðingu og trausti og að báðir aðilar geti
fellt sig hvorir við aðra.
„Hvað“
Verkefnin og markmiðin
Á myndinni af áttavitanum eru verkefnin vinstra megin (vestur) og markmiðin hægra megin (austur).
Þau eru tengd saman með örvum sem sýna sambandið á milli þeirra.
Skátastarf er skemmtilegt ævintýri með skýr uppeldismarkmið. Börn og ungmenni takast á við
skemmtileg verkefni og lifa sig inn í ævintýri í skátastarfinu. Það er hlutverk hinna fullorðnu að sjá
til þess að þetta ævintýri gefi þátttakendum í skátastarfi tækifæri til að vaxa og þroskast til
að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar.
Í starfsgrunni skátastarfs eru 35 lokamarkmið á sex þroskasviðum til að vinna að þessu
meginmarkmiði skátastarfs:
Líkamsþroska•
Vitsmunaþroska•
Persónuþroska•
Tilfinningaþroska•
Félagsþroska•
Andlegum þroska•
Markmið hvers aldurshóps nefnast áfangamarkmið og er að finna bæði í handbókum fyrir
sveitarforingja og í leiðarbókum skátanna sjálfra.
Áfangamarkmiðin eru beinlínis lokamarkmiðin orðuð þannig að þau henti málþroska og
aðstæðum skátanna á ólíkum aldursstigum , þ.e. drekaskátum (7-9 ára), fálkaskátum (10-12 ára)
og dróttskátum (13-15 ára). Lokamarkmiðin eru svo í rauninni áfangamarkmið elstu hópanna,
rekkaskáta (16-18 ára) og róverskáta (19-22 ára).
Skátarnir setja sér sín eigin markmið sem nefnast persónulegar áskoranir í tengslum við
áfangamarkmiðin – áskoranir sem eru viðráðanlegar hverjum og einum í tíma og rúmi.
Skátarnir taka þannig virkan þátt í eigin uppeldi með því að setja sér stig af stigi meira ögrandi
markmið. Það er verkefni sveitarforingjanna að styðja við lýðræðisuppeldi skátanna og sívaxandi
virkni þeirra, sjálfstæði og ábyrgð við undirbúning verkefna, framkvæmd þeirra og ígrundun
um hvernig til hefur tekist. Skátarnir eru hvattir til að læra af reynslunni og þar með vaxa og
þroskast bæði sem einstaklingar og hópur. Þess vegna er mikilvægt að skátarnir fái sjálfir að
taka þátt í að skipuleggja starfið. Ef sú vinna væri alfarið í höndum hinna fullorðnu færi lítið fyrir
uppeldismarkmiðum skátahreyfingarinnar.
20 Kjarni skátastarfs | Skátaaðferðin
Einhver kann að spyrja: Hvað þá með hefðbundin „skátaverkefni“ sem gera skátastarfið að ævintýri
í augum skátanna? – eins og að útieldun, tjaldbúðalíf, kvöldvökur, varðelda og yfirleitt það að
bjarga sér við „ókunnar aðstæður“. Allt þetta heldur áfram að einkenna skátastarf. En margt
fleira kemur líka til greina eins og fjölbreytileg verkefni tengd „undralöndum“ netheima, foritun
og hvers konar samskiptum með aðstoð tæknimiðla, o.s.frv., o.s.frv. Hugmyndir að verkefnum má
finna í margs konar handbókum um skátastarf, íslenskum og erlendum, og á dagskrárvef sem
er aðgengilegur á heimasíðu skáta. Auk þess er sköpunaþörf og hugmyndaauðgi skátanna sjálfra
endalaus uppspretta fjölbreytilegra verkefna.
Verkefni í skátastarfi eru að sjálfsögðu unnin bæði úti og inni eftir efni og aðstæðum. Aðalatriðið
er að skátarnir sjálfir taki virkan þátt í að velja, undirbúa, framkvæma og ígrunda verkefnin í
samræmi við aldur og þroska – að sjálfsögðu undir leiðsögn hinna fullorðnu. Mikilvægt er að rugla
ekki saman markmiðum og leiðum í skátastarfi og sér í lagi að gæta þess að leiðirnar verði ekki að
markmiðum.
Það er ekki beint samband milli einstakra verkefna sem unnin eru í skátastarfinu og loka-
markmiðanna. Þegar Skátaaðferðinni er fylgt munu skátarnir smám saman ná markmiðum sínum.
Hverjum einstökum skáta er þannig gert kleift að vinna að sínum markmiðum og þroskast á eigin
hraða og öðlast smám saman sjálfstraust og færni til að meta eigin framfarir.
„Hvernig“
Hvernig er markmiðunum náð?
Í miðju áttavitans á myndinni tengjast aðrir hlutar Skátaaðferðarinnar í samfellda heild.
Skátalögin• , gildi sem leggja okkur lífsreglurnar og eru sett fram á tungumáli sem börn og
ungmenni skilja vel og Skátaheitið, persónulegt loforð um að reyna að lifa samkvæmt
skátalögunum.
Flokkakerfið, • sem er vettvangur óformlegrar jafningjafræðslu sem gerir flokkinn að
lærdómssamfélagi.
Táknræna umgjörðin, • sem er ævintýrið sem felst í því að kanna og nema ný svið og nema
nýjar lendur í hópi jafningja.
Útilíf og umhverfisvernd• , í umhverfi þar sem árangursríkast er að framkvæma mörg
verkefni flokksins og skátasveitarinnar.
Leikir og reynslunám• , lærdómsvettvangur sem vekur áhuga barna og ungmenna,
auðveldar aðlögun þeirra að skátaflokknum, hjálpar þeim að uppgötva hæfileika sína og
hvetur þá til ævintýra, könnunar og uppgötvana.
Hjálpsemi og samfélagsþátttaka, • sem lýsir sér í góðverkum einstaklinga og saman-
stendur af verkum og verkefnum sem tengja skátann og þá sem minna mega sín og
gerir samfélagshjálp og viljann til að hjálpa öðrum að lífsstíl skátans.
Þegar dró að lokum langrar æfi
og síðari heimsstyrjöldin var í
algleymingi, dró Baden-Powell
markmið skátahreyfingarinnar
saman á eftirfarandi hátt:
„Við skulum því, í starfi okkar með
skátunum, hafa í huga meginmarkmiðin
og ekki gleyma okkur við leiðirnar að
markmiðunum. Látið ekki tæknilega
útfærslu skyggja á lokamarkmiðið.
Skógar- eða tjaldbúðalíf, útivist og
skátamót eru leiðir en ekki markmið.
Markmiðið er mótun persónuleika
– persónuleika sem veit hvert ber
að stefna. Og stefnan snýst um að
næsta kynslóð tileinki sér skynsemi í
rugluðum heimi, hjálpsemi við aðra,
kærleiksþjónustu og skyldu við guð og
náungann.“
21Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
Skátalögin og skátaheitið
Skátalögin eru leiðarljós og lífsgildi fyrir hvern einstakan skáta og fyrir skátahreyfinguna í heild
sinni. Með því að festa skátalögin í sessi í daglegu lífi verða þau jákvæð lífsgildi og gott veganesti
fyrir lífið.
Með skátaheitinu lofar skátinn sjálfum sér að gera sitt besta til að lifa samkvæmt skátalögunum.
Að vinna skátaheitið er fyrsta táknræna skrefið í sjálfsmenntun skátans.
Þar sem skátalögin og skátaheitið eru nátengd er litið á þau sem einn lykilþátt í Skátaaðferðinni.
Flokkakerfið
Skátaflokkurinn er grunneining í skátastarfi. Flokkinn mynda 5-8 skátar sem eru jafningjar og
einn af þeim er valinn flokksforingi. Tveir til fimm skátaflokkar mynda svo skátasveit. Hver flokkur
vinnur margs konar verkefni og skipuleggur starfið í sameiningu, mismikið þó eftir aldri.
Flokkurinn deilir ábyrgð og ákvarðanatöku, hann velur, undirbýr, framkvæmir og metur
verkefnin. Þetta er gert undir leiðsögn fullorðinna skátaforingja. Kerfið gerir ráð fyrir að skátarnir
taki virkan þátt í ákvarðanatöku sveitarinnar í samvinnu við fullorðna skátaforingja.
Flokkakerfið byggir á eðlislægri tilhneigingu ungs fólks til að mynda vinahópa og er farvegur fyrir
uppbyggjandi jafningjaáhrif. Í flokknum eflist hver skáti og allur hópurinn í senn. Innan flokksins
þróast lýðræðisleg hugsun, samkennd og samvinna.
Flokkakerfið er burðarás Skátaaðferðarinnar í starfi allra skáta nema þeirra yngstu, þ.e. drekaskáta
(7-9 ára). Drekaskátar hafa yfirleitt ekki náð þeim félagsþroska sem til þarf og starfa því fyrst og
fremst í drekaskátasveitum undir beinni stjórn fullorðnu sveitarforingjanna.
Táknræn umgjörð
Tákn er eitthvað kunnuglegt og skiljanlegt sem táknar tiltekna hugmynd eða eitthvað sem er
umfangsmeira en táknið sjálft. Tákn eru oft notuð, til dæmis í auglýsingum, til að hjálpa fólki að
skilja og tengja sig við hugmyndir með því að skírskota til ímyndunaraflsins. Tilgangurinn með
táknrænni umgjörð er að ýta undir ímyndunarafl barna og ungs fólks, ævintýraþrá, sköpun og
hugvit, á þann hátt sem örvar þroska þess. Hún hjálpar þeim að skilja hin ólíku þroskasvið, gildin í
skátastarfi og stuðlar að samkennd í skátaflokknum og skátasveitinni.
Nafnið „skáti“ er tilvísun í táknræna umgjörð skátastarfs. Orðið „skáti“ er hljóðmynd enska
orðsins scout sem stendur fyrir starf og framlag könnuða, landnema, veiðimanna, sjómanna
og annarra brautryðjenda. Skátastarf stendur fyrir ævintýri, samheldni, athygli, útsjónarsemi
og einfalt, heilsusamlegt líf í óbyggðum. Þetta eru allt eiginleikar sem Baden-Powell, stofnandi
skátahreyfingarinnar, vildi efla og hann lýsir í bók sinni Scouting for boys, sem hann skrifaði til
að hvetja ungmenni síns tíma til dáða.
21Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
22 Kjarni skátastarfs | Skátaaðferðin
Þar sem skátastarf nær nú til fleiri aldurshópa en í upphafi hefur hvert aldursstig sérstaka táknræna
umgjörð, byggða á ólíkum sögusviðum og táknrænum fyrirmyndum sem samræmast þroska og
þörfum skátanna.
Útilíf og umhverfisvernd
Með náttúrunni er átt við náttúrulegt umhverfi, fjöll, fjörur, kletta og grundir, sem andstæðuna við
manngert umhverfi í þéttbýli. Náttúran vísar einnig í það sem Baden-Powell kallaði hina „samstæðu
heild óendanleikans, sögunnar og smáatriðanna“ og stöðu mannkynsins innan hennar. Miðað við
þá gífurlegu möguleika sem náttúran býður upp á fyrir líkamlegan, vitsmunalegan, tilfinningalegan,
persónulegan, félagslegan og andlegan þroska einstaklingsins, er hún ákjósanlegur vettvangur fyrir
skátastarf.
