ÍsÍ fréttir - janúar 2011
DESCRIPTION
Fréttabréf Íþrótta- og Ólympíusambands ÍslandsTRANSCRIPT
AUKIÐ UPPLÝSINGASTREYMI
ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS 2010
Á dögunum var tilkynnt um kjör á Íþróttamanni ársins 2010. Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem standa fyrir valinu.
Handknattleiksmaðurinn Alexander Petersson varð fyrir valinu og er hann vel að þeim titli kominn. Í öðru sæti var Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnumaður og í því þriðja Íris Mist Magnúsdóttir hópfimleikakona.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands óskar þeim til hamingju með áfangann sem og íþróttamönnum og konum sérsambanda og séríþróttanefnda ÍSÍ sem heiðruð voru þann 5. janúar s.l.
Upplýsingar um þennan glæsilega hóp má finna hér í blaðinu, en upptalning á afrekum íþróttamanna er á heimasíðu ÍSÍ.
ÍÞRÓTTA- OG ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS
JANÚAR 1. TBL. 2011
Ég vona, ágæti lesandi, að þú kunnir að meta þetta formlega fréttabréf Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Ætlun er að senda slíkar samantektir reglulega til aðila sem eiga hagsmuna að gæta eða hafa áhuga á málefnum íþróttahreyfingarinnar, og nýta meðal annars í því skyni alla nútímamiðla.
Er þetta framtak hluti af átaki sem ÍSÍ hefur staðið fyrir til að efla upplýsingastreymi hreyfingarinnar bæði til almennings og aðila innan okkar eigin vébanda, í þeirri von að með því aukist þekking á störfum og málefnum ÍSÍ og sambandsaðila.
Á hverjum einasta degi ársins er nefnilega býsna mikið starf unnið í þessari langstærstu fjöldahreyfingu landsins, en því miður virðist almenn umfjöllun í mörgum tilvikum byggja á misskilningi og skorti á réttum upplýsingum.
Nauðsynlegt er að ímynd íþróttahreyfingarinnar byggist á nægum upplýsingum og þar með réttum forsendum.
Það er okkar hlutverk að bæta úr því. Er það von mín að þetta framtak verði mikilvægur hlekkur í að auka upplýsingastreymi og samskipti innan sem utan hreyfingarinnar.
Allar ábendingar um úrbætur og efnistök munu vissulega verða vel þegnar af okkar starfsfólki.
Ég óska ykkur öllum farsæls íþróttaárs 2011, og hlakka til að eiga við ykkur frekari samskipti.
Ólafur E. Rafnsson,
forseti ÍSÍ
MEÐAL EFNIS:
Íþróttamaður ársins 2010
Íþróttamenn og íþróttakonur
sérsambanda og séríþrótta-nefnda ÍSÍ árið 2010
Dagsetningar almennings-
íþróttaviðburða ÍSÍ 2011
Dagsetningar alþjóðlegra leika
2011
Nýjungar í Felix
SIDE-
ÓLYMPÍUFJÖLSKYLDA ÍSÍ
Hnefaleikakona og hnefaleikamaður ársins eru Arndís Birta Sigursteinsdóttir, Hnefaleikafélagi Reykjavíkur og Adam Freyr Daðason,
Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar.
Íshokkíkona og íshokkímaður
ársins eru Guðrún Kristín Blöndal, Skautafélagi Akureyrar og Jón Benedikt Gíslason, Skautafélagi Akureyrar.
Íþróttakona og íþróttamaður fatlaðra eru Erna Friðriksdóttir,
Hetti og Jón Margeir Sverrisson Ösp/Fjölni.
Júdókona og júdómaður ársins eru Helga Hansdóttir, KA og Þormóður Jónsson, Júdófélagi Reykjavíkur.
Karatekona og karatemaður ársins eru Aðalheiður Rósa Harðardóttir,
Karatefélagi Akraness og Kristján Helgi Carrasco, Umf. Aftureldingu.
Kayakkona og kayakmaður ársins eru Ragna Þórunn Ragnarsdóttir og Ragnar Karl Gústafsson, bæði úr Kayakklúbbnum.
Knapi ársins er Sigurbjörn Bárðarson, Hestamannafélaginu
Fáki.
