“a supertrip to iceland”
DESCRIPTION
“A supertrip to Iceland”. Þorsteinn Ingi Sigfússon Forstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Eftirfarandi. Er dæmisaga þar sem nöfn, persónur og félög eiga ekki endilega stoð í raunveruleikanum - PowerPoint PPT PresentationTRANSCRIPT
“A supertrip to Iceland”
Þorsteinn Ingi SigfússonForstjóri Nýsköpunarmiðstöðvar
Íslands
Eftirfarandi
• Er dæmisaga þar sem nöfn, persónur og félög eiga ekki endilega stoð í raunveruleikanum
• Dæmisögunni er ætlað beint og óbeint að flytja margs konar boðskap um þróun íslenskrar ferðaþjónustu, frá stöðnun til nýsköpunar....
TEMA: Hvernig gæti íslensk ferðaþjónusta litið út árið 2020?
• Við skulum fylgjast með ferð Rychman fjölskyldunnar frá Winnipeg í Kanada
til Íslands árið 2020 og hafa til hliðsjónar póstkort af ferð
Rychman senior hingað til lands fjörtíu árum fyrr..1980..Gamla amman frú Rychman er með í ferðinni og rifjar upp gamla tíma...
Póstkort til afa og ömmu Rychman
Báðar ferðir hófust með flugi til Íslands
• Sú yngri fór í einu flugi sumarið 2020 frá Winnipeg beint til Akureyrar
• Sú eldri hafði farið með alls fjórum flugum og loksins lent í Keflavík sumarið 1980
Í ferðinni 1980 var lent í Keflavík klukkan 04:30
• Siðan ekið til Reykjavíkur með rútu sem kom við á leiðinni í Njarðvíkum, Vogum, Hafnarfirði og Kópavogi.
• Grafarhljóð var í rútunni, nema hvað
• Klukkan 06:00 var útvarpað veðurfregnum í útvarpi rútunnar.
Í ferðinni 2020 var tekið á móti gestunum á Akureyrarflugvelli klukkan 1630 með
blómsveigum – gleym-mér-eium
Á Akureyri var gist á Hótel Davíð Stefánsson frá Fagraskógi
• Persónulega tileinkuð herbergi• Kvöldsúkkulaði• Þrívíddarsjónvarp með plani um ferðina• Ljóðalestur• Nightcap
• ZZZ
Þá rifjaðist upp að
• Hótelið í ferðinni 1980 var á lofti iðnaðarhúsnæðis í Kópavogi með útsýni yfir vöruplan
• (Reyndar hrósuðu allir pulsunum í sjoppunni við strætóskýlið á Smiðjuvegi)
Fyrsta daginn við Eyjafjörð var farið í hátæknivædda skoðunarferð yfir Vaðlaheiði
• Svo var farið um litlu kafbrúna undir Goðafossi þar sem hægt er að sjá goðalíkneskin úr Íslandssögunni í heilmynd....
• Þaðan farið í Ásbyrgi þar sem nýja og ósýnilega hljóðkerfið var notað til þess að segja sköpunarsöguna í tónum og tali....
Það rifjaðist þá upp
Að hópurinn 1980 sá reyndar bíómynd um gosið í Heklu 1947. Falleg mynd, hljóðlaus að vísu, en raunsæ frásögn af baráttu þjóðar við náttúruöflin.
• Gaman að sjá íslenska leikara spreyta sig í leikbúningum frá Leikfélaginu á staðnum.
Kvöldið var spennandi
• Nýtt Onzen – bað í japönskum stíl sem búið er að byggja norðan við Húsavík var heimsótt
• Þar er hægt að baða sig í laugum með ýmis steinefni – ísúr og basísk
• Sumir segja að súru böðin á Húsavík nái að hreinsa þungmálma úr líkamanum!
Það rifjaðist upp
• Að hópurinn 1980 fékk hið nýja svokallaða “tourist menu” að borða á veitingastofu hótelsins við mjög vægu gjaldi
Eftir ljúft kvöld var farið í háttinn því daginn eftir beið
• Hvalaskoðunarferð með köfun og veiðum á rauðátu sem var löðuð að með leysiljósi
• Um kvöldið var samkeppni um bestu ljósmyndina úr ferðinni
Daginn eftir var heill dagur
• Í vatnagarðinum við Húsavík/Mývatn• Hægt var að heimsækja “Galaxy Class” ræktina• Og slappa af á barnum sem helgaður er
Náttfara landnámsmanni
Það rifjaðist þá upp að
• Í ferðinni 1980 var boðið upp á bjórlíki – vodka sem blandað var við venjulegan pilsner – heilmikla nýsköpun þess tíma
• Heilt kvöld með bjórlíki og dansi fram á rauða nótt.