Leikir og reynslunám
Reynslunám er andstæðan við formlega kennslu. Reynslunám verður til þegar þátttaka og upplifun
leiðir til aukins þroska. Skátastarfið byggir á því að læra í gegnum leiki, reynslu og upplifun.
Reynslunám er þroskandi ef skátinn ígrundar og leggur mat á eigin reynslu af athöfnum eða
hugsunum.
Slagorðin „Learning by doing“ eru stundum misskilin og þá talin merkja að fólk þroskist beint af
athöfnum sínum. Vissulega lærum við ýmsa leikni með endurteknum athöfnum (æfingum) – eins og
að skrifa með penna, dansa, leika fótbolta, syngja eða skipta um gír við akstur. En ef ætlunin er að
vaxa og þroskast sem manneskja á öllum þroskasviðum lærum við af reynslunni með því að doka
við, endurmeta og ígrunda – jafnvel með því að skoða eigin afstöðu og skoðanir og vaxa þannig
upp úr eigin fordómum um menn og málefni. Þess vegna er mikilvægt að skátastarf einkennist ekki
mest af því að láta skátana hafa nóg að „gera“ við að „upplifa“ og jafnvel „gleyma sér“. Eins og
það getur verið skemmtilegt – þá er líka mikilvægt að veita skátunum tækifæri til og leiðbeina þeim
við að ígrunda hvað hefur gerst og hvers vegna. Þannig lærum við ekki einungis af athöfnum okkar
heldur líka, og ekki síður, af reynslu okkar. Reynslunám snýst um að brjótast út úr hefðinni og það er
forsenda skapandi starfs.
Hjálpsemi og samfélagsþátttaka
Hjálpsemi er í hugum flestra nátengd skátum og skátastarfi. Hún er hin sýnilega leið til að vinna að
tilgangi skátastarfs í heiminum með því að „gera heiminn betri“. Hjálpsemi verður ekki kennd með
lestri eða fyrirlestrum. Hana þarf að rækta. Þannig verður hún einstaklingum töm og eðlileg. Við það
að sýna öðrum hjálpsemi upplifir skátinn þá vellíðan og það stolt sem fylgir því að verða öðrum að
liði. Slík tilfinning er góð og gefandi. Hjálpsemin felur þannig í sér endurgjöf sem skilar sér margfalt,
án þess að það hafi verið ætlunin. Með því að leiða skátann endurtekið inn í þennan gefandi „heim
Skátarnir þroska með sér uppbyggileg
tengsl við náttúruna.
Baden Powell sagði:
„Fyrir þá sem hafa augu til að sjá og
eyru til að heyra er skógurinn allt í senn
rannsóknarstofa, félagsmiðstöð og
musteri.“
Að sjálfsögðu eiga þessi orð við um allt
náttúrulegt umhverfi.
23Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
hjálpseminnar“, upplifir hann aftur og aftur þá góðu tilfinningu sem fylgir því að láta gott af sér
leiða og smám saman verður hjálpsemin honum sjálfsögð og eðlislæg. Æfing í hjálpsemi á að vera
almenn og sjálfsögð í skátastarfi því kærleikurinn felst í því að setja sig í annarra spor, finna til með
öðrum og hjálpa þeim. Í kveðjubréfi sínu til skáta, sem fannst eftir lát hans, segir Baden Powell:
„Mesta hamingjan er í því fólgin að veita öðrum hamingju.“
Hjálpsemin krefst oft hugrekkis og getur kostað átak og jafnvel fórnir, sérstaklega ef hún er ekki í
samræmi við félagslegan þrýsting – þess vegna þarf að rækta hana og þjálfa. Bæði skátaflokkar og
skátasveitir vinna að margs konar verkefnum sem flokkast undir samfélagsþátttöku í samræmi við
aldur og þroska skátanna.
Skátaaðferðin í framkvæmdTil þess að Skátaaðferðin laði að sér börn og ungt fólk þurfa fullorðnir sjálfboðaliðar
(sveitarforingjarnir) að kunna að vinna með verkefnin, áfangamarkmiðin, flokka- og
sveitarstarfið og lýðræðislega uppbyggingu sveitarinnar.
Skátastarf er skipulagt fyrir fimm aldursstig:
Drekaskáta (7-9 ára) •
Fálkaskáta (10-12 ára) •
Dróttskáta (13-15 ára) •
Rekkaskáta (16-18 ára)•
Róverskáta (19-22 ára)•
Ítarlegar handbækur hafa verið gefnar út af BÍS fyrir fullorðna sjálfboðaliða (sveitarforingja og
aðstoðarsveitarforingja) sem leiða starf drekaskáta, fálkaskáta og dróttskáta. Þá hafa verið gefnar
út leiðarbækur fyrir skátana sjálfa á þessum aldursstigum. Unnið er að útgáfu samsvarandi bóka
fyrir tvö elstu aldursstigin.
Ofangreind aldursmörk eru þó ekki algild þar sem hver skáti hefur sinn eigin þroskahraða. Það ætti
því að fara meira eftir þroska einstaklingsins en aldri hvenær hann færist á milli aldursstiga.
Það er metið í hverju tilfelli fyrir sig af skátanum sjálfum með hjálp flokksins og sveitarforingjans
sem fylgist með framförum hans og þroska. Þegar um drekaskáta og fálkaskáta er að ræða er
sjálfsagt að hafa samráð við foreldra skátans. Afmælisdagurinn sjálfur er ekki endilega besta
viðmiðið, heldur miklu frekar áhugi hans á málefnum sem eiga betur við á næsta aldursstigi.
Í hverju tilfelli þarf að taka tillit til vinasambanda og annarra þátta í umhverfinu.
Verkefnin
Verkefni og viðfangsefni þurfa að hæfa aldurs- og þroskastigi skátanna. Valið á verkefnum
flokksins þarf að vera í samræmi við getu þeirra og það efni, búnað og aðstöðu sem fyrir hendi er
eða mögulegt er að útvega. Verkefnin þurfa alltaf að vera í samræmi við hæfileika og getu hvers
einstaks skáta í flokknum. Ef verkefnin eru of auðveld og reyna ekki nægilega mikið á skátana
missa þeir áhugann. Ef verkefnin eru hins vegar mjög erfið eða umfram getu flokksins er hætt við
24 Kjarni skátastarfs | Skátaaðferðin
að þeir verði óánægðir og vonsviknir. Í báðum tilvikum hafa viðbrögð skátanna neikvæð áhrif á
samstöðuna í flokknum og gætu veikt hana.
Þetta jafnvægi á milli verkefna, viðfangsefna og getu er hluti af þroskaferli flokksins og
einstaklinganna þar sem árangri er náð með því að prófa sig stöðugt áfram. Ef engar framfarir
verða kemur það í hlut sveitarforingjanna að hjálpa flokksforingjunum að skapa réttar aðstæður
svo flokkurinn geti náð jafnvægi. Aðalatriði er að skátarnir sjálfir taki virkan þátt í að ákveða,
undirbúa og framkvæma verkefnin og ígrunda hvað megi læra af reynslunni – að sjálfsögðu í
takti við aldur og þroska. Stundum geta verkefnin sem skátarnir velja virst svolítið óábyrg og ef til
vill glannaleg – en það er mikilvægt að þeir fái tækifæri til að læra af reynslunni, líka því sem ekki
tekst eins og áætlað var. Sveitarforingjarnir eiga fyrst og fremst að efla sjálfstæði og virkni skátanna
og gæta þess að öryggis sé ávallt gætt. Það eru margar leiðir til að fyrirbyggja slys og tryggja öryggi
án þess að um ofverndun sé að ræða. Sveitarforingjarnir geta haft áhrif og reynt að stuðla að
verkefnum sem fela í sér reynslu sem miðar að áfangamarkmiðunum.
Þrjár gerðir verkefna í skátastarfi
Verkefni í skátastarfi skiptast í:
Hefðbundin verkefni•
Valverkefni•
Sérkunnáttuverkefni •
Hefðbundin verkefni eru t.d. flokksfundir, sveitarfundir, útilegur og dagsferðir, leikir, sögur
og frásagnir, söngvar, kvöldvökur og varðeldar. Hefðbundnu verkefnin skapa ramma um starfið
og tengjast oft „táknrænni umgjörð“ skátastarfs á hverju aldursstigi meira en önnur verkefni.
Hefðbundin verkefni styrkja Skátaaðferðina með því að tryggja þátttöku skátanna í sameiginlegri
ákvarðanatöku og beinni tilvísun í siðferðilegu gildin. Þau stuðla að góðum starfsanda innan
skátasveitarinnar og veita ungu skátunum dæmigerða „skátareynslu“.
Valverkefnin geta verið margs konar og tengjast fyrst og fremst hugmyndaauðgi skátanna sjálfra.
Þau falla þó yfirleitt í eftirfarandi fimm flokka:
Útilíf og náttúruvernd •
Íþróttir og heilsurækt •
Hjálpsemi og samfélagsþátttöku•
Tækni og vísindi •
Listir og menningu •
Valverkefnin höfða til áhugasviðs ungu skátanna og opna huga þeirra fyrir þeim margbreytileika
sem lífið og heimurinn hefur upp á að bjóða. Þau endurspegla tíðarandann og þarfir samfélagsins.
Sérkunnáttuverkefni eru einstaklingsbundin og frjálst val hvers skáta fyrir sig, Þau eru þannig
viðbót við verkefnin sem skátarnir vinna í skátaflokknum eða skátasveitinni. Sérkunnáttu er ætlað
að hvetja skátana til að tileinka sér og æfa leikni á ákveðnum sviðum, þroska meðfædda hæfileika
eða finna ný áhugamál. Ánægja og sjálfstraust skátanna eykst við að ná valdi á tiltekinni leikni.
25Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
Í raun eru hefðbundnu verkefnin og valverkefnin tengd og eitt einstakt verkefni getur bæði
verið valverkefni og hefðbundið verkefni. Útilega er dæmi um hefðbundið verkefni sem felur yfirleitt
í sér nokkur valverkefni.
Dagskrá með of mörgum hefðbundnum verkefnum og of fáum valverkefnum getur leitt
til „innhverfrar“ skátasveitar sem er sjálfmiðuð og einangruð frá umhverfinu. Slíkt starf undirbýr
skátana ekki fyrir lífið heldur einungis fyrir skátastarfið.
Dagskrá með of mörgum valverkefnum og of fáum hefðbundnum verkefnum getur leitt
til þess að skátasveitin missi sérkenni sín. Hún getur enn verið heillandi og nytsamleg fyrir ungu
skátana, en ekki með sama skátabragnum. Slíkt getur stefnt einingu sveitarinnar í hættu og dregið
úr tilfinningu skátanna fyrir því að tilheyra skátasveit.
Kanna ný svið og nema nýjar lendur í hópi jafningja
Höfuðatriðið er að verkefnin tengist áhuga skátanna á að kanna ný svið og nema nýjar lendur í hópi
jafningja. Verkefni í skátastarfi verða að byggjast á áhuga unga fólksins og vera valin af skátunum
sjálfum. Verkefnin þurfa þar af leiðandi að vera skemmtileg og spennandi fyrir þau. Þau verða að
fela í sér vel skilgreind markmið, bjóða upp á áskorun og skátarnir verða að sjá tilgang þeirra.