Krullari ársins er Jens Kristinn Gíslason, Skautafélagi Akureyrar.
ÍÞRÓTTAMENN OG ÍÞRÓTTAKONUR SÉRSAMBANDA OG SÉRÍÞRÓTTANEFNDA ÍSÍ 2010
Alls voru það 64 einstaklingar sem hlutu viðurkenningu frá ÍSÍ fyrir árið 2010. Bikarar eru gefnir af Ólympíufjölskyldu ÍSÍ:
Akstursíþróttamaður ársins er Jón Örn Ingileifsson, Bílaklúbbi Akureyrar.
Badmintonkona og badmintonmaður ársins eru Ragna
Ingólfsdóttir, TBR og Helgi Jóhannesson, TBR.
Blakkona og blakmaður ársins eru Birna Baldursdóttir, KA og Emil Gunnarsson, Stjörnunni.
Borðtenniskona og borðtennismaður ársins eru Lilja Rós Jóhannesdóttir og Guðmundur Eggert Stephensen, bæði úr
Víkingi.
Dansarar ársins eru Sara Rós Jakobsdóttir og Sigurður Már
Atlason úr Dansíþróttafélagi Hafnarfjarðar.
Fimleikakona og fimleikamaður ársins eru Íris Mist Magnúsdóttir og
Dýri Kristjánsson, bæði úr Gerplu.
Frjálsíþróttakona og frjálsíþróttamaður ársins eru Ásdís Hjálmsdóttir, Ármanni og Óðinn Björn Þorsteinsson, FH.
Glímukona og glímumaður ársins
eru Marín Laufey Davíðsdóttir, HSK og Pétur Eyþórsson, Glímufélaginu
Ármanni.
Handknattleikskona og handknattleiksmaður ársins eru Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Val og Alexander Petersson, Fusche
Berlin.
Hjólreiðakona og hjólreiðamaður ársins eru María Ögn Guðmundsdóttir og Helgi Berg Friðþjófsson, bæði úr Hjólreiðafélagi Reykjavíkur.
ÍÞRÓTTAMENN OG ÍÞRÓTTAKONUR SÉRSAMBANDA OG SÉRÍÞRÓTTANEFNDA ÍSÍ 2010
Knattspyrnukona og knattspyrnumaður ársins eru Hólmfríður Magnúsdóttir, Philadelphia Independence og Gylfi Þór Sigurðsson, Hoffenheim.
Kraftlyftingakona og
kraftlyftingamaður ársins eru María Guðsteinsdóttir, Ármanni og Auðunn Jónsson, Breiðabliki.
Körfuknattleikskona og körfuknattleiksmaður ársins eru Helena Sverrisdóttir, TCU College og Jón Arnór Stefánsson, Granada.
Kylfingar ársins eru Tinna
Jóhannsdóttir, Golfklúbbnum Keili og Birgir Leifur Hafþórsson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.
Kvenkeilari og karlkeilari ársins eru
Dagný Edda Þórisdóttir, Keilufélagi
Reykjavíkur og Róbert Dan Sigurðsson, ÍR.
Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttakona og mótorhjóla- og snjósleðaíþróttamaður ársins eru Bryndís Einarsdóttir, Akstursíþróttafélagi Hafnarfjarðar
og Kári Jónsson, VÍK.
1. TBL. 2011
Siglingakona og siglingamaður ársins eru systkinin Hulda og Hilmar Hannesarbörn, Siglingafélagi Reykjavíkur – Brokey.
Skautakona ársins er Heiðbjört Arney Höskuldsdóttir, Skautafélagi Reykjavíkur.
Skíðakona og skíðamaður ársins eru Íris Guðmundsdóttir, Skíðafélagi Akureyrar og Björgvin
Björgvinsson, Skíðafélagi Dalvíkur.
Skotíþróttakona og skotíþróttamaður ársins eru Jórunn Harðardóttir og Ásgeir Sigurgeirsson, bæði úr Skotfélagi Reykjavíkur.
Skylmingakona og skylmingamaður ársins eru Þorbjörg Ágústsdóttir,
Skylmingafélagi Reykjavíkur og Ragnar Ingi Sigurðsson, FH.
