heimsstyrjöldin fyrri
DESCRIPTION
Heimsstyrjöldin fyrri. Aðdragandi. Þjóðernishyggja 19. aldar. Þýskaland sameinast (1871) undir forystu Prússa Frakkland og Austurríki töldu sér ógnað Prússar (Bismarck) í stríð gegn þeim og Dönum til að ná undir sig héruðum sem hann vildi fá í hið sameinaða Þýskaland - PowerPoint PPT PresentationTRANSCRIPT
![Page 1: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/1.jpg)
Heimsstyrjöldin fyrri
Aðdragandi
![Page 2: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/2.jpg)
Þjóðernishyggja 19. aldar
• Þýskaland sameinast (1871) undir forystu Prússa
• Frakkland og Austurríki töldu sér ógnað– Prússar (Bismarck) í stríð gegn þeim og Dönum til að
ná undir sig héruðum sem hann vildi fá í hið sameinaða Þýskaland
• Frakkar biðu auðmýkjandi ósigur– þurftu að láta Elsass og Lothringen héruðin af hendi
• Þýska keisaradæmið stofnað í framhaldi
![Page 3: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/3.jpg)
Þýska keisaradæmið
• Vilhjálmur Prússakonungur valinn keisari• Bismarck varð ríkiskanslari (forsætisráðherra)
• Þjóðverjar stoltir af því að þýski stórveldisdraumurinn var orðinn að veruleika
• Þjóðverjar vildu fá hlut í nýlenduauði annarra Evrópuríkja og tóku nú aukinn þátt í kapphlaupinu um nýlendur
![Page 4: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/4.jpg)
Hernaðarkapphlaup fyrir 1914
• Evrópuveldin kepptu um nýlenduyfirráð, markaði og völd á alþjóðavettvangi
• Hervæðing og hernaðarhyggja
• Frakkar í hefndarhug eftir tap Elsass og Lothringen
• Tyrkjaveldi í upplausn – höfðu ekki sinnt lýðræðisþróun og iðnvæðingu líkt og Evrópuríkin
![Page 5: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/5.jpg)
![Page 6: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/6.jpg)
![Page 7: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/7.jpg)
• Rússland og Austurríska keisaradæmið reyndu að ná völdum á Balkanskaga í stað Tyrkja sem voru að tapa ítökum sínum þar
• Eitt Balkanskagaríkið hafði stóra drauma líka...– Serbar vildu stofna stórríki Serba á skaganum– Margir serbar, slóvenar, múslimar og króatar bjuggu
innan landamæra Austurríska keisaradæmisins
• Evrópuveldin lengdu herskyldu og juku útgjöld til hergagnaframleiðslu
• Iðnvædd samfélög gátu framleitt mikið magn vopna
• Heræfingar og sýningar eins og um þjóðhátíð væri að ræða
![Page 8: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/8.jpg)
• Stjórnvöld Evrópuríkjanna gerðu sér grein fyrir kostum ágengrar þjóðernis og hernaðarhyggju:– skyggja á vandamál heima fyrir svo sem
fátækt og takmarkanir á lýðræði
• Í nýstofnuðu Þýskalandi var áherslan á hernað gífurleg– 1% þjóðarinnar var í senn undir vopnum– herskylda í 2-3 ár hið minnsta
• Ítalir reyndu að fylgja í fótspor Þjóðverja– 5 ára herskylda
![Page 9: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/9.jpg)
• Bretland og Bandaríkin einu löndin sem ekki komu á herskyldu
• Áróður þjóðernissinna gífurlegur– áróður í skólum og í dagblöðum sem fengu nú
aukna útbreiðslu vegna aukins læsis• Frakkar hafa verið í fararbroddi menningarþjóða og vísað öðrum veginn.
Það felst enginn oflátungsháttur í að segja að aðrir hafi litið á þjóðina sem menninguna holdi klædda. (...) Á öldum áður voru Frakkar nefndir hermenn guðs; hvað sem því líður tilheyra þeir framvarðarsveit mannkyns. (...)Frakkar eru fremstir Evrópuþjóða og þeirra bíður glæstari framtíð en nokkurra annarra í álfunni.
• Herinn og flotinn bera Þýskaland tryggilega uppi ekki síður en Atlas heiminn í fornöld. Þýskaland er frjálst og voldugt og mun standa um aldur og ævi. Megi það dafna í friði og farsæld undir stjórn Vilhjálms 2. og verða sigursælt ef til stríðs kemur (...) Lokaátökin um heimsyfirráðin standa nú fyrir dyrum. Enn er ekki ljóst hvort úrslitin ráðast í friðsamlegri samkeppni eða vopnin verða látin tala. Hvernig sem fer má enginn liggja á liði sínu; hverja taug þarf að þenja til hins ítrasta og berjast þarft til síðasta blóðdropa...