Nauðsynlegt er að verkefnaúrvalið sé fjölbreytt.
Lokamarkmið og áfangamarkmiðin
Markmið skátahreyfingarinnar er að veita ungu fólki raunhæf tækifæri til að verða sjálfstæðir, virkir
og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu.
Þetta markmið er síðan brotið niður í nokkur lokamarkmið innan sex þroskasviða sem eru svo
umorðuð í áfangamarkmið fyrir hvert aldursstig:
Heilbrigði og hollusta (líkamsþroski)
Velur sér lífsstíl sem hefur uppbyggjandi áhrif á líkamlega heilsu, andlega og félagslega •
líðan.
Gerir sér grein fyrir líkamlegri getu sinni og eigin takmörkunum.•
Hugsar vel um útlitið og gætir eigin hreinlætis og þrifnaðar í kringum sig.•
Fylgir fjölbreyttu, hollu og skynsamlegu mataræði.•
Skiptir tímanum skynsamlega á milli ólíkra skyldustarfa, stundar tómstundaiðju við hæfi og •
tekur tillit til forgangsröðunar.
Stundar útivist með öðru fólki og tekur þátt í athöfnum sem reyna á hreyfigetu líkamans.•
26 Kjarni skátastarfs | Skátaaðferðin
Skynsemi og sköpunarþrá (vitsmunaþroski)
Aflar sér nýrrar þekkingar á markvissan og skapandi hátt.•
Sýnir snerpu við alls kyns aðstæður, þroskar með sér hæfileika til að hugsa skýrt, finnur upp •
á nýjungum, beitir gagnrýnni hugsun og er á varðbergi gagnvart hvers konar rang-
hugmyndum og ofureinföldunum.
Sameinar fræðilega og hagnýta kunnáttu með því að beita verkkunnáttu og finna nýjar •
lausnir.
Setur sér langtímamarkmið varðandi flókin viðfangsefni, metur þau, forgangsraðar og nýtir •
niðurstöður til þess að þroska eigin dómgreind.
Tjáir skoðanir sínar og tilfinningar með fjölbreyttum miðlum, skapar þægilegt andrúmsloft í •
kringum sig á heimili, í skóla eða á vinnustað til að auðvelda samskipti og auðga eigið líf og
annarra.
Metur samfélagslegt og siðferðilegt gildi vísinda og tækni við sköpun nýrrar þekkingar og við •
lausn vandamála í þágu mannkyns, samfélaga og náttúrulegs umhverfis.
Vilji og persónuleiki (persónuþroski)
Þekkir möguleika sína og takmarkanir, hefur raunsæjar hugmyndir um sjálfa(n) sig, sættir sig •
við hvernig hann eða hún er og varðveitir sterka sjálfsmynd.
Veit um réttindi sín og líka að þeim fylgja skyldur, en tekur höfuðábyrgð á eigin þroska og •
framförum og leitast við að standa sig alltaf með prýði.
Byggir lífsáform sín á gildum skátalaganna og skátaheitisins.•
Fylgir staðfastlega þeim gildum sem veita honum eða henni innblástur.•
Mætir lífinu og því sem það ber í skauti sér með glaðværð og kímni.•
Gerir sér grein fyrir að í hópinn sem hún eða hann tilheyrir má sækja stuðning til •
persónulegra framfara og þroska og til uppfyllingar lífsáforma.
Tilfinningar og skoðanir (tilfinningaþroski)
Leitast við að öðlast og viðhalda innra frelsi, jafnvægi og tilfinningaþroska.•
Er fylgin(n) sér og vingjarnleg(ur) við aðra án þess að vera þvingaður/þvinguð eða frek(ur).•
Byggir persónulega hamingju á kærleika og væntumþykju, vinnur í þágu annarra án þess að •
ætlast til umbunar og kann að meta fólk eins og það er.
Þekkir, viðurkennir og virðir kynhvöt sína og annarra sem tjáningu ástar og væntumþykju.•
Skilur að fjölskyldan er hornsteinn þjóðfélagsins og sér til þess að kærleikur milli foreldra og •
barna, bræðra og systra, ríki innan eigin fjölskyldu.
Vinir og samfélag (félagsþroski)
Sameinar eigið frelsi og umhyggju fyrir öðrum, stendur á rétti sínum, uppfyllir skyldur sínar •
og ver rétt annarra til að gera slíkt hið sama.
Viðurkennir og virðir lögmæt yfirvöld og fyrirmæli og beitir þeim í þágu annarra.•
27Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
Virðir og stuðlar að auknum mannréttindum, en fylgir þó þeim reglum sem samfélagið hefur •
sett, metur þær á ábyrgan hátt og ígrundar möguleikann á að breyta þeim ef þörf krefur.
Leggur á virkan hátt sitt af mörkum til nærsamfélagsins og tekur þátt í að skapa réttlátt •
samfélag sem byggir á þátttöku og samvinnu. Getur greint mismunandi orsakir ágreinings,
þekkir leiðir til að minnka líkur á ágreiningi og til þess að leysa úr ágreiningi.
Tileinkar sér menningarleg gildi þjóðarinnar, en er samt opin(n) fyrir menningu annarra þjóða •
og einstakra hópa.
Stuðlar að friði og gagnkvæmum skilningi einstaklinga og þjóða með því að hvetja til •
alþjóðlegrar samvinnu og vináttu fólks um allan heim.
Skilur í hverju hugtakið sjálfbærni felst og leggur sitt af mörkum til sjálfbærrar þróunar í •
nærumhverfi og nærsamfélagi, en líka í víðara vistfræðilegu, menningarlegu og efnahagslegu
hnattrænu samhengi.
Lífsgildi og tilgangur lífsins (andlegur þroski)
Leitar dýpri viðmiða, bæði persónulega og samfélagslega, um tilveru mannkyns og •
náttúrunnar í heild og tengir þau eigin lífsgildum.
Fylgir siðfræðilegri afstöðu sem tengist hugmyndum um tilgang lífsins utan eða innan •
skipulegra trúarbragða.
Stundar íhugun og samræður við aðra um tilgang lífsins og mannlega breytni, þekkir og •
getur útskýrt mikilvægi persónulegrar upplifunar.
Gerir siðaboðskap sem byggir á kennisetningum um tilgang lífsins og virðingu fyrir lífi yfirleitt •
að hluta af daglegu lífi, bæði einkalífi og samfélagsþátttöku, og leitast við að hjálpa öðrum í
stóru og smáu.
Hefur samskipti við fólk burtséð frá trúarbrögðum þeirra, uppruna, litarhætti, kyni, kynhneigð •
eða stjórnmálaskoðunum og leitast við að skapa opið, umburðarlynt og fordómalaust
samfélag.
Í skátastarfinu velur hver skáti áfangamarkmið sem eru miðuð við aldursstig hans. Skátinn setur
sér persónulegar áskoranir og færist svo nær eigin áfangamarkmiðum, hver á sinn hátt og á sínum
hraða. Fullorðnir sjálfboðaliðar, sveitarforingjar og aðstoðarsveitarforingjar, fylgjast með og taka
tillit til allra þátta í sveitarstarfinu og stuðla að því að skátunum séu búin tækifæri til að vinna að
markmiðum sínum. Áfangamarkmiðin og persónulegar áskoranir skátanna tengjast óbeint öllum
verkefnum og skátastarfinu í heild.
28 Kjarni skátastarfs | Skátaaðferðin
SkátaflokkurinnFlokkakerfið er sá vettvangur þar sem skátarnir þroskast og læra að vinna saman. Vináttubönd
myndast og hópurinn þróast. Skátarnir velja sér sjálfir flokk og ákjósanleg stærð hvers flokks er
5-8 skátar. Gæta þarf þess að flokkarnir fái nægt svigrúm í skátastarfinu og frelsi og sjálfstæði sem
hæfir aldri skátanna. Í skátastarfi er lögð áhersla á að treysta skátunum og efla sjálfstraust þeirra
með sjálfsnámi. Traustið er innsiglað með því að nota flokkakerfið og veita flokkunum svigrúm til að
þróast á eigin spýtur og eflast í starfi sínu.
Frjálst val hvers skáta
Skátarnir geta valið skátaflokk með samþykki hinna skátanna í flokknum. Ungt fólk vill helst
umgangast þá sem það kann vel við og líður vel nálægt, til dæmis vini sem hafa svipuð áhugamál
og allir ættu að vera í flokki þar sem þeim finnst þeir velkomnir og geta starfað óþvingað.
Þetta þýðir líka að skátarnir skipta kannski um skátaflokk ef báðir flokkar eru samþykkir
tilfærslunni. Skátaflokkar eru með öðrum orðum ekki alltaf fastskorðaðar eða formlegar einingar
og skátaflokkar í hverri sveit eru iðulega misstórir og misöflugir.
Sumir sveitarforingjar hafa ef til vill tilhneigingu til að reyna að jafna út flokkana og gera þá
eins líka hver öðrum og hægt er. Slíkt stangast á við flokkakerfið. Það skiptir mestu máli að
skátaflokkarnir séu raunverulegir vinahópar en ekki að skátasveitin líti út fyrir að vera „í jafnvægi“
eða sé skipt niður í jafnstóra og einsleita hópa. Við þurfum að læra að líta á skátasveitina sem
bandalag ólíkra en innbyrðis tengdra skátaflokka.
Jafningjahópur – árangursríkur lærdómsvettvangur
Það væri misráðið af sveitarforingjum að endurskipuleggja og stokka upp skátaflokka að eigin
frumkvæði. Slíkar aðgerðir hafa orðið til þess að eyðileggja flokkakerfið, af því að þær uppræta
eiginleika jafningjahópsins og – það sem verra er með tilliti til markmiða skátahreyfingarinnar –
hamla því að hann verði árangursríkur lærdómsvettvangur.
Samsetning skátaflokksins
Flokkar eru ýmist kynjaskiptir eða blandaðir og eins geta skátarnir í hverjum flokki verið jafnaldrar
eða úr nokkrum árgöngum. Hvort sem flokkar eru kynjaskiptir eða blandaðir má ekki láta það
trufla eðlilega virkni jafningjahópsins, hafa áhrif á innri samstöðu eða bitna á hópnum sem
lærdómssamfélagi. Skátarnir þurfa að vera nokkurn veginn á sama máli um grundvallargildi og
markmið sameiginlegra verkefna og áhugamálin þurfa að vera svipuð. Ef þeir eru mjög ólíkir að
þessu leyti getur það dregið úr samskiptum þeirra og flokkurinn nær ekki eins góðum árangri.
29Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
Reynslan hefur sýnt að enda þótt bakgrunnurinn sé ólíkur verða áhugamál, gildi og markmið mikið
til þau sömu hjá skátunum í flokknum meðan á lærdómsferlinu stendur. Sjálfsmynd skátaflokksins
byggist á því hvernig skátarnir upplifa sérkenni hans, sem aðgreina hann frá öðrum flokkum.
Skátaflokkar þróa með sér venjur, skipta verkum á sinn hátt, og finna sér eitthvað sem einkennir þá.