Skvasskona og skvassmaður ársins eru Rósa Jónsdóttir, Skvassfélagi
Reykjavíkur og Róbert Fannar Halldórsson, Skvassfélagi Reykjavíkur.
Sundkona og sundmaður ársins eru Hrafnhildur Lúthersdóttir, Sundfélagi Hafnarfjarðar og Jakob Jóhann Sveinsson, Sundfélaginu Ægi.
Taekwondokona og
taekwondomaður ársins eru Ingibjörg Erla Grétarsdóttir, Fjölni og Helgi Rafn Guðmundsson, Keflavík.
Tenniskona og tennismaður ársins eru Sandra Dís Kristjánsdóttir og Arnar Sigurðsson, bæði úr
Tennisfélagi Kópavogs.
Þríþrautarkona og þríþrautarmaður ársins eru Karen Axelsdóttir, Þríþrautarfélagi Reykjavíkur og Steinn Jóhannsson, Sundfélagi Hafnarfjarðar.
Íþróttamiðstöðinni í Laugardal
Engjavegi 6
104 Reykjavík
Sími: 514 4000
Fax: 514 4001
Netfang: [email protected]
ÍÞRÓTTA- OG
ÓLYMPÍUSAMBAND ÍSLANDS Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) varð til við sameiningu
Íþróttasambands Íslands og Ólympíunefndar Íslands árið 1997.
ÍSÍ er landssamband héraðssambanda/íþróttabandalaga og sérsambanda og er einu heildarsamtök íþróttahreyfingarinnar á Íslandi. ÍSÍ er æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi í landinu samkvæmt íþróttalögum.
Félagsmenn í íþróttahreyfingunni eru rúmlega 200 þúsund og fjöldi virkra iðkenda er um 85 þúsund.
ALMENNINGSÍÞRÓTTAVIÐBURÐIR 2011
2.– 22. FEBRÚAR 4.– 24. MAÍ 4. JÚNÍ
BREYTINGAR Í FELIX
Undanfarið hefur verið unnið að breytingum í kerfinu með það að leiðarljósi að auðvelda notendum vinnuna. Helstu nýjungar eru:
• Hægt er að senda tölvupóst á marga hópa í einu.
• Hægt er að senda tölvupóst á foreldra/forráðamenn.
• Hægt er að flytja/afrita athugasemdir milli hópa.
• Hægt er að sjá hvenær einstaklingur var skráður í hóp.
• Búið er að setja númer fyrir framan nöfn á einstaklingum.
• Símanúmer iðkenda birtist nú í klöddum.
• Í fjöldaskráningu er nú hægt að færa inn netföng.
Á heimasíðu ÍSÍ má finna frekari upplýsingar um viðburði ársins 2011,
Íþróttamenn og konur ársins 2010 og fjölmargt annað um íþróttir á Íslandi.
www.isi.is
ALÞJÓÐLEGIR LEIKAR 2011
VETRARÓLYMPÍUHÁTÍÐ
12.– 19. FEBRÚAR
SMÁÞJÓÐALEIKAR
30. MAÍ – 4. JÚNÍ
ÓLYMPÍUHÁTÍÐ
24.– 29. JÚLÍ
<< MYND MÁNAÐARINS
Þátttakendur Íslands á Vetrarólympíuleikunum í St. Moritz 1948. Leikarnir fóru fram dagana 30. janúar til 8. febrúar og voru fyrstu Vetrarólympíuleikarnir sem Ísland tók þátt í.
Frá vinstri: Einar B. Pálsson aðalfararstjóri, Hermann Stefáns-son þjálfari, Þórir Jónsson, Guðmundur Guðmundsson, Jónas Ásgeirsson og Magnús Brynjólfsson.
AFMÆLISDAGAR
27. janúar
LSÍ — stofnað 1973, 38 ára
28. janúar
ÍSÍ — stofnað 1912, 99 ára
JSÍ — stofnað 1973, 38 ára
29. janúar
KKÍ — stofnað 1961, 50 ára
ÍSÍ fréttir ● 1. tbl. 2010 ● Ábyrgðarmaður: Ólafur E. Rafnsson ● Ritstjóri: Andri Stefánsson ● Myndir: Arnaldur Halldórsson o.fl.