![Page 10: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/10.jpg)
Morð aldarinnar• 28. júní 1914 var Franz Ferdinand ríkiserfingi
austurríska keisaradæmisins skotinn þegar hann ók um götur Sarajevo.
• Ungur Bosníu-Serbi vildi grafa undan veldi
Austurríkismanna.
![Page 11: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/11.jpg)
Heimsstyrjöldin fyrri hefst
• Herskáir stjórnmálamenn og hershöfðingjar í Austurríska keisaradæminu voru fljótir að skella skuldinni á Serbíustjórn
• Sáu tækifæri til að þagga niður í Serbum og sjálfstæðiskröfum slavnesku þjóðanna á Balkanskaga
• Mánuði eftir morðið örlagaríka lýsti Austurríki-Ungverjaland yfir stríði á hendur Serbíu
![Page 12: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/12.jpg)
Ný hertækni
• Ný hertækni: jarðsprengjur, tundurdufl, risafallbyssur, eiturgas, flugvélar, kafbátar og skriðdrekar.
• Skotgrafahernaður einkennandi
• Konur gengu í margvísleg störf karlmanna s.s. í verksmiðjum
![Page 14: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/14.jpg)
Enskir hermenn á leið í stríð með bros á vör
![Page 15: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/15.jpg)
Þýskir hermenn á leið í stríð með bros á vör
![Page 16: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/16.jpg)
Ofurstar ganga um í drullu og bleytu í skotgröfum
![Page 17: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/17.jpg)
Uppdráttur af skotgröf
Stuttur myndbútur frá skotgrafhernaði í Heimsstyrjöldinni fyrri
![Page 18: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/18.jpg)
• Miðveldin:Miðveldin: Þýskaland, Austurríki-Ungverjaland (Austurríska keisaradæmið), Tyrkjaveldi og Búlgaría.
• BandamennBandamenn: Bretar, Frakkar, Rússar, Belgar, Serbar o.f.l Þjóðir á Balkanskaga, síðar Ítalir, Bandaríkin, Ástralía og Kanada. Japanir o.fl. studdu einnig Bandamenn
• Það sem Bandamenn höfðu fram yfir Miðveldin:– Meiri efnahagsmáttur
– Fleiri hermenn undir vopnum
– Yfirburðir á heimshöfum
– Yfirburðir í öðrum heimsálfum (nýlendur)
![Page 19: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/19.jpg)
•Þegar Þjóðverjar hófu að beita kafbátum af fullum þunga hófu Bandaríkjamenn þátttöku í stríðinu (vorið 1917) Hvers vegna?
•Bandamenn unnu sigur og samið var um vopnahlé þann 11. 11. Kl. 11 árið 1918.
•Eftir fjögurra ára stríð:• Um 10 milljónir hermanna létust• Helmingi fleiri voru særðir
•Barist var á Vesturvígstöðvum, Austurvígstöðvum, Suðurvígstöðvum, Mið-Austurlöndum, Afríku og á hafi
![Page 20: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/20.jpg)
• Bandaríkin verða mesta efnahagsveldi heims– Mikil eftirspurn eftir bandarískum vörum í
heimsstyrjöldinni fyrri því í Evrópu var lítið annað framleitt en hergögn
• Versalasamningarnir– Dæmi um það hvernig ekki á að semja um frið!
– Buðu upp á áframhaldandi óánægju og hatur milli þjóða sem leiddi til Heimsstyrjaldarinnar Síðari
• Heimsstyrjöldin fyrri plægði akur fyrir kommúnisma, fasisma og nasisma
![Page 21: Heimsstyrjöldin fyrri](https://reader036.vdocuments.site/reader036/viewer/2022081417/56814f84550346895dbd3af9/html5/thumbnails/21.jpg)
• Austurríski keisarinn hrökklaðist frá völdum í byrjun nóvember 1918. Ríkið skiptist upp í fjögur ríki: Austurríki, Ungverjaland, Tékkóslóvakíu og Pólland
• Keisaranum (Zarinn) í Rússlandi var steypt af stóli 1917 og bolsévikar tóku völdin -
• Konungdæmi Serba, Króata og Slóvena stofnað sem varð síðar að Júgóslavíu
• Bretar og Frakkar fengu yfirráð yfir löndum araba í Austurlöndum nær
• Finnland hlaut sjálfstæði frá Rússum sem og Eystrasaltslöndin