Flokksþingið
Flokksþingið er vettvangur skátaflokksins til að taka ákvarðanir um flokksstarfið. Flokksþingið getur
verið hluti af dæmigerðum skátafundi, t.d. stundarfjórðungur í lok hans. Skátaflokkurinn vinnur
ýmis verkefni, á eigin spýtur eða með öðrum flokkum í skátasveitinni. Flokksþingið er eini formlegi
vettvangurinn til að taka nauðsynlegar ákvarðanir. Allir skátarnir í flokknum taka þátt í því undir
stjórn flokksforingjans, sem er einn úr jafningjahópnum. Flokksþing getur komið saman hvenær sem
skátaflokkurinn telur þörf á, þó ekki svo oft að það breytist í venjulega flokksfundi. Allar ákvarðanir
flokksþings ætti að skrá í dagbók flokksins. Flokksþingið stuðlar að lýðræðisuppeldi skátanna.
Skátarnir deila með sér hlutverkum
Skátarnir úthluta hver öðrum embættum eftir þeim leikreglum sem hafa þróast í flokknum.
Flokksforingi og aðstoðarflokksforingi eru alltaf kosnir og eru fulltrúar flokksins í sveitarráðinu.
Aftur á móti er valið í önnur embætti eftir nánari ákvörðun flokksins. Flokksforinginn er
drifkrafturinn í starfi flokksins, stýrir áætlanagerð og skipulagningu verkefna. Þótt hann sé
kosinn af skátunum og gegni mikilvægu forystuhlutverki er hann alltaf einn af hópnum.
Aðstoðarflokksforinginn og hinir skátarnir geta líka tekið að sér forystuna þegar þörf er á.
Önnur algeng embætti í skátaflokkum eru t.d. gjaldkeri, ritari, ljósmyndari, leikjastjóri,
kynningarstjóri, matreiðslumeistari, sáttasemjari, varðeldastjóri, vefstjóri eða annað sem skátunum
dettur í hug. Það er um að gera að hvetja þá til að finna upp ný embætti eftir þörfum og sleppa
öðrum sem ekki henta.
Skátarnir skiptast reglulega á um að gegna þessum embættum þótt þeir kunni að vera endurkjörnir
ef flokksþingið samþykkir það. Á þennan hátt gefst tækifæri til að þroska ábyrgðartilfinningu,
öðlast þekkingu, samhæfa viðhorf og tileinka sér leikni. Skátarnir verða smám saman virkari við að
gegna þessum hlutverkum, endurmeta þau reglulega og halda áfram að þróa þau.
Í verkefnavinnu flokksins skipta skátarnir með sér verkum tímabundið.
Gagnkvæmt traust
Rannsóknir í félagsvísindum hafa leitt í ljós að reglur, byggðar á einlægni, tryggð og hollustu verða
ríkjandi viðmið og stuðla að gagnkvæmu trausti hjá óformlegum jafningjahópum, meira að segja
glæpagengjum. Það er auðvelt að sjá hvernig þetta gerist hjá skátaflokkum.
„Sveitarforinginn vinnur í gegnum
flokksforingjana.“ „Til að ná fyrsta
flokks árangri með flokkakerfið
þurfið þið að veita ungu foringjunum
raunverulega og óhefta ábyrgð.
Ef þið veitið bara takmarkaða ábyrgð,
verður árangurinn líka takmarkaður.“
Baden-Powell
30 Kjarni skátastarfs | Skátaaðferðin
SkátasveitinSkátasveitin er stuðningskerfi flokkanna og er samsett úr öllum flokkunum sem eru á sama
aldursstigi, ásamt fullorðnu sveitarforingjunum sem styðja við starf þeirra. Þegar margir skátar eru
á hverju aldursstigi í skátafélagi eru stundum myndaðar fleiri en ein skátasveit. Helsta hlutverk
skátasveitanna er að hafa umsjón með og styrkja flokkakerfið og styðja frjálsræði og sjálfstæði
skátaflokkanna.
Hvers vegna skátasveit?
Af hverju þurfum við skátasveit ef skátaflokkarnir geta starfað einir og sér?
Vegna þess að flokkar þurfa á lágmarks skipulagsramma að halda til að uppfylla tvíþætt •
hlutverk sitt, annars vegar sem hópur jafningja og hins vegar sem lærdómssamfélag.
Vegna þess að flokkar þurfa vettvang þar sem skátarnir geta haft áhrif hver á annan, verið •
fyrirmyndir og metið sína eigin frammistöðu.
Vegna þess að leiðtogar lítilla hópa þurfa á lærdómssamfélagi að halda þar sem þeir geta •
lært leiðtogafærni.
Vegna þess að flokkarnir þarfnast umhverfis þar sem hægt er að fá hvatningu frá fullorðnum, •
án þess þó að þeir skipti sér beint af starfinu innan flokkanna.
Sveitarforingjarnir og aðrir fullorðnir sjálfboðaliðar verða að vera meðvitaðir um ábyrgð sína en
gæta þess um leið að skipta sér ekki of mikið af starfi flokkanna. Skátasveitin má ekki taka yfir
starfssvið flokksins eða skapa aðstæður sem hefta, takmarka eða draga úr sjálfstæði hans með
beinum eða óbeinum hætti.
Skátasveitin ber ábyrgð á að beita öllum þáttum Skátaaðferðarinnar á samræmdan hátt, með
öðrum orðum að tryggja að börn, unglingar og ungmenni upplifi það sem við köllum skátastarf.
Unga fólkið gerist ekki skátar til að „mennta sig“ heldur heillast fyrst og fremst af því ævintýri sem
felst í að kanna ný svið og nema nýjar lendur með vina- og jafningjahópnum.
Stærð skátasveitarinnar
Kjörstærð skátasveitar er 3-5 skátaflokkar – hver um sig með 5-8 skátum. Reynslan hefur sýnt
að þrír til fimm flokkar í sveit er hagstæðasta fyrirkomulagið. Með því móti gefast góð tækifæri
til samstarfs og sameiginlegu verkefnin verða áhugaverðari. Í skátasveit þar sem aðeins eru tveir
flokkar eru gagnkvæm áhrif í lágmarki og sameiginleg verkefni ekki eins spennandi. Ef flokkarnir
eru hins vegar fleiri en fimm þyngir það allt skipulag. Það minnkar möguleika á persónulegum
stuðningi sveitarforingjanna við flokksforingjana, aðstoðarflokksforingjana og einstaka skáta.
31Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
Annað eða bæði kynin í sömu skátasveit?
Eins og á við um flokkana eru skátasveitir ýmist blandaðar eða kynjaskiptar. Ákvörðun um
samsetningu sveitarinnar er tekin af sveitarráði og hverjum skátaflokki fyrir sig á grundvelli hefða,
reynslu og uppeldislegra möguleika.
Í blandaðri skátasveit er mikilvægt að muna:
Koma þarf eins fram við alla flokkana. Þeir hafa sömu réttindi og skyldur, sama hvernig þeir •
eru samsettir og ekki má mismuna þeim á nokkurn hátt.
Verkefni sveitarinnar mega ekki ýta undir staðalímyndir kynjanna eins og þær birtast oft í •
samfélaginu. Ekki skal gera neinn greinarmun á verkefnum stelpna og stráka. Ferlið við að
velja verkefni fyrir næsta dagskrárhring, sem er oftast 2-4 mánaða starfstímabil, hjálpar til
við að sporna gegn slíkri mismunun kynjanna þar sem að það býður hverjum flokki upp á
sjálfstætt verkefnaval.
Skátasveitin ætti að bæta vitund um kynjamun inn í uppeldisáætlun sína og leggja áherslu •
á þá möguleika sem felast í því að vera karl eða kona.
Sveitarstarfið ætti að tryggja að kynin viðurkenni og þekki hvort annað og virði vináttu hvort •
annars. Samstarf og samvinna flokkanna ætti að stuðla að því að kynin bæti hvort annað
upp.
Foringjaflokkurinn, sem samanstendur af sveitarforingja og aðstoðarsveitarforingjum, þarf að •
vera blandaður og það er ráðlegt að sá sveitar- eða aðstoðarsveitarforingi hvers skáta sem er
honum innan handar við markmiðasetningu og endurmat sé af sama kyni og hann. Það gerir
skátunum bæði kleift að fylgjast með og læra af samvinnu fullorðnu sjálfboðaliðanna í
foringjaflokknum og að samsama sig fyrirmyndum af sama kyni.
Starfið í skátasveitinni
Starfið í skátasveitinni er í rauninni allt það sem gerist í skátaflokkunum og sveitinni sem heild.
Skátasveitin er lítið samfélag sem samanstendur af ungu fólki og fullorðnum sjálfboðaliðum.
Þegar góður andi ríkir í sveitarstarfinu og tekið er tillit til þarfa og áhuga allra leggur hver og einn
sitt af mörkum til að starfið gangi vel.
Þegar markmiðin, verkefnin, sveitarstarfið og uppbygging sveitarinnar mynda samhæfða heild er
mun meiri kraftur í skátastarfinu. „Lýðræði“ er mikilvægt málefni sem þarf að leggja áherslu á.
Hæpið er að ungmenni þrói með sér lýðræðislega hugsun með því að leggja eingöngu áherslu
á verkefni sem auka fyrirfram ákveðna þekkingu. Sveitarforingjarnir þurfa alltaf að spyrja sig
eftirfarandi spurninga:
Gefur val og framkvæmd verkefnisins tækifæri til að kynnast lýðræði? •
Deila allir í hópnum með sér ábyrgð og leggja sitt af mörkum til þess að starfið gangi vel?•
Hafa sveitarforinginn eða aðstoðarsveitarforingjarnir getu til að hlusta á unga fólkið og •
bjóða því upp á tækifæri til að taka ábyrgð miðað við getu?
Til að draga þetta saman: Hverju er hægt að breyta í sveitarstarfinu, í tengslum fullorðnu
sjálfboðaliðanna og skátanna, í verkefnunum sem skátarnir framkvæma, til þess að styðja betur við
uppeldismarkmið skátastarfs?
31Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
32 Kjarni skátastarfs | Skátaaðferðin
Uppbygging skátasveitarinnarAuk skátaflokkanna starfa í hverri skátasveit þrjár aðrar skipulagseiningar:
Sveitarþingið• Sveitarráðið• Foringjaflokkurinn•
Þær eru hluti af sveitinni og virka sem stuðningskerfi fyrir flokkakerfið.
Sveitarþingið
Sveitarþing er fundur þar sem grunnreglur og markmið sveitarinnar eru ákveðin af skátunum.
Sveitarþing getur verið hluti af dæmigerðum sveitarfundi, til dæmis eitt korter í upphafi hans þegar
mikilvægar ákvarðanir liggja fyrir.
Hver skáti tekur þátt í sveitarþingi sem einstaklingur en ekki sem fulltrúi flokks síns. Sveitarþingið
fundar að minnsta kosti tvisvar í hverjum dagskrárhring (sem spannar oft 2-4 mánuði) eða oftar ef
aðstæður krefjast þess. Sveitarþingi er stjórnað af skáta sem kosinn er til verksins við upphaf þess.