Svo var farið af stað inn að jökulrótum
• Um Öskju og inn í Kverkfjöll – að hluta til í þyrlum upp á jökulinn
• Og loks gist á hótelinu sem búið er að gera inni í Vatnajökli
• Gönguskíði• Svigskíði
Daginn eftir
• Var ýmis konar fróðleikur um jörðina, jarðhitann, eldgos og neðansjávarhryggi
• Og um kvöldið konsert þar sem kynnt var fusion tónlist og farið frá Jóni Leifs til Bjarkar, Atla Heimis, Gunna Þórðar og Lay Low
Það rifjaðist reyndar upp
• Að bjórlíkið hafði farið misvel í menn og dagurinn eftir ballið fór í hvíld og endurhæfingu
• Eiginlega missti hópurinn úr einn dag
Svo kom íslenskt slagveður uppi á jöklinum
• Slagveður er bara hluti af upplifuninni
• Þá hentaði vel að fara í Landnemasetrið í Vatnajökulsþjóðgarði þar sem hægt var að leika landnema – skrýðast klæðum þess tíma og lifa sig inn í heim fyrri alda
• Gott var að geta hreiðrað um sig í þægilegum sófum innan dyra í jöklinum; horfa út og sötra vískí, framleitt úr íslensku byggi .....
Eins gott að ferðabæklingurinn innihélt íslenskt slagveður sem gæði!
If you do not like the weather in Iceland – just wait five minutes!
Þá rifjaðist upp
• Að hópurinn 1980 hafði staðið af sér slagveður með því að heimsækja safn allra ársskýrslna Kaupfélags Dalfjarðar og skoðað skinnbrókasafnið í Víkurfirði
Einn daginn var skipt í fjögur lið
• Gönguhópur kleif Jökultind• Ísklifurhópur seig niður í Jökulgliðru• Vísindahópur skoðaði hraun sem runnið hafði
undir jökli.• Letihópur chillaði við hlaðið heima
Um kvöldið var áttatíu rétta sushi-hlaðborð úr íslensku hráefni
Nammi - namm
Þá rifjaðist upp
• Að það góða við að fara frá Reykjavíkursvæðinu norður á land 1980 var það helst að pulsurnar í sjoppunum breyttust úr SS í Goða; - töluverður bragðmunur
• Og samlokurnar í sjoppunum breyttu líka um gerð... Alls staðar var hægt að fá sósu og salat
Lengi lifi íslensku árstíðirnar!
• Sumardagarnir eru svo langir að sólarhringurinn getur virkað eins og tveir fyrir
einn!
• Íslenska veturinn þarf að fylla með menningarvitum – innra og ytra ljósi!
Ferðin 2020 var afar fjölbreytt hún bauð upp á:
• Náttúruupplifun• Heilsuferðaþjónustu• Matarupplifun• Söguskoðun• Jöklaskoðun• Hvalaskoðun• Tónlist og menningu• Þjónustu á háu stigi• Óvissu – stýrða óvissu• Afslöppun• Næði
Íslensk ferðaþjónusta tekur stöðugum framförum:ÞESS VEGNA KEMUR KANADÍSKA FJÖLSKYLDAN HINGAÐ AFTUR
• Gæði í ferðaþjónustu aukast hratt• Ferðaþjónustan speglar okkur sem þjóð
• RYCHMAN FJÖLSKYLDAN Í SÖGUNNI OKKAR MUN ÖRUGGLEGA MÆLA MEÐ FERÐ TIL ÍSLANDS – “A SUPERTRIP TO ICELAND”!
IMPRA á Nýsköpunarmiðstöð
• Gleðst yfir því að fá að taka þátt í verkefnum með íslensku ferðaþjónustunni.
• Ég vil byrja á því að þakka hinu ágæta samstarfsfólki mínu fyrir að leggja sig fram við að bæta þessa mikilvægu grein.
• Einnig ykkur, ferðaþjónustuaðilar, fyrir samstarfið.
Sprenging hjá Impru/Nýsköpunarmiðstöð
Fjölgun ferðatengdra verkefna og fyrirtækja 2000-2008
Íslensk ferðaþjónusta:
Þið eruð á réttri leið!
Takk fyrir
Þakkir fá hinir fjölmörgu starfsmenn IMPRU á Nýsköpunarmiðstöð Íslands fyrir árvekni og dugnað við handleiðslu og aðstoð við ferðaþjónustuverkefni víða um landið...Þakkir fá ferðamálafrömuðir um allt land fyrir samvinnuna...