Sveitarforingjarnir taka þátt í sveitarþingum þó að þeir hafi ekki atkvæðisrétt.
Þar sem reglurnar sem samþykktar eru á sveitarþingi snerta alla fá allir skátarnir að segja álit sitt á
þeim og taka þátt í ákvarðanatökunni. Sveitarþingið:
Tekur árlega ákvörðun um markmið sveitarinnar eins og þau koma fram í áætlun hennar. •
Með öðrum orðum, það skapar framtíðarsýnina.
Ákveður sameiginleg verkefni sem framkvæma á í hverjum dagskrárhring og samþykkir •
sveitaráætlunina þegar hún hefur verið sett upp af sveitarráðinu.
Sveitarráðið
Sveitarráð skátasveitar er samsett af sveitarforingjaflokki sveitarinnar, ásamt flokks- og aðstoðar-
flokksforingjum hvers flokks. Hlutverk þess er fyrst og fremst að skipuleggja sveitarstarfið, samhæfa
viðburði og verkefni og stýra þjálfun flokks- og aðstoðarflokksforingjanna.
Sveitarráðið fundar að minnsta kosti einu sinni í mánuði og er yfirleitt stjórnað af sveitar-
foringjanum, þó að aðstoðarsveitarforingjarnir geti gripið inn í þegar þarf.
Þar sem allir flokks- og aðstoðarflokksforingjar eru í sveitarráðinu taka allir flokkarnir þátt í
ákvarðanatöku um sameiginleg verkefni. Til þess að þetta fyrirkomulag skili árangri þurfa skátarnir
að vita fyrirfram um það sem taka á fyrir á sveitarráðsfundi svo að þeir geti látið skoðanir sínar og
flokksins síns í ljós. Allir skátarnir í sveitinni sýna einhug um þá ákvörðun sem tekin er hver svo sem
þeirra persónulega skoðun kann að vera.
Sveitarráðið stýrir samhæfingu viðburða og verkefna sveitarinnar og hefur því góða yfirsýn yfir
samskipti og samvinnu flokkanna.
33Skátaaðferðin | Kjarni skátastarfs
Foringjaflokkurinn
Í sveitarforingjaflokknum, sem oftast er einfaldlega kallaður „foringjaflokkur“, eru fullorðnir sjálf-
boðaliðar hverrar skátasveitar, þ.e. sveitarforinginn og allir aðstoðarsveitarforingjarnir. Hann metur
starf sveitarinnar og framfarir skátanna og veitir uppeldisfræðilega leiðsögn og stuðning.
Æskilegt er að foringjaflokkur sveitarinnar samanstandi af einum sveitarforingja eða aðstoðar-
sveitarforingja fyrir hverja 8-10 skáta í sveitinni. Fjögurra flokka skátasveit með 20-28 ungum
skátum þarf því þrjá til fjóra fullorðna sjálfboðaliða, einn sveitarforingja og tvo eða þrjá aðstoðar-
sveitarforingja. Það skiptir miklu máli að vinnan við stjórnun sveitarinnar leggist ekki öll á einn eða
tvo einstaklinga. Ef það gerist er hætt við að fólk gefist upp og dragi sig í hlé.
Foringjaflokkurinn hittist að jafnaði viku- til hálfsmánaðarlega og er stjórnað af sveitarforingjanum.
Það er mikilvægt að starfið í foringjaflokknum sé skemmtilegt og gefandi. Félagslegri þörf sveitar-
foringjanna innan jafningjahóps þarf að sinna til þess að sveitarforingjastarfið verði áhugavert
en ekki óþægileg byrði. Foringjastörfin með skátunum verða þá ánægjulegur afrakstur vandaðrar
undirbúningsvinnu – nokkurs konar uppskeruhátíðir. Upplagt getur verið að vinahópur, jafnvel
tvenn hjón eða sambýlisfólk, sæki leiðtogaþjálfun skátahreyfingarinnar og taki svo að sér að leiða
skátasveit í tvö eða þrjú ár.
Hlutverk sveitarforingjanna
Sveitarforingjarnir eru fyrst og fremst í hlutverki óbeinna leiðbeinenda um uppeldi og menntun,
bæði sem hópur og einstaklingar, með því að:
Skapa aðstæður fyrir sveitarstarfið.•
Hvetja skátana til dáða og hjálpa þeim að vaxa og þroskast. •
Vekja athygli á markmiðum skátahreyfingarinnar og framtíðarsýn sveitarinnar. •
Ganga úr skugga um að allir þættir Skátaaðferðarinnar séu nýttir í sveitarstarfinu og skapa •
skilyrði fyrir lærdómsvettvang í flokkunum.
Vinna sem liðsheild, skynja áhættu og stýra forvörnum. •
Undirbúa sveitarþing og sveitarráðsfundi og gæta þess að þar séu teknar ákvarðanir sem •
hæfa þroska skátanna í sveitinni.
Fylgjast með og meta framfarir hvers skáta, gæta vel að persónuverndar sjónarmiðum og •
vernda börn og ungmenni fyrir hvers kyns ofbeldi, einelti eða misbeitingu valds.
Stuðla að virku foreldrasamstarfi.•
Sveitarforingjarnir skipta á milli sín verkum eftir persónuleika, reynslu, þekkingu og aðstæðum hvers
og eins. Ef skátasveitin er kynjablönduð er mikilvægt að foringjaflokkurinn sé það líka.
34 Kjarni skátastarfs | Skátastarf á Íslandi
Skátastarf á Íslandi
Upphaf skátastarfs á Íslandi Skátahreyfingin barst til Íslands sumarið 1911 þegar hingað kom til sumardvalar frá Danmörku
íslenskur drengur, Ingvar Ólafsson. Stofnaði hann fyrsta skátaflokkinn en vegna kunnáttuleysis
varð lítið úr eiginlegu skátastarfi. Þegar Ingvar hélt utan á ný um haustið lagðist starfið alveg niður.
Næsta sumar reyndi Ingvar að reisa starfið við á nýjan leik en varð lítið ágengt. Þó störfuðu nokkrir
drengir áfram og var það meðal annars að þakka Pálma Pálssyni, kennara við Menntaskólann í
Reykjavík, en hann lánaði ‚‚Fjósið‘‘, sem svo er nefnt, til fundahalda. Pálmi var einnig höfundur
íslenska heitisins „skáti“ sem byggt er á enska orðinu scout og hinu danska spejder.
Þó að erfiðlega gengi í byrjun gáfust skátadrengirnir ekki upp og þann 2. nóvember 1912 var
Skátafélag Reykjavíkur stofnað. Fyrsti foringi þess var Sigurjón Pétursson glímukappi, síðar kenndur
við Álafoss. Í fyrstu starfaði ein sveit innan félagsins en áður en langt um leið voru þær orðnar þrjár
talsins. Sumardaginn fyrsta þann 23. apríl 1913 var skátafélagið Væringjar stofnað innan KFUM.
Fyrsti foringi þess var séra Friðrik Friðriksson, stofnandi KFUM. Stúlkur stofnuðu Kvenskátafélag
Reykjavíkur þann 7. júlí árið 1922 og voru fyrstu foringjar þess Jakobína Magnúsdóttir og Gertrud
Hansen. Skátafélög risu svo víða um land á næstu árum og þann 6. júní 1924 stofnuðu nokkur
skátafélög drengjaskáta með sér Bandalag íslenskra skáta. Kvenskátafélög landsins mynduðu með
sér skátasamband árið 18 og við inngöngu kvenskáta í Bandalag íslenskra skáta árið 1944 urðu
íslenskir skátar þeir fyrstu í heiminum til að mynda sameiginleg landssamtök drengja- og kvenskáta.
35Skátastarfá Íslandi | Kjarni skátastarfs
Skipulag skátastarfs á ÍslandiSkátar á aldrinum 7-22 ára starfa í skátafélögum. Algengast er að eitt skátafélag starfi í sveitar-
félagi þó ekkert banni að þau séu fleiri. Í Reykjavík eru til dæmis skátafélög starfandi hvert í sínu
borgarhverfi. Skátastarf fer fram á fimm aldursstigum samkvæmt starfsgrunni sem gefinn er út af
Bandalagi íslenskra skáta (BÍS).
Drekaskátar (7-9 ára)•
Fálkaskátar (10-12 ára)•
Dróttskátar (13-15 ára)•
Rekkaskátar (16-18 ára)•
Róverskátar (19-22 ára)•
Skátarnir á hverju aldursstigi mynda skátasveit. Oft er ein skátasveit fyrir hvert aldursstig í hverju
skátafélagi, en ef skátarnir eru margir eru þær stundum fleiri. Hver skátasveit skiptist svo niður í
skátaflokka, sem er grunneiningin í skátastarfi. Í hverjum flokki eru oftast 5-8 skátar.
Rekka- og róverskátastarf er ekki virkt í öllum skátafélögum og í nokkrum tilvikum starfa t.d.
róverskátar úr fleiri en einu skátafélagi saman í róverskátasveit.
Starfsgrunnur skáta fyrir 7-22 ára börn og ungmenni sem samþykktur var árið 2010 byggist á
þýðingu og staðfærslu á handbókum sem gefnar eru út af alþjóðasamtökum skáta (WOSM).
Starfsgrunnurinn er útfærsla á grundvallargildum beggja heimsbandalaga skáta, hann lýsir því
hvernig skátastarf þarf að vera til að standa undir því nafni.
SkátafélögSkátafélögum er stundum skipt upp í deildir og innan þeirra starfa svo skátasveitir fyrir ólík
aldursstig (drekaskátar, fálkaskátar, dróttskátar o.s.frv.). Fullorðnir sjálfboðaliðar (sveitarforingjar
og aðstoðarsveitarforingjar) stjórna og bera ábyrgð á starfinu í skátasveitunum. Drekaskátasveitir
starfa sem einn hópur undir stjórn fullorðnu skátaforingjanna, en aðrar skátasveitir, fálkaskátar
og eldri, skiptast í skátaflokka sem stjórnað er af flokksforingjum völdum af skátunum sjálfum úr
jafningjahópnum, undir leiðsögn og stjórnun fullorðinna sveitarforingja. Flokkakerfið er einn af
lykilþáttunum í uppeldis- og menntakerfi skátahreyfingarinnar og er sérstaklega áhrifarík aðferð
við uppeldi unglinga og ungs fólks til að stuðla að því að þau verði sjálfstæðir, virkir og ábyrgir
einstaklingar í samfélaginu. Skátaflokkurinn og skátasveitin eru grunneiningar skátastarfsins.
Skátafélög eru stoðir sem skapa aðstæður fyrir starf skátasveita og skátaflokka. Oft starfa í
skátafélögum svokölluð foringjaráð sem eru mynduð af sveitarforingjum allra skátasveita í félaginu
ásamt öðrum fullorðnum sjálfboðaliðum, félagsstjórn og stundum fulltrúum foreldra skátanna.
Drekaskátar
Fálkaskátar
Dróttskátar
Rekkaskátar
Róverskátar
36 Kjarni skátastarfs | Skátastarfá Íslandi
Bandalag íslenskra skátaBandalag íslenskra skáta (BÍS) eru landssamtök skáta og skátafélaga á Íslandi. BÍS er formlegur
aðili að báðum heimsbandalögum skáta, WAGGGS og WOSM, og ber þannig ábyrgð á að
skátastarf á Íslandi sé í samræmi við grunngildi skátahreyfingarinnar. BÍS rekur Skátamiðstöðina
sem staðsett er í Reykjavík og er þjónustumiðstöð fyrir skátafélögin í landinu, auk þess að vera
aðalmálsvari skátahreyfingarinnar gagnvart erlendum og innlendum aðilum eins og stjórnvöldum,
öðrum félagasamtökum og einstaklingum. Skátaþing er haldið árlega og kýs það sjö manna stjórn
BÍS sem ber ábyrgð á starfi bandalagsins. Með stjórninni starfa fagráð sem einnig eru kosin á
Skátaþingi. Auk fagráðanna starfa á vegum BÍS margir langtíma og skammtíma vinnuhópar, eins
og Úlfljótsvatnsráð sem ber ábyrgð á starfsemi skáta á Úlfljótsvatni, Gilwell-teymi sem er ábyrgt
fyrir leiðtogaþjálfun fullorðinna sjálfboðaliða og mótsstjórnir sem standa fyrir Landsmótum skáta
á nokkurra ára fresti. BÍS stendur fyrir viðamikilli útgáfu- og fræðslustarfsemi auk margs konar
viðburða fyrir starfandi skáta á ólíkum aldursstigum.
36 Kjarni skátastarfs | Skátastarfá Íslandi
37Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi | Kjarni skátastarfs
Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi
Mikilvægi sjálfboðaliðaSkátahreyfingin þarf á fullorðnu fólki að halda til þess að markmiðum hennar verði náð.
„Skátastarf er skemmtilegt ævintýri með skýr uppeldismarkmið.“ Það þarf fjölda fullorðinna
sjálfboðaliða af báðum kynjum til þess að skátastarf fyrir börn, unglinga og ungt fólk geti gengið
upp. Sumir vinna beint með skátunum sem sveitarforingjar og aðstoðarsveitarforingjar og er
ákjósanlegt hlutfall einn fullorðinn fyrir hverja 8-10 skáta. Aðrir vinna að alls konar viðfangsefnum
„baksviðs“ sem nauðsynleg eru til þess að skátastarf blómstri, t.d. stjórnarstörf og margs konar
verkefnastjórnun í skátafélögum og hjá BÍS, störf tengd útgáfu, fræðslu- og fjármálum.
Til að vinna að öðrum verkefnum þarf marga fullorðna sjálfboðaliða, m.a. með margs konar
sérþekkingu um rekstur, kynningarmál, fræðslumál og mannauðsmál. Áætlað er að þörfin fyrir
fullorðna sjálfboðaliða í skátastarf á Íslandi sé einn fullorðinn skáti á móti hverjum þremur starfandi
skátum á aldrinum 7-18 ára. Í löndum þar sem skátastarf er í blóma er hlutfall fullorðinna skáta í
líkingu við þessar tölur.
Eitt sinn skáti, ávallt skáti Einstaklingurinn heldur áfram að vera skáti þótt fullorðinsaldri sé náð. Sumir taka að sér leiðtoga-
störf fyrir skátahreyfinguna til að styðja við uppeldishlutverk hennar með beinni tengingu við börn
eða ungmenni á aldrinum 7-22 ára. Aðrir taka að sér margs konar verkefni sem gagnast og styðja
38 Kjarni skátastarfs | Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi
við skátastarf beint og óbeint – ýmist á vettvangi einstakra skátafélaga, héraðs- eða landssamtaka
skáta eða fyrir Alþjóðasamtök skáta. Enn aðrir skátar starfa á vettvangi fullorðinna skáta, t.d. í
hjálpar- og björgunarsveitum, í skátagildum og svo mætti lengi telja. Og enn aðrir skera á formleg
tengsl við skátahreyfinguna – en halda áfram óformlegu skátastarfi í persónulegu lífi.
„Sjálfboðastarf“ er í orðabókum skilgreint sem eitthvað sem innt er af hendi eða komið af stað af
frjálsum vilja og án þvingunar. Þar sem skátahreyfingin er byggð upp af frjálsri þátttöku samþykkja
sjálfboðaliðar í skátastarfi og ungu skátarnir tilboðið um uppeldismarkmiðin með því að taka þátt
í starfinu af fúsum og frjálsum vilja. Það er hvorki skylda að byrja í skátastarfi eða að halda því
áfram. Skátastarf er ekki eins og skólaganga, sem venjulega er skylda á ákveðnum aldri. Ungt fólk
ákveður sjálft hvenær það gerist skáti og hvenær það hættir í skátastarfi. Sama gildir fyrir fullorðna
sjálfboðaliða.
Bandalag íslenskra skáta hefur markað sér stefnu um fjölgun fullorðinna sjálfboðaliða í skátastarfi,
sem byggist á stefnu alþjóðasamtaka skáta og styðst við rannsóknir í félagsvísindum og reynslu
skátabandalaga í öðrum löndum.
Engin þörf á að hafa verið skáti sem barn eða unglingur Það er alls ekki nauðsynlegt að hafa verið skáti áður en maður gerist fullorðinn sjálfboðaliði í
skátastarfi. Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi þurfa líka, eins og ungu skátarnir, að skilja og
viðurkenna markmið skátahreyfingarinnar, grunngildin og Skátaaðferðina, þar sem hlutverk þeirra
er að vera til staðar, beint eða óbeint, fyrir ungu skátana á þroskaleið þeirra. Þannig verða þeir
„fullorðnir skátar“.
Gilwell-leiðtogaþjálfun BÍS veitir nauðsynlega þekkingu og reynslu og stuðlar að þeim persónulega
þroska sem þarf til að sinna starfinu. Auk þess hefur BÍS gefið út ítarlegar handbækur fyrir
sveitar- og aðstoðarsveitarforingja hvers aldursstigs. Bækurnar eru upphaflega gefnar út af
alþjóðasamtökum skáta (WOSM) – en þýddar og staðfærðar fyrir íslenskar aðstæður.
Fjölgun fullorðinna sjálfboðaliðaEin helsta áskorun allra skátafélaga og skátasveita er að finna nógu marga hæfa fullorðna
sjálfboðaliða. Stundum finnum við þá ekki vegna þess að við leitum innan of þröngs hrings.
Það er gott að víkka sjóndeildarhringinn og leita á nýjum stöðum, til dæmis meðal:
Vina, samstarfsmanna og ættingja. Þeir gætu haft áhuga á skátastarfi í gegnum skátana sem •
þeir þekkja.
Fyrrverandi skátaforingja. •
Foreldra skátanna. •
39Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi | Kjarni skátastarfs
Kennara og annarra sérfræðinga í uppeldisstarfi barna og unglinga. •
Háskólastúdenta, t.d. þeirra sem leggja stund á nám í uppeldisfræði, tómstundafræði eða •
tengdum fögum.
Fólks sem vinnur hjá félags- og samfélagssamtökum, hjá hjálparstofnunum, •
þjónustustofnunum, góðgerðarsamtökum eða fólks sem vinnur við uppeldisstörf.
Starfsmenn félags- og frístundamiðstöðva og frístundaheimila. •
Það þarf að sjálfsögðu að tryggja að einstaklingar sem stunda einelti eða hvers konar ofbeldi komi
aldrei nálægt skátastarfi. Bandalag íslenskra skáta gerir kröfur um að allir fullorðnir sjálfboðaliðar í
skátastarfi (sveitarforingjar og aðrir) gefi skriflegt leyfi til að kanna sakaskrá viðkomandi.
BÍS gefur út viðmið um forvarnir og gott verklag í skátastarfi ásamt viðbragðsáætlun um hvernig
eigi að bregðast við ef eitthvað óeðlilegt kemur upp. BÍS er aðili að Æskulýðsvettvanginum
ásamt UMFÍ, KFUM og K og Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Af hverju velja fullorðnir að taka þátt í skátastarfi?Samkvæmt könnunum er langalgengasta ástæðan fyrir sjálfboðaliðastarfi fullorðinna áhuginn á
að láta gott af sér leiða og taka þátt í að aðstoða börn og ungmenni við að þroskast og takast
á við umhverfið. Vinnuhópar alþjóðasamtaka skáta og BÍS um fullorðna í skátastarfi hafa skilgreint
nokkrar fleiri ástæður:
Náin tengsl, vinskapur og samstaða sem myndast í hópum fullorðinna sem vinna saman.•
Löngun til að hafa jákvæð áhrif á ungt fólk.•
Stuðla að betra samfélagi.•
Kynnast fólki á öllum aldri.•
Hver og einn fær stuðning við að þroska nýja færni í öruggu umhverfi.•
Leiðtogafærni eykst.•
Löngun til að efla stjórnunar- og skipulagshæfileika.•
Í skátastarfi þjálfar hver og einn hæfni í verkefnastjórnun, markaðssetningu, samskiptum og •
fjármálastjórn.
Öll ný hæfni sem einstaklingur þroskar í skátastarfinu nýtist og eykur atvinnumöguleika og •
tækifæri í lífinu.
Drengskaparheit skátaforingja
Ég heiti því að viðurlögðum drengskap
mínum:
að halda í heiðri skátaheitið, skátalög
og landslög í öllu skátastarfi mínu og
gæta heiðurs skátahreyfingarinnar jafnt
í skátastörfum sem öðrum athöfnum.
að rækja af trúmennsku og
samviskusemi öll þau störf ég tek mér
fyrir hendur sem skátaforingi.
að ég hef ekki og mun ekki brjóta gegn
andlegri eða líkamlegri heilsu þeirra
skáta sem mér er treyst fyrir og halda
í einu og öllu trúnað um það sem mér
er treyst fyrir í skátastörfum mínum og
leynt á að fara.
40 Kjarni skátastarfs | Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi
Leiðtogaþjálfun fyrir fullorðna sjálfboðaliða Fullorðnir skátar eru kjölfestan í góðu skátastarfi. Þeir eru ábyrgir fyrir uppeldishlutverki
hreyfingarinnar. Gilwell-leiðtogaþjálfunin er persónuleg vegferð hinna fullorðnu til að halda áfram
að þroskast og eflast í lífi og starfi. Í Gilwell-leiðtogaþjálfun BÍS fá þeir innsýn í hlutverk fullorðinna
í skátastarfi og öðlast þekkingu og færni til að leiða starfið og þar með leggja sitt af mörkum til
betra samfélags. Leiðtogaþjálfunin hjálpar þeim við að takast á við sjálfboðastarfið. Hún gefur
þátttakendum líka tækifæri til að efla leiðtogahæfni sína almennt, en það veitir einstaklingum aukið
sjálfstraust og nýtist bæði beint og óbeint í einka¬ og fjölskyldulífi og á vettvangi atvinnulífsins.
Í hópum fullorðinna í skátastarfi er líka að finna fólk sem gaman er að deila geði við, vaxa með og
þroskast af skemmtilegri glímu við margs konar viðfangsefni sem svo augljóslega gagnast ungu
fólki á þroskaleið þeirra til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir samfélagsþegnar.
Gilwell-leiðtogaþjálfunin er byggð á sömu grundvallarforsendum og samsvarandi þjálfun um allan
heim þar sem skátahreyfingin starfar. Hún á rætur aftur til 1919 þegar fyrsta Gilwell-námskeiðið
var haldið fyrir skátaforingja í Gilwell Park í London. Nafn leiðtogaþjálfunar skátahreyfingarinnar,
Gilwell-leiðtogaþjálfun eða „Wood badge“ tengist alþjóðlegum uppruna og er í samræmi við
samsvarandi þjálfun um allan heim.
Þó að allir sem ljúka Gilwell-leiðtogaþjálfun fái sömu sýn á hugmynda- og aðferðafræði
skátahreyfingarinnar, býðst hverjum og einum að velja um tvær námsleiðir, aðra fyrir þá sem vilja
starfa sem sveitarforingjar eða aðstoðarsveitarforingjar með skátum á aldrinum 7-22 ára og hina
fyrir þá sem hafa áhuga á að vinna skátahreyfingunni gagn með því að vinna ýmis stjórnunarstörf
innan skátafélags eða á sameiginlegum vettvangi skátastarfs, t.d. á vegum skátasambands eða
BÍS. Þessar tvær námsbrautir eru kallaðar sveitarforingjaleið og stjórnunarleið. Þeir sem velja
sveitarforingjaleiðina geta valið sér tiltekið aldursstig til að vinna með, t.d. dreka-, fálka-, drótt-,
rekka- eða róverskáta.
Það er sameiginlegt viðfangsefni allra sem leggja af stað í þá vegferð sem Gilwell-leiðtogaþjálfunin
er, að vaxa og þroskast sem manneskjur í samvinnu við aðra sem eru á sömu leið. Góður leiðtogi er
ekki sá sem stjórnar eða leiðir aðra með skipunum. Góður leiðtogi getur unnið í teymi með öðrum
og laðað fram það besta bæði hjá einstaklingum og hópum – og góður leiðtogi er líka „leiðtogi í
eigin lífi“.
40 Kjarni skátastarfs | Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi
41Fullorðnir sjálfboðaliðar í skátastarfi | Kjarni skátastarfs
Gilwell-grunnþjálfunin samanstendur af fimm „skrefum“
Fyrri hluti• (skref 1 og 2) sem felst í tveimur dagslöngum námskeiðum um starfsgrunn
skáta, markmið og leiðir í skátastarfi. Að loknum fyrri hluta fá þátttakendur Gilwell-hnútinn.
Seinni hluti• (skref 3-5) sem samanstendur af tveimur dagslöngum námskeiðum um
verkefni í skátastarfi, áætlanagerð, skipulagningu skátastarfs eða viðburðastjórnun og einu
helgarnámskeiði um leiðtogafræði þar sem þátttakendur fá m.a. tækifæri til sjálfsmats sem
gagnast við leiðtogastörf bæði í skátastarfi og á öðrum sviðum lífsins. Að loknum seinni
hluta fá þátttakendur Gilwell-einkennin, þ.e. leðureymina með tveimur „skógarperlum“ og
Gilwell-klútinn sem er einkenni alþjóðlegu Gilwell-sveitarinnar.
Stefnt er að því að bjóða námskeið fyrir hvert „skref“ í Gilwell-grunnþjálfuninni að minnsta kosti
fjórum sinnum á ári. Þannig er m.a. reynt að koma til móts við ólíkar þarfir og aðstæður fólks.
Því er beint til þátttakenda að ljúka fyrri hlutanum helst innan sex mánaða og öllum fimm
skrefunum innan 12-18 mánaða. Gert er ráð fyrir að þeir sem ljúka Gilwell-leiðtogaþjálfun og bera
Gilwell-einkennin hafi lokið námskeiði í „fyrstu hjálp“ frá viðurkenndum aðila auk námskeiðs um
„einelti, ofbeldi og barnavernd“. Boðið er upp á raunfærnimat í samráði við þátttakendur.
Unnið er að því í samvinnu við Bandalag ástralskra skáta, að unnt verði að ljúka hluta
þjálfunarinnar í fjarnámi með netnámi (e-learning). Stefnt er að því að sem allra flestir fullorðnir
sjálfboðaliðar í skátastarfi ljúki Gilwell-leiðtogaþjálfun.
Símenntun fyrir fullorðna sjálfboðaliða í skátastarfi
Á vegum Gilwell-skólans er líka boðin framhaldsþjálfun og endurmenntun á ýmsum sviðum sem
að gagni geta komið við ýmis konar leiðtogastörf innan skátahreyfingarinnar og utan. Með því
að ljúka á fullnægjandi hátt nokkrum framhaldsnámskeiðum samkvæmt persónulegri áætlun og
námssamningi fær viðkomandi Gilwell-skáti þriðju og jafnvel fjórðu „skógarperluna“ og þar með
aðild að Gilwell-teyminu sem er ábyrgt fyrir Gilwell-leiðtogaþjálfuninni.
Stefnt er að því að bjóða ekki færri en fjögur framhaldsnámskeið í símenntun sjálfboðaliða á ári og
fleiri ef eftirspurn er nægjanleg eða þörf krefur.
Dæmi um framhaldsámskeið og vinnusmiðjur:
Viðburða- og verkefnastjórnun•
Mannauðstjórnun•
Gæðastjórnun og gæði skátastarfs•
Skipulagning náms og kennslu•
Störf leiðbeinenda, ráðgjafa og •
umræðustjórnenda (lóðsa)
Samskipti og lausn ágreiningsmála•
Starfsgrunnur skáta: •
Reynslunám og skátastarf
Rekstur og rekstraráætlanir•
Fjölmenning í íslensku samfélagi•
Tímastjórnun og persónuleg •
markmiðasetning
Börn og unglingar með sérþarfir•
Einelti, ofbeldi og barnavernd•
Saga og þróun skátastarfs í heila öld•
Skátahreyfingin er aþjóðleg •
friðarhreyfing
42 Kjarni skátastarfs | Upphaf og saga skátastarfs
Upphaf og saga skátastarfs
Sagt er að Baden-Powell hafi verið stofnandi skátahreyfingarinnar. Það er satt best að segja
sögulegur misskilningur. Hinn eiginlegi „stofnandi” skátahreyfingarinnar voru skátarnir sjálfir.
Ótrúlegur fjöldi ungmenna, fyrst í Bretlandi og mjög fljótlega í fjölmörgum öðrum löndum, hreifst af
skrifum Baden-Powells í bókinni Scouting for Boys. Baden-Powell var vissulega örlagavaldurinn,
því að með skrifum sínum, lífssýn og lífsreynslu skapaði hann þann neista sem kveikti bálið,
skátahreyfinguna eins og við þekkjum hana. Útilegan á Brownsea-eyju í ágúst 1907 var ekki beint
„skátaútilega” því hreyfingin var þá ekki enn til sem slík, engin skátalög og ekkert skátaheit.
Þar safnaði Baden-Powell hins vegar saman rúmlega tuttugu strákum með ólíkan félagslegan
bakgrunn í þeim tilgangi að sannreyna kenningar sínar um skipulag og flokkakerfi, umgengni við
náttúruna, virðingu, vináttu, jafnrétti og bræðralag sem uppeldislegt afl til alhliða þroska.
Tilraunin heppnaðist afar vel og Baden-Powell dró af henni mikinn lærdóm. Útilegan á Brownsea-
eyju varð seinna sá atburður sem við miðum upphaf skátahreyfingarinnar við.
Árið eftir tilraunina á Brownsea-eyju og útkomu Scouting for Boys skipulagði Baden-Powell
raunverulega skátaútilegu í Humshaugh í Norður-Englandi þar sem hann kynnti skátahreyfinguna
fyrir umheiminum. Þar með var skátahreyfingin orðin til með eigið skipulag, starfsaðferðir, skátaheit
og skátalög – „Skátaaðferðin“ hafði séð dagsins ljós. Aðalatriðið í huga Baden-Powells var að
virkja drengi – og síðar bæði drengi og stúlkur – sem gerendur í eigin uppeldi þannig að þeir yrðu
sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þátttakendur í samfélaginu. Allt small saman strax í upphafi, eiginleikar
drengjanna, reynsla, sýn og kenningar Baden-Powells virkuðu vel og allir voru reiðubúnir.
Eflaust höfðu einnig áhrif iðnbyltingin, ríkjandi stéttaskipting og annað ástand þjóðfélagsmála.
43Upphaf og saga skátastarfs | Kjarni skátastarfs
Robert Baden-PowellBaden-Powell fæddist 22. febrúar 1857 í London og var nokkrum dögum seinna gefið nafnið
Robert Stephenson Smyth Powell. Hann var sonur Henriettu Grace Smyth og prófessors Baden-
Powell sem voru virt og dugmikið yfirstéttarfólk, en þó ekki efnamikil. Þriggja ára gamall missti
hann föður sinn. Eftir andlát föðurins bætti ástrík og umhyggjusöm móðir hans nafninu Baden við
ættarnafnið til að heiðra minningu manns síns og föður barnanna. Hann bar því eftir það nafnið
Robert Stephenson Smyth Baden-Powell.
Í æsku var Baden-Powell mjög virkur og athafnasamur. Útilíf, útivera og tengsl við náttúru átti hug
hans allan; veiðar, róðrar og náttúruskoðun. Jafnframt var hann listfengur og teiknaði mikið og
varð seinna afar hæfur vatnslitamálari. Hann söng í kórum og spilaði á píanó auk þess sem hann
þótti góður leikari og íhugaði meira að segja um tíma að gerast atvinnuleikari. Hann var líka mikill
íþrótta- og keppnismaður.
Baden-Powell hlaut hefðbundna skólagöngu í stéttskiptu þjóðfélagi eins og tíðkaðist í Englandi
þess tíma. Í stað háskólanáms kaus hann að mennta sig frekar innan breska hersins og þar með
var framtíð hans ráðin. Ferill hans í hernum hófst 1876 og leiddi hann um nýlendur Breta í Indlandi,
Afganistan og Suður-Afríku. Störf hans í hernum voru um margt sérstök og virðast hafa byggt á
eiginleikum þeim sem hann þróaði með sér í æsku og fylgdu honum alla tíð. Baden-Powell var
ekki dæmigerður hermaður, verkefni hans beindust einkum að könnunar- og undanfarastörfum,
landmælingum og kortagerð auk kennslu og þjálfunar. Hann hækkaði smám saman í tign og endaði
feril sinn sem hershöfðingi. Mesta frægð í breska hernum hlaut Baden-Powell fyrir herstjórn sína
í Búastríðinu við frækilega vörn Mafeking, lítillar borgar í Suður-Afríku 1899-1900. Þar varðist
fámenn sveit breska hersins á kænskulegan hátt umsátri margalt fjölmennari hers hollenskra
innflytjenda í Suður-Afríku sem kallaðir voru Búar. Her Búa hraktist undan þegar liðsauki Breta barst
svo eftir 217 daga.
Snemma á hermannsferli sínum kynntist Baden-Powell tveimur merkilegum mönnum sem áttu eftir
að hafa mikil áhrif á hann. Annar þeirra var Ernest Thompson Seton, könnuður, náttúruunnandi
og rithöfundur sem hafði kynnt sér vel menningu og lifnaðarhætti indíána Norður-Ameríku og
bjó um tíma á meðal þeirra í Kanada. Hinn var rithöfundurinn og Nóbelskáldið Rudyard Kipling
sem skrifaði m.a. bókina Dýrheima um „mannshvolpinn“ sem ólst upp með úlfum og fleiri dýrum
í skógum Indlands. Það var yfirmaður og vinur Baden-Powell í hernum, Frederick S. Roberts, sem
stefndi þessum þremur mönnum saman til að þeir gætu kynnst. Líklega sá Frederick að þeir áttu
margt sameiginlegt. Það kom síðar í ljós þegar Baden-Powell sótti hugmyndir fyrir skátastarf í
lífsverk og hugarheim þessara tveggja könnuða og vina sinna, annars vegar í frumbyggjastörf
indíána og hins vegar í Dýrheima Kiplings. Hér er af mörgum talin liggja rótin að táknrænni umgjörð
skátahreyfingarinnar.
Baden-Powell leitaði í smiðju fleiri frumkvöðla og könnuða við mótun hugmyndafræði skáta-
starfsins. Áhrifa samtíðarfólks eins og ítalska uppeldisfræðingsins Mariu Montessori og bandaríska
uppeldisfræðingsins John Dewey gætir mjög víða í skrifum hans og móta á margan hátt þá
hugmynda- og aðferðafræði sem skátastarfið byggir á.
44 Kjarni skátastarfs | Upphaf og saga skátastarfs
Skátahreyfingin verður tilÞegar Baden-Powell kom heim til Englands eftir Búastríðið 1903 var hann þekkt hetja breska
heimsveldisins fyrir frammistöðuna í Mafeking. Flestir strákar þekktu nafn Baden-Powells og dáðust
að afrekum hans. Hann gaf sér góðan tíma og íhugaði stöðu sína. Hermennskan hafði kennt
þessum víðfræga hershöfðingja að einungis með sjálfstæðum, virkum og ábyrgum einstaklingum,
friði og bræðralagi meðal manna og þjóða og virðingu fyrir náttúrunni ætti mannkynið sér
möguleika á að búa saman á þessari jörð til framtíðar. Baden-Powell sá einnig að heilsteypt
samfélag og friður meðal ólíkra þjóða kæmist best á með því að virkja æskufólkið.
Baden Powell var á miðjum aldri árið 1907 en þá fyrst hófst ævistarf hans í þágu uppeldis
og friðar – í þágu skátahreyfingarinnar.
Baden-Powell hafði áður (1899) skrifað fræðslurit um könnunar- og njósnaferðir, Aids to
Scouting, sem hann byggði á reynslu sinni og störfum í hernum. Fljótt kom í ljós að bókin naut
mikilla vinsælda meðal unglinga og kennara. Hann sá að hér var frábær efniviður sem hann gat
unnið betur með og látið þjóna nýju áhugamáli og lífsköllun. Baden-Powell tók því til við skriftir,
viðfangsefnið var að skrifa Scouting for Boys (Könnunarstörf fyrir drengi). Hann tók sér stutt hlé í
ágúst 1907 til að skipuleggja og stjórna útilegunni frægu á Brownsea-eyju sem sagt var frá hér að
framan. Eftir útileguna hélt hann áfram með verkefnið og ritverkið Scouting for Boys varð til.
Í fyrstu kom það út í nokkkrum heftum og kom það fyrsta út 15. janúar 1908 og síðan sex hefti
á tveggja vikna fresti. Þau seldust vel og urðu óhemju vinsæl. Efnið var þá endurskrifað sem
heildstæð bók og kom hún út 1908 í Englandi undir sama nafni. Á Íslandi kom bókin út í íslenskri
þýðingu árið 1949 undir nafninu Skátahreyfingin.
Við þessar aðstæður laust eftir aldamótin 1900 myndaðist jarðvegur fyrir þessa stærstu
uppeldishreyfingu í heimi. Útgáfa Scouting for Boys hlaut óhemju miklar og áður óþekktar
vinsældir. Boðskapur Baden-Powells virtist hitta í mark og drengir um allt Bretland hófu myndun
hópa (skátaflokka) og byrjuðu að starfa samkvæmt leiðbeiningum bókarinnar og þeim gildum sem
þar voru kynnt. Þúsundum og tugþúsundum saman skrifuðu þeir Baden-Powell til að spyrja hann
ráða. Svar hans var: Hópist saman, stofnið flokka, kynnist öðrum skátaflokkum í nágrenninu og fáið
fullorðna sveitarforingja með ykkur. Það er söguleg staðreynd að Baden-Powell hafði ekki sérstaka
skipulags- eða stofnáætlun í huga. Allt spratt upp úr grasrótinni á þessum upphafsárum.
Drengirnir stofnuðu skátaflokka og skátasveitir víðsvegar um landið og mjög fljótlega í öðrum
löndum, þar á meðal á Íslandi árið 1912. Það er ekki hægt að benda á neinn skátaflokk sem fyrsta
skátaflokkinn eða á ákveðna skátasveit sem fyrstu skátasveitina. Skátahreyfingin var stofnuð á
mörgum stöðum í einu af drengjunum sjálfum og litlu síðar líka af fjölda stúlkna sem vildu taka þátt
í ævintýrinu.
Þessi nánast sjálfsprottna hreyfing óx með ótrúlegum hraða og Baden-Powell sá að ekki var um
annað að ræða en að koma á skipulagi og stofna formlegan félagsskap – skátahreyfinguna.
Það gerði hann seint á árinu 1908 og ári seinna voru höfuðstöðvar opnaðar í London.
Vinir Baden-Powells hópuðust strax til starfa með honum og skátahreyfingin reis enn hærra.
Svo fór að skátastarfið hreif á ótrúlega stuttum tíma með sér milljónir drengja og stúlkna, fyrst
í Evrópu og í nýlendum Breta, síðar um allan heim. Hin alþjóðlega skátahreyfing var orðin að
veruleika.
45Upphaf og saga skátastarfs | Kjarni skátastarfs
Það var þó fyrst 1920 að alþjóðahreyfing skáta var formlega stofnuð. Baden-Powell hafði ætlað sér
að kalla saman alþjóðaþing skáta 1918, en það dróst vegna fyrri heimstyrjaldarinnar. Með stofnun
alþjóðahreyfingarinnar var lögð aukin áhersla á hlutverk skátahreyfingarinnar sem alþjóðlegrar
friðarhreyfingar. Þjóðabandalagið (forveri Sameinuðu þjóðanna) var stofnað um sama leyti og
að frumkvæði Baden-Powell urðu mikil tengsl milli þessara tveggja alþjóðlegu stofnana.
Á okkar tímum hefur alþjóðahreyfing skáta mikið formlegt samstarf við stofnanir Sameiðu
þjóðanna. Starfsgrunnur skáta samræmist Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna frá 1989 sem
Alþingi lögfesti 20. febrúar 2013.
Skátahreyfingin um víða veröldSkátahreyfingin er stærsta æskulýðshreyfing í heimi með yfir 40 milljónir skáta sem starfa í tveimur
heimsbandalögum. WOSM er heimsbandalag skáta og er bæði fyrir drengi og stúlkur en WAGGGS
er heimsbandalag kvenskáta og er einungis fyrir stúlkur. Bandalag íslenskra skáta er aðili að báðum
heimsbandalögunum. Ástæða þess að heimsbandalögin eru tvö er eflaust sú að í sumum löndum
heims mega drengir og stúlkur ekki vera í sama félagsskap og þar er þörf fyrir þessa aðgreiningu.
Víðast er þó mjög gott samstarf á milli drengja- og kvenskáta, til dæmis í Evrópu þar sem mörg
skátabandalög eru blönduð eða starfa mjög mikið saman.
WOSM
World Organization of the Scout Movement
Stofnað 1920, höfuðstöðvar eru í dag í Genf og Kúala Lúmpúr•
Vefsíða: www.scout.org•
Um 30 milljónir skáta í um 160 löndum.•
WOSM rekur í dag tvær alþjóðlegar skátamiðstöðvar; Cairo í Egyptalandi og Kandersteg í Swiss.
WAGGGS
World Association of Girl Guides and Girl Scouts
Stofnað 1928, höfuðstöðvar eru í dag í London•
Vefsíða: www.wagggs.org•
Um 10 milljónir kvenskáta í um 145 löndum.•
WAGGGS á fjórar alþjóðlegar skátamiðstöðvar; Our Cabaña í Mexíkó, Our Chalet í Sviss, Sangam í
Indlandi og Pax Lodge í Englandi.
Á hverju ári er fjöldinn allur af skátamótum og viðburðum um heim allan sem skátar geta tekið þátt
í til að komast í samband við skáta og skátaflokka alls staðar að úr heiminum.
Nú starfa yfir 40 milljónir skáta í meira
en 160 löndum í skátahreyfingunni,
stærstu uppeldis- og friðarhreyfingu í
heiminum.
46 Kjarni skátastarfs | Lokaorð
Lokaorð
Þetta rit er skrifað fyrir fullorðið fólk sem hefur áhuga á að kynnast markmiðum skáta-
hreyfingarinnar og því uppeldis- og menntunarstarfi sem felst í skátastarfi.
Markmiðið er að skapa ungu fólki tækifæri til sjálfsnáms og aukinnar samfélagsvitundar – til að
verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir þjóðfélagsþegnar og til að láta gott af sér leiða í nærsamfélagi
sem og í samfélagi mannkynsins í heild. Skátastarf snýst um uppeldi til lýðræðislegrar þátttöku
og sjálfbærrar þróunar. Það eflir raunhæft sjálfsmat einstaklingsins og sjálfstraust – en jafnframt
hæfileika til að vinna með öðrum.
Skátastarf er leiðtogaþjálfun – ekki í þeim skilningi að í skátastarfi séu einstaklingarnir einungis
þjálfaðir til að stjórna öðrum heldur til að vinna með öðrum að settu marki og ekki síst til að verða
leiðtogar í eigin lífi.
47Lokaorð | Kjarni skátastarfs
48 Kjarni skátastarfs | Lokaorð
Ritið Kjarni skátastarfs er skrifað fyrir alla sem hafa áhuga á að kynna sér þá
hugmynda- og aðferðafræði sem skátahreyfingin um víða veröld byggir á.
Efnið á erindi við alla sem hafa áhuga á uppeldi og menntun ungs fólks
og því hvernig lífsleikni og samfélagsvitund getur eflt einstaklinginn
og bætt hvert samfélag.
Skátahreyfingin er uppeldishreyfing sem stefnir að því að hver skáti læri smám
saman, á þroskaferli sínum frá barnsaldri til fullorðinsára að verða sjálfstæður,
virkur og ábyrgur og láta gott af sér leiða í samfélaginu. Skátastarf
eflir raunhæft sjálfsmat og sjálfstraust og snýst um uppeldi til sjálfsnáms,
lýðræðislegrar þátttöku og sjálfbærrar þróunar.
Skátastarf er leiðtogaþjálfun – ekki í þeim skilningi að í skátastarfi séu
einstaklingarnir einungis þjálfaðir til að stjórna öðrum heldur til að vinna með
öðrum að settu marki og ekki síst til að verða leiðtogar í eigin lífi.